Tíminn - 03.07.1976, Side 13
LaueardaCur 3. iúll 1A7B T’rlV/ITXTXT
Þessa skemmtilegu mynd tók Gunnar ljós-
myndari á nýja grasvellinum i Laugardal.
Hún sýnir bezt abstööuleysið þar, en þar er
ekkert sölutjald, þar sem menn geti fengiö
sér hressingu meöan á leik stendur. Þessir
feögar — Þorkell Þorkelsson, framkvæmda-
stjóri B-jarleiöa og sonur hans leystu vand-
ann. Þeir tóku meö sér nesti aö heiman og
hér sjást þeir vera aö fá sér hressingu I hálf-
leik.
teið
sitt...
Allir okkar beztu
með í Kalott
Aftur skellur
íMilwaukee...
Allir okkar beztu frjálsíþróttamenn verða meðal þátt-
takenda í Kalott-keppninni f frjálsum íþróttum, sem fer
fram á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn og miðviku-
daginn. Þetta er í fyrsta sinn, sem keppnin er haldin hér
á landi. Kalott-keppnin er áriega á milli Islands, N-
Noregs, N-Svíþjóðar og N-Finnlands. islendingar báru
sigur úr býtum í keppnini sl. sumar, og eru frjálsfþrótta-
menn okkar ákveðnir í að tryggja sér nú aftur sigur í
keppninni.
Margir af okkar bestu frjáls-
iþróttamönnum, sem hafa verið
erlendis aö undanförnu, mæta til
leiks, og keppa nú i fyrsta skiptiö
hér heima i sumar. Þar má nefna
hlauparana Agúst Asgeirsson,
Sigfús Jónsson, Vilmund Vil-
hjálmsson og Lilju Guömunds-
dóttur. Kastarana Erlend Valdi-
marsson og Oskar Jakobsson og
Stefán Hallgrimsson, sem er nú
að ná sér, eftir meiöslin,sem hann
hefur átt viö aö striöa.
Landslið íslands, sem tekur
þátt í Kalott-keppninni, veröur
þannig skipaö:
Konur
Ingunn Einarsdóttir (ÍR) —
100 m, 200 m, 400 m, 100 m grinda-
hl.og boðhl.
Erna Guömundsdóttir (KR) —
100 m, 200 m, 100 m grindahl. og
boðhlaup
Ingibjörg tvarsdóttir (HSK) —
400 m, 800 m og boðhlaup
Lilja Guömundsdóttir (1R) —
800 m, 1500 m og boöhl.
Anna Haraldsdóttir (FH) —
1500 m og 3000 m
Thelma Björnsdóttir (UBK) —
3000 m
Þórdis Gisladóttir (1R) —
Hástökk
Lára Sveinsdóttir (A) —
Hástökk og langstökk
María Guöjohnsen (ÍR) —
Langstökk og boðhlaup
Guðrún Ingólfsdóttir (ÚSO) —
Kúluvarp og kringlukast
Ingibjörg Guömundsdóttir (HSH)
Kringlukast
Sigurlina Hreiöarsdóttir (UMSE)
Kúluvarp
Arndis Björnsdóttir (UBK) —
Spjótkast
Sólrún Astvaldsdóttir (Á) —
Spjótkast.
Áslaug tvarsdóttir (HSK) —
400 m grindahlaup
Aöalbjörg Hafsteinsdóttir (HSK)
400 m grindahlaup
Sigriöur Kjartansdóttir (KA) —
Boðhlaup
Karlar
Hafsteinn Jóhannesson (UBK) —
Hástökk
Magnús Jónasson (A) —
Boðhlaup
(Björn Blöndal KR) —
Boðhlaup
Bjarni Stefánsson (KR) —
100 m, 200 m, 400 m og boðhlaup
Sigurður Sigurösson (A) —
100 m, 200 m og boðhlaup
Vilmundur Vilhjálmsson (KR) —
400 m og boðhlaupp
Agúst Ásgeirsson (1R) —
800 m og 3000 m hindrunarhlaup
Jón Diöriksson (UMSB) —
800 m og 1500 m
Gunnar P. Jóakimsson (1R) —
1500 m
Agúst Þorsteinsson (UMSB) —
5000 m
Gunnar Snorrason (UMK) —
10000 m
Sigfús Jónsson (1R) —
5000 m og 10000 m
Valbjörn Þorláksson (KR) — .
110 m grindahl. og stangarstökk
Stefán Hallgrlmsson (KR) —
110 m grindahl., 400 m grindahl.,
stangarstökk og boðhlaup
Jón S. Þóröarson (1R) —
400 m grindahl.
Siguröur P. Sigmundsson (FH) —
300 m hindrunarhlaup
Eiias Sveinsson (KR) —
Spjótkst og hástökk
Friörik Þór Óskarsson
(ÍR) -
Langstökk og þristökk
Pétur Pétursson (HSS) —
Þristökk
Hreinn Halldórsson (kr) —
Kúluvarp
Guöni Halldórsson (KR) —
Kúluvarp
Erlendur Valdimarsson (kKR) —
Kringlukast og sleggjukast
Óskar Jakobsson (IR) —
Kringlukast og spjótk.
Jóhann Pétursson (UMSS) —
Langstökk
LILJA GUÐMUNDSDÓTT-
IR...hlaupastúIkan snjalla,
sem hefur veriö viö æfingar og
keppni I Sviþjóö undanfarin
ár, keppir I (!! og 1500 m
hlaupi.
ÍSLENZKA landsliðið i
handknattleik mátti i
annað sinn á fáum dög-
um þola tap gegn banda-
riska handknattleiks-
landsliðinu i landsleik
þjóðanna i fyrrakvöld,
sem fram fór í
Milwaukee. Bandariska
landsliðið sigraði að
þessu sinni með tveggja
marka mun, skoraði 22
mörk gegn 20 mörkum
íslendinga. Markhæstur
islenzka landsliðsins var
Viðar Simonarson, sem
skoraði 6 mörk.
Bandaríska liðiö hafði yfir-
höndina I leiknum I fyrrakvöld
allt frá byrjun til enda, og var
staðan i hálfleik 12:9 þeim I vil.
Tvisvar sinnum I siðari hálfleik
tókst Islendingunum aö minnka
muninn niður i eitt. mark en þegar É
flautað var til leiksloka höfðu ”
Bandarikjamennirnir skoraö 22
mörk, Islendingar 20.
íslenzka liöið lék nú mun verr
en gegn Kanadamönnum kvöldið
áður, en þann leik unnu Islend-
ingarnir glæsilega, og var áber-
andi hversu úthaldsbetri Banda-
rlkjamennirnir voru, og virtust i
mun betri likamlegri þjálfun.
Mörk tslands ileiknum skoruöu
ViðarSImonarson6 (3 viti) Pálmi
Pálmason 6 (5 viti) Agúst
Svavarsson 4, Þórarinn Ragnars-
son2, GeirHallsteinssonog Stein-
dór Gunnarsson 1 hvor.
Enn er þó ekki útséð um það,
hvort islenzka liðinu tekst aö
sigra á þessu móti, en til þess að
svo geti orðið, verður liöið að
sigra Kanadamenn i leiknum á
laugardaginn.
VIÐAR SIMONARSON... skoraöi
6 mörk I leiknum.
Fjölmennasta frjdlsíþróttamót, sem hefur verið haldið d
Laugardalsvellinum. 170 keppendur frd Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi taka þdtt í keppninni
íslenzka landsliðið mdtti enn þola tap (20:22) gegn
bandaríska landsliðinu í handknattleik