Tíminn - 14.03.1976, Blaðsíða 17
Sunnudagur 14. marz 1976
TÍMINN
17
margt komið fram til styrktar
kenningu hans, bæði frá rann-
sóknum i tilraunastofum óg mæl-
ingum i andrúmsloftinu. Nú er
kenning hans yfirleitt talin sönn-
uð, þótt enn sé kýtt um það, hve
hættan sé i rauninni mikil.
Snemma á siðasta ári gaf ame-
riska visindaakademian frá sér
itarlega skýrslu, sem i einu og
öllu studdi kenningar Johnstons.
Þar kemur fram að 100 hljóðfráar
þotur af núverandi gerð þynni
ósonið um 0,02%, lOOslikar vélar,
sem framleiddar verða á næstu
árum, muni minnka það um 0,2,
og 100 hljóðfráar Concorde eða
rússneskar Tu-144 um 0,7%. Eitt
hundrað hljóðfráar þotur, sem
Bandarikjamenn höfðu áætlað að
framleiða, hefðu getað eytt
ósoninu um 3,0%.
Mismunurinn liggur fyrst og
fremst f mismunandi hæð, sem
þessar vélar fljúga i, og hve mikið
magn af eldsneyti þær nota. En
þessar tölur má ekki taka alveg
fyrirvaralaust, sérstaklega hvað
snertir þær vélar, sem fljúga um
það bil undir neðstu lögum háloft-
anna,þarsem erfiðasterað segja
fyrir um hreyfingar andrúms-
loftsins.
Hljóðfráar þotur, sem eru
stærri en nýja Concorde farþega
þotan, og við megum búast við að
framleiddar verði i framtiðinni,
munu hafa veruleg skaðleg áhrif
á ósonið. Bandarikjamenn höfðu
miklar áætlanir á prjónunum i
sambandi við framleiðslu á slik-
um vélum, en lögðu þær alveg á
hilluna fyrir nokkrum árum. Vel
má vera áð þeir taki þær nú aftur
fram i dagsljósið, ef sýnt verður
að framleiðsla nýju Concordevél-
arinnar gengur vel og gefur af sér
stundargróða.
1 skýrslu akademiunnar er
einnig minnzt á þær afleiðingar,
sem eyðing ósonsins getur haft i
för með sér. (Þær eru vitanlega
þær sömu, hvort heldur eyðingin
er af völdum flugvéla eða
flúorkarbóns).
Alvarlegustu áhrifin, sem geta
orðið af þessum sökum, er aukn-
ing i tiðni húðkrabbameinstil-
fella. Tvær megintegundir af húð-
krabba eru algengastar. önnur
gerir helzt vart við sig hjá fólki,
sem komið er yfir miðjan aldur.
Hún er sjaldan banvæn, að þvi til-
skyldu, að hún sé uppgötvuð og
meðhöndluð timanlega, en hún
tekur sig oft upp aftur og aftur og
getur framkallað slæm likams-
lýti. Dánartalan er einn á móti
hundrað. Hin tegundin — Mel
noma — er öllu alvarlegri, en hún
er jafnframt sjaldgæfari. 1
Bandarikjunum eru sárafá tilfelli
árlega, og yfirleitt öðlast tveir af
hverjum þremur sjúklingum
bata.
Samkvæmt skýrslunni mun
sérhver eins prósents rýrnun á
ósoninu leiða til tveggja prósenta
aukningar i húðkrabba. Ef
áframhaldandi ofnotkun verður á
úðunarbrúsum, munu sjúkdóms-
tilfellin i Bandarikjunum einum
þúsundfaldast á næstu árum. Það
eru ekki allir, sem samþykkja
réttmæti tölulegra niðurstaðna
skýrslunnar, og margir (þ.á.m.
brezka veðurfræðistofnunin) telja
þærsýna fullmikla svartsýni. Það
er samt sem áður viðurkennd
staðreynd, að ef notkunin á
úðunarbrúsum verðureins og hún
hefur verið siðustu árin, og hljóð-
fráar þotur, grundvallaðar á nú-
tima tækni, verða framleiddar i
miklu magni, þá er lifi á jörðinni
stefnt i voða.
En tæknin getur vafalaust
fundið einhverja leið út úr þess-
um ógöngum, þegar fram liða
stundir.
Köfnunarefnissamböndin, sem
eru i útblæstri flugvélanna,
myndast vegna feikilega hás
hitastigs. Breytingar á gerð vél-
anna gætu þess vegna orðið til
þess, að myndun þessara efna-
sambanda yrði margfalt minni.
En þessar breytingar yrðu dýrar,
og þrátt fyrir að þær yrðu mann-
kyninu til góða, er óvist hvort
ráðamenn legðu út i slikan
kostnað.
Hvað flúorkarbóni viðvikur, þá
kemur að þvi, að notkun þess
verður takmörkuð. Beint bann við
þvi myndi hafa viðtækar fjár-
hagslegar afleiðingar og valda
atvinnuleysi fjölda fólks. Það er
þóvarla nokkur vafi á þvi, að við-
unandi lausn mun finnast innan
fárra ára.
Þrátt fyrir að vandamálið, sem
felst i mengun andrúmsloftsins
verði leyst, þá hefur það sýnt okk-
ur, hve mikilvægt það er að við
séum vel á verði gagnvart þeim
hættum, sem tækniframförum
fylgja, og látum þær ekki vaxa
okkur yfir höfuð.
(Þýtt og endursagt JB)
Pipuþanar — undirstöðukefli o.fl.
Tilboð óskast v/kaupa á eftirtöldu efni f. Gufuveitu
Kröfluvirkjunar.
1. Pipuþanar (belgþenslustykki) þvermál 250-800 m/m.
2. Undirstöðukefli undir pipur, pipuþvermál 350-700 m/m.
3. Undirstöðuplötur undir pipur, pipuþvermál 350-700
m/m.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 3.000 kr.
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
fimmtudaginn 8. april 1976, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
SKIP — SKIP — SKIP
Eigendur bóta og skipa athugið!
Fjöldi aðila hafa beðið okkur á útvega sér skip af ýmsum stærðum
til kaups. I sumum tilfellum er um mjög fjársterka kaupendur að
ræða.
Höfum til sölu: 4-11-36-38-71 tonna tréskip. 308-335 tonna stálfiski-
skip. Einnig mjög vandað nýtt tréfiskiskip 30 tonna, tilbúið til af-
hendingar i júni n.k.
Eigendur að stórum, góðum linu- og togskipum athugið!
Höfum fjársterka erlenda kaupendur að þessum tegundum skipa
nú þegar.
Þorfinnur Egilsson
lögmaður,
Vesturgötu 16, 3ju hæð,
Simi: 21920 og 22628.
-HUSftNftUST
SKIPA-FASTEIGNA OG VERÐBREFASALA
VESTURGÖTTJ 16 - REYKJAVIK
Befri
yfirsýn
yfir
reksturinn
Addo bókhaldsvélar aSstoða stofnanir og fyrirtæki um allt land við að
fylgjast með rekstrinum. Addo er löngu þekkt fyrir gangöryggi, léttan
áslátt og hljóðláta vinnslu. Vélarnar má programera fyrir ólíkustu
verkefni, svo sem launabókhald, birgðabókhald, viðskiptamannabók-
hald, svo eitthvað sé nefnt. Með sjálfvirkum spjaldíleggjara má auka
færsluafköst um 40%. Fullkomin þjónusta, kennsla og aðstoð við
uppsetningu á bókhaldi ef óskað er. Leitið nánari upplýsinga um verð
og gerðir. \
KJARAINIhf
skrifstofuvélar & -verkstæði Tryggvagötu 8, simi 24140