Tíminn - 04.03.1976, Síða 15
Fimmtudagur 4. marz 1976.
TÍMINN
15
Svellalög í Hrútafirði og bændur óttast kal
MÓ—Reykjavik — Hér er alveg
jarðlaust og mikil svellalög, sagði
Jónas Jónsson á Melum i Hrúta-
firði i viðtali við blaðið. Eru þvi
margir hræddir um kal I túnum,
ef þessu heldur lengi fram.
Nú eru þorrablótin búin og
fremur rólegt i skemmtanalifinu,
en bændur keppast við að rýja sitt
fé. Vetrarrúningur jókst hér til
munu i fyrra, en þá var haldið hér
námskeið i rúningi. Þykir
bændum mikill munur að rýja fé
sitt um þetta leyti, og fá þannig
mun betri ull.
AAikið byggt
Gó-Sauðárkróki. A siðasta ári
voru 79 ibúðarhús i byggingu hér
á Sauðárkróki. Einnig voru hér 39
bílgeymslur i smiðum og aðrar 12
byggingar. Þá var flutt i 14 nýjar
ibúðir, og einnig voru 10 bil-
geymslur teknar i notkun. Sjö
aðrar byggingar voru teknar i
notkun.
Byrjað var á 50 ibúðum, þar af
voru 14 i sambýlishúsum, Einnig
var byrjað á 26 bilgeymslum og 6
öðrum byggingum. Um næstliðin
áramót voru 65 ibúðarhús i smið-
um á Sauðárkróki. Auk þess 29
bilgeymslur og fimm aðrar bygg-
ingar.
Byggingarfulltrúi á Sauðár-
króki er Jóhann Guðjóndsson
Árbæjarhverfi
Æskulýðsráð boðar til almenns fundar i
Árbæjarhverfi, föstudaginn 6. marz.
Fundurinn verður i samkomusal Árbæjar-
skóla og hefst kl. 20,30.
FUNDAREFNI:
Félagsmiðstöð i Árbæjarhverfi. Kynning
og umræður.
1 Æskulýðsráð
/ Reykjavíkur
STORGLÆSILEG
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, verður til viðtals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18 laugardaginn 6.
marz kl. 10—12.
Rangæingar —
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur spilakvöld i félags-
heimilinu Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 7. marz kl. 21. Góð
kvöldverðlaun og heildarverðlaun sólarlandaferð fyrir tvo. Vil-
hjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flytur ávarp.
Stjórnin.
Framsóknarvist
Framsóknarvist, Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudaginn 16/3 kl.
20,30. Glæsileg þriggja kvölda spilakeppni i Framsóknarvist
Súlnasal Hótel Sögu. önnur vistin verður þriðjudaginn 6/4 og sú
þriðja sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 22/4. Sérstök verðlaun
eru veitt fyrir hvert kvöld en heildarverðlaun fyrir þrjú kvöld er
flugfar fyrir 2 til Austurrikis. Mætið stundvislega, allir velkomn-
ir, verið með frá byrjun. Framsóknarfélag Reykjavikur.
Austur-
Skaftfellingar
Arshátið Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga verður haldin
að Hótel Höfn laugardaginn 6. marz. Hátiðin hefst með borðhaldi
kl. 20,00.
Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráöherra og Pétur Einarsson
flytja ávarp. Ýms skemmtiatriði. Húsið opnað kl. 19,00. Að-
göngumiðar seldir við innganginn.
Stjórn Framsóknarfélagsins
Austur-Skaftfellingar
Aðalfundur Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga verður
haldinn i gagnfræðaskólanum Höfn laugardaginn 6. marz og
hefst kl. 15,00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráð-
herra og Pétur Einarsson stjórnarmaður i SUF.