Fréttablaðið - 15.01.2005, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 15. janúar 2005
Verð kr. 39,900.-
Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd
Sími: 894-2737
www.ovs.is
Vinnuvélanámskeið
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Tímaritið Bílar & Sport kom
út í byrjun mánaðarins. Út-
gáfufyrirtækið Alurt ehf.
stendur fyrir útgáfu blaðsins
en það er Haukur Guðjónsson
sem ritstýrir því.
„Blaðið fæst í öllum bókavöruversl-
unum og bensínstöðvum þannig að
sem flestir ættu að geta nálgast
það. Satt best að segja er ég mjög
hissa yfir þeim góðu við-
tökum sem blaðið hefur fengið því
oft er erfitt að koma tímaritum á
laggirnar. Bílar & Sport hefur selst
vel og margir hafa hringt inn og
beðið um áskrift. Það eru líka
geysilega margir sem hafa stöðvað
mig úti á götu og lýst yfir ánægju
sinni því svona blað hafi vantað í
tímaritaflóruna,“ segir Haukur að
vonum stoltur með fyrsta tölublað
tímaritsins.
„Þetta er mánaðarrit og eigin-
lega eina íslenska bílablaðið. Við
tökum á öllu því sem flokkast sem
mótorsport. Við fjöllum um nýja og
breytta bíla, kíkjum á fornbíla,
mótorhjól, jeppa, flugvélar og jafn-
vel fjarstýrða bíla og flugvélar sem
er orðið mjög vinsælt sport. Þetta
er afskaplega yfirgripsmikið blað
og við leggjum mikla áherslu á
myndræna þáttinn. Góðar myndir
eru mjög mikilvægar og við viljum
sýna lesendum öll smáatriði þegar
við erum að kynna bíla og
tækninýjungar. Það hefur einmitt
oft vantað góðar myndir í sams
konar bílablöð en hjá okkur fá
lesendur allan pakkann,“ segir
Haukur sem er mjög metnaðar-
fullur í því sem hann gerir. „Þórður
Freyr Sigurðsson, eigandi Alurt,
hafði samband við mig og bað mig
um að ritstýra blaðinu. Að vonum
var ég mjög ánægður þar sem ég
hafði látið mig dreyma um að gera
svona tímarit því það vantaði tví-
mælalaust á Íslandi. Ég hef líka
rosalega gaman að bílum og mjög
sterkar skoðanir á því sem ég vil
sjá í blaðinu. Eitt af því sem ég er
að leggja lokahönd á og mun eflaust
verða fastur liður í framtíðarblöð-
um er kennsla um ýmislegt. Allt frá
því að skipta um kerti í bílnum og
upp í flóknari hluti. Ég vil kenna
fólki á öllum stigum, hvort sem það
eru byrjendur eða lengra komnir.“
En er blaðið ekki bara fyrir
harða bílaáhugamenn? „Nei, ég
held ekki. Það er rosalega fjöl-
breytt og ég held að allir gætu haft
gagn og gaman að. Ég á meira að
segja nokkra félaga sem hafa ekki
gaman að bílum en finnst blaðið
gott og skemmtilegt. Ég er að
minnsta kosti mjög bjartsýnn á
framhaldið,“ segir Haukur.
Bílar & Sport kostar 895 krónur
í lausasölu.
lilja@frettabladid.is
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar.
Með loftlaus dekk... viljandi
Jeppafólk og aðrir útivistarfíklar fengu ánægjulega jólagjöf í desem-
ber sem enn er í notkun: Snjó. Um leið og hálendið fölnar fyllist það
af fólki sem finnst í góðu lagi að hossast svolítið og verða kalt á nebb-
anum. Þeir sem eiga jeppa fara ef til vill í skála í námunda við helli
jólasveinanna, elda þar læri og segja sögur fram á nótt.
Í slíkum ferðum heyrast oft setningar eins og: „Ég ætla að hleypa
meira úr“ og: „Ég er í þremur pundum, svíf yfir þetta“. Þá er verið að
vitna til loftþrýstings í dekkjunum. Með því að hleypa lofti úr þeim
eykst það flatarmál sem snertir jörðu og með því fæst tvöfaldur
ágóði: Annars vegar eykst veggrip til muna og hinsvegar dreifist
þyngd bílsins á stærri flöt. Þannig getur jeppi á stórum dekkjum
stigið léttar til jarðar en fótgangandi maður ef hleypt er vel úr. Þá
grefur hann sig síður niður í snjó og flýtur frekar ofan á honum.
Flestir jeppamenn og -konur hafa 18-25 pund í dekkjunum alla
jafna (eftir stærð dekkja og þyngd bíls) og fara gjarnan í 8-13 pund á
malarvegum og 2-3 pund (og jafnvel neðar) ef færi er orðið mjög
þungt í snjó. Þá er rétt að hafa eftirfarandi í huga:
Lin dekk hitna meira. Gúmmíið í dekkjunum krumpast í sífellu og
sé ekið á miklum hraða í einhvern tíma getur hitinn skemmt dekkin.
Lin dekk eru viðkvæmari fyrir oddhvössu grjóti og hrauni. Hlið
dekksins stendur orðið út fyrir sólann og kemst frekar í snertingu við
undirlagið. Hún gatast frekar en sólinn og því þarf að fylgjast vel með
veggrjóti.
Lin dekk hrökkva frekar af felgunni. Sérstaklega er hætt við af-
felgun í hliðarhalla.
Á linum dekkjum er okkur líka hættara við að beygla felgur ef við
rekumst á stóra steina.
Síðast en ekki síst ber alltaf að hafa í huga að hreyfingar bílsins
breytast ef dekkin eru lin. Fjöðrunin er öðruvísi þar sem dekkin gefa
meira eftir en áður og svörunin frá stýri og út í hjól verður öðruvísi
og umtalsvert seinni.
Farið því varlega ef þið eruð að leika ykkur í snjónum eða mýkja
bílinn á malarvegi. Munið líka að hleypa aldrei úr nema þið hafið loft-
dælu og viðgerðarsett fyrir dekkin með í för.
Myndrænt og yfirgripsmikið bílablað
Haukur ritstýrir Bílum & Sporti en
hann er mjög metnaðarfullur í sínu
starfi og hefur geysilegan áhuga á
farartækjum af hverju tagi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T