Tíminn - 09.06.1976, Page 17
Miðvikudagur 9, júni 1976
TÍMINN
17
Umsjón: Sigmundur ó. Steinarsson
„Það var skemmtileat
að horfg ó knöttinn
hafna í netínu"
— sagði Gunnlaugur Kristfinnsson, sem tryggði Víkingum
sigur (2:1) með stórglæsilegu marki gegn
— ÞAÐ var skemmtilegt að sjá knöttinn sigla fram hjá
varnarmönnunum og haf na í netinu, sagði hinn skotfasti
Víkingur Gunnlaugur Kristfinnsson, sem skoraði stór-
glæsilegt sigurmark Víkings-liðsins, sem lagði KR-inga
að velli (2:1) á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Gunn-
laugur spyrnti knettinum viðstöðulaust að marki KR-
inga af 20 m færi — þrumufleygur hans þaut rétt með
jörðinni og skall í netamvöskva KR-marksins.
Gunnlaugur fékk knöttinn, eftir
hornspyrnu frá Stefáni Halldórs-
syni. Stefán spyrnti vel fyrir
markið — knötturinn hrökk af
KR-ingi, fyrir fæturna á Gunn-
laugi, sem var ekki lengi að átta
sig á hlutunum og sendi knöttinn
fram hjá varnarmönnum KR og i
netið, óverjandi fyrir Magnús
Guðmundsson, markvörð KR-
liðsins.
Víkingar voru betri aðilinn i
leiknum, sem var nokkuð bragð-
daufur. Þeir sóttu mun meira, en
aðeins tvisvar sinnum tókst þeim
að senda knöttinn i netið hjá Vest-
urbæjarliðinu. óskar Tómasson
skoraðifyrra mark (1:0) Vikings-
liðsins á 26. minútu — hann fékk
stungubolta inn i vitateigi KR-
liðsins og sendi knöttinn örugg-
lega fram hjá Magnúsi. KR-ing-
um tókst að jafna á 57. roin. — það
var Jóhann Torfason, sem skor-
aði markið, eftir að hafa fengið
sendingu frá Sigurði Stefánssyni.
Jóhann renndi knettinum fram
hjá Diðriki Ólafssyni, markverði
Vikings. Gunnlaugur tryggði Vik-
ingum siðan sigur, þegar hann
KR
skoraði hið glæsilega mark, fimm
min. siðar.
Vikingar voru vel að þessum
sigri komnir — þeir áttu meira i
leiknum og með smá heppni hefðu
þeir getað unnið stærri sigur.
Róbert Agnarsson og Adolf Guð-
mundsson voru beztu menn Vik-
ings i leiknum, en Ottó Guð-
mundsson var drýgstur hjá KR-
ingum.
Valur Benediktsson dæmdi
leikinn — hann átti slakan dag.
Valur bókaði tvo leikmenn KR-
liðsins, fyrir harðan leik — þá
Ottó og Guðjón Hilmarsson.
MAÐUR LEIKSINS: Adolf Guð-
mundsson.
—SOS
JÓIIANN TORFASON.... skoraði
mark KR-liðsins. Hann átti ágæta
spretti, en fékk litið af sending-
um, til að vinna úr. (Timamynd
Gunnar).
JÍrví v-
'
.
■ ■■
„Skagamenn áttu ekki
möguleika gegn okkur
— sagði markakóngurinn Hermann Gunnarsson
— Ég er mjög ánægður með leik-
inn — Skagamenn áttu aldrei
möguleika gegn okkur, eftir að
við settum á fulla ferð, sagði
Hermann Gunnarsson, eftir að
Valsmcnn höfðu tekið tslands-
meistarana frá Akranesi i
kennslustund og leikið sér að
þeim, eins og köttur að mús. —
Við hugsuðum aðeins um, að láta
knöttinn ganga og gáfum okkur
góðan tima til að hugsa —
árangurinn lét ekki á sér standa,
við náðum að yfirspila Skaga-
menn, sem áttu ekkert svar til.
Þeir böröust allan leikinn, en það
var bara ekki nóg — því að þeir
réöu ekki við leik okkar og með
heppni hefðum við átt að skora
fleiri mörk I síðari hálfleiknum,
sagði Hermann.
Hermann er mjög ánægður með
leikskipulag, sem Youri Ilitchev,
lætur Valsliðið leika. Ilitchev
hefur náð að byggja upp
skemmtilegt lið, sem leikur
sóknarknattspyrnu, en ekki
varnarleik krydduðum lang-
spyrnum út og suður, eins og
ensku þjálfararnir láta sin lið
leika. Það er greinilegt að
Ilitchev er miklu klókari og klár-
ari heldur en þjálfararnir frá
Bretlandseyjum, sem hér hafa
verið og eru.
ólga í
Keflavik
Heyrzt hefur, að mikil ólga sé
nú hjá leikmönnum Keflavíkur-
liðsins, sem eru ekki og ánægðir
með þjálfara sinn— James Craig.
Keflvikingar eru ekki allt of
hrifnir af þvi æfingarfyrirkomu-
lagi, sem Craig notar og þá mun
vera nokkur óánægja með leik-
kerfið sem hann notar i leikjum.
Í |
HERMANN GUNNARSSON... hefur skorað 6 mörk 11. deildarkeppninni.
KNATT-
SPYRNU-
PUNKTAR
Framarar hafa mestu
möguleikana
Drátturinn i Evrópukeppnun-
um þremur i knattspyrnu fer
fram 6. júli. Akurnesingar, Kefl-
vikingar og Framarar taka þátt i
keppnunum fyrir hönd íslands og
eiga Framarar mestu möguleik-
ana á að dragast gegn liði, sem
mun draga áhorfendur á völlinn.
Framarar, sem leika i UEFA-
bikarkeppninni, hafa möguleika/
á að dragast gegn Manchester i
United, Derby, Manchester City,
Queens Park Rangers og Barce-
lona, svo einhver lið séu nefnd.
Skagamenn, sem taka þátt i
Evrópukeppni meistaraliða, eiga
möguleika á að dragast gegn
Evrópumeisturum Bayern
Munchen, Borussia Mönchen-
gladbach og Liverpool. Kefl-
vikingar eiga minnstu mögu-
leikana að dragast gegn liði, sem
kæmi til með að draga að áhorf-
endur — en þeir leika i Evrópu-
keppni bikarhafa.
Valsmenn — vinn á
10 ára fresti
Valsmenn eru harðákveðnir að
tryggja sér Islandsmeistaratitil-
inn — þeir segja að nú sé komið
árið þeirra. Þeir benda á, að
Valsmenn hafi orðið íslands-
meistarar með 10 ára millibili —
og til sönnunar benda þeir á árin
1956 og 1966, en þau ár voru Vals-
menn meistarar. — Nú er okkar
ár (1976) komið, segja Valsmenn
—SOS
1. DEILD
Staðan er nú þessi I 1. deildar- I
keppninni:
Valur ............54 1 0 16:4 9 .
KR ...............5 13 1 7:5 5 I
Akranes ..........421 1 4:7 5 1
Fram..............5 2 1 2 5:6 5 |
Keflavlk..........5 2 0 3 9:7 4
Vikingur..........3 2 0 1 4:4 4 I
Breiðablik .......3 111 4:5 3 I
FH................4 1 1 2 4:8 3 I
Þróttur...........4004 2:9 0 *
Markhæstu menn:
Guðmundur Þorbjörnss. Val .... 6 I
Hennann Gunnarsson, Val......6 I
Björn Pétursson, KR..........3
Matthías
skrifaði
undir í
Svíþjóð
MATTHIAS Hallgrlmsson, lands-
liðsmiðherjinn snjalli I knatt-
spyrnu fra Akranesi, hefur skrif-
að undir atvinnumannasamning
við sænska 2. deildarliöið Halmia.
Matthias, sem skrifaöi undir eins
og hálfs árs samning við Ilalm-
stad-liöið um helgina, heldur til
Sviþjóðar eftir mánuð, en hann
mun byrja að leika með Halmla-
liðinu i byrjun ágúst.
Þessi 29 ára marksækni leik-
maður, sem hefur skorað 66 1.
deildarmörk fyrir Skagamenn,
mun ekki leika meira með
Akurnesingum i sumar, þar sem
hann hefur skrifað undir samning
I Sviþjóð. —-SOS
iVerjum
,88gróóur)
verndumi
JandQ^r