Tíminn - 03.07.1976, Síða 15
Laugardagur 3. júli 1976
TÍMINN
15
£3* 2-21-40
Myndin sem beðið hef-
ur verið eftir.
Heimsfræg amerisk litmynd
tekin i Panavision.
Leikstjóri: Roman Polanski.
Aöalhlutverk: Jack Nichol-
son, Fay Dunaway.
ISLENZKUR TEXTI
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5 og 9.
Loðnuleitin:
Engin veiði ennþá
— en Guðmundur og Sigurður, ásamt
Bjarna Sæmundssyni leita ennþá
norðvestur af Gjögri
gébé Rvik — Viö erum um 45-55
sjómilur norövestur af Kögri og
Guömundur RE og Siguröur RE
eru hér líka báöir sagöi Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræöingur og
leiöangursstjóri á rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni i
gær þegar Timinn hafði samband
viö hann. Sem kunnugt er, þá eru
skipin aö leita aö loðnu á fyrr-
nefndum slóöum. — Okkur hefur
ekki gengiö of vel. Aö visu fund-
um viö töluvert af góöum loönu-
torfum i fyrrinótt, sem Guömund-
ur RE kastaði á meö nót, en hann
fékk ekkert, sagi Hjálmar, loönan
var svo smá aö hún smaug um
möskvana.
Hjálmar sagði, aö Guðmundur
hefði kastað litið eitt grynnra en
þar sem Bjarni Sæmundsson
hefði fundið loðnutorfurnar, og
gæti það verið ástæöan fyrir þvi
að hann fékk ekkert, og eins þaö
að Guðmundur hefði kastað niður
á 20-40 mtr, en loðnutorfurnar,
sem Bjarni Sæmundsson fann,
voru á nokkuð meira dýpi, eða 60-
80 mtr.
— Sú loðna, sem við fundum,
var fullvaxin og falleg, sagði
Hjálmar, en við höldum áfram að
leita og verðum hér eitthvað til aö
byrja með. Ég þori ekki að gera
neinar áætlanir fram i tlmann, en
þetta er greinilega álitlegasti
staðurinn af þeim, sem við höfum
enn leitað á.
Guðmundur RE og Sigurður
RE munu fylgjast með rann-
sóknaskipinu, en Sigurður kom á
miðin i gærdag og Guðmundur
aöeins sólarhring áður, svo eins
og Hjálmar sagði — þeir eru rétt
aö byrja að athuga sinn gang enn
sem komið er.
Fjórar nýjar bækur fró M&M— ouk hijómpiötu
ASK—Reykjavik. Mál og menn-
ing hefur nú sent á markaðinn
þrjár nýjar pappirskiljur, auk
nýs bindis i ritsafni bórbergs
Þörðarsonar. Það er önnur útgáfa
á Sálminum um blómið, sem var
fyrir löngu oröin ófáanleg i frum-
útgáfu. Með tilkomu pappirskilj-
anna þriggja eru þá komnar út
alls 17 bækur i þeim bókarflokki,
en hann hefúr einkum að geyma
bækur þjóðfélagslegs efnis, og
alþýðlegar fræðibækur.
Aö sögn Þrastar ólafssonar
framkvæmdastjóra Máls og
menningarer fyrirtækiðeinnig að
fara að gefa út sina fyrstu hljóm-
plötu og verður hún með hljóm-
sveitinni Þokkabót.
Pappi'rskiljurnar veröa án efa
til að vekja áhuga almennings, en
um er t.d. að ræða bók A.S. Neill
— Summerhill-skólinn. Sú bók
fjallar um skóla, er höfundurinn
stofnaði i Englandi árið 1921.
Skólinn er nokkuð sérstæður að
þvi leyti, að I honum er tímasókn
algjörlega frjáls, og vinnuskylda
og próf þekkjast ekki. Allar
ákvaröanir eru i höndum skóla-
funda.og þar hefurhver þegn yfir
einu atkvæði að ráöa, jafnt skóla-
stjóri sem yngstu nemendurnir,
sjö ára gamlir. Um skóla þennan
hafa verið m.a. fluttir þættir i út-
varpi hér á landi, og ætti bókin að
vera mikill fengur fyrir kennara
og aðra þá, sem láta sig uppeldis-
mál varöa.
Þættir úr sögu Rómönsku
Ameriku eftir Sigurð Hjartarson,
skólastjóra á Akranesi, eru að
stofni til fyrirlestrar, sem höf-
undurinn flutti i Rikisútvarpi i
ársbyrjun 1975 og vöktu þá mikla
og verðskuldaða athygli. Þar var
fjallað um stjórnmálasögu
einstakra rikja álfunnar. í tilefni
þessarar útgáfu hefur höfundur
samið inngangskafla um forsögu
hinnar indiánsku Ameriku. Bók-
inni fylgja mörg kort og
ljósmyndir, töflur og itarleg
bókaskrá.
Þáerloksaögetabókarinnar —
Jaröneskur sigur — saga auös og
stétta eftir Leo Huberman. Þessi
bók er eitt af grundvallarritum
marxiskrar hagfræði, en hún
hefúr það framyfir flestar þær
bækur, sem fjalla um svipuð efni,
að vera aðgengileg, og skemmti-
leg aflestrar. í henni er fjallað
um sögu eignarhalds og stéttar-
skiptingar frá lénsveldi til auð-
valdsskipulags. Óttar Proppé
þýddi bókina og ritaði eftirmála.
Meö útgáfu bókanna, sagði
Þröstur, væri verið að stefna að
þvi að dreifa bókaútgáfunni á
aöra árstima en um jólin. Þannig
stefnir forlagið að þvi að gefa út
15bækur i ár, en bróðurpartinn af
þeim fyrir jólaösina.
Velta Norræna samvinnu-
sambandsins var 935,2
milli. danskra króna
Nýútkomið fréttabréf Sam-
bands islenzkra samvinnufélaga
segir m.a. frá aðalfundum Nor-
ræna samvinnusambandsins
(NAF) og Norræna útflutnings-
sambandsins (NAE),sem haldnir
voru i Noregi dagana 13.-16. júni.
Aðildarsamböndin eru sex að
tölu, tvö frá Finnlandi og eitt frá
hverju hinna Norðurlandanna.
Heildarvelta NAF árið 1975
nam 935,2 millj. danskra króna,
sem er 7% minni velta I krónutölu
en 1974. Þrátt fyrir minni veltu
jókst keypt magn um 3% á árinu
og eru helztu orsakir þessa mis-
ræmis verölækkanir á ýmsum
vöruflokkum. Innkaup NAF, sem
rekur innkaupaskrifstofur I ýms-
um heimshlutum, ná til margra
vörutegunda, og eru stærstu liö-
irnir nýir ávextir og kaffi.
Tekjuafgangur af rekstri NAF
1975 nam 1,4 millj. danskra
króna.
Halli að upphæð 118 þús.
danskra króna varö á rekstri út-
flutningssam bandsins NAE.
Heildarsala þess var 59,8 millj.
danskra króna og haföi dregizt
saman um 6% miöað við 1974.
Helzta orsök samdráttarins er
kreppa, sem rikti á húsgagna-
mörkuöum Bandarikjanna,
Kanada og Japans, en NAE fæst
einkum við útflutning á húsgögn-
um frá verksmiðjum samvinnu-
félaganna á Norðurlöndum.
Umsjónarmaður Sambands-
frétta er Eysteinn Sigurðsson.
Kaupið bílmerki
Landverndar
;/ÖEUMl
IEKKI1
[UTANVEGAj
litiiMiwa
6
Til sölu hjá ESSO og SHELL
berisinafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustig 25
Góður humarafli
Djúpavogsbóta
—hs-Rvik. óhætt er að segja að
humarveiðin hafi verið mjög góð
Op/ð til
kl. 2
Hljómsveit
Gissurar Geirssonar
Lena
KLÚBBURINN
framan af, en heldur hefur hún
dregizt saman undanfarið, sagði
Hjörtur Guðmundsson, kaupfé-
lagsstjóri á Djúpavogi, I samtali
viö Timann. Humarveiðarnar eru
stundaöar af þrem bátum frá
Djúpavogi og er aflinn orðinn
19-20 tonn af slitnum humri, og
þar af er 60-70% fyrsta flokks
humar.
Hjörtur sagöi, að sumaraflinn i
fyrra heföi verið 16 tonn, svo
menn væru ánægðir meö útkom-
una þaösem af er þessari vertfö.
Hann sagðist álita, aö rúmlega 20
bátar stunduðu þessar veiðar frá
Austf jörðum þegar allt væri taliö,
flestir frá Höfn i Hornafiröi.
Humarinn er unninn I frystihúsi
kaupfélagsins á staðnum og verö-
ur megninu af honum skipaö út
um helgina, en hann fer á Banda-
rikjamarkað.
Sumarferð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
sunnudaginn 4. júlí
Vestfjarða-
kjördæmi
Lagt verður af staðkl. 8 sunnudagsmorguninn 4. júli frá Rauðar-
árstig 18.
Farið verður um Mosfellsheiði, Kjósarskarö og Kjós og komiö i
Hvalfjarðarbotn ca. kl. 10.15 og áö þar stutta stund. Ekið veröur
um Geidingadraga, Hvitárbrú, upp Stafholtstungur að Þverár-
rétt, en þar veröur snæddur hádegisverður. Þá verður farið um
Kleifaveg, Hvitársiðu og áð i stutta stund viö Hraunfossa. Um
það bil kl. 14.30 verður fariö að þjóðgarðinum við Húsafell og
dvalið þar klukkustund áður en haldið er að Reykholti og staður-
inn skoðaður. Frá Reykholti er áætluð brottför kl. 17.00. Þaðan
er ekið um Bæjarsveit, Lundarreykjadal (vestri leið) um Uxa-
hryggi til Þingvalla. Þar verður áð eina klukkustund og komið
heim til Reykjavikur aftur kl. 21.00 ef allt gengur eftir áætlun.
Allir velkomnir. Mætið stundvislega takið með kunningja og
vini.
Ferðafólkið þarf að hafa með sér nesti.
Farmiðar eru seldir á skrifstofu
Framsóknarflokksins Rauðarárstig 18,
simi 24480 og þarf að sækja þá sem allra
fyrst, vegna þess að semja þarf um bilana
með nokkrum fyrirvara.
mm
Jón Helgason Geir Guðmunds Jón Gislason frá
rithöfundur son frá Lundum Stóru-Reykjum
^Skrifstofan er opin til kl. þrjú
Framhald þingmálafunda i Vestfjarðakjördæmi verður sem hér
segir:
Steingrimur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson mæta:
Patreksfiröi, félagsheimilinu: laugardaginn 3. júli kl. 16.
Steingrimur Hermannsson mætir:
Birkimel: laugardaginn 3. júli kl. 21.
Bjarkarlundi: sunnudaginn 4. júli kl. 21.
Sævangi: mánudaginn 5. júli kl. 21.
Drangsnesi: þriðjudaginn 6. júli kl. 21.
Arnesi: miðvikudaginn 7. júli kl. 21.
Gunnlaugur Finnsson mætir:
örlygshöfn: laugardaginn 3. júli kl. 21.
Tálknafirði: sunnudaginn 4. júli kl. 14.
Allir velkomnir.
v_____________________________________________________________y
Húsavík — Breiðamýri
Alþingismennirnir Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson og Ingi
Tryggvason halda fundi sem hér segir:
^ Breiðamýri: Laugardaginn 3. júli kl. 21,