Tíminn - 04.03.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.03.1976, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Fim mtudagur 4. marz 1976, Hún hefur ekki gleymzt Enn er mikiö skrifaö og bolla- lagt um Marilyn Monroe — bæði lif hennar og dauða, Arthur Miller, leikritahöfundurinn frægi, sem um tima var kvænt- ur Marilyn, skrifaði siöar leik- rit, sem allir þekktu, að hún var fyrirmyndin að. Nú hefur sagan um Marilyn verið tekin til meðferðar á sviði i Lond- on, en þetta er ekki leiksýn- ing, heldur ballett-verk. Aðal- hlutverkið i ballettinum dansar Tessa Billyeald, en hún er 22 ára og er fædd i Vestur- Afriku. Hún þykir góð dansmær, og hún þótti alveg sjálfsögð t hlutverkið, þvi að hún er lik leikkonunni sálugu i vexti og út- liti (reyndar er hún með hár- kollu, sem sérstaklega var gerð til að likja eftir hári Marilyn). Eins og flestir muna, sem sáu Marilyn Monroe i kvikmyndum, þá hafði hún sérstæða rödd, hása en bliða, og er leikið segul- band með rödd hennar með dansinum. A segulbandinu bæði syngur Marilyn og talar, og er hljóðið og dansinn samræmd svo að úr verður fallegt verk til minningar um hina látnu leik- konu. ¥ ¥ Bezta Carmen- ieikkona í heimi Á siðastliðnu ári var haldin Bizet-hátið i Barcelona á Spáni. Þar komu fram margar beztu söngkonur heims og kepptu i þvi meðal annars, hver þeirra léki og syngi bezt hlutverk Carmen- ar i samnefndri óperu. Sú, sem hlaut útnefninguna „Heimsins bezta Carmen”, er rússnesk söngkona frá Bolshoi leikhúsinu i Moskvu, og er nafn hennar Yelene Obraztsova. Hún hefur á efnisskrá sinni fullæfð 15 aðal- hlutverk i helztu óperum heims, en samkvæmt dómum og um- sögn hennar sjálfrar, þá er Carmen bezta hlutverkið henn- ar. Hún segist aldrei hafa lifað sig eins inn i nokkuð hlutverk i leik og söng. Yelena Obraztsova hefur oft áður fengið heiðurs- verðlaun fyrir frammistöðu sina. Meira að segja meðan hún var enn að læra, þá fékk hún fyrstu verðlaun i alþjóðlegri söngkeppni i Helsinki, og siðar hefur hún fengið gullverðlaun fyrir túlkun sina á M. Glinka, Tchaikovsky og i mörgum öðr- um keppnum, innanlands og utan. Hér sjáum við hana sem Carmen, og er hún óneitanlega glæsileg, en tslendingar hafa lika fengið að sjá og heyra glæsilegar konur syngja og leika Carmen hér i skammdeg- inu og flytja okkur sólskin og suðrænan hita.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.