Tíminn - 20.03.1976, Blaðsíða 16
Laugardagur 20. marz 1976
METSÖLUHÆXUR
Á ENSKU í
VASABROTI t
Líbanon:
Rodesía:
Skutu á fluvél
Karamis í Beirut
Viðræður strandaðar
NTB, Beirút. Utanrikisráðherra
Libanon, Eashid Karami, slapp
naumlega ómeiddur út úr flugvél
á flugvellinum i Beirút i gær,
þegar skæruliðar hæfðu hana með
eldflaugum og kveiktu i henni.
Flugvélin átti að fljúga með
Karami og aðra leiðtoga
múhameðstrúarmanna til Sýr-
lands, þar sem þeir ætluðu að
ræða við ráðamenn um hugsan-
legar lausnir á innanlandsdeilun-
um i Libanon.
Deilurnar hófust fyrir rúmri
viku, þegar Aziz al-Ahab hers-
höfðingi, yfirmaöur hersins i
Libanon, krafðist þess að forseti
landsins, Suleiman Franjieh, og
rikisstjórn hans, segði af sér.
Þegar skæruliöarnir skutu á
flugvél Karamis, voru allir
komnir um borð i hana. Hæfðu
þeir vélina með einni eldflaug og
kveiktu i henni, en allir nefndar-
menn komust óskaddaðir út úr
henni, ýmist um aðaldyr eða
neyðarútgang.
Ekki er vitað hvaða skæruliða-
hópur stóð að baki árásinni, en
ljóst er að það er einhver þeirra,
sem mótfallnir eru afskiptum
Sýrlendinga af deilunum.
Samkvæmt fréttum útvarpsins
i Beirút sagði Karami stuttu eftir
atburðinn, að hann myndi halda
áfram tilraunum til að leysa deil-
una.
Bardagar héldu áfram i Beirút i
gær, meðal annars skammt frá
forsetahöllinni.
Enn minnkar
verðbólgan
í Bretlandi
Reuter, London. Verðbólgan
i Bretlandi heldur áfram að
minnka, eftir siðustu opin-
berum tölum að dæma, f
febrúarmánuði var verð-
bólga á ársgrundvelli 22.9%
en var i janúar 23.4%.
Þetta er sjötti mánuðurinn
i röö, sem verðbólga minnk-
ar á Bretlandseyjum, og var
hún nú lægri en verið hefur i
tiu mánuöi.
Samt sem áður var verð-
bólga enn meiri i Bretlandi
en helztu samkeppnislöndum
þess meðal iðnaðarþjóða.
Bannað að
heimsækja
andófsmenn
NTB, Osló.Sex þingmenn úr
norska Stórþinginu, sem
fyrir nokkru sóttu um
heimild til sovézkra yfir-
valda til þess að heimsækja
Sovétrikin og eiga þar viðtöl
við nokkra þekkta andófs-
menn, hafa fengið neikvætt
svar við beiðni sinni.
í synjunarbréfi sinu segja
sovézk stjórnvöld, að til-
gangur ferðarinnar sé i mót-
sögn við þá viðteknu venju,
að þegnar einnar þjóðar hafi
ekki afskipti af innanrikis-
málefnum annarrar.
Reuter.Salisbury Viðræður
fulltrúa svarta meirihlutans i
Ródesiu við rikisstjórn hvita
minnihlutans i landinu, um
framtiðarskipan i stjórnarfari
landsins, leystust upp i gær. Ian
Smith forsætisráðherra fór þess
þá á leit við Breta að þeir tækju
virkan þátt i viðleitninni til að
leysa deilurnar um stjórnarskrá
landsins.
t yfirlýsingu, sem Smith lét
frá sér fara skömmu eftir að
viðræðurnar strönduðu, sagðist
hann álita, að nú gætu Bretar
ekki lengur skotið sér undan
ábyrgð sinni á málefnum
Ródesiu.
Leiðtogi svartra þjóðernis-
sinna i Ródesiu, Joshua Nkomo,
sagði i gær, að viðræðurnar
hefðú strandað, vegna þess að
Smith hefði neitað að ganga að
kröfum um að svarti meirihlut-
inn taki við stjórn landsins þeg-
ar i stað.
Nkomo sagði á blaðamanna-
fundi i gær, að stjórn Smiths
hefði ekki viljað ræða um stjórn
svartra i landinu fyrr en i fyrsta
lagi eftir tiu til fimmtán ár.
— Við höfum reynt aö ryðja
úr vegi þvi sem leitt gæti til
styrjaldár, sagði NKomo, — en
rikisstjórnin hefur neitað að
fjarlægja þær hindranir. Það er
greinilegt, að þeir eru reiðubún-
ir til styrjaldar.
Smith, forsætisráðherra
Ródesiu, sagði eftir að viðræð-
urnar stöðvuðust, að rikis-
stjórnin hefði boðið „viðtækar
áætlanir um skiptingu valds i
landinu og miklar stjórnarfars-
breytingar, svarta meirihlutan-
um i hag.”
Enn fremur sagði Smith: —
Ég álit að brezka stjórnin eigi
ekki lengur að forðast þá
ábyrgð, sem hún hefur tekizt á
herða, og ætti hún nú að taka
virkan þátt i leit að lausn á
stjórnarskrárdeilunum hér i
Ródesiu.
Herteknu svæðin við Jórdan:
Öryggisráðið taki ástandið
þar til athugunar nú þegar
Reuter, SÞ/Jerúsalem.— Nokkur
Arabariki fóru i gær fram á
skyndifund hjá öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna, þar sem fjallað
yröi um ástandið á þeim svæðum
vesturbakka Jórdan, sem tsra-
elsmenn halda hernámi.
Beiðnin um skyndifund var bor-
in fram af Pakistan og Libýu, en
þau eru einu múhameðstrúar-
Allsherjarverkfall í Argentínu
ef herinn tekur völdin þar
Reuter, Buenos Aires. — Verka-
lýðsforystan i Argentinu sam-
þykkti i gær að efna til allsherjar-
verkfalls um óákveðinn tima, ef
herinn i landinu tæki völdin þar.
Ákvörðun um þetta var tekin á
fundi milli leiðtoga verkamanna
og verkalýðsmálaráðherra Ar-
gentinu, Miguel Unamuno.
Verkalýðsleiðtogarnir, sem ótt-
ast að bylting hersins sé yfirvof-
andi, fóru fram á fund þennan
með ráðherranum, eftir að fréttir
bárust af þvi i gær, að þung-
vopnaðar sveitir hermanna hefðu
á fimmtudag ráðizt á tómstunda-
miðstöð verkamanna i málm-
iðnaði I Mendoza-héraði.
Stjórnmálamenn, sem einnig
óttast byltingu hersins, voru að
reyna að koma á fundi með hinum
ýmsu stjórnmálaflokkum i land-
inu, til þess að leita lausnar á
langvarandi stjórnarfars- og
efnahagskreppu í landinu.
Maria Estela Peron forseti
þótti i gær likleg til að vera fylgj-
andi hugmyndum um fund þenn-
anEinnig þarf að ganga frá laga-
legum hliðum kosninganna, sem
fara eiga fram þann 12. desember
næstkomandi.
löndin, sem aðild eiga að öryggis-
ráðin'u.
1 bréfi til forseta ráðsins,
Thomas Boya, greindu þeir frá
„hinu alvarlega ástandi, sem
myndazt hefur vegna undanfar-
andi atburðaþróunar á hernumd-
um svæðum Arabalanda”.
1 bréfinu sagði, að ástandið
hefði haldið áfram að versna und-
anfarna daga og að aðgerðir isra-
elskra stjórnvalda á svæðunum
vær> ekki hægt að skoða öðru visi
en sem „hluta af stefnu, sem miði
að þvi að innlima herteknu
Jerúsalem i Israel og breyta
menningarlegum og þjóðfélags-
legum einkennum hennar, i út-
reiknaðri mótstöðu gegn yfirlýs-
ingum bæði öryggisráðsins og
þings Sameinuðu þjóðanna um
málið”.
í gær héldu israelskir hermenn,
vopnaðir byssum, aftur af arab-
iskum andófsmönnum á herteknu
svæðunum, og komu þannig aö
mestu i veg fyrir óeirðir og átök.
Landamæralögregla og her-
menn fóru i eftirlitsferðir um göt-
ur Jerúsalem, og fallhlifaher-
menn lokuðu öðrum borgum og
bæjum á vesturbakka Jórdan.
Tókst þannig að halda friðinn I
gær, eftir sjö vikna stanzlaus
átök, milli arablskra ungmenna
og stúdenta, sem vopnuð eru
grjóti, og israelskra hermanna.
Við óeirðum lá þó fyrir utan Al-
Aqsa moskuna eftir hádegisbænir
Araba, þar sem trúarleiötogar
múhameðstrúarmanna sögðu
stórum hóp ungmenna að Isra-
elum yrðu ekki liðin nein afskipti
af trúmálum þeirra. En þegar
ungmennin, sem mörg báru hefð-
bundinn höfuðbúnað Palestinu-
araba, sýndu merki þess að æs-
ingur hefði gripið um sig, dreifðu
trúarleiðtogarnir hópnum og
báðu hvern að fara heim til sin.
Thailand:
Frestur USA til brott-
flutnings úti í dag
NTB, Bangkok.F'restur sá, sem
Bandarikjamenn höfðu til að
flytja siðustu hermenn sina á
brott frá Thailandi, rennur út i
dag, en i gær höfðu stjórnir
landanna ekki enn komið sér
saman um með hvaða skilmál-
um her Thailands skuli taka við
hernaðarmannvirkjum Banda-
rikjamanna i landinu.
Rikisstjórn Thailands hefur
lagt áherzlu á, að ef samkomu-
lag næst ekki, verði aö taka
niður öll bandarisk mannvirki
og flytja þau úr landi. Komi til
þess, verður þó að lengja frest
Bandarikjanna nokkuð.
Embættismenn i Thailandi
sögðu i gær, að Bandarikja-
menn vildu fá að hafa um 4.000
hermenn I landinu áfram, en
stjórn Thailands hefur sett þau
skilyrði, að bæði hermenn og
mannvirki verði undir eftirliti
og stjórn þarlenzkra yfirvalda.
Bandarikin óska eftir að fá að
handa stórri samgöngumiðstöð i
Ramasun, svo og stöðvum sin-
um á nokkrum smærri stöðum.
Enn fremur vilja þeir hafa
stjórn yfir hluta af flugvellinum
við U-Tapao.
Nýr fastafull-
trúi USA hjá SÞ
Reuter.Sameinuðu þjóðunum.
William Scranton, fyrrverandi
rikisstjóri i Pennsylvaniu-
fylki i Bandarikjunum, fram-
visaði i gær skilrikjum sinum
sem ljórtándi fastafulltrúi
Bandarikjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum.
Scranton tekur við embætti
fastafulltrúa af Daniel Patrick
Moynihan, sem lét af þvi til að
snúa aftur til kennslu við Har-
vard-háskóla, eftir að hafa
sakað nokkra háttsetta banda-
riska embættismenn um að
ganga fram hjá sér er hann
gegndi embætti fastafulltrúa
hjá S.Þ.
Reyndi aö myröa
rogsmann Thorpe
Reuter, Exetcr. Tuttugu og
niu ára gamall flugmaður,
Andrew Newton, var i gær
dæmdur til tveggja ára fang-
elsisvistar i Exeter i Bret-
landi, fyrir að reyna að skjóta
fyrrum tizkusýningarmann-
inn Norman Scott.
Scott er sá hinn sami og
fyrir nokkru varð valdur aö
miklu fjaðrafoki i röðum
Frjálslynda flokksins brezka.
með þvi aö segjast hafa staðið
i kynferðislegu sambandi við
leiðtoga hans, Jeremy Thorpe.
Scott hélt þvi fram við rétt:
arhöldin, að Newton hefði
fengið hann með sér upp i
sveit, skotið þar huðd Scotts
og reynt að skjóta hann sjálf-
an á eftir, en þá hefði byssan
staðið á sér.
Newton hélt þvi fram, að
Scott heföi kúgaðaf sér fé meö
ljósmynd af sér nöktum, og
hefði hann skotið hundinn og
reynt að hleypa öðru skoti af
til að fá Scott til að afhenda
sér ljósmyndina.
Dómarinn i málinu sagði
Newton, að hann hefði gerzt
sekur um að taka lögin i sinar
eigin hendur, og heföi þaö
getað haft hinar alvarlegustu
afleiðingar. Hann dæmdi
Newton til tveggja ára
fangelsisvistar, fyrir að hafa
haft skotvopn með höndum og
ætlað að valda likamlegum
meiðingum með þvi.
Kínverskur
viöskiptaráðherra til
Júgóslavíu
Reuter, Bclgrad. — Chen
Chien, aðstoðar utanrikis-
við^kiptaráðherra Kina, kom i
SHORNA
ÁMILLI
gær til Belgrad til að vera
viðstaddur fyrsta fund sam-
eiginlegrar júgóslavnesk-kin-'
verskrar viðskiptanefndar.
‘Chien mun einnig
heimsækja borgirnar Novi
Sad, Zagreb og Rijeka til að
ræða viðskiptatengsl og verzl-
un milli landanna tveggja.
Tefjast kosning-
arnar í Portúgal?
NTB, Lissabon. Hætta virðist
nú á að kosningar til nýs þjóð-
þings i Portúgal frestist um
einhvern tima, vegna deilna
milli Maóista og kommúnista,
sem trúir eru Moskvu, um
það, hvor flokkurinn megi
nota hamar og sigð sem merki
sitt á kjörseðlum.
Vegna deilu þessarar hefur
ekki reynzt unnt að prenta
kjörseðlana, en kjörstjórn i
Portúgal gerði það að skil-
yrðislausri kröfu, að hver
flokkur um sig hefði eitthvert
merki, sem algerlega aðskiidi
hann frá öðrum flokkum.
v