Tíminn - 25.01.1975, Side 1
r v ■■ - 1
HF HÖRÐVR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
>__________:____________i
ÆNGIR"
Áætlunarstaöir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Könnun
á hafnar-
stæði við
suður-
ströndina
SAMGÖNGURAÐHERRA hefur
skipað nefnd samkvæmt þings-
ályktun, sem samþykkt var á
alþingi 29. april sfðastliðinn
um rannsókn og gerð nýrrar hafn-
ar á Suðurströndinni t nefndina
eru skipaðir: samkvæmt tilnefn-
ingu syslunefndar Rangárvalla-
sýslu: Björn Fr. Björnsson sýslu-
maður, sem einnig hefur verið
skipaður formaður nefndarinnar,
Benedikt Thorarensen, forstjóri i
Þorlákshöfn, samkvæmt tilnefn-
ingu sýslunefndar Árnessýslu,
séra Ingimar Ingimarsson, Vík i
Mýrdal, samkvæmt tilnefningu
sýslunefndar Vestur-Skaftafells-
sýslu, Jón E. Sigurðsson hafn-
sögumaður, Vestmannaeyjum,
samkvæmt tilnefningu Bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja, Guð-
mundur Gunnarsson verkfræð-
ingur, Bakkagerði 1. Reykjavik,
skipaður i nefndina af samgöngu-
ráðherra án tilnefningar.
Vörubíllinn
tókst á loft
á hlaðinu
— og jeppi snerist
í hring í loftinu
gébé-Reykjavik. — Bændur und-
an Eyjafjöllum voru á fimmtu-
daginn önnum kafnir við að viða
að sér efni eftir skemmdir þær,
sem urðu hjá þeim I ofviðrinu á
miðvikudaginn. Þá var sæmilegt
veður, en það næði varð ekki
langvinnt, þvi að i gær hvessti á
ný, svo að ekki var unnt að vinna
úti við.
Við náðum tali af Þorvaldi Þor-
grimssyni, bónda á Raufarfelli,
siðdegis i gær, en þá var sima-
samband nýkomið á.
Þorvaldur sagði svo frá, að
hann hefði verið á ferð á Land-
rover-jeppa sinum i ofviðrinu um
einn og hálfan til tvo kilómetra
frá bænum, er bifreiðin tókst
skyndilega á loft.
— Hún fór alveg heilan hring
og lenti utan vegar, sagði Þor-
valdur. Það er furðulegt, hve ég
slapp vel, og bifreiðin er ekki
mjög mikið skemmd.
Þorvaldur var lengi að komast
heim að bænum, og varð að leggj-
ast niður og halda sér i girðingár
og annað sem til féll, i verstu
hrinunum. — Annars slapp ég vel,
miðað við marga aðra hér á bæj-
unum, sagði Þorvaldur. Engar
rúður brotnuðu hjá mér, og það
fuku aðeins nokkrar plötur af
hlöðunni. Vörubifreið, sem stóð
hér við bæinn, tókst á loft og fór
heilan hring og lenti að lokum hér
á túninu. Ég tel, aðhún sé þvi sem
næst ónýt. Ég átti ekki þessa bif-
reið, hún var frá næsta bæ.
— í dag hefur ekki verið hægt
að vinna úti við, þótt ekki sé eins
hvasst hér nú og á miðvikudag-
inn, sagði Þorvaldur að lokum.
Eins og áður hefur komið fram
fuku hlutar af þökum af húsum
viða undir Eyjafjöllum, bæði
ibúðarhúsum og útihúsum, rúður
brotnuðu og glugga tók úr, raf-
magnsstaurar kvistuðust sundur
og sfmalinur slitnuðu.
.
GÓÐ fylgd er alltaf kærkomin, ekki slzt þegar hún birtist I kvenlegri
fegurð. Hér er gamali maður aðfara yfir götu hjá Tryggingastofnun
rikisins, kannski hefur hann verið að sækja ellistyrkinn sinn, en þvi
miður eru þeir margir, sem þurfa sjálfir að reka öll slik erindi sjálf-
ir, en hafa engan að senda.
Þær eru broshýrar og mildar á svip, þessar ungu lögreglukonur,
sem hér hlaupa i skrápana og rétta vegfaranda hjálparhönd. Þær
hafa auðsjáanlega ánægju af starfinu, enda má með sanni segja, að
það sé af hinu góða.
Ástæða er til að benda Reykvlkingum á, að allar bætur, sem
Tryggingastofnun rikisins greiðir, fást lagðar inn á reikninga bóta-
þega hjá hvaða banka, bankaútibúi sparisjóði eða póstglróstofu sem
er I borginni. Bótaþegar þurfa að útfylla umboð til bankans annað
hvort i Tryggingastofnun rlkisins eða i viðkomandi bankastofnun.
Tryggingabæturnar eru komnar inn á reikning bótaþega sama dag
og útborgun hefst I Tryggingastofnuninni.
Það fer slfellt i vöxt, að fólk notfæri sér þessa þjónustu, og munu
nú 6000—7000 bótaþegar af um 25.000 hafa þennan hátt á og spara
sér þannig mörg sporin.
Þá skal vakin athygli á nýlundu hjá Tryggingastofnun rlkisins.
Um þessar mundir eru að berast tilkynningar til allra, er nutu bóta
á liðnu ári um samanlagða upphæð þeirra. Tilkynningar þessar
eru i svipuðu formi og launamiðar fyrirtækja. (Tlmamynd:
Gunnar)
Fréttaflutningur hljóðvarpsins kannaður:
ÚTLENDU FRÉTTIRNAR
FLESTAR „ÁTAKAFRÉTTIR"
„FÁBREYTNI erlendu fréttanna
er vafalaust meiri en menn hafa
almennt gert sér grein fyrir . .. .
hlutfall átakafrétta I erlendum
fréttum Islenzka hljóðvarpsins er
Sigurveig Jónsdóttir
mjög hátt. . . samanborið við inn-
Iendar fréttir eru erlendar fréttir
hljóðvarpsins ákaflega einhæfar .
. . sérstaklega er þörf á að breyta
fréttaflutningi frá þeim löndum,
sem við þekkjum minna til, en
með núverandi fréttagildisregl-
um er hætt við, að við fáum al-
rangar hugmyndir um þessi
lönd”.
A þessa leið er komizt að orði i
skýrslu um fréttaval hljóðvarps-
ins, sem Sigurveig Jónsdóttir,
nemandi i almennum þjóðfélags-
fræðum i Háskóla íslands hefur
samið og byggt á fréttum, er
fluttar voru klukkan sjö að kvöldi
dagana 17.-30. júni siðast liðið ár.
Samkvæmt athugun, sem gerð
var árið 1970, hlustuðu að jafnaði
Framhald á 14. siðu.
SKATTAMÁLIN í BRENNI-
DEPU KJARASAAANINGANNA
Greinilegt er, að skattamálin
eru nú I brennidepli i samninga-
umleitunum fulltrúa vinnuveit-
enda og verkalýðssamtakanna.
Björn Jónsson, forseti ASl, hefur
iátið þau orð falla, að litið yrði á
lækkun skatta á launamönnum
sem kjarabót, og væri verkalýðs-
hreyfingin til viðræöu um slíkar
ráðstafanir. t gær hélt fjármála-
ráðherra fundi með skattamála-
nefnd ASt og fulltrúum atvinnu-
rekenda, og var rætt um skattamál
I tengslum við gerð kjarasamn-
inga þeirra, sem nú standa fyrir
dyrum. Slðdegis héldu svo samn-
inganefndir ASt og atvinnurek-
enda fund, þar sem skattamálin
voru aðallega rædd.
Samninganefndirnar sendu frá
sér sameiginlega fréttatilkynn-
ingu um fundinn, og einnig sendi
fjármálaráðherra frá sér frétta-
tilkynningu um skattamál, og er
sá hluti hennar, er viðkemur
kjarasamningunum, birtur á eftir
fréttatilkynningu samninga-
nefndanna, sem fer hér á eftir:
„Föstudaginn 24. janúar var
haldinn þriðji fundurinn milli niu-
manna samninganefndar Alþýðu-
sambands Islands annars vegar
og fulltrúa Vinnuveitendasam-
bands Islands og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna hins
vegar. Aður en fundur þessi hófst,
höfðu báðir aðilar átt fund með
fjármálaráðherra og sérfræðing-
um hans. A þeim fundi var m.a.
rætt um skattamál með sérstöku
tilliti til að létta skattbyrðarnar
og færa álagningu skatta i það
horf, að hún verði miðuð við það
ár, sem tekna er aflað.
Framhald á 14. siðu.