Tíminn - 10.02.1976, Síða 16
f
Þriðjudagur 10. febrúar 1976
-
METSOIXJBÆKXm
Á ENSKU
VASABROTI
V—
sís-iómn
SUNDAHÖFN
4 ^
GKÐI
fyrirgóöan mat
$ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
Páll páfi VI:
ÚR HJÓNABANDI GETA MENN ALLS
EKKI LÖSNÁÐ, ÞÓTT ÁSTINA SKORTI!
—■ gangast við vigsluna undir ævarandi skyldu
Reuter/Vatikaninu, Róm —
„Hjónabandið er skylda, sem
menn taka á sig með fúsum og
frjálsum vilja, og undan þessari
skyldu geta þeir ekki losnað, jafn-
vel þó aö slokknuð sé sú ást, er
upphaflega tengdi karl og konu
saman I bönd hjúskaparins,"
sagði Páll páfi i gær.
Jafnframt sagði páfi i ávarpi
sinu til æðsta ráðs kaþólsku kirkj-
unnar, Sacra Rota, að hjúskapur-
inn fæli i sér samþykki, sem hefði
ævarandi gildi, og lögfræðilega
séð breytir það engu um þetta
samþykki, þótt ást riki ekki leng-
ur á milli karls og konu i hjóna-
bandi.
Páfi bað kirkjuráðsmenn og
aðra i guðanna bænum að mis-
skilja sig ekki og túlka ekki orð
sin svo, að hann áliti ástina
ónauðsynlegan þátt i hjónaband-
inu. „Auðvitað er ástin ómetan-
legur þáttur i hjónabandinu!”
Kúbanskir hermenn tóku
Huambo í gær
Reuter/London. Talsmenn
FNLA og UNITA viðurkenndu i
gær, að höfuðborg þeirra,
Huambo, hefði fallið i hendur
kúbanskra hermanna þá um
daginn, sem streymt hefðu inn i
borgina þúsundum saman i
skjóli sovézkra skriðdreka.
Þeir 5000 hermenn sem varið
höfðu borgina, lögðu á flótta til
suðurs og austurs, að þvi er
talsmaður UNITA i Lusaka
sagði i gær.
Júgóslavneska fréttastofan i
Belgrad sagði, að MPLA hefði
nú unnið fullnaðarsigur á and-
stæðingum sinum i styrjöldinni i
Angola, og ættu þeir það eitt eft-
ir, að reka suður-afriska her-
menn, sem enn væru I Angola,
út fyrir landamærin.
Áform um kosningar til EBE þingsins 1978:
ÞÁÐI TAN-
AKA MÚTUR
FRÁ
LOCKHEED?
Reuter/Tokyo — Aðstoðarvarn-
armálaráðherra Japans upp-
lýsti á þingi i gær, að það hefði
verið að undirlagi Tanaka, fyrr-
verandi forsætisráðherra Jap-
ans, sem japönsk hernaðaryfir-
völd hættu við smiði japanskra
Tanaka
herflugvéla sem grandað gætu
kafbátum, en i þess stað keypt-
ar bandarískar Lockheedvélar.
Horold Wilson |4 BREZKIR AAÁLALIÐAR
TEKNIR AF LÍFI í ANGOLA
GENGI SPÆNSKA PES-
ETANS FELLT UM 10%
i
— mikil ólga á Norður-Spáni
þeirra fyrir að hafa ætlað að
hlaupast á brott og hætta þátttöku
i bardögunum. Brezk dagblöð
skýrðu frá fréttum um þetta efni i
gær,og var þar sagt, að maður að
nafni Kalan herforingi, hefði gef-
ið fyrirskipanirnar um að menn
þessir yrðu aflifaðir.
Einn fyrrverandi málaliði, sem
starfað hefur undir stjórn Kalans
þessa, lýsti honum sem morðóð-
um brjálæðingi, en snjöllum her-
manni, engu að siður.
Wilson sagðist myndu gera
nánari grein fyrir máli þessu i
dag, er frekari skýrslur hefðu
borizt. Háværar raddir eru nú
uppi um það i Bretlandi, að
stjörnin leggi fram á þingi lög,
þar sem bannað verði að kveðja
brezka rikisborgaba til að gegna
herþjónustu á vegum erlendra
rikja.
Reuter/Madrid. Spænska
stjórnin ákvað i gær að fella gengi
spænska gjaldmiðilsins, peset-
ans, um 10%, en sem kunnugt er,
hefur efnahags- og stjórnmála-
vandinn þar I landi farið vaxandi
ineð degi hverjum að undanförnu.
Ákvörðunin um gengislækkun
pesetans kemur nokkuð á óvart.
Greiðsluhallinn við útlönd er
gifurlegur, um 3,000 milljónir
Bandarikjadala. Dregið hefur úr
ferðamannastraumnum til Spán-
ar, og verkföll og alls kyns mót-
mælaöldurhafa kostað Spánverja
meira vinnutap sl. mánuðen allt
árið 1975.
Fjármálaráðherra Spánar og
aðstoðarforsætisráðherra lands-
ins sögöu i gær, er tilkynnt var
um þessa ákvörðun, að hér væri
eiginlega ekki um raunverulega
gengisfellingu að ræða, heldur
væri gengi pesetans látið fljóta
miðað við Bandarikjadal.
Skæruliðar frelsishreyfingar
Baska, ETA, skutu borgarstjór-
ann i bænum Galdacano, sem er
ekki langt frá Bilbao, til bana i
gær, en borgarstjóri þessi, sem
var 64 ára að aldri, var þekktur
fyrir andspyrnu gegn að-
skilnaðarstefnu Baska. Fjórir
vopnaðir menn ruddust að
borgarstjóranum, þar sem hann
var að ganga inn á heimili sitt og
skutu hann þar til bana. Bif-
reiðarstjóri borgarstjórans særð-
ist litilsháttar. Arásarmennirnir
komust undan i bifreið, sem beið
þeirra.
t nóvember sl. skutu félagar i
Eta borgarstjórann i Oyarzun,
sem er bær ekki langt frá San Se-
bastian, til bana.
Morðið á borgarstjóranum
kemur þremur dögum seinna
heldur en tilkynning stjómarinn-
ar i Madrid um að afnumin hefðu
verið umdeildustu ákvæði lög-
gjafar þeirrar, sem heimiluðu
stjórninni að taka skæruliðana
fimm af lifi i sptember sl.
Fréttaskýrendur segja, að
gengisfelling pesetans muni hafa
i för með sér gifurlega hækkun
oliu og almenns neyzluvarnings,
en það geti aftur leitt af sér verk-
fallsaðgerðir og uppþot á stjórn-
málasviðinu.
Fjármálaráðherrann sagði, að
möguleikinn á gengisfellingu
hefði veriö til umræðu i stjórninni
allt frá þvi i' desember sl. Hann
sagði ennfremur, að gengisfell-
ingin myndi bæta greiðslustöðu
Spánar við útlönd um 600 til 1000
milljónir Bandarikjadala.
Hörmungar styrjaldarinnar I Angola.
Óvænt ákvörðun spænsku st|órnarinnar;
Reuter/London. Harold Wilson,
forsætisráðherra Breta, sagði á
þingfundi i neðri deild brezka
þingsins i gær, að allt virtist
benda til, að fjöldi brezkra mála-
liða hefði fallið I átökunum i
Angola siðustu daga.
Wilson gaf sterklega i skyn, að
auk þeirra, sem fallið hefðu á vig-
vellinum, hefðu a.m.k. fjórtán
brezkir málaliðar verið teknir af
lifi samkvæmt skipun yfirmanna
AAayotte
franskt
Reuter/Paris — Yfirvöld I
Paris skýrðu frá þvi i gær.að
meira en 99% Ibúa eyjarinnar
Mayotte I Comoroeyjaklasan-
um hefðu verið þvi fylgjandi
að vera áfram I tengslum við
Frakkland, en þjóöarat-
kvæöagreiðsla fór fram um
þetta atriði sl. sunnudag.
Harðar deilur um fjölda
fulltrúa einstakra ríkjq
Reuter/Brussel. Skoðanaágrein-
ingur milli stærri og smærri
aöildarrikja Efnahagsbandalags
Evrópu, EBE, komu í veg fyrir,
að utanrikisráöherrum landanna
tækist að komast að samkomu-
lagi um það, hvernig haga skuli
skiptingu þingsæta milli ein-
stakra aðildarrikja.
Talsmaður EBE sagði, að for-
maður bandalagsins, Gaston
Thom, forsætisráðherra Luxem-
borg, hefði sagt i lok viðræðn-
anna, að endi þyrfti að binda á
deilu þessa fyrir 1. april n.k. þeg-
ar leiðtogar aðildarrikjanna
koma saman til fundar i Brussel,
ef takast eigi að efna til kosninga
til sameiginlegs þings bandalags-
ins 1978, eins og stefnt er að.
Aðaldeilan liggur i þvi, að full-
trúar hinna fámennari rikja
bandalagsins vilja fá fleiri þing-
menn á hinu sameiginlega þingi
heldur en hlutfallstillaga fulltrúa
hinna fjölmennari rikja myndi
veita þeim.
Kosningafyrirkomulag á nú-
verandi Evrópuþing er miðað við
fólksfjölda i löndum aðildarrikj-
anna, hlutfallsreglan, og sitja á
þvi þingi 198 fulltrúar, sem til-
nefadir eru af þingum landa
sinna.
Ef verða ætti við tillögum hinna
fámennari rikja og veita þeim
stærri aðild að þinginu, yrði að
fjölga fulltrúum svo verulega, að
þeiryrðu einhvers staðar á bilinu
284 til 384.
Callaghan, utanrikisráðherra
Breta, lýsti yfir stuðningi við til-
lögur Frakka sem gera ráð fyrir
hlutfallskosningu til þingsins, en
þó þannig, að gerð yrði undan-
tekning gagnvart Luxemborg,
sem er fámennasta riki banda-
lagsins, er með 300 þúsund ibúa.
Fulltrúi lrlands mótmælti
þessu hins vegar harðlega og
sagði að þess konar fyrirkomulag
myndi verða mjög óréttlátt i garð
trlands. Þessu svaraði Callaghan
á þann veg, að ef verða ætti við
óskum aílra aðildarrikjanna,
þyrfti liklega að fjölga þingsætum
i 1000, svo að allir gætu orðið
ánægðir. Hann benti og irska full-
trúanum á, að ef Irar væru i
vanda að þessu leyti þá væru
Bretar það lika, þvi að Skotum og
Walesbúum væri ætlað færri
þingsæti heldur en írum, jafnvel
þó svo að ibúar Skotlands og
Wales séu fleiri heldur en ibúar
trlands.
Sovézkur út-
flytjandi:
20ára
baráttu
lokið!
Reuter/Moskva. 60 ára gam-
all barnakennari i Sovétrikj-
unum, sem fæddur er i Detroit
i Bandarikjunum, hefur eftir
20 ára stööuga baráttu, fengið
leyfi sovézkra yfirvalda til
þess að flytjast til Bandarikj-
anna. Kennarinn flutti til
Sovétrikjanna með fjölskyldu
sinni snemma á þriðja ára-
tugnum.