Tíminn - 14.03.1976, Side 33
V/ J r/
Sunnudagur 14. marz 1976 TÍMINN
angaði af hársmyrslum.
Hann var með breiðar
„sorgarrendur” undir
hverri nögl. Konan
hans, dóttir maddömu
Mörtu, var feit og
sóðaleg eins og mamma
hennar. Innandyra var
allt kámugt og illa útlit-
andi, og þar má telja
með þrjú illa hirt börn,
sem veltu sér á góKinu.
Grimaldi talaði sæmi-
lega frönsku. Þegar
Berit hafði sagt honum
ágrip af sögu þeirra
systkina, varð hann
mjög elskulegur i við-
móti og fullvissaði þau
með mikilli mælsku, að
hann skyldi gera allt
sem hann gæti til að
hjálpa þeim.
„En”, bætti Grimaldi
við, „þvi miður er mjög
dýrt að ferðast hér um
slóðir og vil ég þvi
spyrja ykkur, hvort þið
hafið nægilega peninga
með ykkur”. Jú, Berit
sagði, að þau hefðu pen-
inga.
„Hve mikið?” spurði
Grimaldi. Berit ætlaði
fyrst að svara: ,,Um 800
pund i enskum pening-
um”, en hætti snögglega
við það. Það var eins og
heimili og húsbóndinn
sjálfur hefðu allt i einu
þau áhrif á Berit, að hún
taldi ekki rétt að
Grimaldifengi vitneskju
um alla þeirra peninga.
Hún gaf þvi svar, sem i
sjálfu sér var sannleikur
og svaraði skýrt og
ákveðið: „Ég hef tæp
400 sterlingspund”.
Þetta var hærri
upphæð en Gximalda
hafði dottið i hug að þau
hefðu með sér, en hann
varaðist að láta á þvi
bera. Hann sagði þvert á
móti mjög alvarlegur:
„ Jæja, úr þvi að þið haf-
ið ekki meiri fjármuni
með ykkur en þetta, þá
veit ég hreint ekki, hvort
ég get neitt fyrir ykkur
gert. Það er svo hræði-
lega dýrt að ferðast
hér”. En þegar hann sá,
hve Berit varð vonsvikin
og hrygg við þetta svar,
bætti hann við hug-
hreystandi: ,Ég skal nú
gera fyrir ykkur allt,
sem mér er auðið. Nú
farið þið aftur til mad-
dömu Mörtu og biðið
þar, þangað til að ég hef
athugað þetta nánar”.
Þetta var um hádegis-
bilið og hitinn var óþol-
andi. Árni var orðinn
sársvangur og spurði
Songo, hvort hann gæti
ekki einhvers staðar út-
vegað þeim mat. — Hjá
maddömu Mörtu áttu
ekki von á neinum mat.
— Songo sagði, að þau
skyldu reyna á járn-
brautarstöðinni. Þar
sagði hann, aö væri
bezta matsalan i borg-
inni. Á leiðinni þangað
varð Berit lasin. Hún
fékk kvöl i höfuðið og
glýjui augun. Þegar þau
komu á járnbrautar-
stöðina, var hún orðin
fárveik og seldi ákaft
upp. Gestgjafinn var
gamall, góðlátlegur
maður og gaf henni
strax bolla af sterku
kaffi, til að hressa hana.
Hann sagði, að hún hefði
veikzt svona af þvi að
hún gengi berhöfðuð.
Hann sagði, að þau
skyldu bæði kaupa sér
strax stóra hitabeltis-
hatta og flugnanet.
Gestgjafinn sagði, að
hann efaðist um að
flugnanet fylgdu rúmun-
um hjá maddömu
Mörtu, en án þeirra
gætu þau ekki sofið dúr I
nótt. Árni ætlaði strax
að hlaupa út að kaupa
þetta, en gestgjafinn
harðbannaði honum að
fara. Klukkan var rúm-
lega tvö, en þá var hitinn
allra mestu að liðnu há-
degi, og hann sa að Árni
gæti orðið fárveikur ef
hann færi nú strax út
aftur. Songo bauðst þá
til að kaupa þetta fyrir
þau.
Litlu siðar kom Songo
aftur hlaðinn af varn-
ingi. Voru það hattar af
ýmsum stærðum og
flugnanet. Þessir hita-
beltishattar eru venju-
lega búnir til úr þunnum
korkflögum og "klæddir
með hvitu lérefti. Þeir
eru djúpir og falla niður
fyrir hnakkann. En
sólsting fá menn helzt,
ef sólin skin á hnakkann.
Þegar Berit hafði hvilt
sig um stund, fór hún að
hressast. Þá greiddu
þau matinn og þökkuðu
gestgjafanum fyrir sig
og röltu svo aftur niður
götuna til maddömu
Mörtu. Gestgjafinn
hafði haft rétt fyrir sér. í
herbergjunum hjá
„maddömunni” voru
hvorki flugnanet eða
nein önnur þægindi.
Songo, sem hafði verið
þjónn hjá auðugum
Englendingi, kunni tökin
á þvi að koma fyrir
flugnanetunum yfir
rúmunum. Það tók hann
aðeins örfáar minútur.
Hann hugsaði lika um
Vic, sem þjáðist i hitan-
um. Hann útgvegaði
mat handa honum og
vatn til að kæla hann
ofurlítið. Systkinin
dáðust að Songo, og þau
hugsuðu sem svo, að
ekki skildu þau, hvernig
þau hefðu komizt af
þessa dagstund, ef þau
hefðu ekki hitt hann.
Framhald
Auglýsið í Tímanum
Við getum
boðið
Fenwick
Potain og
Poclain...
Viögetum boðið yður Fenwick lyftara, Potain
byggingakrana og Poclain skurðgröfur.
Ennfremur getum við útvegað notaða Fen-
wick lyftara, Potain byggingakrana og
Poclain skurðgröfur.
Eigið verkstæði og varahlutaþjónusta.
Hafið samband við Friðbert Pál Njálsson í
véladeild.
SKRISTJÁN ÖL
SKAGRJÖRÐ HF
Hólmsgötu 4 - Reykjavík - Sími 24120
33
[yukgfi®
somlokurnar
dofna ekki
með aldrinum
Þokuljós og kastljós
Halogen-ljós
fyrir J-perur -
ótrúlega mikið
Ijósmagn
PERUR í ÚRVALI
NOTIÐ
ÞkÐBESlA
—BLOSSB—
Skipholti 35 ■ Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
3
Fjölnota vagninn
má nota á margvislegan hátt: Sem
baggavagn, þá útbúinn með grindum fyrir
heybagga. Sem votheysvagn og er þá út-
búinn votheysgrindum og sjálflosandi út-
búnaði. Auka losunarfæriband að aftan
fáanlegt. Sem mykjudreifara og þarf þá
aðeins að fá mykjudreifibúnað aftan á
vagninn. Sem alhliða flutningsvagn.
— JF — vagninn nýtist allt árið og er þvi
mjög hagkvæm fjárfesting.
Ýmsar stærðir fáanlegar.
Ndnari upplýsingar hjó sölumanni
Gtobuse
LAGMÚLI 5, SlMI 81555