Tíminn - 05.05.1976, Page 20
tSCBEEH-
þeytidreiíarinn
góö vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjon&son
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85494 & 85295
COCURA 4, 5 og 6
steinefnavögglar
Látið ekki COCURA
vanta i jötuna
SAMBANDIÐ
INNFLUTNINGSDEILD
§
PLAST
ÞAKRENNUR ^
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
Nýborgf
Ármúla 23 — Sími 86755
Velferðar-
ríkið dýrt
Reuter, Stokkhólmi. —
Útgjöld i Sviþjóö vegna al-
mannatrygginga á árinu 1974
námu sem svarar um 297
þúsund islenzkum krónum á
hvern ibúa landsins, eftir þvi
sem segir i skýrslu reikni-
stofnunar rikisins þar.
Heildarútg jöld vegna
eftirlauna, læknaþjónustu,
greiddra veikindadaga,
barnameðlaga, ellilifeyris og
annarra þátta námu um 241
þúsund milljónum islenzkra
króna, en i landinu búa um
átta milljónir manna.
Fjöldi skólabarna fórst og slasaðist í jórnbrautarslysi í Holland
Tuttugu og þrír létu lífið
Ellefu
fórust
Reuter, Lusaka. — Eliefu
manns létu lifiö i gær, þegar
flugvél af gerðinni Twin
Otter hrapaöi á sýningar-
flugi skammt fyrir sunnan
Lusaka.
Flugvélin var i eigu
Kanadamanna, en meö
henni fórust tveir Kanada-
menn, tveir Indiánar og sjö
Zambiumenn.
Talsmaður Zambiustjórn-
ar, sem fréttin er höfð eftir,
sagöi aö nöfn mannanna
yröu ekki gefin upp aö sinni.
Reuter, Schiedam. — Haröur
árekstur varö I gær milli Rinar-
hraðlestarinnar og farþegalestar
i innanlandsflutningum i Schie-
dam i Hollandi, með þeim afleiö-
ingum að tuttugu og þrir fórust,
þar á meðal skólabörn.
Margir slösuðust viö árekstur-
inn og sagði talsmaður hollenzku
járnbrautanna i gær, að enn heföi
ekki tekizt að ná öllum hinum
látnu úr braki innanlandshraö-
lestarinnar.
ökumaður Rinarhraölestarinn-
ar fékk svigrúm til að stökkva út
úr henni, þegar hann sá að
árekstur var óumflýjanlegur, en
áður hafði hann sett hemla
hennar á.
önnur farþegalest, einnig i
innanlandsflutningum, rakst
aftan á þá, sem hraðlestin ók á,
en hún skemmdist litið og engan i
henni sakaði.
Talsmenn járnbrautanna sögöu
i gær, að hraðlestin væri litið
skemmd, og að engan hefði sakaö
i henni. Hún var að koma frá þvi
aö sækja farþega að ferju við
Norðursjó, en þeir ætluðu til
Innsbruck.
Eimreiö lestarinnar plægðist
inn i innanlandslestina, en i henni
voru hundruð skólabarna, auk
annarra farþega. Slysið varö á
mesta annatima dagsins.
Hraðlestin var á eftir áætlun og
var i gær taliö að slysiö hafi orðið
vegna mistaka við sporaskipt-
ingu.
Fimmtlu slökkviliösmenn frá
Flugræningi
i geörannsókn
Rcuter, Istanbul. — Zeki
Ejder, tyrkneski verkamaður-
inn, sem rændi DC-10 flugvél
frá tyrkneska flugfélaginu á
föstudag, var I gær úrskurðað-
ur I sex vikna varðhald og
geðrannsókn.
Ejder rændi flugvélinni yfir
Frakklandi, i þeim tilgangi að
mótmæla brottrekstri sinum
frá þvi landi.
Árvakrir
tollverðir
Reuter, Marseilles. — Tveir
svissneskir rikisborgarar og
tveir ítalir voru I gær ákæröir
fyrir fikniefnasmygl, eftir að
tollþjónar f Marseilles i
Frakklandi fundu samtals
tuttugu og niu kiló af fikniefn-
inu hashish faiið i bifreiðum
þeirra.
SkæruUðar skutu
yfirmann Ffat.
Reuter, Buenos Aires. —
Vinstri-sinnaðir skæruliöar
veittu i gær fyrirsát einum af
yfirmönnum vélaverksmiðju I
vesturhluta Buenos Aires og
skutu hann til bana.
Yfirmaöurinn, Pedro Rota,
sem var yfirmaður sam-
setningarverksmiðja Fiat i
Buenos Aires, var skotinn til
bana með vélbyssu þegar
hann var á leið tii vinnu sinnar
igærmorgun. Skotin komu frá
annarri bifreið, sem ekið var
fram hjá.
Rota er fjóröi yfirmaður
Fiat-verksmiðja, sem
skæruliðar i Argentinu hafa
drepð á siðastliðnum fjórum
árum.
Ruddust inn
á sýningu...
Reuter, Parls,— Um fimmtán
ungmenni réöust I gær inn á
sýningu, sem byggö er upp á
munum og öðru frá fylkinu
Louisiana I Bandarikjunum.
Köstuðu ungmennin grjóti og
táragassprengjum og rifu tvo
fána á sýningunni, eftir þvi
sem skipuleggjendur hennar
skýrðu frá i gær.
Þá brutu ungmennin einnig
glerskápa I anddyri sýningar-
salarins.
Talið var aö ungmennin
væru einn af afbrotahópum
þeim, sem myndazt hafa i
Paris, en ekki að nein stjórn-
málastarfsemi hafi veriö á
bak við innrásina.
Minnkandi
atvinnuieysi
Reuler, Vin. — Atvinnuleysi
minnkaði töluvert i Austurriki
íslðasta mánuði, eftir þvi sem
Rudolf Hauser, félagsmála-
ráðherra Austurrikis, sagði i
gær.
Alls fækkaði atvinnulausum
i mánuðinum um 22.000, sem
er um tvö prósent af vinnuafli
landsins.
Síöustu tölur sýna, að i lok
aprll voru 54.186 manns
atvinnuJausir i Aasturrlki.
Þræl-pólitiskur
dýrlingur......
Reuter, Napóli. — Mikil
spenna rlkti f borginni Napóli
á ltaiiu i gær, meðan hundruð
kaþólskra klerka lágu á bæn i
kirkjum þar, og reyndu meö
þvi að framkalla hiö svokall-
aöa kraftaverk heilags
Januariusar. Kraftaverk
þetta átti samkvæmt venju að
verða á laugardaginn i fyrri
viku.
1 gær ieiddi erkibiskup
borgarinnar, Corrado Ursi
kardináli, bænir hinna trúuöu,
en þá höfðu þeir legið á bæn I
þrjá daga, án árangurs.
Ymsar skýringar hafa verið
bornar fram á þvi, hvers
vegna kraftaverkið varð ekki
Rotterdam og öðrum borgum
hófu björgunarstörf þegar eftir
áreksturinn og skáru þeir brakið
sundur með logskurðartækjum,
til þess að losa þá sem fastir voru
og ná út h'kum hinna látnu.
Onnur hlið innanlandslestar-
innar rifnaöi upp við áreksturinn,
þegarhún neristutan i rafmagns-
einangrara, sem eru við teinana
og sagði einn slökkviliðsmanna,
að þeir heföu skorið lestina Hkt og
dósaupptakarar.
Það tók slökkviliðsmenn um
það bil fjórar klukkustundir, að
losa ökumann innanlandslestar-
innar úr braki klefa hans, sem
einn slökkviliðsmanna sagði, að
hefði veriö likastur harmónikku.
ökumaðurinn var alvarlega
slasaður.
Svo virðist sem mistök hafi átt
sér stað við brautaskiptingu,
vegna tafa hraðlestarinnar.
Hraðlestarumferð er hleypt inn á
innanlandsbrautir á þeim stað
sem slysið varð, en ætlazt er til að
innanlandslestir biði, ef hraðlest-
irnar eru ekki á réttum tima.
Merkjamenn hafa þann starfa
með hendi að gefa lestunum
merki um slikt.
Herða öryggiseftlrlit sitt enn
Reuter, Tel Aviv.— Fjölmennar
lögreglusveitir leituðu I gær i
ölium farartækjum, sem fóru
inn I Jerúsalem-borg. Var leit
þessi gerö eftir að sá skuggi
hafði fallið á hátiðahöld i borg-
inni að sprenging varð þar á
mánudagskvöld.
Strangt útgöngubann gilti i
tveim bæjum á herteknu svæð-
unum á vesturbakka árinnar
Jórdan og i bæjum og borgum
innan landamæra ísraelsrikis
sjálfs voru öryggisverðir viö
eftirlitsstörf.
I Nablus, sem er stærsti bær-
inn á vesturbakka Jórdan, voru
israelskir hermenn við eftirlits-
störf i gamla bænum, sem
kallaður er, en þar búa um tutt-
ugu þúsund manns. Skutu þeir
við og viö af byssum sinum til
þessað koma i veg fyrir uppþot.
Hermenn tvistruðu hóp tvö
hundruð kvenna i Nablus i gær,
en þær höfðu efnt til setuverk-
falls fyrir utan ráðhús bæjarins,
til að mótmæla þvi, að þeim var
neitað um aögang að gamla
bænum.
Sumar kvennanna báru fána
og veifur með einkennislitum
Palestinu.
1 gærkvöld átti að kveikja á
blysum á Hertzl-fjaUi, til þess
að marka upphaf sjálf-
stæðis-hátiðar tsraelsríkis, en i
dag eru liðin 28 ár frá þvi landið
fékk sjálfstæði. Stjórnmála-
menn hafa litið lá ið frá sér
heyra vegna afmælisins.
Enn brenna skógar í Sovét
Reuter, Moskvu. — Þúsund
slökkviliða, sem fyrir skömmu
börðust um þriggja vikna skeið
flllDSHORNA
'Á IVIILLI
á áætluðum tima, meðal ann-
ars þær, að dýrlingurinn hafi
reiðst borgarbúum fyrir aö
kjósa yfir sig stjórn kommún-
ista á siöustu bæjarstjórnar-
kosningum.
Ursikardináli hefur lýst þvi
yfir, að dýrlingurinn sé reiöur
vegna ofbeldis i mannfélag-
inu og borgarastyrjaldanna i
Libanon og á N-lrlandi.
Njósnarar
fyrir rétt
Reuter, Alsir,— Þrir Frakk-
ar, einn Breti og tveir Túnis-
menn munu koma fyrir rétt
hjá öryggisþjónustu rikisins i
Alsir I dag, ákærðir fyrir þátt-
töku i efnahags-njósnum, eftir
þvi sem fréttastofan i Alsir
skýrði frá i gær.
Kærurnar hafa ekki verið
birtar I smáatriðum, en talið
er að um sé aö ræða efnahags-
legar njósnir, spillingu em-
bættismanna og þjófnaö á
trúnaöarskjölum.
Allir mennirnir sex voru
handteknir á siöastliðnum
vetri i borginni Annabak þar
sem þeir störfuðu fyrir fyrir-
tæki á vegum E1 Hadjar stál-
iðjuversins.
Fimm finnskir
hermenn drukkna
Reuter, Porvoo. Fimm her-
menn drukknuðu og tiu
meiddust þegar flutningabif-
reið frá finnska hernum braut
undan sér brú og hrapaði I á
skammt frá Porvoo i Finn
landi I gær.
Talsmenn hersins sögðu, að
þeir sem drukknuöu hefðu
festst undir yfirbreiðslu bif-
reiðarinnar þegar henni
hvolfdi og þvi heföu þeir ekki
komizt frá henni.
við alvarlega skógarelda i Suð-
austurhluta Siberiu, standa nú
frammi fyrir nýrri baráttu, þar
sem skógareldar hafa brotizt út á
svæði um fimmtán hundruð kiló-
metra frá þvi, sem fyrri eldarnir
geysuðu á.
Dagblaðið Komsomolskaya
Pravda sagði i gær aö þrjátiu og
sex aðskildir eldar geysuðu nú á
Krasnoyarsk-svæðinu I Siberiu.
Hafði blaðið eftir háttsettum
skógarvcrði, að eldurinn heföi
þegar eytt um 275 hekturum
skóglendis, á aðeins einum sólar-
hring.
A Chita-svæðinu, fyrir austan
Baikal-vatn, þar sem áður höföu
brotiztút skógareldar, kom mikil
snjókoma á sunnudag og létti
þannig mikið á slökkviliðunum.
Reykurinn frá eldunum var svo
þéttur i siðustu viku að kveikja
varð á götuljósum i borginni
Chita og umferð á götum hennar
stöðvaðist.
Komosomolskaya Pravda
skýrir einnig frá þvi, að slökkvi-
liðin verði að byggja starf sitt
með öllu á þeim vatnsbirgðum
sem unnt er að flytja til þeirra
með þyrlum, þar sem allar ár á
svæðinu eru enn frosnar.
Talið erað þurrthaust á siðasta
ári, svo og óvenju vægur vetur og
litil snjókoma, hafi orsakað það
hversu mikilli útbreiðslu eldarnir
hafa náð.
Ekki er vitað til, að eldarnir
hafi orðið mönnum að f jörtjóni en
skaði hefur orðið mikill af þeim.
ísrael mætir PLO ó ný
Reuter, Jerúsalem. — Jsraelar
hafa gefið fastafulltrúa sinum hjá
Sameinuðu þjóöunum fyrirmæli
um, aö hann taki þátt I umræðum
öryggisráðs samtakanna um
herteknu svæðin á vesturbakka
árinnar Jordan, að þvi er haft er
eftir heimildum i utanrikisráöu-
neyti Israels i Jerúsalem.
Það eru Egyptar, sem krafizt
hafa þessara umræðna, og munu
Israelar halda þvi fram, aö þeir
hafi gert það vegna þrýstings frá
Öflum innan Arabarikjanna.
Þetta er I annaö sinn á sex vik-
um, sem öryggisráð S.Þ. kemur
,saman að kröfu Arabarikis, til
þessað ræða herteknu svæðin við
Jórdan.
Haft var eftir heimildarmönn-
um i ráðuneytinu að þessi krafa
Egypta væri i algerri þversögn
við það óopinbera samkomulag,
sem gert var milli Egyptalands
og Israels á siðasta ári, þegar
Israelar drógu sig til baka, aftur
fyrir hernaðarlinu, sem dregin
var um Mitla og Giddi i Sinai.
Segjast Israelar hafa lagt þann
skilning I málin að meðan sam-
komulag þetta væri i gildi myndi
ekki koma til stjórnmálalegra
átaka eða árása milli rikjanna.
Rukkunarheftin
Blaðburðarfólk Tímans
er vinsamlega beðið að sækja
rukkunarheftin d afgreiðslu
blaðsins.