Tíminn - 07.11.1975, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Föstudagur 7. nóvember Í975.
RIKIÐ EIGI YFIRRÁÐARÉTT YFIR
JARÐHITA Á HÁHITASVÆÐUNUM
MÓ—Reykjavík. — Á fundi neðri-
deiidar í gær mælti Gils Guð-
mundsson fyrir frumvarpi, sem
hann flytur ásamt Jóni Skafta-
syni, Benedikt Gröndal, og
Magnúsi T. Ólafssyni um breyt-
ingu á orkulögum. Urðu miklar
umræður um frumvarpið, en
samhljóða frumvarp hefur legið
fyrir fjórum þingum. Upphaflega
var það flutt sem stjórnarfrum-
varp.
Lagöi framsögumaður áherzlu
á að nú yrði þetta frumvarp af-
greitt, svo i ljós kæmi afstaöa
þingmanna i þessu veigamikla
máli. Með frumvarpinu kvað
hann gert ráð fyrir þeirri megin-
breytingu frá núgildandi lögum,
að á háhitasvæðum eigi rikið
allan rétt til umráða og hag-
nýtingar á jarðhita.
Sagði flutningsmaður, að með
jarðhitasvæði er i frumvarpinu
átt við uppstreymissvæði frá
rennsliskerfi heits grunnvatns.
Rannsóknir hafa sýnt, að slikum
svæöum má skipta i tvo flokka.
Annars vegar eru lághitasvæði,
sem oft einkennast af vatnsmikl-
um laugum og sjóðandi hverum
og eru yfirleitt á láglendi. Hins
vegar eru háhitasvæði, sem
einkennast af gufuaugum, leir-
hverum og ummynduðu bergi.
Við boranir i fimm háhitasvæði
hefur fundizt yfir 200 gr. C hiti á
minna en 1000 m. dýpi, og efna-
rannsóknir á öðrum háhitasvæð-
um benda til, að þar megi vænta
svipaðs ástands. Virðist eðlilegt
að miða skilgreiningu háhita-
svæða við þetta ástand.
Nýtanlegt varmaafl háhita-
svæðanna er taliö vera um 90 af
hundraði alls varmaafls jarð-
hitasvæða landsins. Telja má lik-
legt, að háhitasvæöin verði á
næstu áratugum nýtt fyrst og
fremst til stóriðju, raforkuvinnslu
og hitaveitu i þéttbýli. Slik nýting
yrði ekki á færi einstaklinga,
heldur i höndum rikis, sveitar-
félaga eða stórra fyrirtækja.
Meginatriði þessa frumvarps
væri þvi að tryggja hagkvæma
nýtingu háhitasvæðana, i þágu
þjóðarheildarinnar.
Eigendur Svartsengis
krefjast offjár
Siðan rakti flutningsmaður
nokkuð gang hitaveitufram-
kvæmda i Svartsengi og taldi, að
þar hefðu landeigendur krafizt
gifurlegra bóta fyrir landið, og sá
ágreiningur, sem milli landeig-
enda og stjórnar hitaveitu Suður-
nesja hefði orðið, væri þess vald-
andi að ekkert miðaði að lagningu
hitaveitu um Suðurnes.
Ef þetta frumvarp hefði orðið
að lögum, þá væri slíkum töfum
ekki til að dreifa. En tafirnar
kostuðu ibúa Suðurnesja gifurleg-
ar fjárhæðir, bæði vegna mikils
oliuverðs, og aö sifellt yrðu fram-
kvæmdir dýrari, ef þær drægjust
lengi.
Að lokum sagði flutningsmað-
ur: Þetta frumvarp er um það,
hvort auðæfin skuli teljast eign
einstaklinganna, eða þjóðar-
heildarinnar, auðæfi sem hafa
orðið til vegna aögerða rikisins.
Það striðir á móti minni réttlætis-
kennd að þetta sé eign einstakl-
inganna.
Ólafur G. Einarsson talaði
næstur og taldi frumv. stefna út á
hættulega braut ef samþykkt
yröi. Taldi hann fylgi við það
hafa minnkað eftir þvi sem menn
kynntu sér efni þess meira.
Taldi hann ekkert óeðlilegt,
þótt menn hefðu átt fasteign um
áraraðir, án þess að nýta hana, en
siðar kæmu þeir timar að hag-
kvæmt reyndist að taka hana til
notkunar. Einnig taldi hann engin
rök hafa verið færð fyrir þvi að
þessi lagasetning yrði til þess að
hitaorka yrði virkjuð á þjóðhags-
legan hátt.
Mótmælti ræðumaður þvi, að
tafir hefðu orðið á framkvæmd-
um við Svartsengi vegna hárra
bótakrafna landeigenda, heldur
væri tæknilegum undirbúningi
verksins ekki lokið.
Þá sagði ræðumaður, að nú
væri gerðardómur að störfum um
bætur til landeigenda fyrir hita-
réttindin, en samið hefði verið um
allt nema verðið. Lyki þessi
gerðardómur væntanlega störf-
um siðar i þessum mánuði.
Þá taldi ræðumaður frumvarp-
ið brjóta I bága við 67. gr.
stjórnarskrárinnar, og ekki væri
hægt að taka eign af mönnum án
þess að bæta að fullu.
Ekki má braska
með hitaréttindi
Ingvar Glslason taldi frum-
varpið gallað og 1 þvi fælust þjóð-
nýtingaráform. Hins vegar kvað
ORKUSTOFNUN
Jorðhitadeild
hann nauðsynlegt, að ekki væri
braskað með hitaréttindin, og
finna yrði leiðir til að koma i veg
fyrir það. Þess krefðist al-
menningsheill. Slikt væri hægt aö
gera á annan hátt en lagt væri til i
þessu frumvarpi.
Það væri hægt að gera á tvenn-
an hátt. í fyrsta lagi að beita
venjulegum eignarnámsheimild-
um, en i öðru lagi að Alþingi setji
reglur um sölu á jarðhitaréttind-
um. Það væri ólikt betra, en gert
væri ráð fyrir i þessu frumvarpi.
Hvatti þingmaður aðra þing-
menn til að kynna sér efni frum-
varpsins vel.
Bcnedikt Gröndal talaði næstur
og lýsti stuðningi Alþýðuflokksins
við frumvarpið og Gils Guð-
mundsson talaði öðru sinni og
sagöi, aö ræða ólafs G. Einars-
sonar, væri sú mesta afturhalds-
ræða, sem flutt hefði verið i þing-
inu sl. 70 ár.
Kvað hann undarlegt, að ólafur
G. Einarsson talaði máli braskar-
anna i stað þess að tala máli
Hitaveitu Suðurnesja, en i stjórn
hennar hefði hann verið frá upp-
hafi.
Óeðlilegt,að einstakling-
ar stórauðgist án þess að
hafa lagt neitt að mörk-
um
Jón Skaftason gerði grein fyrir
hvers vegna hann hefði staðið að
flutningi þessa frumvarps. Til
þess lægju tvær ástæður.
Jarðhiti væri mjög sérstök
eign, og gæti legið undir löndum
margra aðila. Siðan færi það eftir
þvi hvar rikiö réðist i að bora
hvar verðmætin kæmu upp á yfir
borð jarðar. Væri mjög óeðlilegt,
að eigandi þessarar sérstöku
jarðar yrði allt i einu stórauðug-
ur, án þess að hafa gert nokkuð
sjálfur. Væri þaö öndvert hans
grundvallarskoðunum að verð-
mæti djúpt undir jarðvegsyfir-
borði, væri eign einstakra
manna.
Einnig taldi þingmaðurinn, að
erfitt væri að beita áætlunar-
búskap við notkun hitans til hags-
bóta fyrir allan landslýð, væri
hann eign einstaklinga. Og jarð-
hita á háhitasvæðum væri ekki
nema á færi opinberra aðila að
nýta.
Þá sagði Jón Skaftason að fjöl-
mörg dæmi væru um að
takmarkaður væri eignarréttur
manna, en stjórnarskráin
verndaði þá gegn þvi að réttur
væri á þeim brotinn án bóta.
Að lokum ræddi þingmaðurinn
um tafir á framkvæmdum við
hitaveitu Suðurnesja, og taldi að
þær hefðu ekki enn orðið umtals-
verðar vegna deilunnar við land-
eigendur. Hins vegar væri ekki
ljóst hvaö gerðist, ef annar hvor
aðilinn, eða jafnvel báðir, segðu
sig frá niðurstöðum gerðardóms.
Þá gæti komið til seinkunar á
framkvæmdum.
Þekkt og líkleg hóhitasvæði d Islandi
Reykjonesi
ÁFANGASKÝRSLA UM BESSASTAÐAÁR-
VIRKJUN TILBÚIN í LOK JANÚAR
Nýlega svaraði iðnaðarráð-
herra fyrirspurn frá Helga F.
Seljan um virkjunarrannsóknir á
Fljótsdalshéraði. Fyrri liður
fyrirspurnarinnar var þannig:
Hvenær er niöurstaðna að
vænta af rannsókn þeirri á virkj-
un Bessastaðaár, sem fram hefur
farið, þannig að fullnaðarákvörð-
un um virkjun megi taka?
1 svari iðnaðarráðherra kom
m.a. fram að s.l. vor hófust
margs konar rannsóknir til undir-
búnings virkjunar Bessastaðaár.
Vinna við þessar rannsóknir hófst
i byrjun júni og stóð fram i byrjun
október. Var á þeim tima mælt
fyrir stiflum við þau miðlunarlón,
sem þarna þarf að gera, auk þess
sem undirstöður stiflnanna voru
kannaðar. Gerð var könnun á
efnisnámum vegna töku fylliefna
i stiflur og tekin efnissýni úr þess-
um námum. Boraöar voru tvær
200 m djúpar rannsóknarborholur
til könnunar á gerð og þykkt
berglaga i Valþjófsstaðahlið og
byrjað var á þriðju holunni uppi á
heiðarbrúninni, en þeirri holu
varð ekki lokið. Niðri i Fljótsdal
var mælt og borað á þeim stöðum,
sem heppilegast var talið að
grafa frárennslisskurði frá
virkjuninni. Haldið var áfram
mælingum á rennsli fallvatna á
þessu svæði. 1 sumar var einnig
unnið að könnun á lifriki
virkjunarsvæðisins. Gerð var
yfirlitskönnun á svæðinu sem
heild og auk þess sérstök könnun
á lifriki vatna á heiðinni og
gróðurfari þeirra svæða, sem
fyrirhugað er að fari undir vatn
við gerð miðlunarlóna. Siðást-
töldu rannsóknirnar voru unnar
af Rannsóknarstofnun Land-
búnaðarins, Orkustofnun og
Náttúrugripasafninu á Neskaup-
stað, sem einnig haföi umsjón
með þessum hluta rannsóknanna.
Nú stendur yfir úrvinnsla
þeirra gagna, sem aflað hefur
verið i sumar, og má gera ráð
fyrir að meginniðurstöður af
hönnun virkjunarinnar liggi fyrir
i áfangaskýrslu, sem gerð verður
ilok janúarmánaðar n.k. Verður i
þeirri skýrslu kostnaðaráætlun
fyrir virkjunina og mat á hag-
kvæmni hennar almennt.
Fullnaðarúrvinnslu þeirra gagna,
sem fyrir liggja, mun væntanlega
verða lokið siðla vetrar.
Með tilliti til þessa mætti þá
vænta fullnaðarákvörðunar um
virkjunina.
Seinni liður fyrirspurnarinnar
var hvort rétt sé, að Sviss Alu-
minium eða aðrir erlendir aðilar
hafi átt einhverja aðiid að rann-
sókninni, eða hvort uppi væru
áform um slika aðild hvað snerti
frekari rannsókn eöa fram-
kvæmdir varðandi hugsanlega
stórvirkjun þar eystra?
Svar iðnaðarráðherra:
Engir erlendir aðilar hafa
starfað að undirbúningsrann-
sóknum að Bessastaðaárvirkjun.
Hins vegar fóru fulltrúar Sviss
Aluminium þess á leit við við-
ræðunefnd um orkufrekan iðnað,
að fyrirtækið mætti senda verk-
fræðinga til landsins til að kynna_
sér virkjunaraðstæður á Austur-
landi. Varð nefndin við þeim til-
mælum, og komu 2 verkfræðingar
hingað til lands i ágústmánuði s.l.
Þeir fóru um hugsanlegt
virkjunarsvæði i fylgd með is-
lenzkum verkfræðingum, sem
kynntu þeim helztu niðurstööur
þeirra rannsókna, sem Orku-
stofnun hafði framkvæmt á svæð-
inu.