Tíminn - 05.05.1976, Side 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 5. mai 1976
'VvaS?
m....- H íiiiri i: - • ■ -e>- 2*
m .^ITTjiIsS' «•*;. >••, * i
.1 i « i iW^/lr
\
t
Þórshöfn:
Utanríkisróðuneytið:
Opínberar fundargerðir
úr Washingtonför 1949
FJ—Reykjavik. Utanrikisráðu-
neytið hefur nú gert opinberar
islenzkar frundargerðir i sam-
bandi við för þriggja islenzkra
ráðherra til Wahsington i marz
1949 i þvi skyni aðkynna sér efni
fyrirhugaðs Atlantshafs-sátt-
mála. Vegna mistaka bárust
ritstjórn Timans ekki þessar
fundargerðir fyrren i gærmorg-
un, og mun blaðið birta þær i
næsta sunnudagsblaði.
Hér er um að ræða fjórar
fundargerðir, þar sem greint er
frá viðræðum við fulltrúa
Bandarikjastjórnar dagana 14.,
15., 16. og 17. marz 1949.
Tekið skal fram, að banda-
riska utanrikisráðuneytið hefur
ekki til þessa greint opinberlega
frá fundinum, er haldinn var
miðvikudaginn 16. marz 1949.
Af Islands hálfu sátu þessir
menn fundina. Bjarni Bene-
diktsson, utanrikisráðherra,
Emil Jónsson, ráðherra,
Eysteinn Jónsson, ráðherra,
Thor Thors, sendiherra, Hans
G. Andersen, þjóöréttarfræð-
ingur.
Skuttogari keyptur
SJ-Reykjavik Utgeröarfélag
Þórshafnar hefur gengið frá
samningum um kaup á skut-
togaranum Suðurnesinu við sam-
nefnt hiutafélag i Keflavfk.
Suðurnesið er 300 tn skip og á að
I Suöurnes
afhendast Þórshafnarbúum 1.
júni, meö þeim fyrirvara þó að
útgerðarfélaginu takist að fjár-
magna sinn hluta og að ekkert
óvænt komi i ljós með skipiö við
nánari skoðun. Kaupin eru enn-
fremur háð þvi að Útgerðarfélag
Þórshafnar fái fy rirgreiðslu
stjórnvalda, þ.e. lán og ábyrgðir,
og er vænzt svars um það efni frá
rikisstjórninni i vikunni.
Suðurnesið var byggt I Noregi
1969, en var keypt hingað til lands
fyrir tveim árum.
Útgerðarfélag Þórshafnar
gerði út 300 tn skip fyrir nokkrum
árum, Hörpu úr Reykjavík.
Félagið er aö 2/3 hlutum eign
sveitarfélagsins. Siðan útgerð
Hörpu lagðist niður hefur ekki
verið gert út stórt skip frá Þórs-
höfn. Séð hefur verið fyrir hrá-
efnisöflun með 50 tn bátum og
minni. Smábátaútgerö hefur allt-
af verið mikil frá Þórshöfn. A
þessu ári og þvf siðasta hefur afli
bátanna dregizt saman og þeir
ekki skilað nægilegu hráefni til að
sjá þorpsbúum fyrir atvinnu.
B.S.R.B.:
Eina leioin er
að fresta tilteknum
framkvæmdum
Stjórn Bandalags starfsmanna
rikis og bæja fjallaði í gær um
frumvarp til laga um fjáröflun til
landhelgisgæzlu og fiskverndar,
rikisfjármál og fjármögnun orku-
framkvæmda sveitarfélaga.
Stjóm bandalagsins er sam-
mála stjórnvöldum um, aö verja
verði fjármagni til landhelgis-
gæzlu, eftir þvi sem á þarf að
halda við núverandi aðstæður.
Hins vegar mótmælir stjórn
B.S.R.B. þvi harðlega að fjár til
landhelgisgæzlu eða annarra út-
gjalda rikisinsá þessu ári, sé afl-
að með auknum álögum á al-
menning.
Vinnuveitendasamband íslands:
Fjórhagsvandi ríkissjóðs verði
fremur leystur með sparnaði,
°g J
frestun ótímabærra framkvæmda
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambands tslands fjallaöi i
gærum stjórnarfrum varp tii laga
um fjáröflun til iandhelgisgæzlu
og fiskverndar, rikisfjármál og
fjármögnun orkuframkvæmda
sveitarfélaga og gerði eftirfar-
andi athugasemdir:
Ekki verður dregiö I efa, að
þörf sé f járöflunar vegna eflingar
landhelgisgæzlu, fiskileitar og
hafrannsókna og er því fallizt á
fyrirhugaða fjáröflun til þessara
verkefna, enda veröi milljaröur
sá, sem stefnt er að þvi aö inn-
heimta, ekki notaöur til annars.
Ekki eru efni til, aö landhelgis-
skattur hafi áhrif á launagreiðsl-
ur til hækkunar, enda væri til-
gangur skattheimtunnar þar meö
brostinn.
Annan fjárhagsvanda rikis-
sjóðs má leysa meö tvennum
hætti: aukinni skattheimtu eða
niðurskurði rikisútgjalda. t frum-
varpi rikisstjórnarinnar er fyrri
leiðin valin, en eins og tillögurnar
eru úr garöi geröar munu þær
auka snúningshraða veröbólgu-
hjólsins, skapa frekari rekstrar-
fjárörðugleika atvinnuveganna
og stefna atvinnu i hættu. Vinnu-
veitendasamband tslands leggur
þvi enn á ný áherzlu á þá sam-
eiginlegu málaleitan aðila vinnu
markaðarins i siöustu kjara-
samningum, að fjárhagsvandi
rikissjóðs verði fremur leystur
með sparnaöi I rikisbúskapnum,
niðurskurði rekstrarútgjalda og
frestun ótímabærra fram-
kvæmda.
t frumvarpinu er gert ráð fyrir,
að fjármálaráðherra geti heimil-
aö sveitarfélögum veröbréfaút-
gáfu vegna hitaveitufram-
kvæmda. Hér er lagt út á hála og
hættulega braut. Útgáfa rikis-
skuldabréfa er þegar úr hófi fram
og endurgreiöslubyrðar munu i
vaxandi mæli hefta fjárhags-
svigrúm rikissjóðs. Auk þess eyk-
ur sú óeðlilega samkeppni um
sparifé iandsmanna, sem rikis-
valdið stendur fyrir með útgáfu
verðtryggðra spariskirteina, á
erfiðleika atvinnuveganna um
lánsfjárútvegun og mundi sá
vandi enn magnast ef sveitar-
félögum yrði einnig heimiluð
verðbréfaútgáfa.
(Fréttatilkynning)
Nú er svo komið fjármálum
þjóðarinnar, að aðeins ein leið er
fær i þessu máli, að dómi stjórnar
B.S.R.B., — að frestað verði á
þessu ári tilteknum framkvæmd-
um, og fjármunir i þess stað látn-
ir ganga til landhelgisgæzlu og
fiskvemdar, eftir þvi sem þörf er
á.
Stjórn B.S.R.B. vekur athygli á,
að á yfirstandandi árf er gert ráð
fyrir fjáröflun til:
1. Járnblendiverksmiðju á
Grundartanga 975 millj. kr.
sem litlar eða engar hkur eru
fyrir að nota þurfi á árinu 1976.
2. Vegna Kröfluvirkjunar.
a. stöðvarhús 1.694. millj.
b. borholur 600millj.
c. linulagnir 571 millj.
Samtals 2.865millj.
3. Vegna brúar yfir Borgarfjörð
390 millj.
Bandalagsstjórnin bendir á
framangreindar framkvæmdir,
sem mögulegt væri að fresta á
þessu ári.
Fari svo, að Alþingi taki þá
ákvörðun að auka álögur á heim-
ilin og magna verðbólgu, er það
eindregin krafa B.StRtB., að
vörugjaldið verði reiknað með 1
visitölu til kaupgjaldsbreytinga
skv. nýgerðum kjarasamningum.
Stjórn B.S.R.B. mótmælir þvi, að
gerðum kjarasamningum verði
þannig enn rift með löggjöf. Slik-
ar aðgerðir hljóta að skapa full-
komið vantraust og gera
samningsgerð alla erfiða i fram-
tiðinni. Sömuleiðis verði bannað
að bæta verzlunarálagningu við
væntanlegt vörugjald.
(Frá B.S.R.B.)
Bróðabirgðadagskró Listahótíðar 1976
Gsal-Reykjavik — Dagskrárat-
riði á Listahátið, sem verður
haldin dagana 4.-16. júni n.k.,
hafa nú verið ákveðið I stóru
dráttum, þótt svo enn sé óvist um
nokkur þeirra. Listahátlð hefur
nú birt bráðabirgðadagskrá og
verða hér á eftir talin upp helztu
atriði hátlðarinnar.
Háskólabió: Sinfóniuhljómsveit
íslands. Stjórnandi Paul Douglas
Freeman. Einleikari: Unnur
Maria Ingólfsdóttir, sem leikur
fiðlukonsert Mendelssohn i
e-moll, op. 64.
Kjarvalsstaðir: Leikflokkurinn
Comuna (Teatro De Pesquisa)
frá Portúgal sýnir leikþættina
„Máltið” og „Eldur”.
Þjóðleikhúsið: Helgi Tómas-
son. Islenzki dansflokkurinn.
Háskólabió: Einsöngstónleikar .
William Walker barytonsöngvari
frá Metropolitan óperunni I New
York. Undirleikari: Donald
Hassard.
Bústa ðakirkja : Márkl
strengjakvartettinn frá Vest-
ur-Þýzkalandi. L.V. Beethoven
opus 18nr. 2, opus 59nr. 2og opus
95.
Kjarvalsstaðir: Tónsmiðja Svi-
ans Gunnars Walkare tekur upp
tóninn. Gunnar hefur feröazt viða
um heim og kynnt sér hljóðfærá-
gerð frumstæðra þjóða.
Norræna-húsið: Færeysku leik-
ararnir Annika Hoydal og Eyðun
Jóhannesen flytja leikdagskrá
eftir færeyska skáldið Jens-Pauli
Heinesen við undirleik Finnboga
Jóhannesen.
Háskólabió: Gitarleikarinn
John Williams heldur einleikstón-
leika.
Norræna húsið:
Michala-flaututrió frá Dan-
mörku.
Háskólabió: Islenzkir popptón-
leikar (meö fyrirvara).
Kjarvalsstaðir: Kammertón-
leikar. Tónlist eftir Jón Ásgeirs-
son, Brahms, Hafliða Hallgrims-
son, Ravel og Stravinsky. Tón-
list: Kammersveit Reykjavikur.
Iðnó — Leikfélag Reykjavikur:
Saga hermannsins eftir
Stravinsky. Tónhst: Kammer-
sveit Reykjavikur.
Laugardalshöll: Popphljóm-
sveitin Sailor: (meö fyrirvara)
Háskólabió: Vestur-þýzka
sópransöngkonan Annelisse
Rothenberger syngur við undir-
leik prófessors Weissenborn.
Kjarvalsstaðir: Franski tón-
listarflokkurinn Ars Antiqua flyt-
ur miðaldatónlist og leikur á
hljóðfæri frá þeim tima.
Þjóðleikhúsiö — kjallari:
„Sizwebansiar död”, gestaleikur
frá Lilla Teatern I Helsingfors.
Þjóðleikhúsið — stóra svið:
Litli prinsinn, Michael Meschke
og brúðuleikflokkur hans frá
Stokkhólmi.
Laugardalshöll: Jazztónleikar,
konungur sveiflunnar, Benny
Goodman og sextett.
Kjarvalsstaðir: Samleikur á
fiölu ogpianó. Flytjendur: Rudolf
Bamert, Crsula G. Ingólfsdóttir.
Meðal efnis: J. Brahms F.
Martin, S. Profofieff og A.
Webern.
Kjarvalsstaðir: Skáldavaka.
Rithöfundasamband Islands.
Kristskirkja: Tónleikar á veg-
um Félags tslenzkra tónlistar-
manna. Atli Heimir Sveinsson, O.
Messiaen, barokk.
Þjóöleikhúsið: Gisela May,
austur-þýzka Brechtsöngkonan
ásamt fimm manna hljómsveit.
Hljómsveitarstjóri: Henry
Krtschil.
Iðnó: Franski látbragösleikar-
inn Yves Lebreton sýnir lát-
bragösleikinn HUH... eða ævin-
týri herra Ballon.
Norræna húsið: „Spurde du
mig” Gestaleikur frá Det Norska
Teatret i Osló. Flytjendur: Tone
Ringen og Björn Skagestad við
undirleikH. Lysiak ogT. Nordlie.
Kjarvalsstaðir: Tónleikar á
vegum Félags tslenzkra tónlist-
armanna ásamt félögum úr is-
lenzka dansflokknum. Verk eftir
Schubert, Villa-Lobus og Ravel.
Háskólabió: Franski pianó-
snillingurinn Pascal Rogé leikur
einleik. Verk eftir Chopin,
Brahms, Debussy og Liszt.
Iðnó — Leikfélag Akureyrár:
Glerdýrin eftir Tennessee Willi-
ams.
Laugardalshöll: (Aukatónleik-
ar. Eftirmáli að Listahátiö —
þriðjudag 29. júni) Jazztónleikar.
Söngkonan Cleo Laine ásamt
hljómsveit John Dankworth.
Auk áöurnefndra atriða á
Listahátið verða eftirtaldar list-
sýningar þá daga sem hátiðin
stendur yfir:
Kjarvalsstaðir: Sýning á 40
gouache-myndum eftir franska
málarann Gérard Scneider.
Listasafn Islands: Sýning á
verkum austurriska málarans
Hundertwasser.
Norræna húsið: Islenzk nytja-
list: Listiönaðarsýning sem fé-
lagið Listiðn stendur fyrir i sam-
vinnu viö Félag Isl. iðnrekenda og
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
Norrænn gestur kemur með verk
sin i boði Norræna hússins.
Bogasalur: Sýning á myndum,
handritum og skjöluni
Dunganons, sem hann arfleiddi
islenzka rikið aö við'andlát sitt
árið 1972.
Austurstræti: Úti-höggmynda-
sýning.