Fréttablaðið - 15.07.2005, Qupperneq 47
Hjólreiðakappinn Lance Arm-strong er enn fyrstur í Tour de
France hjólreiðakeppninni og er for-
ysta hans nú 38
sekúndur á hinn
danska Michael
Rasmussen sem
kemur í öðru sæti
en í því þriðja er
Christophe Moreau
frá Frakklandi. Í gær
voru hjólaðir 187
kílómetrar en þar með lauk þeim
kafla sem hjólaðir eru um Alpana
og var það David Moncoutie sem
kom fyrstur í mark. Í dag verður
hjólað til Montpellier.
Tyrkneski miðjumaðurinn Emre erkominn í ensku úrvalsdeildina en
hann hefur skrifað undir fimm ára
samning við Newcastle. Emre er 24
ára og kemur frá ítalska liðinu Inter
á um fjórar milljónir punda. Það
hefur aldrei verið launungarmál hjá
Emre að hann vill spila í enska bolt-
anum. Hann er annar leikmaðurinn
sem kemur til liðsins í sumar en
hinn er miðjumaðurinn Scott Park-
er frá Chelsea.
Sænski miðjumaðurinn EricGustafson er á leið heim og fer
aftur til Örgryte. Hann hefur leikið
með Fylki í sumar en hefur átt við
meiðsli að stríða sem gerðu það að
verkum að hann lék aðeins þrjá
leiki með liðinu í Landsbankadeild-
inni og skoraði eitt mark. Vonast var
eftir því að hann væri búinn að yfir-
stíga þessi meiðsli en svo reyndist
ekki vera og í samráði við knatt-
spyrnudeild Fylkis var tekin sú
ákvörðun að best væri fyrir alla aðila
að hann héldi heim á leið.
Bolton fékk nýjan markvörð í sínarraðir þegar hinn reynslumikli Ian
Walker gerði þriggja ára samning
við félagið í gær. Walker er 33 ára
gamall og kemur á frjálsri sölu frá
Leicester en þar var hann leystur
undan samningi við félagið eftir síð-
asta tímabil. Sam Allardyce er
ánægður með að hafa fengið Wal-
ker en hann er þekktur fyrir að
krækja í fína leikmenn fyrir engan
pening. Walker gengur þó ekki inn í
lið Bolton en á að veita Jussi
Jaaskelainen samkeppni um stöð-
una milli stanganna.
ÚR SPORTINU
ÞRIÐJUDAGUR 15. júlí 2005 31
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skífan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
Snoop Dogg - R & G
Svona er sumarið 2005 - Ýmsir
1.999 kr.
1.999 kr.
Sumarpartý
System Of A Down - Mezmerize Foo Fighters-In Your Honour Keane-Hopes and fears
Davíð Smári-You Do Something To Me Black Eyed Peas-Monkey Business
NÝTT
DVD
Eminem-Anger Management Tour
Kelly Clarkson - Breakaway
SUMAR
TILBOÐ!
Allar nýjar og vinsælar geislaplötur á sumartilboði í verslunum Skífunnar
1.999 kr.1.999 kr.
1.999 kr.
1.999 kr. 1.999 k
r.
1.999 kr. 1.999 kr.
Breytingar hjá Framliðinu:
Bo í sóknina og
Andrés hættur
FÓTBOLTI Danski sóknarmaðurinn
Bo Henriksen er að ganga í raðir
Fram í Landsbankadeildinni frá
Val. Henriksen kom hingað fyrir
tímabilið en ekkert pláss hefur
verið fyrir hann í Valsliðinu.
Hann hefur aðeins leikið einn leik
í byrjunarliði Vals það sem af er, í
leik gegn Reyni Árskógsströnd í
32 liða úrslitum VISA-bikarsins.
Sá leikur endaði 7-0 fyrir Val og
skoraði hinn þrítugi Henriksen
tvö af mörkum liðsins. Þrátt fyrir
það hefur hann fá tækifæri fengið
að Hlíðarenda en samkeppnin þar
er hörð þar sem flest hefur geng-
ið liðinu í hag það sem af er sumri.
Framarar hafa hins vegar verið í
basli og meðal annars vantað
markaskorara en þeirra marka-
hæsti leikmaður, Andri Fannar
Ottóson, er meiddur.
Þá er að frétta úr herbúðum
Fram í Safamýrinni að varnar-
maðurinn Andrés Jónsson hefur
tilkynnt að hann sé hættur hjá lið-
inu. Andrés missti sæti sitt í vörn
Fram og hefur aðeins leikið einn
leik það sem af er sumri. Það var
leikur gegn Keflavík þar sem Þór-
hallur Dan Jóhannsson tók út leik-
bann. -egm
BREYTINGAR Það gengur ýmislegt á í
Safamýrinni þessa dagana enda hefur
Fram ekki unnið deildarleik síðan í lok
maímánuðar. Fréttablaðið/
Keflavík neitar að leyfa Brian O’Callaghan að fara frá félaginu til Notts County:
Brian enn samningsbundinn Keflavík
FÓTBOLTI Brian O’Callaghan, Írinn
sem samdi við Keflavík fyrir Ís-
landsmótið í knattspyrnu í vor,
æfir nú með Notts County á
Englandi en hefur ekki enn
fengið leikheimild, þar
sem forráðamenn Kefl-
víkinga vilja ekki leysa
hann undan samningi.
Rúnar Arnarson,
formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur,
segir ekki koma til
greina að leyfa Brian að
fara án greiðslu til Notts
County. „Brian er með samn-
ing við Keflavík til sextánda októ-
ber og ef ekki berst neitt tilboð í
hann fyrir þann tíma þá ætlum við
ekki að leyfa honum að fara.“
Guðjón Þórðarson, sem er
knattspyrnustjóri hjá Notts
County og var við stjórn-
völinn hjá Keflavík í
vetur, segir undar-
legt að Brian megi
ekki fá að fara.
„Brian er ekki
að æfa hjá Kefla-
vík. Hann fær
engin laun og er
auðvitað ekkert
að spila með félag-
inu. Hann býr hér á
Englandi og kemur til
Notts County ef hann fær
leyfi til þess að hafa félagsskipti
úr Keflavík. En það er greinilegt
að forráðamenn Keflvíkur vilja
ekki að hann fari til Notts
County.“
Forsvarsmenn félaganna hafa
reynt að leysa samningavanda-
málið síðustu daga en lítið gengið.
Brian geutr ekki leikið með neinu
félagi fyrr en í janúar á næsta ári
ef málin leysast ekki fyrir fyrsta
september. Ekki er leyfilegt að
skipta um félag frá september til
fyrsta janúar á Englandi.
-mh
Í VONDUM MÁLUM Brian O’Callaghan,
Írinn sem samdi við Keflavík fyrir Íslands-
mótið í knattspyrnu í vor en yfirgaf liðið
eftir aðeins 4 umferðir, fær ekki leikheim-
ild hjá Notts County á Englandi, þar sem
hann er enn samningsbundinn hér á landi.