Tíminn - 05.05.1976, Síða 9
Miövikudagur 5. mai 1976
TÍMINN
9
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
^rfuiltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Augiýsingastjóri:
Steimgrimur Gíslason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús-
inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I
Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Verð I lausasölu kr. 50.00. Askriftar-
gjaidkr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f.
Léttkeypt leikbrögð
Þeir, sem tekizt hafa á hendur að sjá einhverju
farborða i bliðu og striðu, verða að haga sér sam-
kvæmt þvi, og á það jafnt við um hina minnstu ein-
ingu sem hina stærstu — litið bú eða heimili sem
sjálfan rikisbúskapinn — samvinnubú okkar allra.
Þeir, sem þessa ábyrgð hafa axlað, geta ekki gert
öllum allt að geðþótta, sizt af öllu þegar á móti blæs.
Það væri leið til tortimingar. Hér á það við, að fleira
verður að gera en gott þykir, sé það nauðsynlegt eða
jafnvel óumflýjanlegt. Þeir, sem utan við standa,
geta talað léttilega um þær ákvarðanir, sem ekki
eru til skyndivinsælda fallnar, hrakyrt þær og for-
dæmt og beitt hvers konar málbrellum til þess að ná
eyrum fólks. Oft er þetta þó ekki annað en
hljómandi málmur og hvellandi bjalla — leikaðferð
þess, sem vill gripa tækifærið til að láta klukkur
sinar glymja.
í stjórnmálum veltur á ýmsu um völd og gengi. í
okkar hluta heims sitja flokkar ekki að völdum i
skjóli annarlegs valds, og þess vegna er sjaldan, að
sami flokkur eða sömu flokkar stjórni málum
rikjanna nema tiltölulega stutt árabil i senn. Þetta
ætti að vera til þess fallið að treysta hófsemi i mál-
flutningi og baráttuaðferðum þeirra, sem þessi eða
hin árin eru i svokallaðri stjórnarandstöðu, þvi að
þeir vita, að sá dagur getur runnið upp, að i þeirra
hlut komi að kljást við sömu vandamálin eða önnur
svipuð og andstæðingar þeirra eiga við að glima. Þá
kann svo að fara, að þeir verði sjálfir að beita þvi,
sem nefna má harðræði, til þess að fleyta skútunni
heilli i höfn. Ef vel á að vera, verður að vera
samræmi milli orða og úrræða i rikisstjórn og utan,
vilji þeir ekki gefa á sér slæman höggstað og missa i
um traust og tiltrú meðal þeirra, sem aðeins muna
þann og þann daginn.
Ekki er ýkjalangt siðan Alþýðubandalagið átti
aðild að rikisstjórn. Engum i þeirri rikisstjórn var
það neitt fagnaðarefni, fremur en til dæmis nú, að
leggja á ráð um og taka ákvarðanir, sem gengu i
berhögg við óskir fólks. En lifið stjórnast ekki nema
þá að hluta til af óskum, og þegar við mótdrægt var
að striða, varð fleira að gera en gott þótti, ef ekki
átti verr að fara.
Alþýðubandalagið skoraðist ekki undan þessu,
enda hefði það verið óhæft til þátttöku i rikisstjórn,
ef það hefði gert það. Utan rikisstjórnar hefur
annað orðið upp á teningnum. Utan rikisstjórnar
hefur Alþýðubandalagið látið eins og aðsteðjandi
erfiðleikar, sem þó hafa verið miklu meiri en var
fram á árið 1974, væru fis til þess að blása á.
Sérhvert viðnám gegn þeim hefur verið fordæmt og
leiðarljósið verið það helzt, hvað þessum eða hinum
hópnum kynni að þykja þægilegt að heyrá.
Þetta er ótrúverðug baráttuaðferð. Hún stangast
á við fyrri gerðir Alþýðubandalagsins, og menn
gera sér yfirleitt ljóst, að það lumar ekki á neinum
töfraráðum til þess að snúa þvi, sem mótdrægt er, i
sólskinsdraum. Stæði Alþýðubandalagið nú i
sporum þeirra flokka, sem fara með landstjórn,
yrði það að fara svipaða leið og þeir til að forðast
boða og brotsjó. Alþýðubandalagið á ekki neina
töfraformúlu i skúffum sinum. Þvi miður er hún
hvergi til.
— JH
Ofnotkun lyfjo:
Vaxandi vandamál
En er baráttan gegn því rekin á raunhæfan máta?
Fyrir rúmri viku sendi Ford
Bandarikjaforseti frá sér
hjálparbeiöni til allra rikja
veraldar. 1 ræðu sem hann
hélt, á fundi meö þingmönnum
bandarisku fulltrúadeild-
arinnar, fór hann þess á leit aö
þjóöir heims tækju höndum
saman oghjálpuðu Bandarikj-
unum I tilraunum . þeirra til
að ráöa viö eitt af illvigustu
vandamálum sinum.
Vandamáliö var ekki
kynþáttamisrétti, ekki at-
vinnuleysi, glæpafaraldur eöa
neyöarástand, sem skapast
haföi vegna náttúruhamfara
eöa styrjalda. Engu aö siður
var þaö nægilega alvarlegt til
þes aö sjálfur Bandarikjafor-
seti viðurkenndi, að viö það
yrðiekki ráöið nema meö ann-
arra hjálp. Hann sagöi, aö
vandamál þetta væri „ógnun
við heilsu og framtið Banda-
rikjamanna,” og þaö væri
nánast „óhugnanlegt”.
En hvert var þá vanda-
málið? Jú, það var hið sama
og svo margar aörar þjóöir
eiga viö að glima og telja
meðal mestu áhyggjuefna
sinna ofnotkun löglegra lyfja
og neyzla fikniefna og eitur-
lyfja, sem ólögleg eru.
Fregnir berast af vanda
þessum hvaöanæva úr veröld-
inni: „Tollveröir finna rúm
fimm hundruð kiló af hassish i
bifreiö bandariskra ung-
menna,” „Lögreglan i
Sviþjóö kemur upp um mikið
smygl á heróini’,, „LSD-verk-
smiöja fundin”. Slikar fréttir
blasa viö okkur i fjölmiölum,
dag eftir dag.
1 hinum vestræna heimi er
vandamál þetta tiltölulega
ungt. Viöast hvar aö minnsta
kosti. Hasshis hefur veriö
notaö um margra alda skeiö i
Austurlöndum, ópium er
gamaltvandamálogrótgróiö i
Asiu, og Indiánar i
Suöur-Ameriku hafa lengi afl-
aö sér þreks til feröalaga og
annars með þvi aö tyggja
Kóka-lauf. Hins vegar er til-
gölulega skammt siöan efni
þessi, ásamt öörum, tóku aö
berast i nokkrum mæli til
Vesturlanda.
Nú er notkun þeirra þó orðin
svo mikil, að i sumum löndum
jaörar viö neyöarástand. Sér
staklega á það viö um Banda-
rikin, þar sem ekki var tekið
eftir vandamálinu sem sliku
fyrr en þaö var oröiö nánast
óviðráöanlegt. A hverju ári
streymir mikiö magn af heró-
ini, kókaini, ópium, hassish og
öörum fikniefnum og eitur-
lyfjum inn á markaöinn þar og
er dreift meöal borgaranna.
Þetta magn bætist viö þau lög-
legu lyf, sem ofnotuð eru og
misbeitt, til dæmis ampheta-
min og fleiri.
ÞAÐ ER EKKI aö ófyrir-
synju, aö Bandarikjaforseti
lýsir þessum vanda sem „ógn-
un viö heilsu og framtiö”
Bandarikjamanna. Um það
tala staðreyndir sinu máli, og
þvi ófögru. Mörg þessara lyfja
og efna eru skaðleg bæöi and-
legri og likamlegri heilsu
manna, og sum þeirra leiöa
jafnvel til dauða á skömmum
tima.
Heróin er þessara efna af-
kastamest, en það brýtur
niður bæði likamlega heilsu
neytenda sinna, svo og andlegt
jafnvægi þeirra og siðferðis-
styrk, og árlega er taliö, aö
töluverður hópur manna i
Bandarikjunum láti lifið
vegna heróinnautnar. önnur
efni gefa heróininu litt eftir, og
þau lyf sem nýjust eru á
þessum markaði, til dæmis of-
skynjunarlyfið LSD og fleiri
áþekk, hafa, að þvi er taliö er,
þegar skaðað andlega
hundruö þúsunda Bandarikja-
/ ' 1
Ttu
TURNS YOU ON!
\FLASH BOOKS
[I COMPLETE CANNABIS CULTI-
VATOR—Details how to plant. grow.
harvest. cure. plant diseases, soil
problems, etc. Bl $1.50
8UPER GRASS GROWER'S
GUIDE—Growing supergrass with
hydroponics. lighting, special nutrient:
CONSUME?
DEALER'S GUIDE—Extract hash
l.SD. mescaline. others, clearly ex-
.M.T. GUIDE—Make powerful,
smok-.able psychedelic D.M.T.. Khala-
Khij. an aphrodisiac; tips on hash
B4 $1.50
THE POT ÐOOK—The story of pot.
history. cultivation and preparation,
many useful facts. B5 $1.50
HERBAL HIGHS—Over 60 natural and
legal narcotics. psychedelics.
stimulants, illustrations B6 $1.50
SUPERMOTHER'S COOKING WITH
GRASS—Fifteen recipes for the sen-
sual cullmary connoisseur. Produces
inspired dinner conversation.B7 $1.50
COMPLETE GUIDE TO GROWING
MARIJUANA—Dave Flemmg. Exten-
sive 45 page guide B8 $1.00
HERBAL APHRODISIACS—Natjral
and mostly legal substances which ex-
cite erotic desire; nutrition for sexual
potency. and more. B9 $1.50
GOURMET COKEBOOK—Complete
COCAINE consumers book.BIO $2.95
HOME GROWN HIGHS-Organic
highs at home; psychedelic
mushrooms. peyote and other cacti.
morning glory. wood rose. and more.
Bll $1.50
PSILOCYBIN MUSHROOM FIELD
GUIDE—F.C. Ghould. Identifying
procedures for hunting the magic
mushroom; drawmgs and coíor
photographs B12 $1.50
GUIDE to growing cannabis
UNDER FLOURESCENTS—Closet
bumper crops at home P14 $2.00
*MORE GOODIES available m our
i catalog. Send 25« or Free
with your order.
RtéhtOn!
Send to; *
FLASH MAIL ORDER'
Dept. RS-212
P.O. Box 240
San Rafael. Ca 94902
Amt enclosed $_____
Plus 50« handling.
Please allow 3 to 4 weeks for
rhndlg Ca res include 6% sales
■e»vtax Sorry. ofterqoodin U.S.A. only,
1 (Wholesale inqujriés Irelcomel A
Auglýsing þessi birtist i tima-
ritinu Rolling Stone. i henni
eru auglýstar til sölu bækur
um fikniefnaframleiðsiu og
finkiefnaneyzlu. Sem dæmi
má nefna þá sem hringurinn
er um, en sú bók á að inni-
haida fullkomnar ieiöbeining-
ar til neytenda og seljenda
fikniefnisins marihuana.
I ræöu sinni skýröi Ford for-
seti frá nokkrum staðreynd-
um, sem gefiö geta nokuö
skýra mynd af einstökum
þáttum þessa vandamáls
innan Bandarikjanna. Kom
meðal annars fram I ræöu
hans, aö þrátt fyrir aö Banda-
rikin veröuað meðaltali meira
en sjö hungruð og fimmtiu
milljónum dollara til hefting-
ar á innflutningi fikniefna og
eiturlyfja, færi vandamál
þetta enn versnandi. Árlega
létust meira en fimm þúsund
Bandarikjamenn vegna of-
notkunar lyfja, og aö um
helmingurallra „götuglæpa” I
Bandarikjunum væru framdir
af fikniefna- og eiturlyfjaneyt-
endum, sem reyndu þannig að
komast yfir andviröi
dagskammtsins sins.
Þaö sem skýrasta sögu segir
þó ef til vill er sú fullyröing
forsetans, að árlega greiöi
Bandarikin um sautján þús-
und milljónir dollara vegna
vandamála og endurhæfingar
þeirra, sem misnotað hafa lyf.
Þaö er nálægt þrjú hundruð
þúsund milljónum islenzkra
króna.
Þess skal getið, að þessi
upphæðer framlag rikisins, en
iBandarfkjunum starfa einnig
endurhæfingar- og hjálpar-
stofnanir, sem reknar eru af
ýmsum sérhópum og kostaö-
ar af þeim.
Bandarikjaforseti fór þess á
leit við þingið, að þegar i stað
yrði hert mjög löggjöf sú er
varðar innflutning, dreifingu
og neyzlu lyfja og fikniefna.
Vill hann að þingiö ákveöi
þriggja ára fangelsun sem
lágmarksrefsingu fyrir sölu
fikniefna eða eiturlyfja, ef um
fyrsta broterað ræða, en sex
ára fangelsun ef um itrekaö
brot eöa dreifingu til unglinga
undir lögaldri er aö ræða.
Einnig fór hann þess á leit aö
viöurlög viö ólöglegum
innflutningi verði hert til
muna, svo og aö tollþjónust-
unni verði fengin i hendur
aukin völd til eftirlits og leitar.
____ÞAÐ ER oft svo, að eitt
gildir I oröi en annaö á boröi.
Þaö á einnig viö um þetta
vandamál, þvi þótt forráða-
menn og stjórnmálafrömuöir
skeri upp herör gegn neyzlu
fikniefna og eiturlyfja, segir
framkvæmdin oft aöra sögu.
Ford forseti kallar á herta
löggjöf i þessum málum, en á
meöan eru mörg fylki Banda-
rikjanna aö breyta löggjöf
sinni I þveröfuga stefnu. Sum
þeirra hafa þegar heimilað
neyzlu hassish og marihuana,
og heimila jafnframt að fólk
hafi efnin i fórum sinum, að
ákveðnu magni. A meöan yfir-
stjórn þjóðarinnar leitast
þannig viö, i orði, aö uppræta
efni þessi, viðurkenna einstök
riki tilveru þeirra og grund-
valla notkun þeirra og dreif-
ingu með lagasetningum.
Arangurinn lætur ekki biöa
eftir sér. Ford forseti hefur
fyllilega rétt fyrir sér, þegar
hann segir að vandamál þetta
fari versnandi. Það sem einna
mestum áhyggjum veldur er
sá straumur, sem er af lyfjum
og efnum til barna og
unglinga, einkum þeirra sem
á táningaaldri teljast. Taliö
er, og jafnvel I mörgum tilvik-
um sannað, að neyzla fikni-
efna, svo sem hassish og
marihuana byrji hjá ungling-
um i gagnfræðaskóla, þrettán
til fjórtán ára gömlum, og
jafnvel enn yngri.
ÞESSIR UNGLINGAR taka
upp neyzlu þessa eftir sér
eldra fólki að miklu leyti, en
þó hlýtur andi sá, sem rikir á
hverjum staðfyrir sig — bæði i
almenningsáliti, fjölmiðlun og
löggjöf að ráða ferðinni að
miklu leyti. Þar komum við
einmittað mestu þversögninni
i þessum málum i Bandarikj-
unum, en hún kemur fram i
fjölmiðlum.
Þaö frelsi, sem löggjafinn
hefur veitt um meðferð þess-
ara efna, segir einna greini-
legast til sin i fjölmiðlum. Um
þau er viða fjallað sem sjálf-
sagöan hlut, bæði i fréttum og
auglýsingum. Þess er
skemmst að minnast aö Jack
Nickholson, leikari sá sem á
þessu ári hlaut Óskarsverö-
launin fyrir beztan leik I aðal-
hlutverki, lýsti þvi yfir, að
hann neytti fikniefna reglu-
lega og teldi það sér til fram-
dráttar. Fleiri dæmi sUkra
yfirlýsinga eru fyrir hendi og
einmitt þau gera mikið til aö
laða unglinga til neyzlu
þejrra. Þessar fregnir gleym-
ast heldur diki jafnfljótt og
þegar önnur goð láta lifið
vegna misnotkunar lyfja, likt
og til dæmis Jimi Hendrix git-
arleikari með meira, og aörir
sem þá leið hafa farið.
OG SVO KOMUM viö loks aö
skýrasta dæminu, sem undir-
ritaður hefur lengi séö um tvö-
feldni þessa, sem jafnframt
varð kveikjan að skrifum
þessum. 1 timaritinu Rolling
Stone, 6. mai 1976, er heill
dálkur fikniefnaauglýsinga,
þar sem dreifingaraðilar
bjóða vöru sina til sölu. Þar er
auglýst „gras” eöa mari-
huana og önnur fikniefni, sem
unnin eru úr jurtum, „Speed”
hressingarlyf, sem svipar til
amphetamins, og jafnvel efni,
sem sagt er hafa sömu áhrif
og ópium.
I sama tölublaði eru aug-
Framhald á bls. 19.