Fréttablaðið - 15.01.2005, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Aðal-vinningur erMEDION XXL tölva með 17”flatskjá!
99 kr/skeytið
IK
E
26
74
7
1
2.
20
04
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Útsölulok
á
morgun
Nýtt kortatímabil
Óheppni
Fjandakornið, segi ég. Ég missti afKiefer Sutherland þegar hann var
hérna um áramótin. Ég sem var bú-
inn að láta þýða alla pistlana mína
yfir á ensku og var með þá í vasanum
allan tímann. Þýddi líka bókina mína.
Hefði verið fjári gott ef stjarnan
hefði náð að renna yfir textann og
gaman hefði verið að fá hans álit á
stílbrögðunum. En svona er þetta. Ég
sat fyrir honum bæði á Vegamótum
og á Thorvaldsen en kappinn lét ekki
sjá sig. Frétti af honum á Hressó en
var of seinn. Ég var líka að gæla við
að láta hann hafa drög að handriti að
bíómynd sem ég hef svona verið að
dunda við að skrifa í rúminu áður en
ég fer að sofa. Og ef ég hefði náð
honum á flug hefði ég kannski skotið
að honum einni hugmynd að sjón-
varpsþætti.
UM HVAÐ? Ja, ég ætla svo sem
ekkert að ljóstra því upp svo auðveld-
lega. Þetta er bara dálítið sem ég
hefði viljað ræða við Kiefer í róleg-
heitum. En mér sem sagt datt í hug,
fyrst þið endilega viljið heyra það,
hvort ekki mætti gera dálítið krass-
andi sjónvarpsþáttaröð um Alþingi
Íslendinga. Kiefer gæti leikið Halldór
Blöndal. Þáttaröðin myndi heita 63,
eða SixtyThree, og myndi gerast í
rauntíma. Svaka fjör. Allt brjálað. Tom
Hanks yrði Davíð Oddsson. Samuel L.
Jacksson yrði Steingrímur J.
ÉG SÉ fyrir mér senu: Tom Hanks
stígur í pontu og segir: „Nobody but
the Coalition in Iceland is against the
restoration of democracy in Iraq.
They don´t want to be big and they
are nothing but a bunch of old-school-
commie-loosers.“ Samuel L. Jackson
rýkur þá til og stuggar við Tom, tekur
orðið og segir: „O, yeah! You are not-
hing but a slut and a coward!“ Og þá
slær Kiefer í bjölluna.
ÞIÐ SJÁIÐ Þetta svínvirkar á
ensku. Yrði svaka hasar. En fjanda-
kornið. Bara ef ég hefði hitt Kiefer
sjálfan og náð að lýsa þessu fyrir
honum. Sjálfsagt hefði ég þurft að
stugga einhverjum stelpum frá til
þess að komast að honum, sem hefði
þurft dáldið átak, og ekki síður að
halda þeim í fjarlægð á meðan ég tal-
aði við gaurinn. Ég hefði þurft að
vera ákveðinn.
EN ÞAÐ er huggun harmi gegn að
ég hitti Kate Winslet á Rex. Ég út-
listaði þetta fyrir henni í löngu máli,
þetta með sjónvarpsþáttinn og það
allt. Fór líka aðeins yfir bíómyndina,
sem myndi fjalla um innrás Íslend-
inga inn í Írak, og svo lét ég hana
hafa pistlana mína og bókina. Mjög
fínar þýðingar. Hún var ofsalega já-
kvæð hún Kate, og ég var rosalega
upp með mér og bjartsýnn. Þess
vegna voru það auðvitað ákveðin von-
brigði þegar ég las í DV að þetta var
alls ekki Kate heldur einhver íslensk
stelpa sem lítur út eins og hún. Af
hverju gat hún ekki bara sagt mér
það strax? Árans vitleysa er þetta.
AÐ láta mig babbla svona á ensku í
tvo tíma án þessa að segja neitt. Tóm
niðurlæging. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR