Fréttablaðið - 10.10.2005, Qupperneq 52
34 10. október 2005 MÁNUDAGUR
270 Mosfellsbær: Skemmtilegt parhús
Grenibyggð 1: Fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum með bílskúr.
Lýsing: Komið er inn í flísalagt anddyri með góð-
um fataskáp, hiti er í gólfi. Inn af forstofunni er
gestasalerni. Úr anddyri er gengið inn í hol, eldhús
er á hægri hönd en stofa, borðstofa og sólskáli á
vinstri hönd. Stofan er rúmgóð og björt. Inn af
eldúsi er þvottahús og þaðan er gegnið út í garð.
Á efri hæðinni er miðrými, sem nýtt er sem sjón-
varpshol, baðherbergi og þrjú góð herbergi. Skápar
eru í öllum herbergjunum. Baðherbergið hefur allt
verið endurnýjað og þar er góð eikarinnrétting.
Í risinu er 25 fermetra rými sem ekki er talið með í
uppgefnu flatarmáli. Það má nýta sem svefn- eða
vinnuherbergi.
Allar innihurðir í húsinu eru úr eik. Á báðum hæð-
unum er eikarparkett en teppi í risinu. Mikið hefur verið lagt í raflagnir og lýsingu og eru sjónvarps- og
fjarskiptalagnir í öllum herbergjum.
Úti: Við húsið er upphitað bílastæði. Góður garður er við húsið og nýlegur timbursólpallur.
203 Kópav.: Skemmtileg eign við Elliðavatn
Álfkonuhvarf: Fjögurra herbergja endaíbúð í nýju fjölbýlishúsi
Lýsing: Komið er inn í flísalagt anddyri með
eikarskáp sem nær upp í loft. Þvottahús er
rúmgott með flísum á gólfi. Stofa og borð-
stofa eru með plankaparketti frá Agli Árna-
syni á gólfi og útgengi á stórar flísalagðar
suður svalir. Þaðan er gott útsýni í átt að
Elliðavatni. Í eldhúsinu er eikarinnrétting frá
Ormson með granít borðplötu, gashellu-
borði og álháfi. Þrjú góð svefnherbergi eru í
íbúðinni. Þau eru öll með plankaparketti og
góðum eikarskápum. Baðherbergið er með
dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum á
vegg. Þar er eikarinnrétting með granít
borðplötu, hornbaðkar og upphengt salerni.
Íbúðin er á góðum stað í nýju hverfi. Stutt
er í leikskóla og grunnskóla.
Annað: Íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Verð: 27,9 milljónir Fermetrar: 114,8 Fasteignasala: SmárinnVerð: 39,8 milljónir Fermetrar: 164,7, þar af 26,7 fm bílskúr Fasteignasala: Kjöreign