Fréttablaðið - 15.01.2005, Qupperneq 36
28 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Við vonumst til...
... að íslensk fyrirtæki sjái sér fært að styðja við bakið á
fremsta kvenkylfingi landsins, Ólöfu Maríu Jónsdóttur sem
mun, fyrst íslenskra kylfinga, taka þátt í evrópsku
mótaröðinni á næstunni. Þátttakan er mjög dýr og þarf Ólöf
María á öllum stuðningi að halda.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 15 25 26 27
Laugardagur
JANÚAR
Við hrósum...
... Knattspyrnufélagi Siglufjarðar fyrir að ákveða að fella niður æfingagjöld hjá
iðkendum sínum fram á sumar. Þess í stað vonast forráðamenn félagsins eftir því að
foreldrar iðkendanna greiði upphæðina í Landssöfnunina til styrktar fórnarlamba
flóðanna í Asíu. Frábært framtak hjá Siglfirðingum og nú bíðum við eftir því að önnur
félög fylgi fordæmi þeirra.
■ ■ LEIKIR
14.00 ÍBV og Stjarnan eigast við í
Vestmannaeyjum í DHL-deildinni í
handknattleik kvenna.
14.00 Stjörnuleikur kvenna í
körfuknattleik í Valsheimilinu.
15.00 Þór Ak. og Drangur eigast
við í íþróttahöllinni á Akureyri í 1.
deild karla í körfuknattleik.
15.00 Fram og Haukar eigast við í
Framhúsinu í DHL-deildinni í
handknattleik kvenna.
16.00 Stjörnuleikur karla í
körfuknattleik í Valsheimilinu.
■ ■ SJÓNVARP
11.20 NBA á Sýn. Útsending frá
San Antonio Spurs og Dallas
Mavericks sl. nótt.
11.50 Upphitun á Skjá einum.
Spáð í leiki helgarinnar.
12.15 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV.
12.25 Liverpool – Manchester
United á Skjá einum. Bein
útsending.
13.35 Enski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Liverpool og
Watford.
14.10 Stjörnuleikur kvenna í
körfubolta á Rúv. Bein útsending
frá stjörnuleik KKÍ sem fram fer í
Valsheimilinu.
14.30 Á vellinum með Snorra Má
á Skjá einum.
15.00 Tottenham-Chelsea á Skjá
einum. Bein útsending.
15.15 K-1 á Sýn. Sýnt frá
fjölmörgum bardagaíþróttum.
15.40 Handboltakvöld á RÚV.
Nýjustu fregnir úr handboltanum.
16.00 Stjörnuleikur karla í
körfubolta á RÚV. Bein útsending
frá stjörnuleik KKÍ sem fram fer í
Valsheimilinu.
17.10 Bolton – Arsenal á Skjá
einum. Bein útsending.
17.30 World Supercross á Sýn.
Nýjustu fréttir frá
heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
18.25 The World Football Show á
Sýn. Fótbolti um víða veröld.
19.00 Inside the US PGA Tour
2005 á Sýn. Vikulegur fréttaþáttur
um bandarísku mótaröðina í golfi.
19.25 Hnefaleikar á Sýn.
Útsending frá hnefaleikakeppni í
Phoenix. Á meðal þeirra sem
mættust voru Kostya Tszyu og
Sharmba Mitchell.
20.50 Spænski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Real Madrid
og Barcelona.
22.30 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik New York
Jets og Pittsburgh Steelers.
Sala Real Madrid á FernandoMorientes til Liverpool hefur af-
hjúpað að Morientes vildi fara frá
Spáni eftir komu
Michaels Owen til
Madrid. Með til-
komu Owens urðu
framherjar liðsins
fjórir talsins og
sagðist Morientes
strax hafa velt því fyrir sér að segja
skilið við liðið. „Þetta gerði mér erfitt
fyrir þar sem ég var orðinn sá fjórði í
röðinni,“ sagði Morientes. Kappinn
vildi þó ekki meina að samband
hans við Owen hefði beðið hnekki.
„Við áttum gott samband þó að
tungumálakunnáttan hefði vafist
fyrir okkur.“
LeBron James, leikmaðurCleveland Cavaliers, er orðinn
betri en Kobe Bryant hjá LA Lakers í
NBA-körfuboltanum. Þetta fullyrðir
Jack McCallum, einn af körfubolta-
spekingum bandaríska tímaritsins
Sports Illustrated, í grein um kapp-
ana tvo. Þar eru James og Bryant
bornir saman hvað varðar sóknar- og
varnareiginleika, leiðtogahæfileika
o.s.frv. James, sem er nýorðinn
tvítugur, hefur einnig verið hampað
fyrir að vera einhvers konar blanda af
Michael Jordan og Magic Johnson,
þ.e. frábær skorari og alltaf með
augað opið fyrir samherjum. Dæmi
svo hver fyrir sig um þá umsögn í
garð leikmanns sem er á öðru ári
sínu í deildinni.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Danski landsliðsmaðurinn Thomas Gravesen:
Farinn til Real Madrid
FÓTBOLTI Danski miðjumaðurinn
Thomas Gravesen er genginn til
liðs við spænska stórliðið Real
Madrid. Hinn sköllótti Gravesen,
sem hefur spilað frábærlega með
Everton í ensku úrvalsdeildinni í
vetur, átti aðeins sex mánuði eftir
af samningi sínum við félagið og
því ákváðu forráðamenn Everton
að selja hann núna.
Real Madrid mun, samkvæmt
heimildum BBC, borga Everton
2,5 milljónir punda fyrir
Gravesen en félagið keypti hann á
sömu upphæð frá þýska liðinu
Hamburg árið 2000. Gravesen,
sem er 28 ára gamall, mun skrifa
undir þriggja og hálfs árs samn-
ing við spænska liðið en honum er
ætlað að koma með hörku inn í lið
sem er fullt af stjörnum.
John Sivebaek, umboðsmaður
Gravesens, sagði við fjölmiðla
í gær að Gravesen væri mjög
spenntur fyrir því að ganga
til liðs við Real Madrid en að sama
skapi sorgmæddur yfir því að
yfirgefa Everton þar sem hann
hefði átt fimm frábær ár. „Hann
var mjög ánægður hjá Everton en
þegar Real Madrid vill þig, þá er
ekki hægt að segja nei,“ sagði
Sivebaek. ■
DANINN THOMAS
GRAVESEN Nýjasti leik-
maðurinn í stjörnum
prýddu liði Real Madrid.
Kraftlaust gegn Frökkum
Landsliðsþjálfarinn Viggó Sigurðsson sagði allan kraft hafa vantað í íslenska
landsliðið sem tapaði fyrir Frökkum, 30–26, í vináttulandsleik á fjögurra þjóða
móti á Spáni í gærkvöld.
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta tapaði í gær fyrir
Frökkum, 30-26, í Ciudad á Spáni í
fyrsta leik liðsins á fjögurra þjóða
móti sem markar upphaf lokaund-
irbúnings liðsins fyrir heims-
meistaramótið í Túnis sem hefst
eftir rúma viku.
Leikurinn var jafn framan af
fyrri hálfleik en Frakkar sigu
fram úr þegar líða tók á hálfleik-
inn og leiddu með fjórum mörk-
um, 16-12, þegar flautað var til
leikhlés.
Franska liðið gaf ekkert eftir í
síðari hálfleik og náði mest sjö
marka forystu um hálfleikinn
miðjan. Íslenska liðið náði þó að
laga stöðuna undir lokin og svo
fór að Frakkar fóru með sigur af
hólmi, 30-26.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
íslenska liðsins, sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að allan kraft
hefði vantað í íslenska liðið í
leiknum. „Það var deyfð yfir
þessu hjá okkur og menn virkuðu
þreyttir. Við spiluðum illa og vant-
aði allan neista. Við vorum út af í
22 mínútur og það var mest fyrir
klaufaleg brot. Franska liðið er
gífurlega sterkt og mér fannst
menn kannski bera of mikla virð-
ingu fyrir þeim. Ég sef alveg yfir
þessum leik en það er alveg ljóst
að við blásum í lúðrana gegn
Spánverjum á morgun,“ sagði
Viggó í gær. Hann sagði línu-
mennina Róbert Gunnarsson og
Vigni Svavarsson hafa staðið upp
úr í íslenska liðinu.
oskar@frettabladid.is
FRAKKLAND ÍSLAND
30–26 (16–12)
Mörk Íslands: Róbert Gunnarsson 6/2,
Vignir Svavarsson 5, Guðjón Valur Sigurðsson
4, Ólafur Stefánsson 3/1, Alexander
Petersson 2, Arnór Atlason 2, Vilhjálmur
Halldórsson 1, Einar Örn Jónsson 1, Dagur
Sigurðsson 1
Varin skot: Hreiðar Levy Guðmundsson 6,
Roland Eradze 4.
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727 • e-mail: skatabudin@skatabudin.com • www.skatabudin.com
S K Í Ð A V E R S L U N
20 - 50%
Opi› um helgina!
Laugard. 10:00 - 17:00
Sunnud. 12:00 - 16.00
A›eins í nokkra daga
Sí
›u
st
u
da
ga
r ú
ts
öl
un
na
r
N‡tt kortatímabil
SKÍ‹AAFSLÁTTUR
LÍNUMAÐURINN RÓBERT GUNNARSSON var markahæstur í íslenska liðinu gegn
Frökkum með sex mörk.