Tíminn - 01.02.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 1. febrúar 1976.
Dr. Kowes ásamt vinkonu sinni og samstarfsmanni frá Kanada.Igna-
tusi 1. kardinála.
— Prins — Petrucci. Viö vinnu sina er hann klæddur rauöri sk ikkju og
meö svört gieraugu. Thomas Kowes aöstoöar hann i borgaralegim
klæöum. i Sankti Péturs kirkjunni i Vincoli veittu þeir skartgripasaia n-
um inngöngu i fölsku regiuna — riddararnir af Möltu —. Þaö eina sem
var ósvikiö viö þessa athöfn var meðhjálparinn.
Þeir lita á sig sem riddara,
prófessora og prinsa, en i augum
Thomasar Kowes eru þeir allir
svikarar. Þeir borga háar fjár-
fúlgur fyrir titla, sem eru falskir
og einskis virði. Kowes selur
hverjum, sem er nógu rikur og
metnaðargjarn, slika titla. í
verzlun sinni hefur hann komið
sér upp dágóðu safni af alls kyns
búningum, skikkjum og hempum
hvaðanæva úr heiminum.
Thomas Kowes er afar klókur
sölumaður, og hefur að þvi að
honum sjálfum finnst alls ekki
svo slæmar tekjur (stundum 1,5
millj. á dag). Hann hefur engan
fastan verðtaxta, heldur fer verð-
ið á söluvarningi hans eftir
grunnhyggni kúnnans og þykk-
leika peningaveskis hans. Þýzkur
stálframleiðandi, sem orðinn var
þreyttur á að vera bara einhver
Friedrich Meyer, keypti af Kowes
doktorgráðu við M.T. College i
Sheffield, og af þvi það hljómaði
svo vel, þá keypti hann einnig
öldungardeildaþingmannstitil.
Allt þetta kostaði tæpar 6 milljón-
ir króna. Fyrir lægra verð var
ékkert fáanlegt fyrir hr. Meyer.
Það eina, sem var raunverulegt i
þessum viðskiptum, voru hinir
beinhörðu peningar Meyers, þvi
fyrrnefndur háskóli var ekki til.
var, var auðvelt fyrir þennan
heimsmann, sem talaði sjö
tungumál reiprennandi. Hann
sagöi skólastjóranum að það
stæði til að halda hóf til heiðurs
þýzkum aðalsmanni. Eiginlega
hefði staðið til að halda þetta hóf i
Sheffield, en þar sem maðurinn
væri á leið til Bahama og gæti að-
eins stoppað i London i tvær klst,
vantaði þá þess vegna húsnæði
fyrir veizluna i London. Hin
móðurlega skólastýra stóðst ekki
töfra Kowes, og féllst á að lána
mahoniklæddan hátiðarsal skól-
ans. Skólinn var hvort sem er
tómur, þar sem sumarfriið stóð
einmitt yfir. Kowes þótti salurinn
frekar tómlegur, svo hann leigði
tvo leikara á 7000 krónur hvorn til
að mæta til veizlunnar klædda
sem prófessora. Hlutverk þeirra
var i þvi fólgið, að ganga um
meðal viðstaddra gesta, ábúðar-
miklir og gáfulegir á svip og
steinþegja.
Til að gera sviðið enn trú-
verðugra, hengdi Kowes skilti
með áletruninni — London
College of Applied Sciences — við
inngang skólans.
Meyer kom ekki einn til veizl-
unnar. Hann kom akandi i glæst-
um Rolls Royces með konu sina
og tvær tylftir vina og starfs-
manna, sem lutu honum i aðdáun.
Dr. Meyer vildi fá eitthvað
meira fyrir peningana sina. Hann
krafðistþess að Kowes héldi hon-
um virðulegt hóf i hátiðarsal há-
skóla hans. Nú var illt i efni, þvi
að Kowes hafði ekki aðgang að
neinum háskóla i London. Hann
þeyttist um borgina þvera og
endilanga i von um að finna ein-
hverja lausn, — þvi hann vildi svo
sannarlega ekki valda viðskipta-
vini sinum vonbrigðum. Ósk hans
rættist. Allt i einu stóð hann fyrir
framan hús nokkuð, sem að visu
var bara kvennaskóli en samt
mjög virðuleg bygging með
súlnaröð meðfram innganginum.
Þetta var einmitt það sem hann
þarfnaðist. Hann leitaði uppi
skólastjórann og það sem eftir
Friedrich Meyer, stáiframleiðandi frá Þýzkalandi keypti doktorsnafn-
bót af Kowes. Hér sést hann fyrir framan háskóiann, sem I raun er bara
kvennaskóli, — ásamt fylgdarliði sinu.