Tíminn - 16.03.1976, Page 1

Tíminn - 16.03.1976, Page 1
1 ' Leiguflug—Neyðarflug HVERTSEM ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122-11422 AAóðir bjargar 2 ára syni frá drukknun gébé Rvik — Tveggja ára snáði var hætt kominn á Breiðdalsvik sl. föstudag, er hann féll í djúpa gryfju fulla af vatni. Móður hans tókst með snarræði sinu að bjarga dregnum frá drukknun. Samkvæmt frásögn Guð- mundar Arasonar, fréttarit- ara Timans á Breiðdalsvik, hafði Kristin Hauksdóttír hús móðir farið að litast um eftir synisinum tveggja ára og öðr- um snáða á svipuðum aldri. Kom hún að gryfju, þar sem annar snáðinn stóð á bakkan- um og gat gert henni skiljan- legt, að sonur hennar, Gauti Brynjólfsson, hafði fallið i hana. Vatnið var óhreint i gryfjunni, og sá ekki til botns. Kafaði Kristin þegar niður og þreifaði fyrir sér, þangað til hún fann son sinn. Var hann þá meðvitundarlaus og hættur að anda. Gerður Benediktsdóttir kom þarna að, og hóf hún þegar björgunaraðgerðir og notaði blástursaðferðina. Tókst það giftusamlega, þvi að fljótlega tókst að koma Gauta Útia til meðvitundar, og er hann nú furðu hress eftir þetta ævin- týri sitt. Lögreglan í Keflavík: Allir óskrdðir hundar skotnir Gsal-Reykjavik — Lögreglan i Keflavik hefur ákveðið að hefja herferð gegn hundum i bænum, Ollum óskráðum hundum verður lógað þegar til þeirra næst. Skráðir hundar verða hins vegar hýstir hjá lögreglunni, ef þeir sjást á flakki og eigendum tilkynnt um þá. Við Itrekuð brot er lög- reglunni heimilt að svipta eig- anda leyfi til hundahalds, og verður hundinum þá komið fyrir utan bæjarmarkanna. Að sögn lögreglunnar i Keflavik er til þessara að- gerða gripið vegna sifelldra brota á ákvæðum lögreglu- samþykktar um hundahald. — Astandið i þessum málum hefur lengst af verið mjög slæmt, sagði varðstjóri lög- Framhald á bls. 23 Umsögn ungra Sjálf- stæðismanna um krat ana: Eru aö reyna aö breiöa yfir ósómann og sukkið i Alþýðuflokkn- um. Sjá nánar ,,Á viða- vangi" bls. 5. Áætlunarstaðír: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Súgandafj: Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 ,,Til hamingju með vel unnið verk" — var dlit rdðherrans á ofbeldi Breta d íslandsmiðum HV—Reykjavik — „Minar beztu kveðjur og hamingjuóskir til ykk- ar allra á herskipum hennar há- tignar og borgaralegum verndar- skipum. Þið hafið unnið hið bezta verk (first class) við hinar erfið- ustu aðstæður.... Við erum hreyk- in af ykkur. Haldið áfram á sömu braut.” Þannig hljóðaði kveðja herra Frank Judd, aðstoðarráðherra i brezku rikisstjórninni, til skips- hafna brezkra verndarskipa við tsland i gær. Ráðherrann flaug þá yfir is- lenzku landhelgina i Nimrodþotu frá brezka flughernum, og auk kveðjunnar til verndarskipanna sendi hann togarasjómönnunum brezku svohljóðandi skeyti: „Þakka ykkur fyrir hugrekki það og samstarfsvilja, sem þið hafið sýnt við mjög erfiðar aö- stæður.” Vonzkuveður var á miðum brezku togaranna úti fyrir Aust- fjörðum i gærdag og i gærkvöldi Varöskipið Baldur kom i gær- dag til Reykjavíkur og tók Ró- bert Timaljósmyndari þessar myndir af skipinu i gær. Neðri myndin sýnir skipiðsigla inn i höfnina, en efri myndirnar sem felldar eru inn á þá stóru, sýna helztu skemmdirnar á Baidri eftir ásiglingar brezku freigátanna, en þær eru veru- legar, eins og glöggt má sjá. Ofbeldisverk af þessu tagi telja brezkir ráöamenn til af- reksverka eins og ráða má af ummælum brezka aðstoðar- ráðherrans, sem flaug yfir miðin i Nimrodþotu i gær. og létu togararnir þvi reka. Að sögn Landhelgisgæzlunnar voru 29togarará miðunum i gær, flest- ir á Hvalbakssvæðinu og norður af þvi. Hættir Union Carbide við þátttöku í járn- blendiverksmiðjunni ? Gsal—Reykjavik — Það virðist vera ákaflega mikil bölsýni ríkj- andi hjá forráðamönnum Union Carbide um áframhaldandi þátt- töku i járnblcndiverksmiðjunni, og þeir eru mjög hikandi varð- andi frekari framkvæmdir við verksmiðjuna sagði Steingrimur Hermannsson, framkvæmda- stjóri Rannsóknaráðs ríkisins, sem jafnframt á sæti í stóriðju- teldu margt i skýrslunni ekki alls kostar rétt, og þvi hefði verið ákveðið að afla upplýsinga ann- ars staðar frá um markaðshorf- ur. — Við höfum ákveðið að afla frekari upplýsinga frá óháðum aðilum um markaðsmálin, sagði Steingrfmur, enda teljum við, að ástandið sé ekki jafn alvarlegt og Union Carbide vill vera aö láta. Að sögn Steingrims verður end- anlega úr þvi skorið á næsta fundi i stjórn Járnblendiverksmiðjunn- ar, hvort hætt verði við að reisa verksmiðjuna, en eins og fram kemur hér að framan, virðast nokkrar likur á þvi, að Union Carbide hætti þátttöku i fyrirtæk- inu. — Mér sýnist ljóst, sagði Stein- grimur,aðfarisvo, að Union Car- bide hætti þátttöku i járnblendi- verksmiðjunni, þá muni fyrirtæk- ið vera gert ábyrgt umfram sitt hlutafé, þvi svo mjög er ákvörðun um byggingu verksmiðjunnar byggð á athugunum þeirra á markaði fyrir járnblendi, svoog á tæknilegri þekkingu þeirra á þessu sviöi. Mér fyndist þvi, að Union Carbide ætti að vera tölu- vert ábyrgara en sem nemur þeirra hlutafé, sagöi Steingrimur. nefndinni, sem svo er kölluð. Svo sem greint hefur verið frá i fréttum, hafa framkvæmdir viö verksmiðjuna legið niðri um nokkurt skeið, sökum óvissu um markað fyrir járnblendi. Aö sögn Steingrims féll markaðurinn stórlega niður fyrir siöustu ára- mót, jafnframt þvi sem verð á járnblendi lækkaði verulega. Steingrimur sagði hins vegar, að stálhefði hækkað töluvert að und- anförnu, og járnblendið fylgdi gjarna á eftir stálinu, hvað verð- lag áhrærði. Steingrimur kvað skýrslu komna frá Union Carbide, þar sem ástandið væri málað dökkum litum. Hann sagði, að Islendingar Ólafur Jóhannesson dómsmálaróðherra: Býst við svari næstu daga MÓ-Reykjavik — Ég trúi ekki örðu en við fáum svar við þvi i vikunni, hvort við fáum skip frá Bandarikjunum eða ekki sagði Ólafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra i viðtali við Timann í gær. Við höfum einungis beðið um skip, og það ætti ekki að vera svo lengi gert að taka á- kvörðun um slika beiöni. Jafn- framt þessu erum við að kanna fjáröflunarleiðir. Dómsmálaráðherra var ekki viðstaddur umræður utan dag- skrár á Alþingi um Landhelg- isgæzluna. Sagði dómsmálaráð- herra, að sér hefði ekki verið kunnugt um að ræða ætti þau mál á Alþingi utan dagskrár, og hefði hann verið upptekinn á fundi i ráðuneytinu. Þess má geta, að venja er, þegar þingmenn ætla að kveðja sér hljóðs utan dagskrár. að þeir láti viðkomandi ráðherra vita um málið, áður en þing- fundir hefjast.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.