Tíminn - 16.03.1976, Page 13
Eðvarð
Benediktsson
bygginga-
meistari:
íþróttabyggingar
Það er smærri sveitarfélögum
algjörlega ofviða að koma sér upp
nútima iþróttaaðstöðu, ef fuli-
nægja þarf þeim skilýrðum og
kröfum, sem rikisvaldið setur.
Gleggsta dæmið nýverið er Flat-
eyri. íþróttanefnd rikisins hefur
lagt fyrir þetta sveitarfélag að
byggja iþróttahús úr steinsteypu,
sem i reynd myndi kosta 150—180
millj. kr., ella fáist ekki lögmælt
framlag rikisins til byggingarinn-
ar. A meðan þetta gerist stendur
Flateyrarhrepp til boða stál-
grindahús, sem myndi kosta upp
komið án innréttinga um 18 millj.
kr.
bar við bætist, að unnt er að
koma upp stálgrindahúsi á einu
sumri, þannig að það væri fullbú-
iðfyrir notkun næsta vetur. Stein-
steypt i'þróttamannvirki af þeirri
gerð, sem hér er um að ræða, eru
hins vegar mörg ár i byggingu
með tilliti til framkvæmda einna
saman. Með tilliti til fjárhagslegs
bolmagns smærri sveitarfélaga
og ef til vill þeirra stærri lika,
verður raunin sú, að slikar fram-
kvæmdir standa yfir í allt of mörg
íþróftabyggingar nær
fimm sinnum of dýrar
ár, jafnvel áratugi, þvi að ráð-
stöfunarféð til þessarar mann-
virkjagerðar leyfir ekki annað.
Gefur þetta auga leið á stöðum,
þar sem iþróttamannvirki eiga að
kosta á annað hundrað millj. kr.
Stefnt i hreint óefni
Að minu mati stefnir nú i hreint
óefni i þessum málum. Nútima-
kröfur til iþróttamannvirkja —
einkúm stærðar þeirra — eru
meiri en áður var. Ef hinum
smærri sveitarfélögum viðs veg-
ar um landið á nokkru sinni að
takast að koma upp hjá sér boð-
legri aðstöðu i fjölmörgum iþrótt-
um, svo sem handknattleik,
körfubolta og innanhúsknatt-
spymu, þá verður að hverfa frá
hinum rándýru mannvirkjum úr
steinsteypu til annarra ódýrari
byggingarhátta.
Stálgrindahúsin eru án nokkurs
vafa veruleg lausn á þessum
vanda. Þau hafa náð umtals-
verðri útbreiðslu erlendis, ekki
hvað sizt sem iþróttahús, en jafn-
framt hafa verið reist i margvis-
legum öörum tilgangi og jafnan
gefið góða raun. Þannig eru þau
mikið notuð á Norðurlöndum. Sl.
haust ferðaðist ég um Sviþjóð og
skoðaði þar stálgrindahús af
margvislegu tagi, sem reisthöfðu
verið viðs vegar um landið. Þar á
meðal gat að lita margs konar
iþróttahús en einnig vöruskemm-
ur, stórar kjörbúðir, hvers konar
verkstæði o.s.frv. Eina kirkju sá
ég, sem byggð var úr stálgrind-
um, hið fallegasta guðshús.
Að undanförnu hafa orðið tals-
verðar umræður um þessi mál i
fjölmiðlum og þá einkum vegna
fyrirhugaðs iþróttahúss á Flat-
eyri. bað sem einkum hefur vakið
furðu mina i sambandi við þessar
umræður, er þröngsýn og ihalds-
söm afstaða iþróttafulltrúa rikis-
ins, Þorsteins Einarssonar, sem
fram kom i grein þeirri,sem hann
skrifaði i Timann 15. febrúar sl.
Af þeirri grein er ekki annað unnt
að skilja enað Þorsteinnhafi i eitt
skipti fyrir öll gert það upp við
sig, aö ekkert annað en rándýr
iþróttamannvirki úr steinsteypu
komitil greina hér á landi. Skiptir
þar engu máli, hvaða rök standa
þvii gegn, svo sem langtum lægri
byggingarkostnaður stálgrinda-
húsanna auk miklu skemmri
byggingartima.
Staðlausar fullyrðingar
Sjálfur gripur Þorsteinn til
staðlausra fullyrðinga i mál-
flutningi sinum. Þannig full-
yrðir hann m.a., að bruna-
öryggi stálgrindahúsa sé
miklu lakara en strengjastéypu-
húsa. Hvenær varö stál eld-
fimara en strengjasteypa? Þessi
fullyrðing er gjörsamlega úr
lausu lofti gripin. Hún er það
staðlaus, að hún ein kastar mikilli
rýrð á málflutning Þorsteins i
heild. Alhr, sem til þekkja, vita,
að brunaöryggi stálgrindahúsa er
i raun meira en strengjasteypu-
bygginga. Ástæðan er sú, að við
eldsvoða siga stálhúsin saman en
hrynja ekki. Það gera strengja-
steypubitar. 1 stálgrindahúsum
ætti þvi að gefast ráðrúm til þess
að koma fólki brott. í strengja-
steypuhúsum er þessi möguieiki
siður fyrirhendi.Þetta kom bezti
ljós i eldsvoða þeim, sem varð i
Skeifunni á dögunum. Þar eyði-
lögðust steinþitarnir i loftinu með
þeim afleiðingum að loftið féll
niður. Happatilviljun réð, að eng-
inn varð undir, þvi að annars
hefði stórslys orðið. Atburður
sem þessi hefði naumast getað
gerzt i stálgrindahúsi.
bá eru fullyrðingar Þorsteins
Einarssonar um, að stálgrinda-
húsin séu dýrari i smiðum,
rekstri og viðhaldi jafn mark-
lausar. Það vekur athygli, að
hann gerir hvergi samanburð
varðandi verð og gæði, heldur
klykkir einungis út með þvi, að
þetta sé sin persónulega niður-
staða. Sjálfur bauð ég i iþrótta-
mannvirkin á Flateyri — iþrótta-
hús og sundlaug — og nam út-
boðsfjárhæðin rúmlega 15 millj.
kr. Innifalið i þessari fjárhæð var
klæðning hússins utan sem innan
og 15 cm þykk glerullareinangr-
un, en eftir voru gluggar, tvöfalt
gler og hurðir, sem kosta myndi
samanlagt ca. 3 millj. kr. Verð
þetta miðaðistvið hafnarbakkann
á Flateyri. Þess ber þó að geta,
þegar þessar tölur eru nefndar,
að þá eru eftir þær sérstöku inn-
réttingar og útbúnaður, sem þarf
i svona iþróttahús og er jafn dýrt i
stálgrindahúsi sem steinhúsi.
Þessi útbúnaður gæti numið aUt
Afskipti ríkisvaldsins Flateyringum dýrt spaug
að 20miUj. kr., þannig aðheildar-
kostnaðurinn við að koma sliku
iþróttamannvirki upp með fullum
útbúnaði væri 30—40 millj. kr. En
hvað er það á móti sams konar
iþróttamannvirki úr steinsteypu,
sem kosta myndi 150—180 miUj.
kr.
Auðvelt að breyta stál-
grindahúsum
Þá er þess að geta, að það er
mjög auðvelt að stækka og breyta
stálgrindahúsum. Það vill oft
verða i tímans rás og það gjarnan
fyrren ráð hafði verið gert i upp-
hafi, að menn vilja breyta
byggingum og stækka þær með
tilliti til nýrra krafna og breyttra
aðstæðna. Með slikt i huga eru
stálgrindahúsin örugglega miklu
viðráðanlegri en steinsteyptar
byggingar. Rétt er að taka fram,
svo að aftur sé vikið að brunaör-
yggi, að ekkert er auðveldara en
að breyta klæðningu stálhúsa i
samræmi við óskir eldvarnaeftir-
lits, ef fram koma, svo sem að
eldverja máttarbita og asbest-
klæða loft. Loks má benda á það,
að stálgrindahús eru ekki við-
haldsfrekari en önnur hús, svo
sem strengjasteypuhús, og væri
fróðlegt að fá upplýsingar frá
borsteini Einarssyni, hvaða stoð-
um hann hleypir undir þær full-
yrðingar sinar. Skal tekið fram i
þessutilefni, að stálgrindahús eru
með innbrenndu lakki, sem ekki
krefst neins viðhalds. Fram-
leiðándinn ábyrgist litinn á kæðn-
ingunni i 20 ár.
Þorsteinn Einarsson vænir ó-
hikað talsmenn stálgrindahúsa
um hlutdrægna afstöðu og segir:
,,Að baki þeirra stendur oftast
einsýn afstaða sölumanna”. En
af hvaða rótum skildi þá andstaða
sumra talsmanna steinsteypu-
húsanna við stálgrindahúsin vera
sprottin. Sú staðreynd blasir við,
að ekki er þörf fyrir hönnunar-
vinnu arkitekta við smiði stál-
grindahúsa. Teikningarnar eru
innifaldar i verði þeirra, enda eru
þær sáralitill þáttur i kostnaði við
smiði slikra húsa. Jes Einar arki-
tekt, sonur Þorsteins Einarssonar
iþróttafulltrúa, átti hins vegar að
fá kr. 7.135 þús. kr. fyrir hönnun-
arvinnu sina og samstarfsmanna
sinna við fyrirhugað iþrótta-
mannvirki á Flateyri, og miðað
við núgildandi byggingarvisitölu
11,4 millj. kr. Segi svo hver sem
vill, að afstaða slikra aðila mótist
hvergi af peningasjónarmiðum.
Sannleikurinn er sá, að andstaða
sumra annars mætra arkitekta og
verkfræðinga við stálgrindahúsin
er sprottin af þeirri ástæðu fyrst
og fremst, að við smiði slikra
húsa er sáralitil þörf fyrir sér-
fræðingaaðstoð þeirra. Mikil og
almenn notkun stálgrindahúsa
hefði þvi i för með sér, að margir
þessará aöila myndu missa spón
úr aski sinum. — Það er þessi
staðreynd, sem mótar afstöðu
þeirra.
Hverra er fjárveitinga-
valdið?
Það eru alþingismenn með
fjárveitingavaldi sinu, sem i orði
ákveða framlag rikisins til nýrra
iþróttamannvirkja viðs vegar um
landið. Á borði er það hins vegar
iþróttanefnd rikisins, undir for-
ystu borsteins Einarssonar, sem
mestu ræður, hvernig þessu fé er
ráðstafað. Þarna er um framsal á
TÍMINN
Þriðjudagur 16. marz 1976
Þriðjudagur 16. marz 1976
TÍMINN
miklu fjárveitingavaldi að ræða,
þvi að miklum fjármunum er
varið til þessara mannvirkja. Al-
þingismenn — ekki hvað sizt utan
af landsbyggðinni — kunna að
vera sælir i þeirri trú, að fjárveit-
ingavaldið sé þeirra. 1 reynd eru
það ekki þeir, sem ráða þvi, hvort
og hvers konar iþróttamannvirki
verða reist i heimabyggð þeirra.
Slikar ákvarðanir eru teknar á
skrifstofu iþróttanefndar rikisins
ántillits til þess, hver er vilji fjár-
veitingavaldsins. Á annan hátt
verður það ekki útskýrt, hvers
vegna allt of dýrir og úreltir
byggingahættir eru tiðkaðir hér á
landi við gerð iþróttamannvirkja,
enda þött á þeim vettvangi blasi
við óunnin verkefni við hvert fót-
mál. Mál er að þessu linni, og ó-
dýrari og fljótvirkári byggingar-
hættir taki við.
íþróttahús
Stærð 15x30 = 450 ferm VERD
Vegghæð 7,5m = 3375 rúmm.
álklætt (innbr.lakk)
15 cm þykk glerullareinangrun = Kr. 10.035.968.-
T.d. 52 ferm. gluggar meö tvöföldu gleri, fjórar hurðir 200x220 cm og uppsetning = Kr. 2,755.000,-
Sökkulkostnaður með plötu = ca.kr. 6.000.000,-
Heildarkostnaður = Kr. 18.790.968,-
Sundlaugarhús
Stærð 15x30 m = 450 ferm
Vegghæð 3,5m = 1575 rúmm
álklætt (innbrennt iakk)
15 cm þykk gierullareinagrun = Kr. 8.650.197,-
T.d. 32 ferm gluggar með tvöföldu gleri, fjórar hurðir 200x200 cm og uppsetning = Kr. 1.987.000,-
Sökkulkostnaður með piötu = ca.kr. 3.000.000,-
Heildarkostnaður = Kr. 13.637.197,-
Kenningar Danikens
kvikmyndaðar
ERICH von Dániken er áhuga-
fornleifafræðingur og hefur
stundað sjalfstæðar rannsóknir
og komið fram með kenningar,
sem i ýmsu brjóta i bága við
viðurkenndar skoðanir. Kenning-
ar hans hafa fengið misjafnar
undirtektir hjá fornleifafr.æðing-
um en komið róti á hugi margra
leikmanna. Dániken hefur skrifað
bækur um kenningar sinar, sem
þýddar hafa verið á islenzku.
Kvikmyndaframleiðandinn dr. Iiarald Reinl (t.v.) gerði kvikmynd byggða á þremur bókum Erichs von
Dánikens (t.h.). Hér eru þeir að viröa fyrir sér brúður Hopi-Indiánanna.
Bibliuna segir hann vera dag-
eða leiðarbók geimfara einhvers
staðar utan úr geimnum. Þessi
geimfari á að hafa gamnað sér
með- stúlkum frá Sódómu og
Gómorru og ættihann samkvæmt
þvi að vera ættfaðir allmargra
jarðarbúa.
Hugmyndir sem þessi hafa fall-
ið svo vel i kramið hjá fólki, að
höfundur þeirra er nú orðinn mill-
jónamæringur. Bækur hans selj-
ast i milljónum eintaka, og af
fyrstu kvikmynd sinni rakaði
hann saman dollurum. Innan
skamms tima er væntanleg á
markaðinn önnur kvikmynd
hans, sem nefnist „Boðskapur
guðanna.
Sú mynd er byggð á þremur
bókum hans. I henni er brugðið
upp myndum af aUs kyns fyrir-
bærum og gátum, og spurning-
arnar dynja á manni. Ekkert eitt
svar er gefið, heldur standa
margir möguleikar opnir, þar á
meöal það, hvort guðirnir hafi
ekki einfaldlega verið geimfarar.
Eftir að hafa séð myndina, virðist
manni það alveg eins geta verið
og hvað annað.
Dr. Harold Reinl kvikmynda-
framleiöandi annaðist töku
myndarinnar. 1 næstum þrjá
mánuði þeyttist hann milli staða,
sem Erich hafði valið, — á landi,
legi og i lofti.
Engu var sleppt, ef það gat tal-
izt einhvers virði, og ekkert var
til sparað. Hann fór meðal annars
til Ekvador, Mexikó, Kolumbiu,
Perú, Chile, Tahiti og Mikró-
nesiu. Eitt af þeim fyrirbærum,
sem mynduð voru, var forsöguleg
borg i Mirkónesiu. Það merkilega
við þessa borg er, að hún er byggð
á basalti, en ekkert basalt finnst i
minna en 45 km fjarlægð frá
borginni. Hvernig bergið var flutt
alla þessa vegalengd i gegnum
þykkan frumskóginn, veit enginn.
Þegar kvikmyndatökumenn-
irnir komu til Costa Rica til að
taka þar myndir af dularfuUum
klettabjörgum sem Daniken hafði
fundið þar áður, fundu þeir ekkert
annað fyrir en grjóthrúgur.
Hugmyndafræðingurinn hafði
strax svör á reiðum höndum við
þessu. Hann sagði, að þegar hann
hefði fundið eitthvað markvert,
sem hann vildi skoða nánar, ein-
hvers-staðar, kæmi það stundum
fyrir, að innfæddir héldu að það
væri gull i þvi og brytu það i spað.
En nóg er um viðfangsefnin og
gáturnar. Þeirra á meðal eru
risastórar, ævafornar jarðristur i
S-Ameríku. Það er einungis
hægt að koma auga á þær úr flug-
vélum, og enginn hefur getað gef-
ið skýringu á þeim.
Þá má néfna likneski af „flug-
vélum” forn-Egypta og Kinverja
og brúður Hopi-indijánanna i
Nýju-Mexikó og Arizona. Þessar
litlu brúður lita út eins og geim-
farar, og meðal Indiána lifir sú
saga, að þær séu eftirmyndir af
„mönnum sem komu i heimsókn
fyrir langa löngu”. Og til þess að
börnin hræðist þá ekki, þegar þeir
koma aftur, eru þau látin leika
sér að þeim til að venjast þeim.
I Ekvador fundu þeir likneski,
sem á að vera af einhverjum ó-
þekktum guði frá Chimu-timabil-
inu þar i landi, og likist þetta lik-
neski óneitanlega geimfara i
geimbúningi.
Þá er fiað bannfæring faraó-
anna. Da*niken segir tuttugu
manns hafa látið lifið af þessum
völdum, en nú hafi visindamenn
tekið röntgenmyndir af múmiun-
um og komizt að þeirri merkilegu
niðurstöðu, að öll mikilv. innyfli
mannanna hafi verið fjarlægð og i
stað þeirra lagðir einhverjir hlut-
ir. Hann varpar fram þeirri
spurningu, hvað þetta sé. Hvort
það séu gimsteinar eða skraut-
munir, „en þvi ekki alveg eins
einhver tækniáhöld ogtól?”
Hann var aðeins viðstaddur
töku myndarinnar á fáum stöð-
um, t.a.m. i Bóliviu og i Amerfku,
þar sem kvikmyndaliðið leitaði til
NASA (National Aeronautics’
space Administration) tU að fá
kvikmyndir af fljúgandi furðu-
hlutum. Þar höfðu þeir ekkert
Framhald á bls. 23
Þessi 2500 ára gömlu goðalikneski I Suður-Ameriku voru mynduð I bak og fyrir.
Erich von Daniken telur þessa þrjú þúsund ára gömlu steinlikneskju sýna fyrirrennara nútima geimfara.