Tíminn - 01.03.1975, Síða 6

Tíminn - 01.03.1975, Síða 6
6 TÍMINN Laugardagur 1. marz 1975 Ólafur Tryggvason látinn BH—Reykjavik. — Ólafur Tryggvason, hinn kunni huglækn- ir andahist á Fjóröungssjúkra- húsinu á Akureyri á fimmtudags- morguninn eftir stutta en erfiöa sjúkdómslegu. ólafur Tryggva- son var þjóökunnur maöur, ekki einasta fyrir störf sin aö huglækn- ingum, heldur og fyrir ritstörf sin, en margur, sem um sárt átti aö binda, leitaöi til Ólafs, sem jafnan greiddi götu þeirra, á þann veg, sem þeim einum er eiginlegt, er helga lif sitt þvi aö veröa öörum aö liöi, og lina þjáningar ef unnt er. Ólafur Tryggvason fæddist 2. ágúst áriö 1900 aö Arndisarstöö- um i Báröardal og ólst upp i fööurhúsum til tvitugsaldurs. Næstu árin stundaöi hann nám i alþýöuskólum, en hóf búskap hálfþritugur, fyrst i Bárðardaln- um en siðar i Fnjóskadalnum. 1 Reykjavik bjó Ólafur um skeið, en settist að á Akúreyri nokkru eftir striöslok og hefur búiö þar siöan iengstum á býlinu Hamra- borg, sem ólafur var oft kenndur viö. Kona Ólafs er Arnbjörg Halldórsdóttir og lifir hún mann sinnásamt fjórum börnum þeirra hjóna. ión Baldvinsson opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í dag, laugardag, opnar Jón Baldvinsson málverkasýningu að Kjarvalsstöðum, þá fyrstu, sem haldin er i húsinu eftir deilurnar, sem risu út af sýningu Jakobs Hafsteins. Jón Baldvinsson, listmálari fæddist 1927 og stundaði upphaf- lega söngnám, en sneri sér aö myndlist fyrir um það bil fimm árum. Hann stundaði mynd- listarnam hjá Myndsýn, aðallega hjá Einari Hákonarsyni list- málara og fór námsferðir til Hol- lands og Frakklands. Arið 1972 hóf Jón nám viö Det Jyske Kunstakademi i Arósum, og lagöi þar einkum stund á módelteikningu. Jón hélt sina fyrstu sýningu á Mokka fyrir allmörgum árum, um þaö leyti, sem staöurinn hóf rekstur, en áriö 1972 sýndi hann i Reykjavik i húsi Guðspekifélags lslands. 91 mynd er á sýningu Jóns, en hann skiptir myndum i þrjá meginflokka, sem sýna eiga þróunina i myndsköpun hans. Um þessar mundir á Jón nokkur verk á samsýningu józkra listmálara, en sú sýning er haldin á vegum fræðsluyfirvalda i Dan- mörku. Sýningin stendur til 11. marz næstkomandi. JG. Tvö mól afgreidd á Búnaðarþingi — um skelja- og áburðarkalk, og landgræðslustörf skólafólks Ástand og horfur í raforkumálum Jón Kaldvinsson listmálari. Myndin var tekin ú sýningunni. Timamynd-Gunnar. A fundi Búnaöarþings I gær var eitt mál lagt fram. Var það frá stjórn Búnaðarsambands Suður- lands um vaktaskyldu vegna bil- ana á raflínum. Þá voru tekin fyrir II mál til fyrri umræöu: Erindi skólanefndar Vopnafjarö- ar um námskeið f búskaparfræð- um fyrir nemendur á skyldu- námsstigi. Erindi Búnaöarsambands Aust- ur-Húnavatnssýslu um bruna- tryggingar á heyi, búfénaði og útihúsum og fieiri tryggingar. Erindi Búnaöarsambands Aust- ur-llúnavatnssýslu um símamál. Tvö mál voru afgreidd frá Búnaöarþingi. Fyrra málið var erindi Búnaöarsambands Strandamanna um skelja- eða áburðarkalk. Var það afgreitt meö eftirfarandi ályktun: „Búnaðarþing skorar á Aburðarverksmiðju rikisins aö hafa jafnan á boðstólum áburöar- kalk til þess að fullnægja þeim pöntunum, er fram koma”. 1 greinargerð meö þessari ályktun segir m.a.: „1 ljós hefur komiö, að áburöarverksmiöjan haföi ætlaö Sementsverksmiöj- unni aö annast sölu og dreifingu á áburöarkalki, en Sementsverk- smiðjan taldi, aö svo litil eftir- spurn heföi veriö eftir kalkinu, aö hún sæi sér ekki fært aö hafa áburðarkalk á boðstólum fram- vegis.” Slöara máliö var erindi stjórn- skipaðrar nefndar um land- græöslustörf skólafólks. Búnaðarþing afgreiddi máliö með eftirfarandi ályktun: Búnaðarþing ályktar, að eðlileg hlutdeild búnaðarsambanda i framkvæmd laga um land- græöslustörf skólafólks sé m.a.: 1. skráning og röðun verkefna i samráöi við gróðurverndar- nefndir á viðkomandi sam- bandssvæðum. 2. aö annast fyrirgreiðslu um út- vegun á nauösynlegu efni og tækjum til landgræðslustarfa frá Landgræðslunni og Skóg- ræktinni. 3. aö ákveða i samráði við skóla- stjóra viðkomandi skóla, hve- nær heppilegast er að vinna aö landgræðslustörfum. 4. eftirlit og verkstjórn með land- græöslustörfum eftir þvi, sem viö veröur komið. Búnaðarþing bendir sérstak- lega á eftirfarandi verkefnaval varðandi landgræöslustörf skóla- fólks: a. melskurð, sáningu- og áburðardreifingu i rofabörö og á aöra þá staði, sem vélum veröur varla við komið. b. umhiröu, gróöursetningu og sáningu við opinberar stofnan- ir, svo sem skóla, félagsheimili og kirkjur. Næsti fundur Búnaðarþitigs veröur i dag kl. 9,30 i Atthagasal Hótel Sögu. lag en nú er. Þá veröur einnig rætt um orkuskortinn á Noröur- landi, og hugsanlega aðild sveit- arfélaga I dreifingarkerfinu vlös vegar um landiö, og stækkun raf- veitusvæöana meö því að rafveit- ur sameinist, og stofnun virkjana á öörum grundvelli en veriö hefur með samvinnu sveitarfélags og rikisins. Auk félaga I Sambandi ísl. raf- veitna, hefur ýmsum gestum verið boöið aö sitja fundinn, þar á meöal Sambandi ísl, sveitarfé- laga, sem senda mun fulltrúa frá hverju landshlutasambandi fyrir sig. O Orkumál Haukur sagöi, aö allar rannsóknir, sem hingaö til heföu veriö geröar i Blöndu, heföu glætt beztu vonir. Nú vantar fyrst og fremst borholur niður á 350 metra dýpi, þar sem væntanlegt stöövarhús á aö veröa, svo að hægt sé að kanna jaröveginn þar. Sú fjárveiting, sem okkur er nú ætluö dugir ekki einu sinni til þess aö ljúka einni slikri holu, hvað þá fleiri. Þá sagöi Haukur, aö alls færu um sextiu ferkilómetrar lands undir miðlunarlón virkjunarinn- ar. Þaö er i raun eini ókosturinn viö hugsanlega Blönduvirkjun, vegna þeirra atvinnuvega, sem fyrireru,en jafnframt skapar svo mikiö lón stórkostlegt öryggi, og betri virkjun. Nú er veriö aö full- gera gróöurkort af þessu svæöi, og þegar þaö veröur tilbúiö, sem væntanlega veröur siöar i þessum mánuöi (marz). munum við fara norður og kynna fyrirhugaöa virkjun fyrir landeigendum, og öörum sem hagsmuna hafa aö gæta. Þeir þurfa aö fá sem gleggst yfirlit yfir það gróöur- lendi, sem hugsanlega fer undir vatn, svo aö þeir geti myndað sina afstöðu til virkjunarfram- kvæmdanna. Ýmsar hugmyndir eru uppi um, hvernig hægt er aö bæta bændum þaö gróðurlendi, sem tapast. Mest er talað um aö græöa upp land i staöinn, og hugsanlega ár- lega áburðargjöf á það land. Einnig hafa verið nefndar skaöa- bætur i eitt skipti fyrir öll, eða ár- legar, verðtryggöar greiöslur vegna skertrar búskaparaðstööu. til umræðu á fundi Sambands íslenzkra rafveitna gébé-Reykjavik — Hinn árlegi fundur Sanibands islenzkra raf- Leiðrétting á frétt 1 frétt blaðsins af læknisleysinu á Flateyri þar sem rætt er um slys þaö er nýlega varö á Flateyri, segir ranglega, að læknir hafi ekki komið til Flateyrar fyrr en liðnar voru sex klukkustundir frá þvi aö slysiö átti sér stað. Hiö rétta er, aö Sigurveig Georgsdótt- ir hjúkrunarkona i Holti kom á báti yfir til Flateyrar og leið ekki nema hálftimi frá þvi að slysið varö þar til hún kom. Eftir að hafa skoöaö sjúklinginn og séö hvers kyns var, kvaddi hún þegar til lækni. Læknirinn, Jens Guð- mundsson, sem hefur aösetur á Þingeyri, brá við skjótt og var kominn til Flateyrar eftir hálfan annan tima. — Leiðréttist hér með missögn blaðsins og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðing- ar á þessum mistökum. veitna, veröur haldinn aö Hótel Sögu dagana 4. og 5. marz n.k. Aöalsteinn Guöjohnsen, raf- magnsstjóri er formaöur sam- bandsins og sagöi hann aö fund- arefni þcssa fundar yröi ástand og horfur I raforkuntálum á ís- landi, Rædd veröa sérvandamál hvers landsfjóröungs, sem eru fremur ólik og rætt þaö ástand, sem skapazt hefur I raforkumál- um á slöastliönu ári og I vetur, og flytja rafveitustjórar frá hverjum landsfjóröungi skýrslu um ástand raforkumála I slnu umdæmi. Fyrri daginn flytur Aöalsteinn Guöjohnsen ávarp og setur fund- inn, en siöan mun iðnaöarráð- herra Gunnar Thoroddsen flytja ávarp og mun sennilega ræða um ástandiö i raforkumálum á land- inu. Jóhannes Nordai, seöla- bankastjóri og stjórnarformaður Landsvirkjunar skýrir frá fram- tiöaráformum i raforkumálum frá sjónarmiði Landsvirkjunar. sagöi Aöalsteinn einnig. Jakob Björnsson orkumála- stjóri og Björn Friðfinnsson framkvæmdastjóri flytja erindi, en seinna um daginn veröa al- mennar umræöur, og sagöi Aðal- steinn Guöjohnsen I viðtali viö Timann, aö ekki væri óliklegt aö hiti yröi i umræöum manna um raforkumálin. Seinni daginn flytja svo raf- veitustjórar landshlutanna ávörp sin, en þeir eru Knútur Otter- stedt, Norðurland, Erling Garöar Jónasson, Austurland, Aage Steinsson, Vestfiröir, Óskar Egg- ertsson, Vesturland, og Sigfinnur Sigurösson Suöurland. Aöalsteinn Guðjohnsen raf- magnsstjóri sagöi, aö búizt væri viö aö rætt yröi um endurskoöun linukerfa, skipulagningu, dreif- ingu, en t.d. á Austfjöröum er nauösynlegt aö flutningadreifi- kerfi á firöina veröi komiö i betra Nokkrar skemmdir uröu I Stykkishólmi af völdum stórveöursins, sem þar gekk yfir um miöjan febrúar. Aöfaranótt þess 16. stórskemmdist hús I smlöum, en þaö er I eigu Siguröar Hjörleifssonar. Var húsiö á þvi stigi, sem fokhelt er kallaö, en þakiö tók af húsinu I heilu lagi og fauk þaö yfir á annaö hús I grenndinni. Brotnuöu þar tvær rúöur og járnplötur skemmdust auk þess sem bifreiö, sem stóö utan viö húsiö, stórskemmdist. — Ljósmynd: KG, Stykkishólm MEIRI VANDI ER AD GÆTA ^ SAMVINNUBANKINN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.