Tíminn - 04.03.1976, Qupperneq 16
Fimmtudagur 4. marz 1976.
METOttunMEKUR
Á ENSKU í
VASABROTI íi
fyrir góótin mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
A ÞRIÐJA ÞUSUND REKIN
FRÁ HEIMILUM SÍNUM
Reuter, Nicosia. — Eitt hundraö
og þrjátiu griskir Kýpurbúar, tvö
þúsund tyrkneskir Kýpurbúar,
þrjátiu fjölskyldur tyrkneskra
innflytjenda og nokkrar erlendar
fjölskyldur hafa fengiö fyriskipun'
um aö rýma heimili sin og flytjast
á brott innan fjórtán daga, vegna
bvggingar flughafnar i nágrenni
þorpa þeirra, segir 1 fréttaskeyti
frá' Kýpur i gær.
Þaö er tyrkneski flugherinn,
BREYTIR SÓLARLJÓSI í RAFORKU
Reuter, San Francisco.—Bandariskir visindamenn hafa uppgötvaö
frumstæöa lifveru.sem geturumbreyttsólarljósi i orku. Uppgötvun
þessi getur, þegar fram liöa stundir, beint manninum á réttar
brautir i viöleitni hans til aö vinna rafmagn úr geislum sólarinnar.
Rannsóknir á lifveru þessari hafa margþætt mikilvægi, þvi þær
varpa ljósi á vinnslu fruma i plöntum og dýrum, og geta þvi haft
mikla þýðingu fyrir læknisfræöi, auk annarra þátta.
Bakteria þessi inniheldur purpurarautt litarefni, sem getur um-
breytt allt aö tiu prósentum þess sólarljóss, sem þaö tekur til sin, I
annars konar orku.
sem stendur aö byggingu flug-
stöðvarinnar, um þrettán kiló-
metra austur af Kyrenia, og er
ætlunin að starfsfólk flughersins
leggi undir sig heimili þeirra,
sem reknir hafa verið á brott.
Þorpin sem næst eru flughöfn-
inni, eru Ayios, Epikittos, Kazap-
hani, Karakoumi og Klepini.
Ibúar þriggja fyrstnefndu þorp-
anna hafa skotiö máli sinu til
Sameinuöu þjóðanna og fariö
fram á ihlutun þeirra.
Á stað þessum er stutt flug-
braut, sem hingað til hefur verið
notuö af flugvélum, sem úöaö
hafa gróöur I héraöinu, en ætl-
unin mun vera að lengja hana og
bæta fyrir tyrkneska flugherinn.
SPÁNN*
ATKVÆÐI GREIDD UM STJÓRN-
ARSKRÁRBREYTINGAR í AAAÍ
VERKFOLL OG MOTMÆLAAÐGERÐIR I FULLUM GANGI
Reuter, Madrid. Stjórnvöld á
Spáni eru aö undirbúa atkvæöa-
greiöslu um breytingar á stjórn-
arskrá landsins, meöal annars
stofnun tveggja deilda þings.
Atkvæöagreiöslan mun væntan-
lega fara fram I mai eöa júni á
þessu ári.
Þá mun stjórnin hafa svo til
lokið frumvarpi um afléttingu
banns viö starfrækslu stjórn-
málaflokka — aö undanskildum
flokkum kommúnista, anarkista
og aöskilnaöarsinna — en bann
það hefur verið i gildi I 37 ár.
Drög aö stjórnarskrárbreyt-
ingum eru unnin af átján manna
nefnd, undir forsæti Carlos Arias
Navarro forsætisráðherra. Er
haft eftir talsmönnum stjórn-
arinnar, að vinnsla þeirra gangi
vel.
Juan Carlos konungur undirbjó
jaröveginn fyrir atkvæöagreiösl-
una I gær og sagöi þá aö atkvæöa-
greiðsla, þar sem þjóöin lýsti
vilja sinum, væri nauðsynleg til
þess aö koma á stjórnarskrár-
breytingum.
Verkföllin og mótmælaaðgerðir
halda enn áfram á Spáni, og I gær
dreiföi lögregla, vopnuö kylfum,
stórum hópi stúdenta sem voru á
leiö til menntamálaráðuneytisins
til aö krefjast endurbóta á mál-
efnum háskóla. Nokkrir stúdent-
anna meiddust.
Birgðir af grænmeti, ávöxtum
og fiski voru litlar i Madrid I gær,
vegna verkfalls bifreiöastjóra,
sem stendur enn að hluta til.
Fjórtán vörubifreiöastjórar
voru handteknir I Sevilla i gær,
sakaöir um aö veitast að þeim fé-
lögum sinum, sem vildu snúa
aftur til vinnu sinnar.
Bakarar hófu i fyrrakvöld „
hægagangsaðgeröir” til aö leggja
áherzlu á kröfur sinar um hærri
laun, og má þvi búast viö brauð-
skorti I borgum innan tiöar.
1 Baskaborginni Viktoria voru
flestar verksmiöjur og verzlanir
lokaöar I gær, til aö styöja kröfur
6.000 verkamanna, sem verið
hafa i verkfalli i tvo mánuöi.
ítalskir sósíalistar:
ENGA KARLMENN!
KVENNARAÐSTEFNAN í
BRUSSEL HEFST í DAG
Reuter, Brussel.Allir karlmenn
veröa geröir útlægir frá fundum
alþjóölegrar ráöstefnu um glæpi
gegn konum, sem hefst I Brussel
i dag.
Talsmaður skipuleggjenda
ráðstefnunnar, Lydia Horton,
sagði i gær, að meðal umræöu-
efna ráðstefnunnar yrðu mál-
efni svo sem „þröngvun kvenna
i móöurhlutverk”, „nauög-
anir”, „barsmiðar sem
eiginkonur veröa aö þola af
hendi eiginmanna”, „kauplaus
vinna húsmæöra” og fleira.
Sagði hún aö karlmenn, þar á
meðal fréttamenn, fengju engan
aðgang aö fundum ráöstefnunn-
ar, þar sem fulltrúar væru
margir óvanir aö tala opinber-
lega.
— Sumar þeirra myndu eiga i
miklum erfiðleikum meö aö tjá
sig um málefni eins og nauðgan-
ir og aðra glæpi, sem framdir
eru gagnvart konum, i viðurvist
karlmanna, sagði hún.
Horton gagnrýndi einnig i
gær kvennaráðstefnu S.Þ., sem
haldin var I Mexikó á siðasta
ári, þar sem hún heföi veriö
„skipulögö af karlmönnum, og
þótt þar kæmu fram nokkrar
góðar hugmyndir, var litiö I
málunum gert.”
— Konur eru ekki hátt
skrifaðar hjá karlmannarikis-
stjórnum —, sagði Horton, —
og i mörgum tilvikum er þess
ekki einu sinni gætt aö þær njóti
stjórnarskrárréttinda sinna. —
Ráðstefnan i Brussel er skipu-
lögð af alþjóölegri nefnd
kvenna, sem búa I Belgiu og
vonast þær til aö fulltrúar veröi
alls rúmlega eitt þúsund, frá
tuttugu og sex löndum.
A fyrsta degi ráöstefnunnar
munu fulltrúar ræöa um
„þröngvun kvenna i móöurhlut-
verk” og höft þau sem gilda um
notkun getnaöarvarna og
fóstureyðingar.
A siðari fundum verða önnur
málefni rædd, svo sem efna-
hagslegir glæpir (ógreidd vinna
húsmæðra, mismunun á verka-
fólkieftir kynjum og fleira), svo
og ofbeldisglæpir (nauöganir,
barsmiðar á eiginkonum og
annaö).
SAMSTARF VIÐ KOMMUNISTA
EKKI ÆSKILEGT EINS OG ER
Reuter, Róm. Francesco
deMartino, leiötogi italska Sósial-
istaflokksins, virtist algerlega
mótfallinn samvinnu flokks sins
viö Italska kommúnistaflokkinn,
þegar hann ávarpaði þing
Sósialistaflokksins á opnunardegi
þess I gær.
DeMartiono sagöist hafa trú á,
að hagsmunum flokksins væri
mun betur gætt i samvinnu við
flokk Kristilegra demókrata.
Sagöi leiötoginn, aö fyrir þvi
lægju aö minnsta kosti þrjár
mikilvægar orsakir, aö ekki væri
hentugt aö bindast kommúnista-
flokknum.
I fyrsta lagi væri þaö stærðar-
mismunur flokkanna — kommún-
istar hafa 179 sæti I neöri deild
þingsins, en sósialistar 61 — og
sagöi deMartino aö þaö myndi
hafa mikil áhrif á öll alþjóöa-
tengsl fiokksins.
1 ööru lagi væru þaö tengsl
Kommúnistaflokksins viö Sovét-
rikin, en hann væri allt of háöur
Kremlherrum.
TVEIR DREPNIR
— FIMMTÁN
SÆRÐIR
Reuter/Viktoria. Tveir menn
létust og fimmtán særöust af
völdum skothriöar, þegar lög-
regla beitti skotvopnum i viöur-
eign viö mótmælagöngufólk i
borginni Vitoria á Spáni i gær-
kvöldi.
Fimm hinna særöu voru al-
varlega meiddir.
Haft er eftir áreiöanlegum
heimildum aö lögreglan hafi
gripiö til skotvopna, þegar
göngumenn reyndu að um-
kringja hana og hafi það verið
gert til að dreifa hópnum.
CASTRO GERIR
VÍÐREIST
Reuter, Belgrad—Fidel Castro,
forsætisráðherra Kúbu, mun
fara i heimsókn til Júgóslaviu, i
boði Titós forseta, dagana 6. og
7. marz.
Castró er um þessar mundir
staddur i Moskvu, vegna þings
sovézka kommúnistaflokksins,
en mun halda þaðan beint til
Júgóslaviu.
Frá Júgóslaviu fer Castro til
Búlgariu, og þaðan til Sviþjóð-
ar. I Sviþjóö veröur hann dag-
ana 10. til 14. marz.
FIMMTIU HAFA
LÁTIÐ LÍFIÐ
Reuter/London. Um fimmtiu
manns hafa látizt á brezka
meginlandinu vegna aögerða
Irska lýöveldishersins þar, sið-
an IRA hóf herferð sina gegn
brezkum yfirráðum á Norður-
trlandi fyrir sjö árum.
Flestir hafa látizt af völdum
sprenginga, sem hafa verið
mjög tiöar. Siöast liðinn mánuð,
eöa frá þvi IRA-liðsmaðurinn
Frank Stagg lézt af völdum
hungurverkfalls i brezku fang-
elsi, hafa félagar hans staðiö að
átta sprengjutilræöum I Lund-,
únaborg einni saman.
ÍHALDSSAMIR
VEÐURGUÐIR?
Reuter/Boston. Kjósendur i
Massachusetts i Bandarikjun-
um gengu að kjörboröi á þriðju-
dag, I snjókomu og heldur
leiöinlegu veöri. Þykir liklegt,
aö þaö komi hinum ihaldssam-
ari af frambjóöendum demó-
krata til góöa, þar sem stjórn-
málafræöingar telja, aö Ihalds-
samir kjósendur muni ekki láta
veðurfar aftra sér frá þvi aö
kjósa, en frjálslyndir muni hafa
tilhneigingu til aö halda sig inn-
an dyra I slæmu veöri.
NEÐANJARÐAR-
VARNIR
KÍNVERSKA
HERSINS
Reuter/Bonn. Kinverski herinn
hefur byggt varnarkerfi neöan-
jarðar I innri Mongóliu, og eru
gangar þess nógu stórir til að
léttir skriödrekar og langferöa-
bifreiðar komist um þá.
Vestur-þýzki þingmaöurinn
Werner Marx, sem nýlega kom
úr heimsókn til Kina, hefur
skýrt frá þvi, aö varnarkerfi
þetta sé nægilega viðamikiö til
þess að Kinverjar geti rekið
þaðan skæruhernað langtimum
saman.
Werner Marx sagöi, að varn-
arkerfi þetta væri „sérlega við-
áttumikiö”, og vestur-þýzkur
fréttamaður, sem skoöaö hefur
kerfið, segir, að gangar þess séu
hundruð kilómetra að lengd.
BIÐJA UM
FORDÆMINGU
Reuter/Alsir. Sjálfstæöishreyf-
ing Vestur-Sahara fór þess i gær
á leit viö aöildarlönd Efnahags-
bandalags Evrópu, aö þau for-
dæmdu „tilraun til þjóöar-
morös” sem forráöamenn sjálf-
stæöishreyfingarinnar telja
hermenn Marokkó og Máritaniu
standa aö i Sahara.
Sagöi I skilaboöunum til EBE,
aö „yfirgangur herja þessara
tveggja rikja hefur þann tilgang
aö kúga land okkar, ræna auö-
æfum þess og þurrka þaö út.”
Spánn afhenti I siöustu viku
Marokkó og Máritaniu land-
svæöi Vestur-Sahara, en Sjálf-
stæðishreyfingin með stuðningi
Alsir og Libýu, hefur lýst þvi
yfir, að hún muni fara meö völd
á svæðinu.
Kvaö deMartino tengsl viö
Sovézka kommúnistaflokkinn enn
vandamál, þótt hann teldi rangt,
sem haldið er fram, aö gagnrýni
vinstri flokka á Sovétrikin væru
aðeins kosningabrella.
— Sú staöreynd, aö gagnrýni á
stjórnvöld telst til glæpa gagn-
vart riki sósialismans er i þver-
sögn við þann árangur I borgara-
legum réttindum, sem viö trúum
á og þaö viröist varla mögulegt,
aö slikt viögangist enn, sextiu
árum eftir byltinguna —, sagði
deMartino.
Þriöju ástæöuna kvaö sósial-
istaleiötoginn vera þá, aö
kommúnistar virtust hafa hafnað
möguleikanum á vinstra sam-
starfi með „sögulega málamiðl-
un” i huga, en þaö myndi þýöa
samdrátt kommúnista, sósialista
og kaþólikka.
VEGNA innheimtu blaögjalda
fyrir febrúarmánuö 1976 skal
tekiö fram, aö þar sem útskrift
mánaðarreikninga var lokiö
fyrir verkfall, verður leiðrétting
á mánaöargjaldinu gerö I næsta
mánuöi.
BEJH er með stálstyrkt farþegarými,
sem tryggir
aukið
oryggi.
I
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Siðumúla 35 Símar 38845 — 38888