Tíminn - 01.03.1975, Qupperneq 13
Laugardagur 1. marz 197S
TÍMINN
13
Ástríður Andersen opnar
í Hamragörðum —Sýnir 40 olíumálverk
ÁSTRÍÐUR Andersen
listmálari hélt sina
fyrstu sýningu i Casa
Nova fyrir um það bil
fjórum árum. Sýningin
vakti dálitla athygli.
Þetta var nýr málari,
sendiherrafrú, en ekkert
talar eins hjáróma til
okkar og slikir starfstitl-
ar. Ofan á alla þvotta-
húsmálarana, sem fyrir
voru, höfðum við nú
fengið einhverskonar
,,drekafrú”. Maður sá
það i anda: Reynt er að
buga lifsleiðann og
barokk-lif sendisveit-
anna með þvi að gripa til
pensla. Eitthvað á þessa
leið hafa vist margir
hugsað með sér.
Astriður Andersen var átta ár i
Paris, þar sem maður hennar,
Hans G. Andersen þjóðréttar-
fræðingur var þá sendiherra,
siðar i Noregi og Sviþjóð. Ást-
riður stundaði nám i hljóðfæra-
leik um langt skeið, enda af
frægri ætt tónlistarmanna, en
faðir hennar er Helgi Hallgrims-
son, organisti og tónlistarmaður,
og hún er systir dr. Hallgrims
Helgasonar tónskálds.
Ástriður Andersen opnar um
þessar mundir málverkasýningu
i Hamragörðum i Reykjavik, þar
sem hún sýnir um 40 verk, flest ný
eða unnin i Noregi, þar sem hún
dvaldi um nær tveggja mánaða
skeið i sérstöku húsi, sem yfirvöld
nota til handa listamönnum, er
heiðraðir eru með starfsaðstöðu
skamman tima. Auk þess hefur
hún málað mikið hér heima að
undanförnu, að þvi er hún tjáði
okkur, er við heimsóttum sýningu
hennar um það bil, er verið var að
koma myndunum fyrir.
Verk Ástriðar Andersen hafa
tekið nokkrum breytingum siðan
hún sýndi i Reykjavik fyrir fjór-
um árum. Þetta eru abstraktion-
ir, sem fyrr. Ef það er rétt, sem
haldið er fram, að sumir menn
máli atvinnuvegi, sjávarútveg
eða landbúnað, þá mætti likja
myndum hennar við tónverk. Ef
haldið er áfram á þessari braut,
þá minna fyrri myndir hennar á
það, þegar leikið er dapurlega af
fingrum fram, tilviljanakennt.
Tilviljunin verður á stundum
auðsæ, og er þá bæði átt við form
og lit. Formin i myndum málar-
ans eru nú markvissari, byrjað er
að velja og hafna og rita niður, og
verkin verða heillegri og ekki eins
dapurleg, þurfa með öðrum
orðum ekki á eins mikilli heppni
að halda.
Sumar myndirnar eru ,,sætar”.
Alveg eins og siðast. Skynsemi
bjargar naumlega frá væmni, og
nýjustu verkin eru greinilega
mun betri en þau, sem eldri eru.
Einstaka mynd er frá millistigi,
þar sem reynt er að ferðast burt
Aðalfundur Tónskáldafélags íslands:
VIII auka flutning
fslenzkrar tónlistar
— í hljóðvarpi, sjónvarpi og hjá
Sinfóníuhljómsveitinni
Nýlega var haldinn aðalfundur
Tónskáldafélags Islands. Stjórnin
gerði grein fyrir starfinu á s.l.
ári, þátttöku Islenzkra tónskálda i
Norrænum músikdögum, sem
haldnir voru I Kaupmannahöfn i
október 1974. Þar voru flutt sex
islenzk tónverk. Einnig voru flutt
verk eftir Islenzk tónskáld á
Listahátið 1974 og á þjóðhátið. Þá
var og óperan Þrymskviða frum-
flutt I Þjóðleikhúsinu.
Þá gerði stjórnin grein fyrir
undirbúningi Norrænu músikdag-
anna sem i ráði er að halda i
Reykjavik 1976, og störfum Nor-
ræna tónskáldaráðsins en forseti
þess er nú Atli Heimir Sveinsson.
Þá voru og rædd ýmis hags-
munamál tónskálda og eftirfar-
andi samþykktir gerðar:
„Aðalfundur Tónskáldafélags
íslands, haldinn 15. febrúar 1975,
beinir þeim tilmælum til Rikisút-
varpsins að stórauka flutning is-
lenzkrar tónlistar i hljóðvarpi,
sjónvarpi svo og hjá Sinfóniu-
hljómsveit lslands. Ennfremur
að sjá um að til séu fullkomnar
hljóðupptökur á verkum is-
lenzkra tónskálda lifandi og lát-
inna. Alitur fundurinn núverandi
ástand algjörlega óviðunandi og
væntir skjótra úrbóta.”
„Aðalfundur Tónskáldafélags
Islands, haldinn 15. febrúar 1975,
skorar á Alþingi að stofna hið
fyrsta stööu fyrir tónskáld við
Sinfóniuhljómsveit Islands (com-
poser in residence), sem hafi það
starf aö semja verk fyrir hljóm-
sveitina.”
„Aðalfundur Tónskáldafélags
Islands, haldinn 15. febrúar 1975,
lýsir yfir fullri samstöðu með
Félagi islenzkra myndlistar-
manna i deilu þeirra við borgar-
yfirvöld vegna Kjarvalsstaða.”
Þá voru einnig gerðar sam-
þykktir um að vinna að stofnun
Tónmenntaráðs lslands og að
leita eftir nánari samvinnu við is-
lenzka hljóöfæraleikara um flutn-
ing Islenzkrar tónlistar. Þá var og
Arni Björnsson kjörinn heiðurs-
félagi. Stjórn Tónskáldafélags ls-
lands skipa nú: Atli Heimir
Sveinsson formaður, Þorkell
Sigurbjörnsson ritari og Skúli
Halldórsson gjaldkeri.
(Fréttatilkynning)
úr tónlistinni, en þær myndir eru
ekki eins persónulegar fyrir minn
smekk, minna á t.d. Ninu
Tryggvadóttur, sem á sér spor-
göngumenn ekki ófáa.
Ástriður Andersen notar
sérstök spjöld til þess að mála á,
sem ekki hafa fengizt hér, en eru
að ryðja sér til rúms erlendis. Þá
er venjulegur strigi limdur upp á
harðan pappa, en striginn er ekki
strekktur á grind. Þetta er ágætt
á minni myndir og gefur
möguleika til ýmissa „harka-
legra” aðgerða á myndfletinum,
sem yfirleitt hefur verið gert á
masonitplötur hér og henta ekki á
venjulega strekktan striga, bæði
vegna styrkleikans og vegna
þess, að blindramminn vill koma
i ljós við blæbrigða gerðina. 1
heild er sýningin persónuleg og
áhugaverð.
Á þessum siðustu og verstu
timum er talið, að ofvöxtur hafi
hlaupið i stétt myndlistarmanna.
Blöðin eru full af sögum um
hneyksli i myndlistarmálum.
Hamragarðar hafa staðið utan
við þessar deilur, húsráðendur
eru mildir og áhugasamir um
myndlist. Þessi ágætu salarkynni
hafa hýst margar ágætar
sýningar og auka hróður sinn
nokkuð við þessa sýningu
Ástriðar Andersen.
Jónas Guðmundsson.
r
i
-budn. ]
I BEKKIR *
OG SVEFNSÓFAR]
vandaðir og ódýrir — til
sölu að öldugötu 33.
^Upplýsingar I sima 1-94-07.^
Eftirmenntunarnefnd rafiðnaðar
Garðastræti 41 — Simi 1-85-92
Námskeið í einlínumyndun
og hagnýtri rafeindatækni
verða haldin i april og mai i Reykjavik, á
Akureyri og á Akranesi.
Einnig verða haldin grunn-námskeið á
fyrrgreindum stöðum.
Umsóknir þurfa að berast til skrifstofu okkar fyrir 20.
marz næstkomandi.
Allar frekari upplýsingar er að fá á skrifstofum Rafiðnað-
arsambands Islands, Freyjugötu 27, Landssambandi is-
lenzkra rafverktaka, Hólatorgi 2. Einnig hjá félögum á
viðkomandi stöðum og á skrifstofu Eftirmenntunarnefnd-
ar rafiðnaðar, Garðastræti 41.
Sumarhús — Veiðihús
Við byggjum og seljum suinarbústaði 1 stöðluðum stærð-
um frá 24,5 ferm. Fast verð með eða án uppsetningar.
Eigum einnig til lönd. Erum sérhæfðir með vélar til vinnu,
þar sem ekki er rafmagn. Þegar er komin mjög góð
reynsla d okkar hús.
Sumarbústaðaþjónustan — Kvöldsími 8-54-46.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Stórt húsnæði i Pósthússtræti til leigu. —
Gæti hentað fyrir nokkrar smærri skrif-
stofur eða einn aðila.
Nánari upplýsingar hjá Einari Þorsteins-
syni i simum 1-58-30 og 8-54-60.
AUGLÝSIÐ I TIMANUM
CAV
Qliu- og
lofícíur4
i flestar
tegundir
bifreiöa
og vinnu-
véla
33LOSSK--------------
Skipholti 35 Simar:
8-13-50 verzlun • 8 13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstota
Rafgeymar
í miklu úrvali
ilLOSSlf
Skipholti 35 • Simar:
3-13-50 verzlun 8-13 51 verttstæöi 8 13-52 sknfstol*
SUNNUKTOLD
Feröakynning!
Sagt frá hinum vinsælu og ódýru Sunnuferðum — Hinir heimsfrægu
brezku sjónvarpsstjörnur The Settlers skemmta — Dans
STÓRBINGÓ
Vinningar:
3 utanlandsferðir
AUSTURRÍKI
AAALLORCA
KANARÍEYJAR
Vestmannaeyjum: laugardaginn 1/3
Akureyri: Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 2/3 kl. 21.
Hnffsdal: mánudaginn 3/3 kl. 20.30.
Hornafirði: Sindrabæ fimmtudaginn 6/3 kl. 20.30.
Keflavik: Nýja Bió föstudaginn 7/3 kl. 21.
Akranesi.'Akranesbió laugardaginn 8/3 kl. 17.
Reykjavik: Hótel Sögu sunnudaginn 9/3 kl. 21.
I SOLSKINSSKAPI MED SUNNU
iERflASKRIFSTOFAN SIINNA IÆKJARGÖTU 2 SÍMAR 1B4D0 12070