Tíminn - 02.07.1975, Qupperneq 16

Tíminn - 02.07.1975, Qupperneq 16
Nútíma búskapur þarfnast BHUER. haugsugu Miðvikudagur 2. júlí 1975. Guóbjörn Guójónsson fyrir góúan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Gandhi boðar víðtækar efnahaqsráðstafanir er koma eiga þeim til hjálpar, sem miður mega sín Reuter-Nýja Delhi. Indira Gandhi, forsætisráðherra Ind- lands, skýrði I gær frá nýjum ráö- stöfunum I efnahagsmálum, er stjórn hennar hyggst beita sér fyrir. Tillögurnar miöa að þvl að Amin: Braut odd af oflæti sinu vegna vináttu við Mohutu. náðaði fyrir tilstilli AAobutu Reuter-Kinshasa. Idi Amin Ugandaforseti náðaði i gær brezka háskólakennarann Denis Hills, er áður hafði veriö dæmdur til dauöa og taka átti af lifi n.k. föstudag. Akvörðun þessa tók Amin fyrir tilstilli Mobuto Sese Seku Zaireforseta, er boðizt hafði til að miðla málum f deilu Amin og brezkra stjórnvalda. Amin er nú í tveggja daga opinberri heimsókn Kinshasa, höfuðborg Zaire. Forsetinn tilkynnti fréttamönnum þá ákvörðun sina að náða Hills á búgarði Mobutu forseta, sem er i grennd við Kinshasa. Amin kvaðsthafa tekið þessa ákvörðun vegna vináttu sinnar við Moboto, en sagði, að hún stangaðist engu að siður á við samvizku sfna. Hills var dæmdur til dauða, fundinn sekur um landráð. Sök hans var sú, að hafa likt Am- in við „harðstjóra” i handriti — handriti, sem ekki hefur verið gefið út. Uganda-útvarpið, er sagði frá ákvörðun Amin i fréttum síðdegis í gær, lét þess getið, að þeir Amin og Mobuto hefðu brugðið sér á fiskveiðar, en þeir hefðu loks sætzt á að náða Hills — og látið frekari viðræður sfn á milli blða betri tima. koma til hjálpar þeim, sem miöur mega sin — en jafnframt er lagt til, að viðurlög við skattsvikum, smygli og spákaupmennsku verði mjög hert. Gandhi flutti Indverjum þenn- an boðskap sinn I útvarpsávarpi I gær. Aður hafði hún setiö tveggja stunda langan fund með fram- kvæmdanefnd Kongress-flokks- ins, þar sem efnahagsmál voru til umræðu. Fréttaskýrendur segja, að með boðskapnum sé forsætisráðherr- ann að efna þau heit, er gefin voru, þegar neyðarástandi var lýst I landinu i fyrri viku. Efna- hagsráðstafanir þær, er Gandhi hyggst beita sér fyrir, eru marg- vlslegar. Fyrst og fremst er þeimætlaðað bæta hag þeirra ör- snauðu, er starfa við landbúnað i dreifbýlishéruðum. Aformað er að skipta upp landi i rikara mæli en gert hefur verið I þágu hinna landlausu og jafnframt að tryggja landbúnaðarverkamönn- um lágmarksréttindi i samskipt- um þeirra við landeigendur. Þá á að létta skattbyrði af þeim lægst- launuðu. (Engar fréttir bárust I gær af liðan þeirra hundruða, er nú sitja I fangelsum á Indlandi vegna stjórnmálaskoðana sinna. Áreiðanlegar fréttir herma, að Jayaprakash Narayan — einn helzti andstæðingur Gandhi — hafi verið i hungurverkfalli frá þvi hann var handtekinn I fyrri viku.) Von um frið í Líbanon — eftir samkomulag Karamis og Arafats Reuter-Beirut. Hinn nýskipaði forsætisráðherra Llbanon, Ras- hid Karami, og leiðtogi Samtaka palestinuaraba (PLO), Yasser Arafat, gerðu I gærkvöldi sam- komulag um tafarlaust vopnahlé I Llbanon. 1 opinberri tilkynningu, er lesin var i Beirut-útvarpið I gær, segii m.a., að þeir, sem ekki sinni boði um vopnahlé, verði dregnir fyrir lög og dóm. Búizt er við, að þetta nýja vopnahlé verði virt. I gær tók við völdum I Libanon ný stjórn — skipuð sex mönnum. Verkefnistjórnarinnar er fyrst og fremst að koma á friði i landinu, en að henni standa stærstu stjórn- málaflokkar landsins, þótt þeir eigi ekki allir sæti I henni. Deilur um kaupog kjör í Argentínu: Maria Peron beygir verkalýðs- leiðtoga Reuter-Buenos Aires. Maria Estela Perón Argentínuforseti virðist hafa liaft betur f viður- eign sinni við helztu verka- lýðsleiðtoga landsins um kaup og kjör argentfnskra launþega. Maria Perón neitaði sem kunnugt er að fallast á sam- komulag launþega og atvinnu- rekenda um 100% kauphækkun — launþegum til handa. I stað þess fyrirskipaði hún 50% hækkun, en sagði, að frekari hækkun ylli aðeins enn meiri verðbólgu og þvi enn meira efnahagsöngþveiti i Argentinu. (Þess má geta að verðlag á neyzluvörum hefur hækkað um gllt að 200% i landinu á örskömmum tima) 1 fyrrakvöld héldu leiðtogar verkalýðssambandsins (CGT) og leiðtogar þeirra hreyfinga innan CGT, er styðja Perónista — flokk forsetans — fund með Mariu Perón. Að fundinum loknum lýstu verka- lýðsieiðtogamir yfir, að þeir ætluðu sér að virða ákvörðun forsetans vegna tryggðar þeirra við Perónista — hins vegar væru þeir staðráðnir að berjast áfram fyrir réttindum argentinskra launþega. Deilur Araba og ísraelsmanna: Rabin vill samkomu- lag við Egypta Reuter-Jerúsalem. Yitzhak Rabin, f ors ætis rá ðher ra israels, lét I gær i ljösi þá skoöun, að israelsstjórn ætti að forðast i lengstu lög að lenda i andstöðu við Banda- rikjastjórn. Þvi ætti hún að gera allt til þess að ná nýju bráöabirgöasamkomulagi við Egyptalandsstjórn. Rabin lét svo um mælt á fundi þingflokks Verka- mannaflokksins. Sá fundur hafði verið boðaður til að ræða svar Egypta við siðustu tillögum Israelsmanna, en sem kunnugt er, var tillögun- um algerlega visað á bug. Að sögn, á Rabin að hafa sagt, að andstaða við Banda- rikjastjo'rn i þessu máli gæti haft áhrif á vopnasölu til Israels. Aftur á móti lagði for- sætisráðherrann áherzlu á, að kanna yrði gaumgæfilega allar afleiðingar þess að gera nýtt bráðabirgðasamkomulag — I samræmi við vilja Banda- rikjamanna og Egypta. (Fréttaskýrendur álita, að bandariskir embættismenn leeei nú fast að israelskum ráðamönnum að ganga að kröfum Egypta — ella verði þrautarráðið að boða til nýrr- ar friðarráðstefnu i Genf, en ísraelsmenn eru litt hrifnir af beirri hugmynd). A fundinum i gær á Rabin ennfremur að hafa tekið fram, að tsraelsstjórn sé ekki reiðubúin til að gera nýtt bráöabirgðasamkomulag við Sýrlandsstjórn að svo stöddu. Bætt sambúð Kína og SA-Asíuríkja: Stjórnmálasamband milli Kína og Thailands — Samkomulag þess efnis undirritað í Peking af forsætisráðherrunum Kukrit Pramoj og Chou En-lai Reuter-Peking/Taipei. t gær- kvöldi var tilkynnt I Peking, að tekið hefði veriö upp stjórnmála- samband milli Kina og Thailands. Jafnframt var tilkynnt af opin- berri hálfu I Taipei höfuðborg Formósu, að Formósustjórn hefði ákveðið að slita stjórnmálasam- bandi við Thailandsstjórn. Kukrit Pramoj, forsætisráð- herra Thailands, kom i fyrradag I opinbera heimsókn til Kina. 1 veizlu, er haldin var honum til heiðurs i fyrrakvöld, kvaðst hann vona, aö stjórnmálasamband milli Kina og Thailands bætti sambúð ríkjanna og eyddi fyrri ágreiningi og tortryggni þeirra á milli. Samkomulag um stjórnmála- samband var svo undirritað I gær af Kukrit og Chou En-lai, for- sætisráðherra Kina Jafnframt skuldbatt Thailandsstjórn sig til að rjúfa stjórnmálasamband sitt við Formósustjórn. Heimsókn Kukrit til Peking er eitt dæmi þess, að stjórn Kina leggur nú kapp á að vingast viö þau Suðaustur-Asiuriki, er ekki búa við kommúniskt þjóðskipu- lag. Og stjórnir þessara rikja virðast siður en svo vera and- snúnar bættri sambúö við risann I norðri — ekki sizt eftir fall stjórn- anna I Kambódlu og Suður-VIet- nam. Stjórnmálasambandi hefur þegar verið komið á milli Filipps- eyja og Kina — og nú fylgir Thai- land i kjölfariö. Kukrit: Vonast búð við Klna. eftir bættri sam- élÐNVAL byggingaþjónusta BOLHOLTI 8-31-55 0*8-33-54 #• Húsbyggjendur ALLT Á EINUM STAÐ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.