Tíminn - 16.03.1976, Side 16
16
TÍMINN
Þri&judagur 16. marz 1976
A FLOTTA FRÁ ÁSTINNI
lilil
DVARP
Eftir Rona Randall
hjá yfirlækninum. En samt fannst henni uppörvandi,
þegar hann brosti til hennar. Eftir kuldalegar móttökur
AAarks Lowell, var gott að vita, að einhver í hópi lækn-
anna vildi gjarna hafa hana hérna. Sannleikurinn var sá,
að hlýja og vingjarnleiki yfirhjúkrunarkonunnar og
framkoma Davids Harwey bættu henni mikið upp ein-
manaleikann hér.
Hún var einmana, þótt einkennilegt mætti virðast.
Heimur læknavísindanna, sá heimur, sem hún hrærðist í,
var athyglisverður og örvandi, en gjörsamlega óper-
sónulegur. Einu manneskjurnar sem máli skiptu þar,
voru sjúklingarnir og Myra viðurkenndi með sjálfri sér,
að hvað varðaði framkomu Marks Lowells við þá, var
hún fullkomin. Hann var eins og allur annar maður
innan um sjúklinga sina.
Mark Lowell tók návist Myru eins og sjálfsagðan hlut
og reyndi að hrinda frá öllum persónulegum skoðunum,
þá hún var að störfum. Eftir nokkurn tíma varð hann
að viðurkenna, að hún virtist fyllilega hæf og hafði ekk-
ert á móti mikilli vinnu. En tíminn mundi leiða í Ijós,
hvernig þetta væri. Hún mundi kannski glata starfsgleð-
inni, þegar nyjabrumið færi að fara af.
Hann var að hugsa um þetta eitt síðdegi, þegar hann ók
frá sjúkrahúsinu til ibúðar f rænku sinnar i þvergötu við
Champs Elysées. Lafði Lowell hafði búið við það sem
Mark kallaði ,,hæf ilegan íburð" síðan Sir Edward Lowell
lézt fyrir nokkrum árum, vegna þess að hún kaus f remur
íbúð í París en að búa á óðali f jölskyIdunnar í Normandí.
Aðaláhugamál hennar í lífinu var St. Georges-sjúkra-
húsið, að Mark sjálfum frátöldum, Hann var sonur
einkasystur hennar, sem lézt af slysförum, þegar hann
var barn og hann hafði komið í stað þeirra barna, sem
henni hafði aldrei orðið auðið. Þau voru öllu fremur
mæðgin en ættingjar.
Sjálfsagt var, að lafði Lowell ætti sæti í stjórn sjúkra-
hússins og það var fátt, sem gerðist þar, sem hún vissi
ekki um. Það sem Mark sagði henni ekki, gróf hún upp
eftir öðrum leiðum, annað hvort í samræðum við yfir-
hjúkrunarkonuna, eða með því að fara í margar og
óvæntar heimsóknir á sjúkrahúsið. Þessi smávaxna,
granna kona var vel þekkt þar, hún tók að sér ýmis verk,
heimsótti sjúklinga og bar fram te, þegar skortur var á
starfsfólki. Hún hafði skipulagt bókasafnið og sá um að
bæta við það og aka bókavögnum til sjúklinganna. Já,
það var ekki til sá hlutur, sem hún vildi ekki gera til að
þjóna þessu elskaða sjúkrahúsi sínu.
Ibúð hennar í Rue Marbeuf var eins og flest frönsk
heimili, óálitleg að utan, en hið gagnstæða að innan. Her-
bergin voru rúmgóð og glæsileg, húsgögnin smekkleg, í
hlýjum litum og hún hafði einstakan hæf ileika til að gera
heimili hlýlegt og notalegt. Mark fann það í hvert sinn,
sem hann kom i heimsókn, einnig nú. Hann hafði átt
langan og erfiðan starfsdag og hans eigin piparsveins-
íbúð laðaði hann ekki að sér þessa stundina.
Frænka hans var vön því að hann kæmi og færi eins og
honum hentaði, hún lagði bara á borð fyrir einn til við-
bótar. Eftir matinn settust þu í dagstofu og Mark dæsti
af vellíðan.
— I þakklætisskyni fyrir matinn geturðu sagt mér f rá
nýja aðstoðarlækninum, sagði frænka hans brosandi.
Hún tók upp handavinnu og lét sem hún einbeitti sér að
henni, en í rauninni sá hún fyrir sér grannvaxna, hvít-
klædda konu, sem hún hafði rekizt á í gangi sjúkrahúss-
ins að morgni þessa sama dags. Stúlkan hafði virzt
aðlaðandi, hugsaði hún. Hún var hressandi nýnæmi inn-
an um alla þessa karla, sem að hennar dómi höfðu allt of
lengi verið einráðir við St. Georges.
— Hvað um hana? spurði Mark kæruleysislega.
— Vertu ekki svona snakillur, Mark. Mig langar að
vita allt um hana, að sjálfsögðu. Er hún viðkunnanleg?
Dugleg? Kvenleg?
— Viðkunnanleg! Mark hló. — Almáttugur, það veit ég
ekki! Ég hef varla tekið eftir stúlkunni — aðeins séð
hana vinna og mér finnst hún nógu dugleg.
— Svei mér þá, kæri frændi, ef mig langar ekki til að
flengja þig! sagði Estelle Lowell hægt og með áherzlu.
Hann starði hissa á hana og hún hló. — Ég gefst upp á
þér, drengur minn, svei mér þá. Eins og sending af
himnum kemur allt í einu ung og lagleg kona á sjúkra-
húsið sem læknir og þú — karlmaður — getur ekki lýst
henni, nema sem ,,nógu duglegri"!
Hann andvarpaði. Nú var frænka farin að gera
giftingaráætlanir einu sinni enn. Jú, hann þekkti ein-
kennin. — Þú eyðir bara tímanum til einskis, Estelle,
sagði hann óþolinmóður. — Ég læt David Harwey sjá um
allt, sem kemur ástum og kvenfólki við.
— David er svo samvizkusamur í vinnunni, að hann
verður að sleppa sér svolítið lausum utan sjúkrahússins.
Þú varst einu sinni þannig sjálf ur, manstu það ekki?
G
E
I
R
I
Skilið herra, Hann segir:
Ý yfir- Takið engri
L J5SL; áhættu! -
Skipun er skipun
af stað!
Glæpamennirnir
Hæ, Pétur, þetta
erum við! , ,
Halló,
biðið, ,
biðið,'
Biðið ,
strákar!
Þriðjudagur
16. marz
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Gunnvör Braga les
framhald sögunnar
„Krumma bolakálfs” eftir
Rut Magnúsdóttur (2). Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Fiskispjallkl. 10.05:
Asgeir Jakobsson flytur.
Hin gömlu kynni kl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn. Morguntónleikar
kl. 11.00: Hliómsveitin Fin-
landia leikur „Þyrnirós”,
leikhústónlist eftir Erkki
Melartin, Jussi Jalas
stjórnar. NBC-sinfóniu-
hljómsveitin leikur Sinfóniu
i d-moll eftir Cesar Franck,
Guido Cantelli stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Standið rétt! Aðalsteinn
Hallsson fimleikakennari
flytur fyrri hluta erindis um
fimleikakennslu og sýning-
ar.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving sér um tim-
ann.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
laga þátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnuöryggi i bygging-
ariðnaðinum. Sigursveinn
Helgi Jóhannesson málari
flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 „Suite Bergamasque”
eftir Claude Debussy.
Bandariski pianóleikarinn
Micha Dichter leikur
(Hljóðritun frá útvarpinu i
Belgrad).
21.50 „Allir söngvar þagna þó
um siðir”Jónas Guðmunds-
son les eigin ljóð.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (25).
22.25 Kvöldsagan: ,,í verum”,
sjálfsævisaga Theódórs
Friðrikssonar. Gils Guð-
mundsson les annað bindi
(31).
22.45 Harmonikulög. Tony
Romano leikur.
23.00 A hljóðbergi. „Þrjár
myndir úr ævi minni” eftir
Albert Engström. Stig Jarr-
el les.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
IBHil
11
Þriðjudagur
16. marzl976
20.00 Frcttir og veöué.
30.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Þjóðarskútan. Þáttur
um störf alþingis. Um-
sjónarmenn Björn Teitsson
og Björn Þorsteinsson.
21.20 McCloud- Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Fingralangar flugfreyjur
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.50 Erlend málefni. Umsjón
Jón Hákon Magnússon.
23.20 Dagskrárlok