Tíminn - 09.06.1976, Síða 20
20
TÍMINN
Miövikudagur 9. júni 1976
s VARAHLUTIR
Notaóir
varahiutir i flestar gerðir eldri bíla
t.d. Land/Rover, Peugot, Rambler,
Rússajeppa, Chevrolet,
Volkswagen station.
Höföatuni 10 • Simi 1-13-97 BÍLA-
PARTASALAN
Opid fra 9-6,30 alla virka daga og 9-3 laugardaga
Jörb til sölu
i Borgarfirði. öll hús i góðu iagi. Lax og
silungsveiði. Gæti hentað félagssamtök-
um sem sumardvalarstður
Tilboð merkt Silungalax 1480 sendist afgr.
Timans fyrir 12. júni n.k.
Fóstrur
Staða forstöðukonu við leikskóla i Hafnar-
firði er laus til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir félagsmála-
stjóri og tekur við umsóknum á bæjar-
skrifstofunum að Strandgötu 6.
Félagsmálastjórinn i Hafnarfirði.
Auglýsing
Fjármálaráðuneytið,
4. júni 1976.
Eftirtaldar stöður við embætti skattstjóra Norður-
landsumdæmis eystra, Akureyri, eru Iausar til um-
sóknar.
1. Staða skrifstofustjóra.
2. Staða fulltrúa.
3. Staða háskólamenntaðs fulltrúa við endurskoðun.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir óskast sendar skattstjóranum I Norður-
landsumdæmi eystra, Hafnarstræti 95, Akureyri, fyrir
1. júli n .k. og gefur hann allar nánari upplýsingar.
(p Til sölu
Notuð áhöld, tæki, innréttingar og ýmis-
legt fleira úr rekstri ýmissa borgarstofn-
ana.
Selt verður m.a. kvikmyndasýningavélar (f. samk. staöi)
rit- og reiknivclar, oliukyndiofnar, kolakatlar, rafmagns-
handverkfæri, hefilbekkir, hjóisagir, garðsiáttuvélar,
barna- og ungiingarúm, skápar, borð, huröir o.fl. f ýmsum
stæröum og geröum. Dúkar, teppi og fiisar. Matarhita-
vagnar f. sjúkrahús, ijósritar, stálvaskar (ýmsar gerðir),
W.C., handlaugar, eldavélar, timburafgangar og ýmislegt
fleira.
Selt á tækifærisverði gegn staðgreiðslu.
Til sýnis i Skúlatúni 1, kjallara (kringlan) inngangur und-
ir inngangi I Vinnumiðlun Reykjavikurborgar, föstudag-
inn 11. júni n.k. kl. 8-10 f.h.
Selt á sama stað á sama degi frá kl. lOf.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Lesendur
segja:
Ferðalangur:
Óstand á vegum frá
Reykjavík til Akureyrar
Ferðalangur skrifar:
Það er kominn júnimánuður,
sól senn hvað hæst á lofti, mið
sumar innan þriggja vikna.
Þannig hugsaði ég, þegar ég hóf
ferð mina frá Akureyri til
Reykjavikur — landleiðina nota
bene.
En það er ekki neinn sumar-
svipur á þjóðveginum. Hann er
hinn argasti alla leið suður að
Hreðavatnsskála. Eins og menn
muna óðust vegir i Húnavatns-
sýslu svo upp i vor, að vörubílar
lágu á öxlum. Þeir ristu niður úr
þunnu malarlagi og rótuðu þvi
saman við moldina. Það olli
ekki aðeins óþægindum, heldur
mun einnig reynast dýrt spaug,
þvi a ð sennilega kostar dr júgum
meira að bæta það, sem úr-
skeiðis hefur farið heldur en
gera veginn etur úr garði en I
fyrra.
Enn er meginhluti vegarins
frá Akureyri suður i Borgar-
fjörð mjög holóttur, ósléttur og
illur yfirferðar. Það verður ein
hvers staðar rekið upp rama-
kvein, ef ekki verður f jótt og vel
úr þessu bætt. Trúlega er svip-
aða sögu að segja viðar af land-
inu, þó að ég geti ekkert um það
fullyrt. En satt að segja er þetta
ekki annað en vænta má. Þetta
er vafalaust afleiðing af þvi, að
sifellt aka fleiri og þyngri bilar
vegina, án þess að þeir séu
treystir eða meira fyrir þá gert
en áður. Það getur ekki gengið
til langframa, hvað sem öllum
fjárhagskröggum liður, og ætti
að leita útgjaldaliða hjá rikinu,
sem mætti knepra, en auka
vegaféö úti um landið. Það hlýt-
ur að mega spara einhvers stað-
ar, ef vel er farið i saumana,
þegar rikisútgjöldin skipta tug-
um milljarða. Það mætti furðu
gegna, ef svo væri ekki.
1 framhaldi af þessu get
ég ekki stillt mig um að geta
leiðarinnar austur frá Akureyri.
Hvorki gengur né rekur um á-
kvörðun um nýjan veg austur
yfir Eyjafjörð og yfir i Fnjóska-
dal. Brýrnar yfir kvislar Eyja-
fjarðarár eru gálgatimbur og
slysagildrur, enda orðið fólki að
fjörtjóni, og vegurinn yfir Vaðla-
heiði var þannig siðsumars i
fyrra, að hann var tæpast nema
jeppafær. Steinar af hnefastærð
lágu berir og lausir i hverri
beygju austan i heiðinni, og
beygjurnar þar eru margar.
Útfrá Akureyri hafa ekki aðr-
ar vegabætur verið gerðar, svo
að tilframbúðarsé, nema stutt-
ur spölur út úr bænum að norð-
an, og svo Drottningarvegurinn
inn leirurnar að flugvellinum,
en honum var eins og nafnið
bendir til flýtt — ekki vegna
heimafólks og islenzkra vegfar-
enda, að manni skilst, heldur
heimsóknar blessaðrar drottn-
ingarinnar.
Hefði eitthvað viðlika af fé
verið veitf til vegagerðar austur
yfir Eyjafjörð og farið hefur i
gjána nafnkunnu i Kópavogi,
sæist þess verulegan stað.
Hvers eiga Norðlendingar að
gjalda, að þar skuli vera svo lit-
ið aðhafzt?
Póll Þorláksson:
Furðulegar athafnir ASÍ-
forystunnar í verðlagsmálum
Er fram liöa stundir mun lið-
ins vetrar veröa minnzt meö lit-
illi eftirsjá. Fádæma aflaleysi
við sjávarsiðuna og einmuna
ótið til sjávar og sveita valda
þvi.
Nokkuð hefur borið á hey-
skorti hjá bændum og fóður-
bætiskaup mikil og mun margur
bóndinn finna fyrir þvi nú, hver
tekjumissir þeirra var þegar
þeir þurftu að hella niður m jólk
i verkfallinu, en fyrir þá mjólk
er ekki keyptur fóðurbætir nú.
Ef vel vorar getur verið að
allt fari vel, en eitt er vist að
langt er siðan ástandið he/ur
verið jafn alvarlegt, þvi I fyrra
vor gáfust upp fyrningar hjá
bændum ogsiðan kom rosasum-
ar á eftir.
Eitt er eftirtektarvert I vor,
það er hve tún þau sem hey var
nytjað af til votheys eða hey-
kökugerðar, eru illa farin,
sundurskorin eftir umferð.
Þegar þessir erfiðleikar sem
islenzkur landbúnaður á við að
striða er hafður i huga, er furðu-
legt að ASl-forystan skyldi gefa
sjáltri sér þá afmælisgjöf á sex-
tugsafmælinu að kæra búvöru-
hækkun þá sem gerð var um
daginn. Strið millistétta og stétt
gegn stétt eru heillaóskir þess-
ara manna. En, þessir toppar
islenzkra launþega eru dýrir á
fóðrum, þvi nú krefjast þeir sér
til handa 100% hækkunar á
framlagi hvers félaga i laun-
þegasamböndunum, eða úr sjö
hundruð krónum i það minnsta
fjórtán til fimmtán hundruð fyr-
ir hvern félaga, en endanlega
verður þetta varla ákveðið að
sinni.
Ætli það verði nokkur rauð
strik i afmælisveizlu-kostnaðin-
um hjá ASÍ i haust? Var nokkur í
að ræða um óþarfar hækkanir?
Sko, maður roðnar að verai
verkamaður.
Páii Þorláksson.