Fréttablaðið - 24.04.2005, Síða 59
Preston í Idaho er einn af þessum
bandarísku smábæjum þar sem
tískan hætti að þróast á níunda ára-
tugnum. Þar eru allir lúðar. Og þar
er Napoleon Dynamite lúði lúðanna.
Hann er svo lúðalegur að öllum hin-
um lúðunum finnst hann vera lúða-
legur. Hann býr í fallega innréttuðu
einbýlishúsi ásamt ömmu sinni og
eldri bróður. Amman stundar fjór-
hjólaakstur og eldri bróðirinn hang-
ir alla daga á spjallrásum í sam-
bandi við netkærustu sína.
Sjálfur er Napoleon ennþá í
menntaskóla og unir sér ekkert sér-
staklega vel frekar en aðrir í hans
stöðu. Félagslega gengur honum
fremur illa, sökum þess hversu
lúðalegur hann er. Besti vinur
Napoleons heitir Pedro og er lúði
frá Mexíkó. Dag einn ákveða þeir að
taka þátt í skólakosningunum og þá
byrja hjólin að snúast. Fyrir utan at-
burðarásina í kosningarbaráttunni
er nánast ekkert plott í myndinni.
En plott er líka ofmetið fyrirbæri.
Auk þess er myndin bara svona
rosalega fyndin og falleg. Napoleon
veit ekkert hversu lúðalegur hann
er. Reyndar er hann frekar sann-
færður um að hann sé nokkuð kúl.
Og áður en myndin er hálfnuð er
ekki laust við að maður sé sjálfur
sannfærður. Maður dáist að honum
og hlær að honum til skiptis. Reynd-
ar er Napoleon Dynamite örugglega
ekki fyrir alla. Hún er allavega ekki
fyrir þá sem vilja sterka söguþræði.
Heldur ekki fyrir þá sem finnst ljótt
að hlæja að félagslega heftu fólki í
bíómyndum. En raunin er sú að
myndin er mjög mannleg. Hún er
svokallað „sleeper-hit“, sem þýðir
að hér er mynd sem enginn bjóst við
að yrði svona vinsæl. Mörgum
finnst greinilega gaman að hlæja að
lúðanum. En í augum flestra áhorf-
enda er ný hetja fædd. Napoleon
Dynamite er hjartnæm lúðamynd
sem er aðeins raunsærri en
Revenge of the Nerds, aðeins já-
kvæðari en Welcome to the Doll-
house og með aðeins flottari upp-
hafstitlum en Seven.
Hugleikur Dagsson
Lúðar eru bestir
NAPOLEON DYNAMITE
SÝND Á IIFF 2005 KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI
LEIKSTJÓRI: JARED HESS
AÐALHLUTVERK: JON HEDER,
JON GRIES, AARON RUELL
NIÐURSTAÐA: Napoleon Dynamite er allavega
ekki fyrir þá sem vilja sterka söguþræði. Heldur
ekki fyrir þá sem finnst ljótt að hlæja að félags-
lega heftu fólki í bíómyndum. En raunin er sú
að myndin er mjög mannleg.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
The Motorcycle Diaries kl. 3, 5.30 og 10
Napoleon Dynamite kl. 3.45 og 8
Beautiful Boxer kl. 8 og 10.30
Don´t Move kl. 5.30 b.i. 16
Über Goober kl. 3.30
Shake hands with the Devil kl. 5.45
Garden State kl. 8
A Hole in my Heart kl. 10.15 b.i. 16
Vera Drake kl. 3 og 8
Maria Full of Grace kl. 6 og 10.30 b.i. 14
Beyond the Sea kl. 3 og 8
Million Dollar Baby kl. 5.30 b.i. 14
Life and Death of Peter Sellers kl. 10.20
opnunarmynd iiff 2005
Margverðlaunuð
stórkostleg
kvikmynd sem
hefur hrifið
gagnrýnendur og
áhorfendur um
allan heim.
3 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
EIN AÐSÓKNAMESTA ÓHÁÐA MYNDIN Í USA.
Hefur unnið til fjölda verðlauna og var ein
vinsælasta myndin á Sundance kvikmyndahátíðinni.
Nýjasta meistara-
stykki meistara
Mike Leigh, sem
hefur rakað til sín
verðlaunum og
hvarvetna hlotið
mikið lof.
Miðasala hefst
kl. 12 á sunnud
ag
Nánari upplýsin
gar á www.rr.is