Fréttablaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 18
> Við finnum til með ... ... Valsstúlkum sem töpuðu allt of stórt gegn Evrópumeisturum Potsdam á Laugardalsvelli í gær, 1–8. Valsstúlkur stóðu sig frábærlega í fyrri hálfleik en svo gengu ófarirnar yfir í þeim síðari og Guðbjörg Gunnarsdóttir mátti hirða boltann sex sinnum úr netinu. Slöpp mæting Einungis 808 manns sáu sér fært að mæta á leik Vals og Potsdam í Evrópukeppni félagsliða kvenna. Ekkert lið hefur komist jafn langt í Evrópukeppni í knattspyrnu, hvorki karla né kvenna, og því sorglegt að mæting var undir meðaltali á leik í Landsbankadeild karla. Þá sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að frítt var á leikinn. sport@frettabladid.is 18 > Við óskum ... .... liðum Keflavíkur og Njarðvíkur innilega til hamingju með að hafa orðið meistarar meistaranna í Reykjanesbæ í gær. Körfuboltaleiktíðin er nú formlega hafin og er það einkar ánægjulegt. fi‡sku Evrópumeistararnir í Potsdam sigru›u Valsstúlkur á Laugardalsvelli 8-1 í fyrri leik li›anna í átta li›a úrslitum Evrópukeppni félagsli›a. Margrét Lára Vi›arsdóttir átti stórleik í framlínu Vals. Þýskur stórsigur í Laugardalnum FÓTBOLTI Valur var betra liðið í fyrri hálfleik en þrátt fyrir yfir- burði sína var staðan í hálfleik 2-1 Potsdam í vil. Eyjastúlkan í liði Vals, Margrét Lára Viðarsdóttir, fór illa með þýsku varnarmennina hvað eftir annað og var óheppin að skora ekki. Hún átti þó stóran þátt í marki Valsliðsins sem Guðný Ómarsdóttir gerði á 36. mínútu þegar hún jafnaði leikinn 1-1. Í seinni hálfleik kom síðan getumunurinn á liðunum í ljós. Þýsku stelpurnar eru í mun betra líkamlegu ásigkomulagi en þær íslensku og gerðu sex mörk í síð- ari hálfleik, þar af þrjú á fimm mínútna kafla. Margrét Lára var langbest í liði Vals og þá átti Ásta Árnadótt- ir góðan dag og voru þær einu leikmenn Vals sem höfðu í fullu tré við þær þýsku þegar á leikinn leið. Nadine Angerer, markvörður Potsdam átti stórleik í markinu og varði oft vel frá Valsstúlkum úr opnum færum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hún var ánægð að leikslokum en vildi ekki gera mik- ið úr eigin frammistöðu. „Við vor- um mjög heppnar að halda jöfnu í byrjun leiks því Valsliðið spilaði mun betur í fyrri hálfleik og í raun var ótrúlegt að við skildum hafa yfirhöndina í hálfleik. En í síðari hálfleik sýndum við hver munurinn á liðunum tveimur er og burstuðum leikinn. Ég held hins vegar að sigurinn hafi verið of stór því við vorum ekki þetta mikið betri í leiknum,“ sagði An- gerer, markvörður Þjóðverja. Seinni leikur liðanna fer fram í Potsdam um næstu helgi sem er í úthverfi Berlínarborgar í austur- hluta Þýskalands. Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara Vals, var orða vant eftir leikinn: FÓTBOLTI Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var nánast orðlaus eftir leikinn enda gáfu lokatölur leiksins ekki rétta mynd af honum að hennar mati. „Vafaat- riðin í þessum leik höfðu alveg ótrúlega mikið að segja. Þegar staðan er 0-0 áttum við að fá víti og svo skömmu síðar gerði Laufey Ólafsdóttir fullkomlega löglegt mark sem var dæmt af. En úrslitin eru með ólíkindum, bæði liðin fengu níu góð mark- tækifæri en þau gerðu átta mörk en við bara eitt. Þetta sýnir bara styrk þeirra leikmanna, sagði El- ísabet en hrósar mjög Margréti Láru: „Hún átti líklega sinn besta leik á ferlinum. Í dag sýndi hún að við eigum líklega einn besta framherja í heimi.“ Þrátt fyrir að títtnefnd Mar- grét Lára Viðarsdóttir hafi verið í liði sem tapaði 1–8 var hún samt langbesti leikmaðurinn á vellin- um. „Ég fékk fullt af færum sem ég nýtti ekki. Ég held að þessi markvörður hafi verið sú besta sem ég hef spilað á móti. En nú er bara að stilla sig inn á leikinn í Þýskalandi og vonandi náum við að stríða þeim eitthvað,“ sagði Margrét Lára sem ætlar að spila áfram á Íslandi til að vinna titla á næsta ári þrátt fyrir áhuga fjölda liða erlendis. - hjö Margrét Lára er ein sú besta í heimi Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru Framarar að ná starfslokasamningi við Ólaf Kristjánsson, þjálfara liðsins, en liðið féll sem kunnugt er úr Lands- bankadeildinni í sumar. Fram olli miklum vonbrigðum í sumar en væntingarnar voru óvenju miklar í Safamýrinni þetta árið. Sigurður Jónsson mun vera efstur á óska- listanum hjá stjórn Fram sem eft- irmaður Ólafs en samkeppnin er hörð því Grindvíkingar vilja einnig fá Sigurð til starfa hjá sér. Sigurður stýrði Víking- um í sumar með góð- um árangri og kom liðinu upp í Lands- bankadeildina þrátt fyrir harða samkeppni frá KA-mönnum. Víkingar misstu stærstan hluta af byrj- unarliði sínu frá því í fyrra en Sigurður náði að púsla saman góðu liði og ár- angurinn frábær. Margir bjuggust við því að Sigurður yrði áfram í Víkinni en upp úr viðræðum slitnaði milli hans og stjórnar knattspyrnu- deildar Víkings að tímabilinu loknu og hann því laus sem stendur. Víkingar hafa enn ekki fundið eftirmann hans. Grindvíkingar hafa um nokkurn tíma haft áhuga á að fá Sigurð til að taka að sér þjálfun hjá sér og er hugsunin víst sú að hann taki við af Milan Stefán Jankovic sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður mun hafa hitt for- ráðamenn Grindvíkinga síðustu daga og vikur til að ræða þessi mál. Ekki stend- ur þó til að leysa Milan Stefán undan störfum heldur er stefnan að hann taki að sér yfirþjálfun yngri flokka hjá félag- inu ásamt því að vera aðstoðar- maður Sigurðar með meistara- flokkinn. Jónas Þórhallsson, for- maður knattspyrnudeildar Grindavíkur, vildi ekki staðfesta að hann hefði átt í viðræðum við Sigurð og sjálfur vildi Sig- urður ekki láta annað hafa eftir sér en að hann væri nú að skoða sín mál. SIGURÐUR JÓNSSON OG ÓLAFUR KRISTJÁNSSON: BREYTINGA AÐ VÆNTA HJÁ ÞJÁLFURUNUM Sigur›ur til Fram e›a Grindavíkur? 10. október 2005 MÁNUDAGUR NÝTT Nýjar matarmiklar samlokur í innsigluðum umbúðum sem tryggir enn meiri ferskleika. MEIRA Á MILLI FERSKUR Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI www.somi.is                        550 5000 AUGLÝSINGASÍMI GUÐNÝ SKORAR Guðný Óðinsdóttir (12) skorar eina mark Vals í leiknum gegn Potsdam. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Íslendingar í Þýskalandi: Düsseldorf lag›i Wetzlar HANDBOLTI Í gær voru tveir leikir á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni og komu íslenskir handbolta- menn við sögu í þeim báðum. Lübbecke tapaði á heimavelli sín- um fyrir HSV Hamburg 26-32 en með liðinu leikur Þórir Ólafsson sem skoraði tvö mörk í leiknum. Róbert Sighvatsson og félagar í Wetzlar gerðu ekki góða ferð til Düsseldorf en þar fór fram sann- kallaður íslendingaslagur. Mark- ús Máni Michaelsson og Róbert Sighvatsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Düsseldorf sem vann 28-24 en leikurinn var einnig merkilegur fyrir þær sakir að þetta var síðasti leikur Düsseldorf í Philipshalle hand- boltahöllinni. MARKÚS MÁNI Skoraði fjögur mörk í sigri Düsseldorf á Wetzlar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.