Fréttablaðið - 07.10.2005, Blaðsíða 52
> Við hrósum ...
... Körfuknattleikssambandi Íslands fyrir að
styrkja gott málefni með því að gefa allan
ágóðann af leikjunum í Meistarakeppninni
um helgina til
foreldrafélags barna
með axlarklemmu.
Það er alltaf
ánægjulegt þegar
íþróttahreyfingin
leggur góðu málefni
lið með þessum hætti.
Heyrst hefur ...
... að Valsmennirnir Guðmundur
Benediktsson og Sigþór Júlíusson séu að
íhuga það alvarlega að leggja skóna á
hilluna en báðir fengu endurnýjaða
lífdaga á Hlíðarenda í sumar eftir mögur
ár í Vesturbænum þar á undan.
Guðmundur átti frábært tímabil og
Sigþór stóð fyrir sínu og þetta verður því
mikill missir fyrir bikarmeistarana.
sport@frettabladid.is
28
> Við vonum ...
.... að íslenska landsliðið í
knattspyrnu standi sig vel gegn
sterku liði Póllands í dag.
Það vantar marga góða
leikmenn í íslenska liðið
og því fá margir óreyndir
leikmenn tækifæri til
þess að sanna hvað í
þeim býr.
Arnór Atlason, Sigfús Sigurðsson og
þjálfarinn Alfreð Gíslason í Magdeburg,
slógu nýtt met í þýsku úrvalsdeildinni í
handbolta með 23ja marka sigri á
botnliði Wilhelmshavener HV í fyrra-
kvöld, 45-22. Arnór fékk loksins tæki-
færi í liði Magdeburg og skoraði sjö
mörk og Sigfús skoraði þrjú.
Magdeburg jafnaði met Kiel sem sigraði
Pfullingen einnig með 23ja marka mun,
48-25, fyrir tveimur árum.
„Ég spilaði allan leikinn, lengst af sem
leikstjórnandi en síðasta korterið fór ég
í hornið til að leysa Stefan Kretzschmar
af hólmi en hann var hvíldur fyrir meist-
aradeildina. Ég hef ekki verið þekktur
sem liprasti hornamaður í heimi en ég
skoraði samt tvö mörk úr horninu,“
sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið.
Hann missti algjörlega af undirbúningi
Magdeburg fyrir leiktíðina þar sem
hann var upptekinn með íslenska U21
árs landsliðinu á heimsmeistaramótinu
í Ungverjalandi. Þar sem samkeppnin í
liðinu er hörð hefur Arnór þurft að
verma varamannabekkinn í haust og
stundum þurft að horfa á leikina úr
stúkunni.
„Mér var auðvitað tjáð að ég væri
framtíðarleikmaður. Ég vil
samt sem áður láta
að mér kveða
þótt ég sé
hálfgerð vara-
skeifa eins og
er og þess
vegna var gott að fá tækifærið
gegn Wilhelmshavener og sýna
þeim hvað ég get. Sigfús spilaði einnig
mjög vel í vörninni en hann tekur minni
þátt í sóknarleiknum en skoraði samt
þrjú mörk,“ sagði Arnór.
Alfreð Gíslason sagði við Frétta-
blaðið á dögunum að þetta yrði
líklega hans síðasta tímabil sem
þjálfari Magdeburg. „Það kemur
okkur ekkert við hvað Alfreð ger-
ir. Við ræðum þetta ekkert
innan liðsins. Alfreð nýt-
ur mikillar virðingar
og hann sinnir
vinnu sinni alveg
hundrað prós-
ent,“ sagði
Arnór.
ARNÓR ATLASON HJÁ MAGDEBURG: LEYSTI KRETZSCHMAR AF HÓLMI Í HORNINU
Arnór, Sigfús og Alfre› slógu met
7. október 2005 FÖSTUDAGUR
Nýtt lið sem hleypur inn á völlinn
FÓTBOLTI „Undirbúningurinn hefur
ekki verið upp á það besta. Það
vantar marga lykilmenn og nán-
ast nýtt lið sem hleypur inn á völl-
inn. Flestir leikmannanna eru
ungir að árum og að stíga sín
fyrstu skref og oft ná þeir að spila
upp fyrir sig í svona leikjum,“
sagði Ásgeir Sigurvinsson, lands-
liðsþjálfari Íslands, við Frétta-
blaðið eftir seinni æfingu lands-
liðsins í gær.
Pólverjar hafa komið allra liða
mest á óvart í undankeppni HM
en þeir mæta Englendingum í
hreinum úrslitaleik í 6. riðli á Old
Trafford á miðvikudaginn um
sæti á HM.
Indriði Sigurðsson tók þátt í
síðari æfingu landsliðsins í Varsjá
í gær en hann sleppti þeirri fyrri
vegna veikinda. Að sögn Ásgeirs
verður Indriði með í leiknum í
dag. Þá sagði Ásgeir að líklega fái
allir leikmenn hópsins að spreyta
sig en í honum eru tveir nýliðar,
þeir Daði Lárusson og Sölvi Geir
Ottesen.
Ásgeir vildi ekki gefa upp hver
yrði fyrirliði Íslands gegn Pól-
landi en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun Brynjar
Björn Gunnarsson bera fyrirliða-
bandið í fyrsta sinn.
„Við förum varlega inn í leik-
inn og spilum frekar aftarlega og
leggjum áherslu á agaðan varnar-
leik. Ég hef enga trú á öðru en Pól-
verjar stilli upp sínu sterkasta liði
enda leikurinn mikilvægur undir-
búningur fyrir Englandsleikinn.
Pólska knattspyrnulandsliðið er
gríðarlega vinsælt um þessar
mundir hér í Póllandi sem er auð-
vitað í takt við árangur liðsins en
þeir eru langt komnir á HM,“
segir Ásgeir.
Ásgeir og Logi Ólafsson til-
kynna byrjunarliðið í dag en sem
kunnugt er vantar átta leikmenn,
þar á meðal alla þrjá sem leika í
ensku úrvalsdeildinni, þá Eið
Smára Guðjohnsen, Hermann
Hreiðarsson og Heiðar Helguson.
Þá er aðalmarkvörður Íslands,
Árni Gautur Arason, fjarverandi.
thorsteinngunn@frettabladid.is
Brynjar Björn Gunnarsson ver›ur fyrirli›i Íslands sem mætir Póllandi í vináttulandsleik í Varsjá í dag
klukkan flrjú. Indri›i Sigur›sson hefur jafna› sig af veikindum og ver›ur einnig me›.
VALUR - POTSDAM
Sunnudaginn 9. október
kl.14.00 á Laugardalsvelli
ALLIR Á VÖLLINN
Kringlunni
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
Markvörður: Kristján Finnbogason.
Vörn: Kristján Örn Sigurðsson, Auðun
Helgason, Stefán Gíslason og Indriði
Sigurðsson.
Miðjumenn: Brynjar Björn Gunnarsson
og Kári Árnason. Framar á miðjunni
Grétar Rafn Steinsson, Gylfi Einarsson
og Arnar Þór Viðarsson.
Framherji: Hannes Þ. Sigurðsson.
FYRIRLIÐASKIPTI Brynjar Björn
Gunnarsson mun bera fyrirliðabandið í
stað Eiðs Smára í leiknum í dag.
■ ■ LEIKIR
19.00 Þór og ÍR mætast á Akureyri
í DHL-deild karla í handbolta.
19.15 Fylkir og Afturelding eigast
við í DHL-deild karla í handbolta.
20.00 Selfoss og HK mætast í á
Selfossi í DHL-deild karl í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Þátturinn er
endursýndur þrisvar sinnum til
klukkan 09.00.
17.45 Landsleikur í knattspyrnu á
Sýn. Leikur Íslands og Póllands
sýndur beint.
19.55 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Fréttir af leikmönnum og liðum í
Meistaradeildinni.
20.55 NFL-tilþrif á Sýn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Föstudagur
OKTÓBER
Sven Göran Eriksson í vandræðum:
FÓTBOLTI Rio Ferdinand og John
Terry verða miðvarðarparið í
enska landsliðinu sem mætir
Austurríki á Old Trafford á
morgun í undankeppni HM, en
Sol Campbell þarf að dúsa á
varamannabekknum.
Sven Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englendinga, hefur í
fyrsta skipti í langan tíma alla
þessa þrjá varnarmenn heila
heilsu og þarf að gera upp á
milli þeirra. Ferdinand hefur
verið gagnrýndur fyrir frammi-
stöðu sína í haust en þrátt fyrir
það heldur Eriksson tryggð við
hann.
David Beckham og Michael
Owen hafa jafnað sig af meiðsl-
um og æfðu með enska landslið-
inu í gær og verða með á morg-
un. Talið er að Peter Crouch,
framherji Liverpool, verði í
fremstu víglínu með Michael
Owen en Wayne Rooney er í
leikbanni.
Tekur Ferdinand fram yfir Campbell
Átta liða úrslit Hópbílabikars kvenna í körfubolta:
Haukastúlkur í undanúrslitin
KÖRFUBOLTI Haukastúlkur eru
komnar í undanúrslit Hópbílabik-
ars kvenna eftir 24 stiga sigur á
nýliðum Breiðabliks, 76-52, á Ás-
völlum en Blikar höfðu unnið fyrri
leikinn með átta stigum.
Blikar voru vel inn í leiknum
framan af Haukar áttu góðan
sprett í lok fyrri hálfleiks sem kom
þeim 12 stigum yfir fyrir hlé, 37-
25, og gerðu síðan endanlega út um
leikinn með því að skora 10 stig í
röð í lok þess þriðja. Haukar unnu
að lokum með 24 stiga mun og þar
með einvígið samanlegt með 16
stigum.
Pálína Gunnlaugsdóttir átti mjög góðan
dag hjá Haukum, skoraði 19 stig, stal 6
boltum og gaf 5 stoðsendingar, Kristrún
Sigurjónsdóttir var með 15 stig, 7 fráköst
og 5 stolna og Hanna Hálfdanardóttir
skoraði 14 stig og tók 5 fráköst. Þá má
ekki gleyma þætti Sigrúnar Ámundadóttur
sem skoraði 13 stig. Hauka þurftu því að-
eins 8 stig frá Keshu Tardy sem tók þá 10
fráköst. Hjá Breiðabliki var Jessalyn Dev-
eny með 24 stig, 8 fráköst og 4 stoðsend-
ingar, Freyja Sigurjónsdóttir skoraði 9 stig
og Efemía Sigurbjörnsdóttir skoraði 7 stig.
PÁLÍNA ALLT Í ÖLLU Pálína Gunnlaugs-
dóttir tók á sig meiri ábyrgð í fjarveru
Helenu Sverrisdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
52-53 (28-29) Sport 6.10.2005 22:14 Page 2