Tíminn - 20.03.1976, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. marz 1976
TÍMINN
)S
Réttarvernd heldur
kynningarfund um
meðferð og skipan
opinberra mála
Kélagið Islenzk réttarvernd
boðar til almenns kynningarfund-
ar um meðferð og skipan opin-
berra mála. Fundurinn verður
haldinn að Hótel Esju, miðviku-
daginn 24. marz, og hefst stund-
vislega kl. 20.30.
Ræður flytja þeir Sigurður
Gizurarson sýslumaður á húsavik
og Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti
i Kópavogi. Sigurður mun i sinni
ræðu fjalla um hugmyndir varð-
andi stofnun umboðsmannsem-
bættist hér á landi. Þá mun Sigur
geir fjalla um nýtt framvarp til
laga um rannsóknarlögreglu
rikisins, skipan dómsvalds og
meðferð opinberra mála.
Að loknum ræðum frummæl-
enda mun fundarmönnum gefast
tækifæri til að bera fram fyrir-
spurnir, sem frummælendur
munu siðan svara.
Eins og að framan greinir er
þettaalmennur kynningarfundur,
og vill stjórn félagsins hvetja
menn til að fjölmenna og kynna
sér framgang þessara mikilvægu
mála.
Þá hefur stjórn Islenzkrar rétt-
arverndar ákveðið að halda
félagsfund i næsta mánuði, þar
sem rætt verður um rekstur al-
mennrar lögfræðilegrar
þjónustuskrifstofu. Sá fundur
verður auglýstur siðar.
Fyrirlestuir um
Biblíuþýðingu og
textagreiningu
Dr. Birger Olsson, dósent við
Uppsalaháskóla, mun flytja tvo
fyrirlestra i boði guðfræðideildar
Háskóla íslands.
Nefnist fyrri fyrirlesturinn
TOLKA INTE, BARA
ÖVERSATT: eða þáttur rit-
skýringar við þýð. Bibliunnar,
og verður fluttur þriðjudaginn 23.
marz kl. 13.15. i V. kennslustofu
háskólans.
Siðari fyrirlesturinn verður
fluttur fimmtudaginn 25. marz kl.
10.15 á sama stað. Nefnist hann
STRUKTURANALYS OCH
TEXTFöRSTÁELSE.eða nokkur
dæmi um greiningu texta i Nýja
testamentinu.
Dr. Birger Olsson er dóserit i
Nýja testamentisfræðum við
Uppsalaháskóla, og hefur auk
þess starfað mikið að Bibliu-
þýðingarmálum. Hann beitir að-
ferðum nýrri málvisinda i Bibliu-
rannsóknum sinum og hefur
vakið verðskuldaða athygli, bæði
heima fyrir og erlendis.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
sænsku, og er öllum heimill að-
gangur.
íslenzkir
hvolpar
til sölu á Húsatóftum,
Skeiöum. Sími 99-6530.
Hey til sölu
Vélbundin taða til sölu.
Gott verð, ef um veru-
legt magn er að ræða.
Sveinn Sveinsson,
Hrafnkelsstöðum, sími
um Galtafell.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
Kópavogur
Freyja, félag framsóknarkvenna, heldur fund fimmtudaginn
21. marz kl. 20.30 að Neðstutröð 4. Stjórnin.
Þjóðmólandmskeið
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst fyrir þjóðmála-
námskeiði að Rauðarárstig 18, Reykjavlk 26.-28. mars.
Aðalheiður Gerður Eysteinn Pétur
Bjarnfreðs Steinþórsdóttir, Jónsson, Einarsson,
dóttir,
Ilalldór E. Sævar Einar Magnús
Sigurðsson. Sigurgeirsson. Agústsson, ólafsson.
Dagskrá:
Föstudag 26. marz kl. 20.00.Efnahagsmál og þjóðhagsstærðir.
Málshefjendur: Hannes Pálsson, bankastjóri og Halldór As-
grimsson, alþingismaður.
Laugardagur 27. marz kl. 10.00.Islenzka flokkakerfið.
Málshefjendur: Kristján Benediktsson, borgarráðsmaður og
Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri.
Laugardagur 27. marz kl. 15.00 Konur á vinnumarkaðinum.
Málshefjendur: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir form. Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar, gestur námskeiðsins og Gerður
Steinþórsdóttir varaborgarfulltrúi.
Sunnudagur 28. marz kl. 10.00 Framsóknarstefnan.
Málshefjendur: Eysteinn Jónsson fyrrv. ráðherra og Pétur
Einarsson stud. jur.
Sunnudagur 28. marz kl. 15.00.Tekjuskipting og skattamál.
Málshefjendur: Halldór E. Sigurðsson ráðherra og Sævar
Sigurgeirsson endurskoðandi.
Sunnudagur 28. marz kl. 18.00.Horfur i islenzkum stjórnmálum.
Málshefjendur: Einar Agústsson ráöherra og Magnús Ólafs-
son form. SUF.
Öllum er heimil þátttaka i námskeiði þessu og veru væntanleg-
ir þátttakendur beðnir að tilkynna þátttöku I sima 24480.
Stjórnandi námskeiðsins verður Magnús Ólafsson form. SUF.
Félagsmálaskólinn.
Hannes Halldór Kristján Jón
Pálsson, Asgrimsson, Benediktsson, Sigurðsson,
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur framsóknarvist i félags-
heimili sinu Sunnubraut 21, sunriudaginn 21. marz kl. 16.
Þetta er siðasta vistin i fjögurra-kvölda keppni. Veitt verða
heildaryerðlaun og venjuleg spilaverðlaun. Ollum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Rangæingar —
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur spilakvöld i Félags-
heimilinu Hvoli, Hvols.velli, sunnudaginn 21. marz kl. 9. (3
kvöld). Góð kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru sólarlandaferð
fyrir tvo.
Steingrimur Hermannsson, ritari Framsóknarflokksins flytur
ávarp. Stjórnin.
Hafnarf jörður
— Fulltrúaróð
Aðalfundur Fulltrúaráðsins verður þriðjudaginn 23. marz n.k.
kl. 20.30, að Strandgötu 11.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ragnheiður Svein-
björnsdóttir bæjarfulltrúi skýrir frá nýgerðri fjárhagsáætlun
bæjarins. 3. Markús Á. Einarsson gerir grein fyrir störfum bæj-
armálaráðs. 4. önnur mái. — Stjórnin.
Félagsmólanámskeið
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst
fyrir almennu félagsnámskeiði_ 19.-21. marz
og verður það haldið að Rauðarárstig 18,
Reykjavik.
Dagskrá:
Laugardag 20. marz kl. 10 erindi um ræðumennsku,umræður
og fyrirspurnir.
Kl. 15.00 rætt um undirbúning og efnisskipan ræðu.
Sunnudagur 21. marzkl. 10. Erindi um flokka tillagna og af-
greiðslu þeirra, umræður og fyrirspurnir.
Kl. 15rætt um undirbúning funda og fundarskipan.
Kl. I8erindi um félagslög.stjórn og gögn félags og um reikn-
inga, umræður og fyrirspurnir.
Stjórnandi námskeiðsins verður Pétur Einarss. Námskeiðið er
öllum opið, en væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna
þátttöku I sima 24480.
F élagsmálaskólinn.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi verður tii viðtals laugar-
daginn 20 marz á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarár-
stig 18, frá kl. 10 til 12.
Aðalfundur AAiðstjórnar
Aðalfundur Miðstjórnar Framsóknarflokksins 1976 verður
haldinn að Hótel Sögu i Reykjavik 7.-9. mai.Miðstjórnarmenn
eru minntir á að hafa samband við flokksskrifstofuna ef þeir
geta ekki mætt.
Snæfellingar
Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi gangast fyrir spilakvöldi
laugardaginn 10. april kl. 21 i félagsheimilinu Stykkishólmi.
Ávarp: Halldór E. Sigurðsson ráðherra. Dans á eftir.
Kópavogur
Fundur verður um utanrikismál mánudaginn 22. marz i Félags-
heimili Kópavogs kl. 20:30. Frummælandi verður Einar Agústs-
son utanrikisráðherra. Allt framsóknarfólk velkomið. Stjórnin.
Reykjavík
Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Reykjavik
verður haldinn að Hótel Esju mánudaginn 22. marz kl. 20.30.
Venjuieg aðalfundarstörf. Lagabreytingar,
Nánar auglýst siðar.
»
-f