Fréttablaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 18
F yrr í vetur bárust fregnir afþví að kólumbísk yfirvöldhefðu framselt Gilberto
Rodriguez Orejuela, höfuðpaur
Cali-eiturlyfjahringsins, til Banda-
ríkjanna. Bandarísk og kólumbísk
yfirvöld höfðu verið á eftir Oreju-
ela í þrettán ár, en hann stofnaði
glæpasamtökin ásamt Jose
Santacruz-Londono á áttunda ára-
tugnum. Santacruz-Londono var
skotinn til bana af kólumbísku lög-
reglunni fyrir níu árum og er talið
að framsal Orejuela, sem hefur
stjórnað Cali-hringnum síðustu ár
með Miguel bróður sínum, marki
endalok Cali-veldisins. Miguel sit-
ur í fangelsi í Kólumbíu og bíður
þess að vera framseldur til Banda-
ríkjanna. Um 100 meðlimir Cali-
hringsins hafa nú verið handteknir
og dæmdir til fangelsisvistar.
Þó Cali-hringurinn hafi nú svo
gott sem verið upprættur er kól-
umbísk kókaínframleiðsla og
dreifing síður en svo að líða undir
lok. Nýir glæpamenn hafa fyrir
löngu fyllt það skarð sem Medell-
in- og Cali-hringurinn skildu eftir
sig. Stærsti eiturlyfjahringur Kól-
umbíu í dag kennir sig hvorki við
Medellin né Cali heldur Norte
Valle (Norðurdalinn), sem er í
norðurhluta Cauca-sýslu, skammt
norðvestur af borginni Cali.
600 tonn af kókaíni
Norte Valle-hringurinn hefur vax-
ið og dafnað undanfarin ár, fyrst í
skugga Medellin-hringsins og síð-
ar Cali-hringsins. Auk þess að
smygla kókaíni smyglar Norte
Valle-hringurinn einnig töluverðu
af heróíni til Vesturlanda og þá
helst Bandaríkjanna. Einn mæli-
kvarði á það hversu alræmdur
Norte Valle-hringurinn er orðinn
er að síðasta sumar var höfuð-
paurinn, Diego Leon Montoya
Sanchez, einnig þekktur sem Don
Diego, settur á lista Bandarísku
alríkislögreglunnar yfir tíu eftir-
sóttustu glæpamenn heims. Þar er
hann ásamt Osama bin Laden.
Bandaríska alríkislögreglan heitir
300 milljónum króna hverjum
þeim sem veitt getur upplýsingar
sem leiða til handtöku Don Diego.
Norte Valle-hringurinn hefur
verið umsvifamikill í kókaínvið-
skiptum síðan snemma á síðasta
áratug. Bandaríska dómsmála-
ráðuneytið áætlar að eiturlyfja-
hringurinn beri ábyrgð á um 60
prósentum af því kókaíni og heró-
íni sem fer á markað í Bandaríkj-
unum. Talið er að hringurinn hafi
smyglað hátt í 600 tonnum af
kókaíni til Bandaríkjanna á síð-
ustu 14 árum. Áætlað virði efn-
anna er ríflega 600 milljarðar ís-
lenskra króna. Til samanburðar
eru fjárlög íslenska ríkisins innan
við 300 milljarðar króna á ári.
Í bandalagi við skæruliða
Norte Valle-hringurinn hefur náin
tengsl við öfgahægrisinnuð
skæruliðasamtök sem nefnast
Hin sameinuðu varnarsamtök
Kólumbíu (Autodefensas Unidas
de Colombia eða AUC). Þessi sam-
tök, sem bera ábyrgð á einum
verstu mannréttindabrotum í
sögu Kólumbíu og þó víðar væri
leitað, hafa slegið skjaldborg um
Norte Valle-hringinn og Don
Diego. Þetta bandalag hefur gert
löggæsluyfirvöldum afar erfitt
fyrir og orðið til þess að yfirmenn
Bandarísku fíkniefnalögreglunn-
ar kalla Norte Valle-hringinn „öfl-
ugasta og ofbeldissinnaðasta eit-
urlyfjahring Kólumbíu“.
Auk þess að njóta verndar
skæruliðasamtakanna hefur
Norte Valle-hringnum tekist að
múta háttsettum lögreglumönn-
um, embættismönnum á öllum
stigum stjórnsýslunnar og kjörn-
um fulltrúum sveitarstjórna og
kólumbíska þingsins.
Lúxusíbúðir og snekkjur í Flórída
Líkt og flestir eiturlyfjahringir
hefur Norte Valle-hringurinn
verði atorkumikill í hvers konar
peningaþvætti. Hefur hringurinn
stofnað fjölda fyrirtækja og keypt
önnur í þeim eina tilgangi að hylja
peningaslóð sína. Bandarísk yfir-
völd komust á snoðir um þetta og
varð það til þess að fjöldi stofnana
í Bandaríkjunum og Kólumbíu fór
í samstarf um að uppræta pen-
ingaþvættið. Verkefnið er hið
viðamesta sem Bandaríkjamenn
hafa nokkru sinni farið í á þessu
sviði.
Fljótlega komust bandarísk
yfirvöld að því að móðir Don
Diego, sem og fyrrverandi eigin-
kona hans og tveir synir, byggju í
lúxúsíbúðum í Miami. Fjölskyldan
lifði í vellystingum með 250 millj-
óna króna snekkju liggjandi við
prívatbryggju í bakgarðinum.
Sextán ára gamall sonur Don
Diego ók á 40 milljóna króna
BMW í skólann. Bandarísk yfir-
völd komust líka að því að Miguel
Solano, háttsettur meðlimur Nor-
te Valle-hringsins, átti 200 millj-
óna króna hús skammt norðan við
Miami og auðvitað átti hann líka
snekkju. Lögreglan gerði eignirn-
ar allar upptækar og vísaði fjöl-
skyldu Don Diego úr landi. Solano
náðist ekki.
Blóðugt stríð innan hringsins
Það eru ekki aðeins bandarísk lög-
gæsluyfirvöld sem hafa látið til
skarar skríða gegn Norte Valle-
hringnum. Kólumbíska lögreglan
hefur reynt að hreinsa til í sínum
röðum og sótt spillta lögreglu-
menn til saka. Hún hefur einnig
gert upptækan fjölda eigna eitur-
lyfjahringsins, meðal annars
sveitasetur Don Diego. Þá hefur
kólumbíska lögreglan handtekið
tvo bræður Don Diego og einn
frænda hans, en þremenningarnir
störfuðu allir fyrir „stórlaxinn“.
Þeir bíða þess nú að verða fram-
seldir til Bandaríkjanna.
Í kjölfarið á hertum aðgerðum
lögreglunnar og annarra opin-
berra stofnana braust út blóðugt
stríð innan Norte Valle-hringsins
fyrir tveimur árum. Don Diego og
aðrir háttsettir Norte Valle-með-
limir óttuðust að einhverjir innan
hringsins væru að vinna með lög-
reglunni. Fyrsta fórnarlambið í
stríðinu var Solano, sá sem átti
lúxushúsið skammt frá Miami.
Hann var skotinn til bana fyrir
utan næturklúbb í hafnarborginni
Cartagena. Síðan hann var myrtur
hafa hundruð annarra verið
drepnar. Þetta stríð innan hrings-
ins hefur klofið hann í tvennt. Don
Diego leiðir öflugri fylkinguna en
maður að nafni Wilber Varela,
einnig þekktur sem Sápan
(Jabon), leiðir hina. Þeir leika báð-
ir lausum hala.
Sviðsetti eigin útför
Ljóst er að þótt Don Diego gangi
laus er farið að þrengja mjög að
honum, svo mjög að á síðasta ári
sviðsetti hann eigin útför. Kistan
var borin inn í kirkju og syrgjend-
ur grétu þegar presturinn fór með
minningarorðin. Upp komst um
leikritið og Don Diego er enn
hundeltur. Sérfræðingar eru sam-
mála um að innbyrðis stríð og að-
gerðir bandarískra og kól-
umbískra yfirvalda hafi veikt
Norte Valle-hringinn þó nokkuð.
Þeir telja að til þess að hægt verði
að uppræta hringinn endanlega
verði að rjúfa tengsl hans við
skæruliðasamtökin alræmdu. Það
hefur ekki enn tekist.
Hins vegar eru teikn á lofti um
að ný kynslóð eiturlyfjabaróna,
tengdra Norte Valle-hringnum, sé
að vaxa úr grasi. Hringurinn er
enn gríðarlega umsvifamikill og
kókaínið flæðir enn frá Cauca-
sýslu í Kólumbíu til Bandaríkj-
anna og Evrópu. Þá er er líklega
óhætt að fullyrða að á meðan
þorstinn eftir kókaíni heldur
áfram að aukast á Vesturlöndum
verður honum svalað af kólum-
bískum eiturlyfjahringum. Sagan
sýnir að þegar einn slíkur er upp-
rættur sprettur annar upp úr
öskustó hans. Þetta er hringrás
sem erfitt er að stöðva.
HEIMILDIR: Bandaríska dómsmálaráðuneytið, Bandaríska
alríkislögreglan (FBI), Bandaríska utanríkisráðuneytið, Banda-
ríska fíkniefnalögreglan (DEA), Associated Press (AP), Interpol,
BBC og St. Petersburg Times.
DON DIEGO
Diego Leon Montoya Sanchez er á lista Bandarísku al-
ríkislögreglunnar (FBI) yfir tíu eftirsóttustu glæpamenn
heims. Rúmum 300 milljónum króna er heitið fyrir upp-
lýsingar sem geta leitt til handtöku þessa höfuðpaurs
Norte Valle-eiturlyfjahringsins.
LÝSING
Fæddur: 11. janúar 1958 (segist fæddur 11. janúar
1961)
Fæðingarstaður: Trujillo, Kólumbíu
Hæð: 1,83 cm
Þyngd: 103 kíló
Hárlitur: Svartur
Augnlitur: Brúnn
Þjóðerni: Kólumbískur
Einkenni: Með ör á baki og fótleggjum eftir skurð-
aðgerð í kjölfar bílslyss
Viðurnefni: Don Diego, El senor de la guerra (stríðs-
herrann) og El ciclista (hjólreiðamaðurinn)
Heimild: Bandaríska alríkislögreglan
18 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Norte Valle-eiturlyfjahringurinn hefur tekið við af Medellin- og Cali-hringj-
unum sem sá öflugasti og ofbeldissinnaðasti í Kólumbíu. Höfuðpaurinn er á
lista yfir tíu eftirsóttustu glæpamenn heims. Trausti Hafliðason fjallar um lygi-
lega sögu óþokkanna frá Cauca-sýslu.
NÝR KÓLUMBÍSKUR
KÓKAÍNRISI
WILBER VARELA
Wilber Alirio Varela-Fajardo er eftirlýstur af bandaríska
utanríkisráðuneytinu. Hann er einn af höfuðpaurum
Norte Valle-hringsins og leiðir klofningsfylkingu sem á
í blóðugu stríði við Don Diego og hans menn. Allt að
300 milljónum króna er heitið fyrir upplýsingar sem
geta leitt til handtöku Varela.
LÝSING
Fæddur: 6. nóvember 1957
Fæðingarstaður: Roldadillo, Kólumbíu
Hæð: Óþekkt
Þyngd: Óþekkt
Hárlitur: Svartur
Augnlitur: Brúnn
Þjóðerni: Kólumbískur
Einkenni: Engin tiltekin
Viðurnefni: Sápan (Jabon), Þvottaefnið (Detergente),
Sá gamli (El viejo), El negro (Sá svarti)
Heimild: Bandaríska utanríkisráðuneytið
» DREIFILEIÐIR NORTE VALLE-HRINGSINS
Höfuðstöðvar Norte Valle-eiturlyfjahringsins eru í Cauca-sýslu í Kólumbíu. Þar framleiðir hringurinn mest af því kókaíni sem síðan er
smyglað til Bandaríkjanna og Evrópu. Þó fær hann einnig kókaín til vinnslu frá Perú, Ekvador og Bólivíu. Frá afskekktum stöðum í Cauca-
sýslu, þar sem Norte Valle-hringurinn er með kókaínverksmiðjur, er efnið flutt til hafnarborgarinnar Buenaventura með flugvélum og
flutningabílum. Skæruliðasamtök sem nefnast Hin sameinuðu varnarsamtök Kólumbíu gæta þess að kókaínið komist á leiðarenda. Frá
Buenaventura er kókaíninu síðan smyglað til Bandaríkjanna og Evrópu. Algengt er að hraðbátar og hefðbundin fiskiskip séu notuð til
að smygla kókaíninu til Mexíkó og þaðan til Bandaríkjanna. Í síðasta mánuði fann kólumbíska lögreglan kafbát sem smyglarar voru að
byggja í borginni Tumaco í suðvesturhluta landsins. Það er því ljóst að hugmyndaflug eiturlyfjasmyglaranna á sér lítil takmörk. HEIMILD:
Bandaríska dómsmálaráðuneytið.