Fréttablaðið - 15.01.2005, Side 30
Kynlíf verður æ fyrirferðar-meira í nútíma skemmt-anaiðnaði. Hvort sem
menn leita afþreyingar í kvik-
myndum, sjónvarpi, tónlistar-
myndböndum, tímaritum, leikhús-
um eða tölvunni heima, er alls
staðar reynt að höfða til neytend-
ans með beru holdi og vafasömum
kynlífstilburðum.
Íþróttaiðnaðurinn er síst und-
anskilinn þessum áróðri því heil-
síðuauglýsingar og heimasíður
með hálfberum íþróttamönnum
hafa náð góðri fótfestu í fjölmiðla-
menningu nútímans. Kynlíf hefur
fylgt tölvuleikjum frá upphafi og
nú, með enn betri tækni, er auð-
veldasti hlutur í heimi að full-
nægja einni af frumhvötum
mannskepnunnar með sýndar-
veruleika.
Kubbalegt sex
Þegar tölvuleikir komu fyrst á
markað var vélbúnaður til að
keyra leikina og svo kunnáttan að
búa þá til af skornum skammti.
Það stoppaði samt ekki frum-
kvöðla leikjaiðnaðarins að bjóða
upp á kynlífstilburði í leikjum. Þó
svo að grafíkin væri eins og sam-
ansettir legokubbar, sem frekar
líktust karakterum úr leikjum í
stað raunverulegra manneskja,
gerði innihaldið leikina afar um-
deilda. Margir álitu sem svo að
tölvunördar væru einna helst að
setja kynlíf í leiki sína til að þjóna
eigin kynhvöt, en veruleikinn
sýndi að markaðurinn fúlsaði ekki
við leikjum sem þessum og tók
kynlífstilburðum í tölvuleikjum
opnum örmum.
Kynlífsleikir fyrir karla
Í tölvuleiknum Custers Revenge,
sem var einn af fyrstu klámtölvu-
leikjunum, er markmið leik-
mannsins að stjórna Custer hers-
höfðingja, forða honum frá fljúg-
andi indíánaörvum, og nauðga
indíánastúlkum sem eru fastar
við tréstólpa. Leikur þessi olli
miklu fjaðrafoki meðal frum-
byggja í Bandaríkjunum þar sem
fyrirlitning gagnvart þeim þótti
algjör og fáar verslanir vildu
selja leikinn.
Strip Poker rataði snemma í
heimilistölvur og veitti þúsundum
tölvunotenda ánægju þegar mis-
fallegar meyjar fækkuðu fötum
ef góð spil féllu í hendi spilarans.
Einn sá vinsælasti var Samantha
Fox Strip Poker en margir muna
eftir hinni brjóstgóðu söngstjörnu
frá níunda áratugnum þar sem
hún prýddi plaköt og dagatöl ber-
brjósta. Macintosh-tölvan hafði
svo á sínum snærum forritið
MacPlaymate þar sem kvenkyns
tölvukarakter lá og stundi munúð-
arlega meðan spilarinn gældi við
hana með músinni og öðrum til-
tækum hjálpartækjum.
Game Over
Þar sem meirihluti tölvunotenda á
þessum bernskuárum tölvunnar
voru karlmenn, var ekki gert ráð
fyrir karlkyns útgáfu af MacPlay-
mate. Skömmu seinna birtist
Larry Lafater, tölvuleikjafígúra
með aðeins eitt takmark; að fá sér
á broddinn. Táningspiltar hópum
saman og um allan heim urðu
samferða Larry í krossferðinni og
lærðu snemma í leiknum að noti
maður ekki smokk er allt eins víst
að maður verði kynsjúkdómum að
bráð. Umræddur Larry fór á
kvennafar í alls sjö leikjum frá
1987 til 1996, og enn er Larry kall-
inn kominn á kreik í nýjum kyn-
lífsævintýraleik: Leisure Suit
Larry Magna Cum Laude.
Hlutverkaleikir hafa ávallt
verið vinsælir en fengu nýtt líf í
tölvuheiminum snemma á níunda
áratugnum. Ultima-leikirnir stóðu
upp úr hinni ljósbláu tegund
tölvuleikja og voru merkilegir
fyrir þær sakir að spilaranum
gafst kostur á sælustund með
báðum kynjum á baðstofu í bæn-
um Buccaneer's Den í landinu
Britannia. Samkynhneigðir eign-
uðust þar með sinn fyrsta kynlífs-
leik.
Nokkrum árum síðar kom á
markað fyrsti lesbíu-tölvuleikur-
inn Fear Effect 2: Retro Helix. En
síðan allir þessir leikir komu á
markað hafa fáir gert eins mikinn
usla og Grand Theft Auto-serían
þar sem ofbeldi og kynlíf helst
hressilega í hendur.
Skaðleg áhrif
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar
á áhrifum kynlífs í tölvuleikjum á
fólk. Skiptar skoðanir eru á því
hvort tölvuleikir hafi áhrif en
margir vilja meina að saklaus
ungmenni séu berskjölduð fyrir
áhrifum þeirra. Máli sínu til
stuðnings benda þeir á að ofbeldi í
tölvuleikjum geti hafi áhrif á
spilarana. Má þar meðal annars
nefna mál sem kom upp í Banda-
ríkjunum fyrir skömmu þar sem
tólf ára drengur myrti besta vin
sinn og jafnaldra á hrottalegan
hátt – á sama hátt og hann hafði
gert í tölvuleik.
Í velflestum tölvuleikjum fær
spilarinn þó hvorki að sjá né
stjórna kynlífsverknaðinum í
hverslags mynd sem hann birtist.
Oftast líkjast ástaratlot í tölvu-
leikjum mildum ástarsenum í
kvikmyndum – ritskoðað og að því
virðist saklaust. Í einstaka leikj-
um er þó hægt að stjórna ferðinni
og þá er hægt að fara vel yfir öll
velsæmismörk.
Þrátt fyrir ljósblátt innihald
eru leikir með kynlífstilburðum
ávallt bannaðir börnum og því á
valdi foreldra og endursöluaðila
að gæta þess að börn komist ekki
í þann efnivið.
Soralifnaður á netinu
Frá upphafi var klámiðnaðurinn
fljótur að tileinka sér dreifingu
efnis á netinu og því í góðri að-
stöðu til að metta markaðinn með
nýjum leiðum. Netið auðveldar
fólki að tengjast öðrum manneskj-
um. Þannig virkar til dæmis ís-
lenski tölvuleikurinn Eve Online
þar sem þúsundir spilara tengjast
einum heimi og spila saman á
netinu.
Gott dæmi um kynlífsforrit
þar sem fólk hvarvetna í heimin-
um tekur þátt er Red Light
District. Fólk í leit að kynlífi get-
ur þannig tengst netinu og komist
í samband við raunverulegt fólk,
annað hvort í netspjalli með hljóði
og mynd, eða þá hreinlega með
raunverulegu stefnumóti.
Áhugi fyrir þess háttar starf-
semi fer vaxandi og nú framleiða
æ fleiri fyrirtæki efni sem
inniheldur sýndarveruleikakynlíf.
Vefmyndavélar og heyrnartól
með hljóðnema eru tól sem nýtast
í tölvuklámiðnaðinum.
Þá hafa samfaraforrit verið að
sækja á brattann með góðri mark-
aðshlutdeild en þar stýrir notand-
inn þrívíddarkarakter í samförum
við föngulegar meyjar. Sumir
hafa kallað þessa leiki kennslufor-
rit í unaðsleikjum ástarlífsins en
þeir eru í raun ekkert annað en
tölvuklám. Japanar gera mikið af
teiknimyndaklámi og hafa kyn-
lífsleikir með karakterum úr
þeirra teiknimyndum náð talsvert
mikilli fótfestu á Vesturlöndum.
Framtíðin
Sýndarveruleiki er til staðar og
nóg er framboðið, þótt sú tegund
tölvuleikja hafi ekki náð að festa
sig í sessi á fjöldamörkuðum
sökum mikils kostnaðar við gerð
þeirra. Á endanum verður tæknin
þó orðin aðgengileg notendum og
kaupvænni. Bandaríski herinn
hefur til dæmis þróað fullkominn
sýndarveruleika til að þjálfa
hermenn sína í mismunandi
bardagaumhverfi. Þegar tæknin
verður viðráðanlegri má búast við
úrvali sýndarveruleikatölvuleikja
sem bjóða fyrst og fremst upp á
kynlíf, eða þá hreinlega forrit
og búnað sem fullnægja frum-
hvötum notandans á netinu.
Þessar nýju leiðir munu eflaust
vekja upp umræðu hjá þeim sem
berjast gegn þessari tegund klám-
væðingar en aðrir munu eflaust
fagna þessum nýjungum, borga
fyrir þær með glöðu geði og
þannig viðhalda kynlífsmenningu
á netinu um ókomin ár. ■
22 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Titill Útgáfuár Framleiðandi
Custer's Revenge 1982 Mysticue
Strip Poker 1983 Artworx
Soft Porn 1983 Chuck Benson
Samantha Fox Strip Poker 1986 Martech
McPlaymate 1986 Mike Saenz
Leasure Suit Larry 1987 Sierra
Golgo 13: Top Secret Episode 1988 Vic Tokai
Golgo 13: The Mafat Conspiracy 1990 Vic Tokai
Rise Of The Dragon 1992 Dynamix
Ultima 7 The Black Gate 1992 Origin Systems
Lula: The Sexy Empire 1998 CDV Software Ent.
Planescape Torment 1999 Black Isle Studios
The Sims 2000 Maxis
Erotica Island 2000 Flare Media
Fear Effect 2 2001 Kronos Digital Ent.
BMX XXX 2002 Z-Axis
GTA: Vice City 2003 Rockstar North
Singles: Flirt Up Your Life 2004 Robobee
Aðeins útgefnir leikir eru hér að ofan. Java-leikir tengdir klámi eru ekki teknir fyrir en þeir eru
fáanlegir í þúsundatali á netinu. Einnig eru ekki tekin fyrir kynlífsforrit á borð við Red Light
District og tölvugert klám hvort sem það er japanskt eða Bandarískt.
Klám hefur fylgt tölvuleikjum frá upphafi. Fyrst í stað var um
kubbalegt kynlíf að ræða en með aflmeiri tölvum og betri grafík
hefur reynst auðveldara að skapa sýndarveruleikakynlíf sem
gætið hrifið fólk með sér. Franz Gunnarsson lítur hér yfir sögu
tölvuleikjakynlífsins.
Einmenningskynlíf
á bláþráðum