Tíminn - 14.03.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 14. marz 1976
TÍMINN
15
góða menntun og upplýsingar um
kynferðismál svo að þær geri sér
fulla grein fyrir þvi hvenær þær
vilja eignast börn og hve mörg.
Nauðsynlegt er að viðurkenna
störf uppalandans eða uppalend-
anna sem þjóðfélagslegt framlag
istað þess einsognú er, að litið er
á það sem hjáverk.
Lögð var áherzla á, að konur
tækju virkari þátt i félagslegri
stjórnun. Varað var við tilhneig-
ingum til kyngreiningar i hinum
ýmsu störfum.
Það er beinlinis talin vera
skylda verkalýðsfélaganna að
vinna að áætlanagerð um jafn-
réttismál og koma sér upp ákveð-
inni stefnu á þvi sviði.
Það hefur gefið góða raun að
skylda ráðuneyti til þess að gefa
árlega út skýrslu um ástandið i
jafnréttismálum eins og það er
hverju sinni á hinum ýmsu svið-
um. Þetta þýðir það i fyrsta lagi,
að þá verða valdhafar að hafa
vakandi auga með þvi, að farið sé
eftir, lögum i þessum efnum og i
öðrulagi á þá almenningur greið-
an aðgang að nauðsynlegum upp-
lýsingum um jafnréttisstöðu sina
á hverju sviði.
Mikilvægt er að konur taki
virkan þátt i störfum fjölmiðla og
beiti kröftum sinum til að af-
nema, á jákvæðan hátt, hina
röngu glansmynd sem viða hefur
verið gefin af konunni.
Æskilegt þykir að koma á fram-
færi I fjölmiðlum nákvæmum og
hlutlausum upplýsingum um
stöðu konunnar alls staðar i
heiminum.
Það er I þágu allra manna, að
fjölmiðlum verði beitt þannig, að
þeir stuðli að friði og skilningi
milli manna um viða veröld.
TÍMINN hafði stutt viðtal við einn
isienzku fulltrúanna, Ingu Birnu
Jónsdóttur, og bað hana lýsa
þinginu i A-Berlin.
— A Berlinarráðstefnunni voru
fulltrúar ýmissa frjálsra félaga-
samtaka og er þar helzt að nefna
verkalýðshreyfingar úr öllum
heimshlutum, sagði hún. — Til
dæmis var formaður einnar
starfsnefndarinnar þarna Enrico
Casterina sem er formaður Al-
þjóðaverkalýðssambandsins.
Þarna var einnig Horace Perera
frá Sri Lanka (áður Ceylon) en
hann er forstjóri allra aðildarfé-
laga Sameinuðu þjóðanna og hef-
ur aðsetur sitt i Genf, hann hafði
orð á og lýsti áhuga sinum á að
heimsækja fsland.
Einna tilkomumestir fundust
mér þó Indiánarnir vera. Ég var
svo heppin að kynnast tveimur
þeirra, annarri frá Kaliforníu og
hinni frá Kanada.
— Einn daginn var okkur boðið
á uppskeruhátið i litlu þorpi rétt
hjá Potsdam I Werder. Þarna
voru skemmtiatriði, söngur og
dans og veitt jarðarberjavin.
Bæjarstjórinn, sem er kona, hélt
tilkomumikla ræðu, slátrarinn
söng einsöng og æskulýðurinn
söng sina popptónlist. Þegar við
vorum að fara af þessari
skemmtun, sté kanadiska Indi-
ánakonan upp á sviðið og söng af
slikri snilld að gestirnir vildu
helztekki sleppa henni af sviðinu
aftur.
— Þvf miður voru ekki allar
stundir ráðstefnunnar gleðistund-
ir, heldur Inga Birna áfram. Það
vakti reiði og hryggð fulltrúa,
þegar konur frá sumum Suð-
ur-Ameríku, Afriku og Asiu rikj-
um lýstu þeim viðurstyggileguog
vansæmandi lifsskilyrðum sem
fólk býr við vegna misréttis og
ógnarstjómar. í E1 Salvador er
skriðdrekum beitt á stúdenta, i
Chile eru pyndingar I fangelsum
daglegt brauð alþýðunnar og i
Suður Kóreu mega einstæðar
mæður standa á götuhpmum og-
betla sér til lífsviðurværis.
— Starfsnefndin sem þú vannst
i?
— Já, hún hét Jafnrétti sam-
kvæmt lögum og i reynd. Þar hélt
ég ræðu, og sagði frá þeirri at-
hyglisverðu rannsókn sem hér
var gerð á vegum þjóðfélags-
fræðideildar Háskóla Islands um
jafnrétti kynjanna og eins sagöi
ég frá kvennafrideginum, en
þetta gerði ég vegna þess að ég
trúi á þá aðferð að koma upplýs-
ingum á frámfæri. Sem dæmi um
það hve konur tóku þessa ráð-
stefnu alvarlega og með mikilli
einurð, er að einn brezki fulltrú-
inn, reyndar fulltrúi samvinnu-
hreyfingarinnar f Bretlandi, kvað
uþp úr með það að það væri ekki
bara skömm Breta það sem er að
gerast i Irlandi I dag, heldur
skömm alls heimsins. Hún lýsti
yfir þeirri skoðun sinni að brezki
herinn i Irlandi ætti ekki að vaða
þar um allar götur og egna fbú-
ana til átaka heldur ættu þeir að
halda sig innan girðinga og gripa
i taumana einungis ef hætta væri
á blöðbaði.
kvenna
Berlín
Helvi Sipilia, höfundur kvennaársins, og varaaðalritari Sameinuðu
þjóðanna, flytur ávarp sitt á kvennaráðstefnunni.
HÁR ER HÖFUÐ PRÝÐI
Hárkollur, toppar og fléttur í úrvali. Nýkomnar
sendingar frá London, París og Kaupmanna-
höfn. Hárprýöi er eina sérverslun landsinsá
sviði.Tekur viö af GM Búöinni, Laugavegi 8.
Hár:A.
pryoi
V >/Sérverslun
V __^Glæsibæ
Reykjavík Sími 32347
PÓSTKRUFU'
aug lysing_
FRÍMERRI í STAÐ
FERÐAR í BÆINN
LEVÍS
GALLABUXUR
SNIÐ 522
Vinsamlegast sendið mér Levi's gallabuxur I þeirri stærð
sem merkt er við.—
MITTIS- MÁL 25 26 . 27 28 29 30 31 32 33 34 36
Q Q V) LL UJ CC 34
36
*
w
NAFN:
HEIMILISF:
1
n
Levrs a Levrs
r
laugavegi 89-37
hafnarstræti 17
10353 12861 13303
Auglýsið í Tímanum