Tíminn - 07.11.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.11.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 7. nóvember 1975. TÍMINN TVÆR BIÐ- SKÁKIR í RÖÐ HJÁ GUÐAAUNDI ELLEFTA umferö svæðamótsins i skák var tefld i Búlgariu i gær og tefldi Guðmundur Sigurjónsson þáviðNedsker fráTékkóslóvakiu. Skák þeirra fór i biö. i tiundi umferð tefldi Guð- mundur við Vogt og fór sií skák einnig i bið. t dag verður tólfta umferð tefld og hefur Guðmundur hvitt á móti Georghiu frá Rúmeniu. Staða efstu manna á mótinu er mjög óljós. Svæðismótið í skdk Zwaig hélt jafntefli gegn Liberzon BK—Rvik — 13. umferð svæða- mótsins var tefld i gærkvöldi. Friðrik vann Murray i 31 leik, Ostermeyer mátaði Hamann i 28 ieikjum, Parma vann Poutiainen i 41 leik, Ribli vann Björn, Jansa og Hartston gerðu jafntefli i 33 leikjum, Liberzon og Zwaig gerðuy jafntefli i 37 leikjum, Laine og van den Broeck sömdu jafntefli i 23. leik. Timman sat hjá. Friðrik vann Murray örugg- lega, en irinn lenti i timahraki og missti tökin á stöðunni. Oster- meyer náði sterkri sókn gegn Hamann og mátaði hann i 28. leik. Poutiainen missti tökin á skák- inni i lakari stöðu og timahraki gegn Parma. Jansa fórnaði miklu liði gegn Hartston, en náði aðeins þráskák. Zwaig varðist af mikilli hörku f lakari stöðu og hélt jafntefli gegn Liverzon. Laine og van den Broeck sömdu jafntefli i jafnri skák eftir 23 leiki. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11.12. 13.14. 15. 1. Ribli 1 1 1 1/2 1 1 1/2 1 1/2 1/2 1/2 1 2. Poutiainen 0 1 0 0 1 1 0 1 1/2 1 0 1 3. Hartston 0 0 0 0 1 0 0 1/2 1 1/2 1 1 - 4. Hamann 0 1 1 1/2 0 0 0 1/2 0 1 1/2 1 5. Friðrik 1/2 1 1 1/2 ! 1/2 1 1 1 - 0 1 1 1/2 6. Zwaig 0 0 0 1 1/í 0 1/2 1 1/2 1/2 1 1 7. Timman 0 0 1 1 0 1 1 1/2 1/2 1 0 1 8. Liberzon 1/2 1 1 1 0 1/2 1 1/2 1/2 1/2 1 1 1 9. Murray 0 0 1/2 1/2 0 0 1/2 0 0 1/2 1 ' 0 10. Ostermeyer 1/2 1/2 0 1 0 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1 1 11. Jansa 1/2 0 1/2 0 1/2 1/2 1 1/2 1/2 1 1 1 12. Parma 1/2 1 1 1/2 1/2. \ii 1 1/2 1/2 1 1 1 13. Björn 0 0 0 1/2 0 0 1/2 0 0 0 i 1 0 14. Laine 0 1/2 0 0 l 0 0 0 0 0 ■ 0 1/2 15. vandenBroeck 0 0 0 1/2 0 0 0 1 0 0 0 1 1/2 FRIÐRIK OLAFSSON: ,,Nú er bara að halda strikinu" SJ—Reykjavik — Nú er baráttan farin að harðna á svæðamótinu i skák á Hótel Esju. Friðrik ólafs- son á góða möguleika að verða i | öðru sæti og komast I millisvæöa- i keppni. tslenzkir skákunnendur Björn gaf skák- ina við Ribli — vegna veikinda Gsal-Reykjavik — Björn Por- steinsson gaf skák sina við Ribli á svæðismótinu i gærdag eftir að hafa aðeins teflt örfáa leiki. — Mér fannst ég vera að þvi kominn að falla i yfirlið og treysti mér þvi ekki til að tefla skákina frekar, sagði Björn er Timinn hafði tal af honum. Björn kvaðst vera með hita, en sagði að áður en skákin hófst i gærdag, hefði hann talið sig hafa nægilegt þrek til að tefla hana til enda — en raunin heföi orðið önnur. glöddust þegar Friðrik vann bið- skákina við Liberzon i gærmorg- un. — Eg er auðvitað lika ánægð- ur, sagði Friðrik i gær skömmu áður en 13. umferð mótsins hófst. Nú er bara að halda strikinu. — Hver heldurðu að verði sigurvegari á mótinu? — Ribli stendur bezt að vigi, og það er langlíklegastað hann verði i efsta sæti að lokum. — ÞU teflir við stórmeistarann Jansa i lokaumferðinni, verður það þyngsta þrautin á mótinu? — Það fer eftir þvi hvernig staðan verður þá hjá hinum efstu mönnunum. Þetta eru allt erfiðar skákir, sem ég á eftir. Friðrik tefldi við Murray i gær- kvöldi, en á eftir að tefla við Ost- ermeyer og Jansa. Veröi þeir Liberzon og Friðrik jafnir i 2. og 3. sæti þurfa þeir að tefla einvigi um hvor komist i millisvæðakeppni.og verði Frið- rik, Liberzon og Parma allir jafnir þá keppa þeir þrir á sér- stöku móti um hverþeirra komist áfram áleiðis i heimsmeistara- keppni. — 0 — Liberzon gaf skákina við Frið- rik eftir aðeins fimm leiki, sem féllu þannig. 42. Hxb7 He2 + 43. Kf3 Hel 44. Hb8+ Kg7 45. b7 Hxgl 46. Hg8+ gefur Hamann og Murray sömdu um jafntefli án frekari taflmennsku, en Timman vann Zwaig. Umferðarslysunum linnir ekki: 5 ára drengur stórslasast — þegar ekið var á hann á merktri gangbraut Friðrik ólafsson Kaupmannasam- tökin hafa samið við Mjólkursam- söluna um kaup á 40 mjólkurbúðum BH—Reykjavik — Það er alveg öruggt mál, að mjólkin hækkar ekki i verði, þótt almennar verzl- anir annist mjólkursöluna til neytenda. Núna er starfandi nefnd, svokölluð mjólkursölu- nefnd á vegum Kaupmannasam- takanna, og það er búið að gera samning við Mjólkursamsöluna um kaup á öllum þeim mjólkur- búðum, sem hún vill leggja niður, og verður þá mjólkursalan færð smám saman inn i hinar almennu verzlanir. Þannig komst Hreinn Sumar- liðason kaupmaður, sem er for- maður mjólkursölunefndarinnar, að orði við Timann i gær, þegar við ræddum þessi ynál viö hann. Kvað Hreinn það löngu ljóst, að 40 ára gömul lög um þessi efni væru löngu Urelt, og bæri margt til, dreifðari byggð og fullkomnari umbúðir. — Okkar sjónarmið eru þau, að það sé sparnaður fyrir Mjólkur- samsöluna og þjóðarbúið I heild að hafa mjólkursöluna I almenn- um verzlunum. Við getum lika selt meira af mjólk en núverandi dreifingarkerfi býður upp á, auk annarrar mjólkurvöru, og ættum á þann hátt að geta sparað óþarf- ar niðurgreiðslur. — Eru þessar breytingar á döf- inni? — Samningurinn við Mjólkur- samsöluna er fyrir hendi, og landbúnaðarráðherra skipaði fyrir nokkru 12 manna nefnd, sem m.a. fjallar um þetta. Mjólkur- samsalan heldur heildsölunni, en við myndum þá annast smásöl- una. Við vitum lika, að það er bú- ið að semja frumvarp um þetta mál, en það liggur einhvers stað- ar óhreyft i skúffu. — Hvað er búið að semja um kaup á mörgum búðum? — Þær eru 40 talsins. FB/gébé Rvik — Fimm ára drengur stórslasaðist i alvarlegu umferðarslysi á Bústaðavegi I gær, er bifreið ók á hann, þar sem drengurinn var á leið yfir götuna á merktri akbraut. Þetta er i ann- að skipti á stuttum tima sem ekið er á börn á merktri gangbraut, i fyrra skiptið var það á Sund- laugavegi en þar eru umferðaljós sem bifreiðastjórar virðast eiga i mestu erfiðleikum með að viður- kenna. Það gerist nú æ tiðara að litil börn sem eru á leið úr eða i skóla verði fyrir barðinu á ógæti- legum akstri bifreiðastjóra. Það var um klukkan hálf f jögur i gærdag, að fimm ára drengur var á leið suður yfir merkta gang- braut á BUstaðavegi við Asgarð, þegar fólksbifreið ók á hann. Kastaðist drengurinn fimm metra áfram við áreksturinn og missti þegar meðvitund. Var hann fluttur á slysavarðstofu Borgarspitalans og þegar siðast fréttist var verið að rannsaka meiðsli hans og hafði hann ekki komizt til meövitundar og liggur hann þungt haldinn á gjörgæzlu- deild. Okumaður fólksbifreiðarinnar, sem var kvenmaður, kveðst ekki hafa séð drenginn fyrr en hann var kominn vel Ut á gangbraut- ina, og þá þegar hemlað, en um seinan. Mældust löng hemlaför eftir bifreiöina, og er þvi talið að hún hafi verið á töluverðri ferð. A miðvikudaginn, um klukkan hálffjögur um eftirmiðdaginn, lá svo enn einu sinni við stórslysi á gangbrautinni við Sundlaugarn- ar, þar sem fyrir örfáum dögum var ekið á tvær litlar telpur. 1 þetta skipti var það sjö ára drengur, sem var að koma heim Ur skólanum. Hann hafði ýtt á stöðvunarhnapp ljósanna og var kominn út á eyjuna á miðri göt- unni, þegar leigubill af Hreyfli, Benz ’67, hvitur að lit kom æðandi og ók yfir gangbrautina, þrátt fyrir það aö hann æki á móti rauðu ljósi. Bill, sem hafði numið staðar á hinni akbrautinni til þess að hleypa drengnum yfir flautaði á bilinn, sem yfir fór, en sá lét engan bilbug á sér finna. Þarna mátti ekki muna nema hárs- breidd, og hefði drengurinn ekki numið staðar á eyjunni hefði hann án efa látið lifið I enn einu gang- brautarslysinu. Þetta tilfelli var kært til lög- reglunnar og er von til þess að menn fari senn hvað liður að láta sér segjast, og reyni að fara eftir umferðarreglunum, áður en fleiri slys verða hér og enn fleira fólk liggur limlest á sjúkrahúsunum, eða andvana á likbörunum. SILDVEIÐISKIPIN VEIÐA ÁFRAM í NORÐURSJÓ — ákvörðun um heimkvaðningu fre.stað gébé—Rvik — Afli islenzku sildveiðiskipanna i Noröursjó hefur verið nokkuð góður að undanförnu, og var heildaraflinn 5. nóv., frá þvi að veiöi hófst 18. april sl. 17.933,5 lestir að verðmæti 773.588.303.- kr. Eins og kunnugt er, ákvað Norðaustur-Atlantshafs- fiskveiðinefndin að islendingar mættu veiða 19 þús- und lestir á timabilinu 1. júli 1975, til ársloka 1976. Jafnframt fór nefndin fram á, að aöeins þriðjungur þess magns yrði veiddur á þessu ári. Ekki hefur verið farið að þcssum tilmælum, og er aflamagnið frá 1. júli nú orðið tæpar 9.800 lestir. A fundi Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar i London i næstu viku, mun þetta mál vera tekið fyrir. Danir hafa nú kallað heim sildveiðiflota sinn úr Norður- sjó, enda liafa þeir fyllt þann kvóta sem nefndin skammtaði þeim. Rætt mun hafa verið um.i sjávarútvegsráðuneyt- inu að kalla sildveiðiflotann heim, en ákvörðun um það mál er frestað þangað til eftir fund nefndarinn- ar i London i næstu viku. Islenzku sendinefndina skipa Þórður Asgeirsson að hálfu sjávarútvegs- ráðuneytisins, Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ, Ingólfur Stefánsson framkvæmdastjóri FFSI og Jakob Jakobsson fiskifræðingur. Loftur Baldvinsson EA er enn aflahæstur sild- veiðiskipanna i Norðursjó og hefur nú fengið 1.723,7 lestir að verðmæti 69.305.523.- kr., meðalverð á kg. 40,21 kr. Súlan EA kemur fast áeftir með 1.390,9 lestir að verðmæti 64.057.699,- kr., meðalverð á kg 45,85 kr. Mikill munur er ef samanburður er gerður á sild- arsölum erlendis áþessu ári og s.l. ári, en á timabil- inu 7. mai til 2. nóv. 1974 var aflinn 34.656,7 lestir að verðmæti 997.530.732.- kr. en i ár var hann, á tima- bilinu 18. april til l.nóv., 17.081,5lestir aöverðmæti 732.583.440,- kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.