Fréttablaðið - 13.10.2005, Page 64
Umsjón: nánar á visir.is
Ávöxtun á celsíus
Prentvillur eru nokkuð sem alltaf getur komið fyrir.
Þær eru hins vegar misskondnar. Ein slík rataði í
titil tölvupósts greiningardeildar KB banka þar sem
stóð Sérrit – kuldabréf. Þarna átti að sjálfsögðu að
standa skuldabréf. Fyrirbærið kuldabréf hefur ekki
sést áður, en aldrei að vita að hinn frjói fjármála-
markaður taki upp á að gefa út slík bréf.
Voru menn að gantast með það að
líklegt væri að ávöxtun kuldabréfa
yrði í gráðum á celsíus. Fahrenheit-
skalinn þótti reyndar einnig koma
til greina þar sem kuldabréf með
ávöxtun á fahrenheit væru með
pósitífri tölu þegar hrollur væri
farinn að fara um fjárfesta kluda-
bréfa með ávöxtun á celsíus. Þeir
sem vildu tryggja sig fyrir nei-
kvæðri ávöxtun myndu þó senni-
lega vilja hafa þau á kelvin.
Buffet í hólf og gólf
Dagens Industri fjallaði um það að frægasti fjár-
festir heims, Warren Buffet, ætti orðið hlut í fyrir-
tækinu Pergo sem þekkt er hér á landi fyrir park-
ett. Það er fjárfestingarfélagið Threadneedle sem
keypt hefur hlut í Prego, en það félag er í eigu
American Express sem sjóður Buffets, Berkshire
Hathaway, er stór hluthafi í. Það er því farin að
þynnast tengingin við að Buffet hafi eitt-
hvað með þá ákvörðun að gera að kaupa í
Pergo. Buffet er þekktur fyrir að fjárfesta í
vel reknum fyrirtækjum með stöðugan
rekstur þegar verð hlutabréfa í þeim er
lágt samkvæmt greiningu hans. Pergo
hefur hækkað mikið á sænska markaðn-
um, en Affärsvärlden, sem birtir kaup og
söluráðgjöf, mælir með sölu á bréfunum.
Upphæðirnar eru heldur ekki vísbending um
að hér sé um hefðbundna Buffet-fjárfestingu að
ræða.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.523 Fjöldi viðskipta: 224
Velta: 2.255 milljónir
+0,84%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
> Útlán Íbúðalánasjóðs jukust á
milli mánaða í september og námu
rúmum 7,5 milljörðum króna. Það er
30 prósenta aukning frá fyrri mánuði.
> Rafmangsveita ríkisins hefur
gefið út skuldabréf fyrir milljarð
króna. Skuldabréfin eru gefin út til
fimm ára. Vextir greiðast einu sinni á
ári en höfuðstóll með einni afborgun
hinn 1. september 2010.
> Ný Apple-verslun verður opnuð
að Laugavegi 182 fyrir áramót. Er það
glerhúsið fyrir ofan Skeljung þar sem
Kauphöll Íslands er til húsa.
> Hagnaður alþjóðlega Apple fé-
lagsins var 26 milljarðar króna á
þriðja ársfjórðungi og fjórfaldaðist
milli ára. Mega þeir þakka vinsældum
IPod fyrir árangurinn.
28 13. október 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,90 +0,00% ...
Bakkavör 42,40 +0,50% ... FL Group 14,10 +2,60% ... Flaga 3,01
+0,30% ... HB Grandi 9,35 +0,00% ... Íslandsbanki 14,75
+1,40% ... Jarðboranir 21,90 +2,80% ... KB banki 590,00
+0,70% ... Kögun 54,00 +0,90% ... Landsbankinn 21,20 +0,50%
... Marel 63,80 +0,00% ... SÍF 4,55 +2,00% ... Straumur 13,00
+2,00% ... Össur 86,00 +0,60%
FL Group +2,92%
Jarðboranir +2,82%
SÍF +2,02%
Atorka Group -1,72%
Nýherji -1,48%
Mosaic Fashions -1,00%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Einar K. Guðfinnsson
mælist til þess að Seðla-
bankinn auki gjaldeyris-
kaup sín til að vinna gegn
styrkingu krónunnar.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra vill að Seðlabanki Ís-
lands auki gjaldeyriskaup sín enn
meira en hann hefur gert á árinu,
til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð
bankans. Það myndi hafa þau já-
kvæðu áhrif, til skemmri tíma litið
að minnsta kosti, að gengi íslensku
krónunnar lækkaði.
Einar segir ekki búið að taka
ákvörðun um þetta í ríkisstjórn-
inni en hann muni beita sér í mál-
inu. Hans skylda sé sú að koma til
móts við eðlilega gagnrýni útflutn-
ingsfyrirtækja á hátt gengi krón-
unnar með raunhæfum aðgerðum.
Samhliða þessu þurfi að huga að
því hvort hækka eigi bindiskyldu
fjármálastofnana. Það gæti dregið
úr útlánum þeirra. Einnig þurfi
breyta umgjörð íbúðalánanna og
ná utan um umfang þeirra. Í því
samhengi sé verið að skoða starf-
semi Íbúðalánasjóðs.
Sjávarútvegsráðherra fjallaði
einnig um þetta á aðalfundi Sam-
taka fiskvinnslustöðva síðastliðinn
föstudag. Þar sagði hann ekki
óeðlilegt að marka stefnu um
gjaldeyriskaup Seðlabankans til
nokkurs tíma „til dæmis með það
að markmiði að kaupin gætu nálg-
ast einhverja þá upphæð sem svar-
ar til þess sem útlendingar hafa
verið að gefa út af íslenskum
skuldabréfum“. Þessi aðferð gæti
náð því markmiði að veikja raun-
gengi íslensku krónunnar.
Í dag kaupir Seðlabankinn
gjaldeyri á innlendum millibanka-
markaði fyrir 2,5 milljónir Banda-
ríkjadala dag hvern. Það jafngildir
um 153 milljónum íslenskra króna
miðað við gengi dalsins í gær.
Áætlanir bankans kveða á um
kaup á 160 milljónum dala frá
september til ársloka. Það eru
tæpir tíu milljarðar króna. Í fyrra-
dag var búið að gefa út erlend
skuldabréf í íslenskum krónum
fyrir um 80 milljarða. Sérfræðing-
ar spá áframhaldandi útgáfu
vegna mikils vaxtamunar við út-
lönd. Seðlabankinn þyrfti sam-
kvæmt þessu að kaupa mun meira
af gjaldeyri ef upphæðin á að
svara til þess sem gefið hefur ver-
ið út af skuldabréfum í íslenskum
krónum eins og sjávarútvegsráð-
herra nefnir.
bjorgvin@frettabladid.is
Einar K. vill veikja krónuna
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands út-
vegsmanna, segist ekki vera tals-
maður þess að Ísland gangi inn í
Evrópusambandið eins og skilja
mátti á frétt á for-
síðu Markaðarins
í gær. Hann hafi
velt upp þeim
möguleika að taka
upp evruna ein-
hliða sem lögeyri
á Íslandi án þess
að ganga í Evr-
ópusambandið.
Friðrik segir
þess virði að velta
þessum möguleika upp í ljósi
þeirrar stöðu sem útflutnings-
greinarnar eru í – meðal annars
vegna hás gengis krónunnar.
Nokkrir hagfræðingar hafi sagt
að þessa leið skorti trúverðug-
leika og sé jafnvel óraunhæf en
hann sé ekki tilbúinn að skrifa
undir það umhugsunarlaust.
Seðlabanki Evrópu myndi hvort
sem væri ekki taka tillit til hag-
sveiflunnar hér á landi við vaxta-
ákvarðanir sínar þó Ísland ætti
beina aðild að stjórnun bankans.
Hagkerfið hér sé svo smátt í sam-
anburði við evrulöndin.
Friðrik segir sérfræðinga
halda því fram að erlend skulda-
bréfaútgáfa í íslenskum krónum
geti aukið enn frekar á gengis-
sveiflur krónunnar. Ástæða sé til
að bregðast við núverandi
ástandi. – bg
Verðbólga innan ársins er orðin
jafnmikil og hún var allt árið í
fyrra þegar hún var um 3,9 pró-
sent frá byrjun árs til ársloka.
Hagstofan birti í gær vísitölu
neysluverðs fyrir október og
hækkaði verðbólgan um 0,61
prósent á milli mánaða. Er
hækkunin innan þeirra marka
sem greiningardeildir bankanna
spáðu en þær gerðu ráð fyrir að
hún yrði á bilinu 0,4-0,7 prósent.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að áhrif verðhækkana á
fasteignum, meðal annars á
landsbyggðinni, hafi verið meiri
en búist var við.
Á ársgrundvelli mælist nú
verðbólga 4,6 prósent og lækkar
lítillega frá fyrra mánuði. Hún
er yfir efri mörkum verðbólgu-
markmiðs Seðlabanks, sem eru
fjögur prósent.
- eþa
Stjórnendur sænska lífeyrissjóðs-
ins Andra AP-Fonden (AP2) hafa
aukið hlut sinn í Skandia upp í 3,5
prósent og skora á Old Mutual að
falla frá yfirtökuáformum sínum í
sænska fjármálafyrirtækið. Einnig
hafa þeir þrýst á fjárfestingarfélag-
ið Cevian Capital, samstarfsaðila
Straums-Burðaráss, að hætta stuðn-
ingi sínum við áform Old Mutual en
Cevian er að 45 prósent í eigu A0P2.
„Stjórn Old Mutual hlýtur að átta
sig á því að það er best að falla frá
boðinu. Tilboðið er bæði lélegt og
fjandsamlegt,“ segir Lars Ider-
mark, hjá AP2 í spjalli við Dagens
Industri.
Í fyrstu var talið að Old Mutual
þyrfti að fá samþykki 90 prósent
hluthafa en nú er talið líklegt að fé-
lagið láti 75 prósent duga. Formlegt
yfirtökutilboð var lagt fram um
helgina sem gildir fram í nóvember.
Þótt fleiri hópar hafi lýst and-
stöðu sinni við tilboðið er AP2 fyrsti
úr „nei-hópnum“ sem kaupir hluta-
bréf í Skandia til að styrkja stöðu
sína. DI veltir því fyrir sér hvort til-
gangur sjóðsins sé fremur pólitísk-
ur en að stuðla að bestu ávöxtun
fyrir sjóðsfélaga.
Um 1,3 milljónir Svía eru í við-
skiptum við Skandia og hugsa
margir með hryllingi til þess að fé-
lagið endi í klónum útlendinga.
Straumur-Burðarás á um 4,6 pró-
sent í Skandia og hefur lýst því yfir
að hann taki tilboðinu.
- eþa
EINAR K. GUÐFINNSSON Sjávarútvegsráðherra telur sér skylt að koma með tillögur að
raunhæfum aðgerðum til að veikja gengi krónunnar og koma þannig til móts við gagnrýni
útflutningsgreinanna.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/TEITU
R
Andstæ›ingar blása til sóknar
Sænskur lífeyrissjó›ur vill verja Skandia.
Ver›bólga töluver›
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
Sko›a evru en ekki ESB
Framkvæmdastjóri LÍÚ vill kanna kosti fless a›
taka upp evru án a›ildar a› ESB.
SLAGURINN HARÐNAR AP2 hefur aukið hlut sinn í Skandia og þrýstir á aðra hluthafa
að hafna tilboði Old Mutual.