Tíminn - 03.07.1976, Side 16
Byltingar-
tilraun
í Súdan
Reuter, Baghdad. Hersveit-
ir, sem tryggar eru Nimeiry,
forseta Súdan, virðast hafa
barið niður tilraun til
byltingar gegn honum, sem
gerö var i Súdan i gær, eftir
þvi sem sagði i skeyti frá
fréttastofunni I lrak i gær.
Uppreisnarmenn munu
hafa náð herstöð nálægt
Khartoum á sitt vald, en her-
sveitir forsetansnáöu þeim á
ný i gær og voru, síðast þeg-
ar fregnir bárust, önnum
kafnar við að smala saman
þeim, sem aö byltingar-
tilrauninni stóðu.
Þjóðarleiðtogar Afriku-
rikja áttu i deilum i gær á
fundi Einingasamtaka
Afrikurikja (OAU) og olli
byltingartilraunin i Súdan
nokkrum ruglingi á fundin-
um.
Jaafar Nimeiry, forseti
Súdan, var fjarverandi af
fundinum i gær, vegna
byltingartilraunarinnar og
sögðu embættismenn, aö
þeirheföu engahugmynd um
þaö hvar forsetinn væri niður
kominn.
Þetta er i annaö sinn sem
þjóöarleiðtogi Afrlkurikis
fær fregnir af þvi á fundi
Einingarsamtakanna að
byltingartilraun hafi verið
gerð heima fyrir. A siöasta
ári var það Yakubu Gowon,
þáverandi þjóðarleiðtogi
Nlgeriu, sem var settur af
meöan hann sótti fund sam-
takanna i Kampala.
Fréttastofan i írak skýrði
frá þvl i gær að byltingar-
tilraunin I Súdan hefði hafizt
með þvi að hersveitir upp-
reisnarmanna hefðu fariö til
flugvallarins i Khartoum.
Bardagar hefðu siöan breiözt
út til hinna ýmsu búða hers-
ins i Súdan, svo og til lykil-
staða I Khartoum og Omdur-
man.
Nýjar
bftþéttar umbúðir
KAFFIÐ
frá Brasilíu
FÓÐURVÖRUR
þekktar
U/W LAND ALLT
fyrir gæði
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Síöumúla 22
Simar 85694 & 85295
Annlxýc
Auglýsingadeild
Tímans.
Flugræningjarnir í Entebbe halda fast við sitt:
PLAST
ÞAKRENNUR ^
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
#Nýborg
Ármúla 23 — Sím
Sími86755
Aðbúnaður gíslanna góður
en umkringdir sprengjum
Reuter, Port Louis. —Idi Amin,
forseti Uganda, sagði i gær, að
gislar flugræningjanna á Ent-
ebbe-flugvelli hefðu góðan aðbún-
að I flugstöðvarbyggingunni, en
umhverfis þá hefði verið komið
fyrir sprengiefni á alla vegu.
Hann hvatti enn til þess, að
föngum þeim i ísrael og öörum
löndum, sem ræningjarnir krefj-
ast i skiptum fyrir gislana, verði
sleppt.
Amin gaf yfirlýsingu þessa um
aðbúnað gislanna I ræðu, sem
hann hélt sem fyrrverandi for-
maður Einingarsamtaka Afriku-
rikja, á fundi samtakanna I Port
Louis.
Amin forseti, sem hefur staðið i
persónulegu sambandi við ræn-
ingjana og borið hitann og þung-
ann af samningaviðræðum við þá,
sagöi i gær, að þegar hann fór frá
flugvellinum til þess að taka þátt I
fundinum I Port Louis, hefðu glsl-
arnir beðið hann að vera kyrran.
— Gislarnir grétu og báðu mig
um að fara ekki, sagði forsetinn.
Hann sagðist hafa heimilað
flugvél ræningjanna að lenda i
Uganda af mannúðarástæöum.
Ef hann hefði neitað að gegna
hlutverki milligöngumanns I máli
þessu, heföu ræningjarnir verið
reiðubúnir til að drepa alla þá tvö
hundruð sjötiu og fimm gísla,
sem þá voru um borð I flugvél-
inni.
Ræningjarnir, sem sagðir eru
félagar I Alþýðuhreyfingunni til
frelsunar Palestínu, hafa enn um
eitt hundrað manns i haldi á Ent-
ebbe flugvelli. Þeir hafa sleppt
um eitt hundrað og sjötiu manns
siðan á mánudag, þegar flugvél
þeirra kom til Uganda.
Gislarnir, sem I haldi eru enn,
munu flestir vera Gyðingar, en á-
höfn flugvélarinnar frá Air
France, sem ræningjarnir tóku
yfir Grikklandi á sunnudag, er
einnig enn á valdi þeirra.
Rúmlega sextug kona frá Astra-
liu, sem er meöal gislanna hundr-
að sem sleppt var i Uganda, stað-
festi I gær, að ræningjarnir gerðu
allt, sem I þeirra valdi stæði fyrir
gisla sina.
Sagði hún að gislarnir hefðu
fengið nógan mat, lyf og aðrar
nauðsynjar. Hefðu þeir fengið
dýnur til að sofa á, og allir gislar
heföu fengið að fara I steypibað.
Sagði konan, að arabiskur
læknir — Egypö — sem vinnur
fyrir rikisstjórnna i Uganda hefði
komið reglulega og meðal annars
gefið gislunum meðöl gegn
malariu.
Amin forseti skýrði einnig frá
þvi, að hann hefði verið i sima-
sambandi við yfirvöld i Tel Aviv,
sem hringt heföu til sin nokkrum
sinnum I vikunni.
Sagði Amin ennfremur, aðflug-
ræningjarnir hefðu beðiö hann að
skila þvi til Einingarsamtakanna,
að þeir styddu málstað Afriku-
manna i Rhódesiu og Suð-
ur-Afriku — gegn stjórn hvitra.
Hæstiréttur USA stað-
festir dauðarefsingu
Reuter, Washington. — Hæsti-
réttur Bandarikjanna úrskurð-
aði i gær, að dauöarefsing væri i
samræmi við stjórnarskrá rikj-
anna og væri við hæfi sem refs-
ing fyrir alvarlegustu glæpi.
Rétturinn kvað upp úrskurð
þennan eftir að hafa fjallað um
áfrýjanir sex dæmdra morð-
ingja, sem töldu að dauðarefe-
ing væri i andstöðu við áttundu
viðbót Bandarísku stjórnar-
skrárinnar, þar sem bannað er
að beita „harðneskjulegum og
óvenjulegum refsingum”.
1 úrskurði sinum, sem verður
afgerandi fyrir um sex hundruö
manns, sem nú biða þess að
dauöadómum yfir þeim verði
fullnægt, segir rétturinn að
„beiting dauðadóms sem refs-
ingu fyrir morð sé ekki óréttlæt-
anleg og þvi ekki svo hörð, að
hún teljist brjóta i bága viö
stjórnarskrána”.
Ariö 1972 hélt hæstiréttur þvi
fram, að þágildandi reglug. um
dauðarefsingu ætti að afnema
þar sem þær gæfu dómurum og
kviðdómendum of mikið úr-
skurðarvald. Siðaú þá hafa ein
þrjátiu og fimm fylki sett ný
lög um dauðarefsingu, en I
gær lá ekki aö fullu ljóst fyrir,
hve margar af þeim þessi úr-
skurður hæstaréttar staðfestir,
eða, með öðrum orðum, hve
margir dauðadómar, sem ekki
hefur verið framfylgt enn, stað-
festast með úrskurði þessum.
1 ttllÍLSHORNA
| %'ÁIVIILLI
[ v- ■ '
Hvetja Afríku-
ríki til að senda
ekki lið á
Olympíuleikana
Reuter, Port Louis. — Utan-
rikisráðherrar Afrikurikja
samþykktu i gær ályktun, þar
sem hvatt er til þess að
Afrfkuriki taki ekki þátt I
Ólympiuleikunum i Montreal,
ef Nýja Sjálandi verður
heimiluð þátttaka I þeim.
Utanrikisráðherrar aðildar-
rikja að Einingarsamtökum
Afrikurikja, sem saman eru
komnir i Port Louis,
fordæmdu í gær Nýja Sjáland
fyrir að heimila
Rugby-keppnisliði sfriu, sem
einvörðungu er skipaö þel-
dökkum mönnum, að
heimsækja Suður-Afriku.’l’eir
sögðu að þar sem heimsóknin
heföi átt sér staö meðan á
kynþáttaóeirðunum stóð I
Suður Afriku I siðasta mánuði,
hefði Nýja Sjáland þar meö
sýnt drápum Afrikumanna
stuðning.
Fóru Einingarsamtökin
þess á leit við alþjóölegu
ólympíunefadina, að hún úti-
lokaði Nýja Sjáland frá leik-
unum.
Yfirlýsing þessi var mun
veikar orðuð, en búizt hafði
verið við af hálfu Einingar-
samtakanna.
Sautján skæru-
liðar drepnir
Reuter, Buenos Aires. —
Seytján vinstri-sinnaðir
skæruliðar létu llfið I bardaga
við argentinska hermenn I
vesturhluta Buenos Aires,
höfuðborg Argentinu,
snemma i gærdag.
Þrir hermenn særðust i
átökunum, sem talin eru hin
alvarlegustu milli skæruliða
og hermanna siðan herinn tók
völdin i Argentinu i sinar
hendur þann 24. marz siðast-
liðinn.
Að minnsta kosti fjörutiu og
þrir skæruliðar hafa misst lif-
ið á siöustu þrem dögum, og
um f jögur hundruð og tuttugu
manns hafa látizt vegna
stjórnmálalegra ofbeldis-
verka siðan herinn tók við
völdum.
Enn eitt vopna-
hléð í Líbanon
Reuter, Cairó. — Allir aðilar
að átökunum I Libanon hafa
samþykkt vopnahlé, sem
ganga átti i gildi á miðnætti
siðastliðna nótt, eftir þvi sem
fréttastofan Mena i Egypta-
landi skýrði frá i gær.
1 frétt frá Damaskus hafði
fréttastofan eftir Mahmoud
Riad, aðalritara Arababanda-
lagsins, að vopnahlé þetta
væri viðbrögð deiluaðila við
beiöni frá bandalaginu.
Riad tilkynnti um vopna-
hléiðþegar hann sneri aftur til
Sýrlands frá Libanon I gær.
Aður hefur verið boðað
vopnahlé.
AAuhammad
Ali með
blóðtappa?
Reuter, Los Angeles. —
Muhammad Ali, heimsmeist-
ari ihnefaleikum i þungavigt,
þjáist nú af vöövaskemmdum
á vinstra fæti og er taliö
hugsanlegt að blóðtappi sé
einnig i fætinum. Það var dr.
Robert Kositchek, læknir Alis,
sem skýrði frá þessu i gær.
Heimsmeistarinn var lagð-
ur á sjúkrahús i gær, vegna
mikils sársauka i fæti, eftir
keppni hans við fjölbragða-
glfrnumanninn Antonio Inoki I
Tókió I siðustu viku.
Arias undrandi þegar kon-
ungur samþykkti afsögn
Reuter, Madrid. —Afsögn Carlos
Arias Navarro, forsætisráðherra
Spánar, tafði i gær fyrir af-
greiðslu umbótaáætlunar rikis-
stjórnar Juan Carlos, konungs,
um leið og efnahagsleg og stjórn-
málaleg vandamál hlóðust að hjá
stjórninni.
Leiötogar stjórnarandstöðunn-
ar voru þó vongóöir um það I gær,
að Juan Carlos myndi skipa at-
kvæðameiri mann i embætti for-
sætisráðherra — mann sem yrði
virkari við umbætur á þvi stjórn-
arfari, sem Franco hershöfðingi
kom á i landinu.
Rikisstjórn Spánar koni saman
til umræöna um vandamál þau
sem afsögn ráðherrans hefur I för
með sér, stuttu áður en seytján
manna ráðgjafanefnd rikisins átti
að koma saman til að aðstoða
konung við val á nýjum forsætis-
ráðherra.
Konungurinn verður að velja
milli þriggja manna, sem ráð-
gjafanefndin tilnefnir, og var tal-
ið liklegt, aö meðal þeirra yröu
þeir Jose Maria de Areilza, utan-
rflrisráðherra, og Manuel Fraga,
innanrikisráðherra.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum i Madrid i gær, að
Arias forsætisráðherra, sem
skipaður var af Franco hershöfð-
ingja árið 1973, hefði oft boðizt til
að segja af sér embætti, og hefði
það komið honum á óvart á
fimmtudag þegar konungur sam-
þykkti afsögn hans.
Sögðu heimildarmennirnir, að
konungur hefði samþykkt afsögn
ráðherrans nú, vegna deilna inn-
an rikisstjórnarinnarog klofnings
milli ráðherra.
Airas hefur vakið reiði bæði
hægri manna og vinstri manna
með tilraunum sinum til þess að
blanda saman rikjandi stjórnar-
fari á Spáni og þvi umbótasinn-
aða stjórnarfari sem konungur
vill koma á.
I
BARUM
BREGST EKK/
I ~ Jeppal
I hjólbaröar I
IKynnið ykkur hin hagstæðu verð.
TÉKKNESKA B/FRE/ÐA UMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGl SÍMI 42606