Fréttablaðið - 30.10.2005, Qupperneq 31
ATVINNA
11SUNNUDAGUR 30. október 2005
Kredit ehf óskar eftir að ráða viðskiptafræð-
ing eða viðskiptalögfræðing til starfa.
Um framtíðarstarf er að ræða og spennandi
tækifæri til þess að hafa áhrif á þróun
og framgang fyrirtækisins á næstu árum.
Starfssvið:
• Víðtæk rekstrar- og skattaráðgjöf
• Samningagerð
• Önnur sérfræðiþjónusta við viðskiptavini félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðskiptafræðingur eða viðskiptalögfræðingur
• Framhaldsmenntun kostur en ekki skilyrði
• A.m.k. 5 ára viðeigandi starfsreynsla
• Frumkvæði, metnaður og framúrskarandi samskiptahæfni
• Reynsla af starfi innan fjármála- eða lögfræðifyrirtækis
mikill kostur
• Mjög góð tölvu- og bókhaldskunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Hjá Kredit ehf. er lögð áhersla á samvinnu milli starfsfólks og náin
tengsl við viðskiptavini okkar. Við felum starfsfólki okkar mikla
ábyrgð og leitum eftir því að það sýni frumkvæði er komi bæði okk-
ur og viðskiptavinum okkar til góða.
Ekki verða veittar upplýsingar um starfið í síma en umsóknir
og ferilskrá sendist í tölvupóstfang: kredit@kredit.is fyrir
fimmtudaginn 3. nóvember.
Öllum umsóknum verður svarað.
Viðskiptafræðingur
– Viðskiptalögfræðingur
Iceland Express hefur hafi› samstarf vi› svissneska
flugrekstrara›ilann Hello. fiar sem framundan er
von á auknum umsvifum hjá fyrirtækinu viljum vi›
hjá Iceland Express benda á a› Hello er a› leita a›
hæfum og áhugasömum flugmönnum til starfa.
Um er a› ræ›a áætlunarflug milli Íslands og
áfangasta›a Iceland Express á MD-90 flugvélum.
Flugmenn óskast
FLJÚG‹U
HÆRRA!
Áhugasömum flugmönnum er bent á a› sækja um
á heimasí›u Hello, www.hello.ch
Arentsstál ehf
Eirhöfða 17, 110 Reykjavík.
Höfum opnað nýja deild, ryðfrí smíði og álsmíði.
Viðbót við rennismíði, stálsmíði, tjakkaviðgerðir og
vinnuvélaviðgerðir. Sími 587 5650, GSM 894 0022
og fax 567 6758.
Stígamót vantar tvo
starfskrafta
Óskað er eftir starfsfólki með áhuga og hvers kyns þekk-
ingu og/eða reynslu á kynbundnu ofbeldi.
Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt
grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri sýn á samfélagið.
Samábyrgð, frumkvæði og traust eru forsendur farsæls
starfs með vandasöm mál. Í starfshópnum ríkir bæði
áhugi og starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita. Við-
komandi verður að hafa góða samskipta og samstarfs-
hæfileika. Nám á sviði félagsfræði, lögfræði, kynjafræði,
sálfræði eða samfélagsfræði er jafnframt eftirsóknarvert.
Við höfum laust eitt framtíðarstarf og annað tímabundið
til 1. sept. 2006.
Við hvetjum alla með áhuga á starfsemi Stígamóta til að
sækja um.
Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu 115, 105 R.
fyrir 15. nóvember merktar „Starfsumsókn“
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfskraftur í fiskeldi
Fiskeldisstöðin Laxeyri ehf óskar eftir að ráða
fiskeldisfræðing eða áhugasaman einstakling til
starfa sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar gefur stöðvarstjóri í síma
435 1380 og 848 2245.
Vélaviðgerðarmaður
Íshlutir ehf óska eftir starfsmanni, vönum þunga-
vinnuvélaviðgerðum og líkum tækjum á vélaverk-
stæði. Þekking og reynsla í viðgerðum á rafmagns
og vökvakerfum æskileg.
Leitað er að kröftugum einstaklingi með ríka þjónustu-
lund og tilbúin að takast á við krefjandi verkefni auk
ferðalaga. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur Samúel Sigurðsson í síma:
575 2400 eða 693 3213
Íshlutir ehf Gylfaflöt 32 112 Reykjavík
Sími: 575 2400.
Hjúkrunarheimilið Fellsendi, Miðdölum í Dalasýslu.
Óskum eftir starfsfólki til framtíðarstarfa.
Á Fellsenda er verið að byggja nýtt hjúkrunarheimili fyrir
aldraða samkvæmt nýjustu kröfum. Heimilið er byggt fyrir
28 heimilismenn þar sem allir munu búa í einbýli og verður
tekið í notkun í byrjun næsta sumars.
Hjúkrunarheimilið Fellsendi er sjálfseignarstofnun og hefur
núverandi heimili verið starfrækt frá árinu 1968 og er stað-
sett í fallegu umhverfi og býr yfir góðum heimilisbrag.
Óskað er eftir starfsfólki sem er tilbúið að starfa með núver-
andi starfsmönnum að skipulagningu og þróun nýs heimilis.
Staða hjúkrunarfræðings.
Um er að ræða fullt starf.
Stöður sjúkraliða og starfsfólks við aðhlynningu.
Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Sigurðardóttur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 434-1631 /eða 849-7835,
netfang asta@fellsendi.is.
Laus störf á Reykhólum,
Austur-Barðastrandarsýslu
Hjúkrunarforstjóri í Barmahlíð
Laust er starf hjúkrunarforstjóra við Hjúkrunar- og dval-
arheimilið Barmahlíð á Reykhólum frá 1. febrúar 2006.
Á heimilinu eru 15 vistmenn. Mjög góð vinnuaðstaða.
Sjúkraliði eða ófaglærður starfsmaður í
umönnun í Barmahlíð
Laust er ofangreint starf. Um er að ræða tímabundna
ráðningu frá 1. janúar 2006 til 31. desember 2006.
Leikskólastjóri í Hólabæ
Laust er starf leikskólastjóra við leikskólann Hólabæ á
Reykhólum. Á Hólabæ eru 14 börn.
Valgerður Baldursdóttir (s.899 5479) hjúkrunarforstjóri
veitir nánari upplýsingar um störfin í Barmahlíð
vallab@snerpa.is . Einnig um öll störfin á skrifstofu
Reykhólahrepps s. 434 7880 sveitarstjori@reykholar.is
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 15. nóvem-
ber nk.
Reykhólahreppur
www.reykholar.is
Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð og einungis
tæp-lega 3 tíma akstur til Reykjavíkur. Þar er öll
almenn þjónusta fyrir hendi svo sem leikskóli,
grunnskóli, mjög góð sundlaug, bókasafn, heilsug-
æsla, verslun og kirkja. Verið er að taka í notkun
nýtt og glæsilegt íþróttahús.