Tíminn - 04.03.1976, Qupperneq 1

Tíminn - 04.03.1976, Qupperneq 1
r Leiguflug—Neyðarflug HVERT SEAA ER, HVENÆR SEM ÉR- FLUGSTÖÐÍN HF Simar 27122-11422 — Áætlunarstaðír: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík • Hvammstangi — Stykkis- hólmur— Rif Súgandafj; Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: . 2-60-60 & 2-60-66 Ingibjörg Guðlaugsdóttir FB-Reykjavík. Skipverj- ar á Jóhannesi Gunnari GK 268 fundu á þriOju- daginn Hk Ingibjargar Guölaugsdóttur, Grettis- götu 33b i Reykjavik, sera var matsveinn á Hafrúnu AR 28. Likið fannst undan öngulbrjótsnefi. Ingi- björg var fædd 6. júli 1935. Hún lætur eftir sig átta börn á aidrinum 4 til 25 ára. gébé Rvik — Taliö er fullvlst aö stálskipiö Hafrún AR 28 frá Eyr- arbakka, sem fór til loönuveiöa frá Þorlákshöfn um miönætti á mánudag hafi farizt i slæmu veöri viö Reykjanes, en þar voru suö- austan 7—8 vindstig. t gærdag fundu björgunarsveitir brak og hluta úr öörum björgunarbát Hafrúnar, auk lóöarbelgja. Um 60—70 manns gengu á fjörur á Reykjanesi og viðar i gærdag, flugvélar frá Landhelgisgæzlunni og varnarliöinu á Keflavikurflug- velli, auk þyrlu leituöu meöfram strandlengjunni og svo fjörutiu skip sem leituðu mjög skipulega á stóru svæöi. Björgunarsveitir slysavarnafé- lagsins I Sandgeröi, Höfnum, Grindavlk, Þorlákshöfn og Eyr- arbakka gengu á fjörur frá birt- ingu i gærmorgun og langt fram á dag. Leitaö hefur veriö frá Sand- geröi suöur meö Reykjanesi og austur I Selvog. Sýr, flugvél land- helgisgæzlunnar leitaöi á suöur- svæöinu I gær, og vestur af Reykjanesi og vestur meö suöur- ströndinni. Leitarflugvél og þyrla varnar- liðsins leituöu vestur aö Garö- skaga og norður með Faxaflóa og meö allri strandlengjunni frá Garöskaga austur fyrir aö Þor- lákshöfn. Skipverjar á Þorsteini RE 303 voru fyrir leitinni á sjó, en I henni tóku alls þátt fjörutiu skip. Leitin var mjög vel skipulögð og var eins og þéttriöið net, sagði Hann- es Hafstein, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins I gær. Björgunarskipiö Goðinn leitaði I Sem dæmi um þaö, hve leit björgunarsveita Slysavarna- félagsins er umfangsmikil og nákvæm, eru þessar lím- bandsslitrur, sem björgun- armenn úr Grindavik fundu og töldu aö væru af matar- pökkum eöa neyöarblysum. Timamyndir: Gunnar. FB-Reykjavík. Þeir sjö skipverjar af Hafrúnu AR 28 sem er saknað eru Valdimar Eiösson skipstjóri, fæddur 1945, kvæntur og tveggja barna faöir. Agúst ólafsson, fæddur 1949, kvæntur og á eitt barn. Þóröur Þórisson, fæddur 1943, kvæntur og á eitt barn. Július Stefánsson, fæddur 1955, á unnustu. Haraldur Jónsson, fæddur 1955, trúlofaöur og á eitt barn. Guömundur S. Sigursteinsson, fæddur 1957, ókvæntur, og Jakob Zophoniusson, fæddur 1931, á einn upp- kominn son. og út af Sandvik, þar sem brakið fannst. Þaö sem fannst var toppurinn af'öörum gúmmibjörgunarbát Hafrúnar, matarpakkar, vara- pokar meö álpokum I, árar og belgir. Einnig fannst meirihluti af millidekki af sjálfum bátnum, viö Háleyjarberg. Björgunarmenn i Grindavlk sögöust ekki telja að báturinn heföi strandaö, né heldur aö áhöfnin hafi komizt um borö i gúmmibjörgunarbátinn, þvi þá væru um þaö einhver merki. Tveir björgunarbátar voru á Hafrúnu og var annar geymdur á þaki stýrishússins en hinn fram undir hvalbak, og er það hinn síöarnefndi sem taliö er að brekið sé úr. Að sögn Hannesar Hafstein veröur leit hafin aö nýju i birtingu i dag og veröur áherzlan lögð fyrst og fremst á leit úr flugvélum og að ganga strandlengjuna. Hávaðabrim geröi leit viö strönd- ina torvelda i gær, en auk þess var mikið hvassviöri við Reykja- nes og voru t.d. hafnirnar lokaöar bæöi I Grindavik og I Þorláks- höfn. Geir Guðmundsson úr björg- unarsveitinni i Grindavik heldur hér á einum af þrem lóðarbelgjum Hafrúnar, sem fundust.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.