Tíminn - 07.11.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.11.1975, Blaðsíða 1
iMW PRIMUS HREYFILHITARAR í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR Landvélar hf 255. tbl. — Föstudagur 7. nóvember — 59. árgangur. HF HÖRÐUR OUNNARSSOM SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 ÓLAFUR JÓHANNESSON Á EFTA-FUNDI: íslendingar kunna ad neydast til að endurskoða þátttöku sína í efnahaassam- starfi Evrópuríkja Reuter/Genf. ólafur Jóliannes- son, viðskiptaráðherra, sagði á lundi Friverzlunarbandalagsins i gær, en hann er þar i forsæti, að ■uiverandi framkoma eins eða tveggja aðildarrikja Efnahags- handalagsins i íslands garð gæti leitt til þess, að islendingar endurskoðuðu alla þátttöku sina i elnahagslegu samstarfi Evrópu. Á fundinum skýrði viðskipta- ráðherra aðilum Friverzlunar- bandalagsins frá málstað tslands i landhelgismálinu og gat um við- Viðræðum íslenzkra og brezkra fiski- fræðinga er lokið gébé—Rvik. — Viðræðum brezku og islenzku fiskifræðinganna lauk i Hafrannsóknastofnuninni i Enn eitt banaslysið: 32 ÁRA AAAÐUR FERSTí BÍLSLYSI SJ—Patreksfirði. Banaslys varð um kl. 0.30 i fyrrinótt innan til við Eysteinseyri i Tálknafirði, skammt frá vegamótunum upp á Hálfdán til Bildudals. Bifreiðin Z-1218 sem var að koma frá Bildu- dal, lenti þar út af veginum. ökumaður var einn i bifreið- inni, og mun hafa henzt út um leið og billinn valt og orð- ið undir honum. Talsverð hálka var á veginum, þegar slysið varð. Bifreiðin er af rússneskri gerð, frambyggð, og var á vegum Rafmagnsveitna rikisins. Maðurinn, sem beið bana hét Sigurður Hjörtur Stefánsson, verkstjóri hjá Rafmagnsveitum rikisins til heimilis að Holtagerði 54 i Kópavogi, 32 ára að aldri. Hann lætur eftir sig konu og tvö börn. gærdag. Að viðræðunum loknum fóru fiskifræðingarnir á fund Hans G. Andersen, sendiherra i utanrikisráðuneytinu, og var þar m.a. rætt um skýrslu isl. fiski- fræðinganna, en frekari fréttir varekkiaðfáafviðræðunum. Jón Jónsson, forstöðumaður Haf- rannsóknastofnunarinnar, sagði, að á þessu stigi málsins væri ekki hægt að gefa neinar upplýsingar um viðræðurnar, en að nú væri veriðað ganga frá sameiginlegu áliti fiskifræðinganna. Brezku fiskifræðingarnir vörðust einnig allra frétta i gær. EIÐSGRANDA- ÚTHLUTUN UAA ÁRAMÓT BH-Reykjavik. A næsta ári eru 756 lóðir til úthlutunar i Reykja- vik og verður næsta lóðaúthlutun strax eftir áramót, þar á meðal úthlutun 147 ibúða á Eiðsgranda- svæðinu. ræðurnar við Breta, Vestur-Þjóð- verja og Belga. Sagði ráðherrann ógerlegt að segja til um niður- stöður þessara viðræðna. GERÐADOMURINN í SVARTSENGISMÁL- INU VÆNTANLEG- UR í MÁNUÐINUM MÓ-Reykjavik. ólafur G. Einars- son sagði á Aiþingi i gær að siðar i þessum mánuði væri að vænta gerðadóms um deilu Hitaveitu Suðurnesja og landeigenda á Svartsengi. Deilan við landeigendur kemur þó ekki til með að hafa áhrif á hitaveitu fyrir Grindavik, þvi að samkvæmt samningum Hitaveitu Suðurnesja og landeigenda eru báðir aðilar skuldbundnir að hlita úrskurði gerðadóms vegna hita- veitu i Grindavik. 1 fyrra var gerð áætlun um hitaveitu Suðurnesja og var þá áætlað að fyrsti áfangi kæmi i gagnið á þessu ári. Ljóst er að svo verður ekki, en nú fyrir hálfum mánuði hófust framkvæmdir við fyrsta áfanga við dreifikerfið i Grindavík. Innan skamms munu framkvæmdir við aðveituæðina verða boðnar út, og i undirbúningi er hönnun á orkuverinu. Að sögn Eiriks Alexandersson- ar sveitastjóra i Grindavik eru björtustu vonir þær, að fyrstu húsin i Grindavik verði tengd við Hitaveitu Suðurnesja i mai eða júni. Myndin er frá Svartsengi. BORGARSTJORI LOFAR AÐ TAKA ÁRMANNSFELLS- MÁLIÐ UPP í BORGARRÁÐI BH—Reykjavik. — Borgarstjór- inn, Birgir tsieifur Gunnarsson, mun beita sér fyrir þvi, að Ár- mannsfellsmálið komi fyrir borgarráð strax og gögn saka- dóms liggja fyrir. Þetta kom fram i svari borgarstjóra á borgarstjórnarfundi i gær, þegar hann svaraði Alfreö Þorsteins- syni, borgarfulltrúa Fra m sók nar f lokksin s, sem kvaddi sér hljóðs utan dagskrár um málið i tilefni þess, að úr- skurður saksóknara rikisins i þvi er kominn. Alfreð Þorsteinsson spurði borgarstjóra, hvort hann hyggð- ist leggja Ármannsfellsmálið fyrir borgarráð og borgarstjórn til frekari afgreiðslu og gefa borgarstjórnarmönnum kost á að kynna sér endurritun sakadóms- rannsóknar málsins. Benti Alfreð á, að niðurstöður saksóknara á Ahaldahússmálinu svonefnda hefðu verið á sama veg og i Armannsfellsmálinu, en engu að siður hefði borgarstjóri beitt sér fyrir þvi að forstöðumaður Áhaldahússins var rekinn. Sagði Alfreð, að ýmsir þættir Armanns- fellsmálsins væru þess eðlis, að borgarfulltrúar vildu kynna sér þá betur. Borgarstjóri svaraði þvi til, að hann myndi beita sér fyrir þvi að Ármannsfellsmálið yrði tekið upp i borgarráði strax og endurritun sakadómsrannsóknarinnar liggur fyrir. Býður gjaldeyri í húsaleiguna! BH—Reykjavik. — Ég tel auglýsingu sem þessa algjört hneyksli, sagði Björgvin Guðmundsson, fulltrúi i viðskiptaráðuneytinu, þegar Timinn bar undir hann auglýsingu i Morgunblaðinu i gær, en þar auglýsir „einhleypur verkfræðingur” eftir húsnæði undir hausnum „Gjaldeyrir-húsnæði". — Gjaldeyriseftirlitiö fylgist auðvitað með þvi, að menn skili þeim gjaldeyri, sem þeir koma með inn i landið, sagði Björgvin, og það verður gert i þessu tilfelli, en ég tel liklegast að hér sé um að ræða námsmann, sem heim kemur. Þá spurði Timinn Björgvin, hvort einhverjar gjaldeyrisyfir- færslur hefðu verið leyfðar til kaupa á málverkum i Kaup- mannahöfn, en þar keyptu Islendingar islenzk málverk á upp- boði. Sagði Björgvin að veitt hefði verið yfirfærsla til kaupa á tveimur eða þremur málverkum, sem var mun minna en vi'ðkom andi hafði sótt um. Á uppboðinu voru seld sex málverk islenzkra listamanna, m.a. mynd eftir Kjarval á hálfa milljón og voru það islenzkir menn, sem keyptu flest þessara verka.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.