Fréttablaðið - 15.01.2005, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 15. janúar 2005
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
ítölsku myndina La Notte eftir
Antonioni í Bæjarbíói, Strandgötu 6,
Hafnarfirði. Kvikmyndasafnið fékk rit-
höfundinn Thor Vilhjálmsson til
þess að velja þrjár uppáhaldskvik-
myndir sínar til sýninga og er þetta
sú fyrsta af þeim.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Boston Tufts sinfóníuhljóm-
sveitin verður með tónleikar í Grafar-
vogskirkju ásamt Öldu Ingibergs-
dóttur sópran.
16.00 Salonhljómsveit Sigurðar
Ingva Snorrasonar ásamt Guðrúnu
Ingimarsdóttur sópransöngkonu
flytja Vínarljóð, óperettuaríur, polka,
valsa og aðra gleðitónlist á Nýárstón-
leikum Salarins í Kópavogi. Sigrún
Eðvaldsdóttir leikur einleik og er
jafnframt konsertmeistari.
17.00 Óperukór Hafnarfjarðar
syngur á síðkjólum, bregður á leik og
skapar sanna Vínarstemningu á
nýárstónleikum Tónlistarfélags
Reykjanesbæjar í Kirkjulundi. Stjórn-
andi kórsins er Elín Ósk Óskarsdótt-
ir sópran. Hún syngur einnig einsöng
ásamt Snorra Wium tenór og
nokkrum öðrum söngvurum úr röð-
um kórfélaga. Píanóleikari er Peter
Máté og fiðluleikari Guðný Guð-
mundsdóttir.
23.00 Hljómsveitirnar Drep, Chan-
ger og Denver spila á Grand Rokk.
Rokksveitin
Atómstöðin
spilar á neðri
hæð Gauks-
ins. Á efri
hæðinni
ræður Dj
Maggi ríkj-
um.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Sýning á ljósmyndum, skúlp-
túrum, teikningum og myndböndum
eftir þýsku listakonuna Rosemarie
Trockel verður opnuð í Gerðubergi.
15.00 Birgir Snæbjörn Birgisson
og Elías B. Halldórsson opna sýn-
ingar á verkum sínum í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni. Á neðri hæð
safnsins stendur einnig yfir sýning
á völdum verkum úr einkasafni
Þorvaldar Guðmundssonar og Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur.
15.00 Valgerður Guðlaugsdóttir
opnar sína sjöundu einkasýningu í
Listasafni ASÍ við Freyjugötu.
15.00 Á sýningunni Hér stóð bær
er brugðið upp á þriðja hundrað
ljósmyndum úr myndasafni Þjóð-
minjasafnsins af óþekktum sveita-
bæjum. Myndirnar eru allar frá 20.
öldinni og flestar teknar á árunum
frá 1930-60. Ljósmyndasýningin
Átján álagablettir varpar síðan
samtímaljósi á ævaforna þjóðtrú
Íslendinga.
16.00 Birgir Breiðdal opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Listmunahús-
inu, Síðumúla 34.
16.00 Ívar Brynjólfsson opnar ljós-
myndasýninguna „Bardagavellir“ í
Slunkaríki á Ísafirði.
„Leikur að stein-
um“ nefnist sýn-
ing Kristínar
Tryggvadóttur
sem opnuð verð-
ur á Thorvaldsen.
■ ■ SKEMMTANIR
Hljómsveitin Sex volt skemmtir í
Pakkhúsinu, Selfossi.
Dúettinn Acoustics
skemmtir á Ara í
Ögri.
Liz Gammon spilar
og skemmtir gestum
á Café Romance.
Spilafíklarnir skemmta á Classic
Rock í Ármúla.
Addi M. spilar á Catalinu.
Sveiflukóngurinn Geirmundur
skemmtir ásamt hljómsveit sinni á
Kringlukránni.
Svörtu Zapparnir framreiða fullorð-
ins rokk fyrir Suðurnesjamenn á
Paddy’s í Keflavík.
Snúðarnir Svali og Þröstur 3000
verða við stjórnvölinn í búrinu á
Sólon með ferskustu dansmúsikina.
Hljómsveitin
Sixties leikur
fyrir dansi í
Klúbbnum við
Gullinbrú.
Hljómsveitin Norðurbandalagið spil-
ar í Vélsmiðjunni á Akureyri.
■ ■ DANSLIST
14.00 Á fjölskyldusýningu Íslenska
Dansflokksins í Borgarleikhúsinu
verða sýnd þrjú verk: Bolti eftir
Katrínu Hall,
Æfing í Para-
dís eftir Stijn
Celis og The
Match eftir
Lonneke van
Leth.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16 17 18
Laugardagur
JANÚAR