Tíminn - 22.07.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 22.07.1976, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. júli 1976. TÍMINN 13 Umsjón: Sigmundur ó. Steinarssonl Nýtt met Þórunnar — í 100 m flugsundi í gær ÞÓRUNN Alfreðsdóttir setti nýtt Islandsmet I 100 m flug- sundi á Olympiuleikunum i gær. Þórunn synti vegalengd- ina á 1:09.63 mfn. íslenzka sundfólkið hefur nú keppt i sex greinum i Montreai og sett met i fimm þeirra, sem er góöur árangur. Vilborg Sverrisdóttir og Sigurður ólafsson veröa i sviðs- ljósinu i dag, en þá keppir Vilborg i 200 m skriðsundi, sem er bezta grein hennar — og má búast viö nýju tslandsmeti. Sigurður keppir i 400 m skriðsundi og siðan i 100 m skriðsundi á laugardaginn — þaö má búast við metum hjá Sigurði i báðum greinunum. JOHN HENCKEN... tryggði sér gullið i 100 m bringusundi og setti nýtt heimsmet. Hér sézt hann á fullri ferð i átt að marki. Heimsmetaregn í Montreal... Sundfólk fró Bandaríkjunum og A-Þýzkalandi hefur sett 8 heimsmet í þeim 9 greinum, sem búið er að keppa í Bandaríkjamaðurinn JOHN HENCKEN og Skotinn David Wilkie háðu geysilegt einvígi í 100 m bringusundi á Olympíuleikunum, sem lauk með sigri Hencken, en hann tryggði sér gullverðlaunin á nýju heimsmeti — 1:03.11 mínútum. Hinn 22 ára gamli Kaliforníu-búi hóf sundið af miklum krafti og náði góðu forskoti á Wilkins á fyrri hluta vegalengdarinnar. — Ég hefði náð að sigra, ef ég hefði náð góðri ferð í byrjun, sagði Wilkie, sem sýndi frábæran endasprettog var ekki langt frá því að vinna upp forskot Hencken. Þeir Hencken og Wilkies voru í sérf lokki í sundinu, og syntu undir gamla heimsmetinu. Blikarnir skelltu Víkingum * Draumur Víkinga um Islandsmeistaratitil- inn varð að engu í gærkvöldi í Kópavogi BRIAN GOODELL, hinn 17 ára gamli Bandarikjamaður frá Kali- forniu, tryggði sér gullið i 1500 m skriðsundi, þegar hann náði að sýna stórglæsilegan lokasprett og setja nýtt heimsmet — 15:02.40 minútur á vegalengdinni. Keppn- in var æsispennandi i 1500 m skriðsundinu og náði hinn ungi Bandarikjamaður, Bobby Wilkins til Liver- pool... Ensku sunnudagsblöðin voru sammála um það að ekki liði á löngu unz Liverpool keypti „Butch” Wilkins frá Chelqsea fyrir 300.000 til 350.000 pund. Wilkins er að- eins 19 ára gamall, en hefur samt f rúmt ár verið fyrirliði Chelsea liðsins. Hefur hann verið langbezti maður Chels- ea að undanförnu, og er ekki gott að segja hvar lið Chelsea lendir, ef þeir selja hann. En þeir eru komnir I mjög mikla fjárhagsörðug- leika, skulda hátt I þrjár milljónir punda, þyngst á metunum vegur þar nýja stúkan, og er líklegt að þeir neyðist til að taka hinu freistandi tilboði Liverpool. Þá er einnig talið mjög lik- legt, að David Hay veröi seldur til baka til Celtic, fyr- ir rúmlega 100.000 pund. Hackett góðri forystu — htein synti mjög vel og skemmtilega. Goodell og Ástraliumaðurinn Steve Holland fóru hins vegar rólega af stað, en juku ferðina jafnt og þétt og náðu Hackett. Þegar 500 m voru eftir skauzt Holand fram úr Bandarikja- mönnunum og allt benti til að sigurinn yrði hans. En Kaliforniu- piltarnir voru ekki á sama máli — Goodell náði frábærum enda- spretti og skauzt fram úr Holland, og náði frábærum endaspretti og skauzt fram úr Holland, og siðan Hakcett á eftir — tvöfaldur sigur Bandarikjamanna var staðreynd. Allir þrir kapparnir syntu undir gamla heimsmetinu. Hin kornunga sundkona frá Karl-Marx Stad i A-Þýzkalandi, Petra Thuemer, sem er aöeins 15 ára tryggði A-Þjóðverjum enn Gull, silfur og brons 100 m bringusund karla: Hencken,Bandar......... 1:03.11 Wilkie.Bretland........ 1:03.43 Iuozaytis, Sovétr ...... 1:04.23 1500 m skriðsund karla: Goodell, Bandar....... 15:02.40 Hackett, Bandar....... 15:03.91 Holland, Ástral....... 15:04.66 400 m skriðsund kvenna: Thuemer, A-Þýskal...... 4:09.89 Babashoff, Bandar ...... 4:10.46 Smith, Kanada .......... 4:14.60 einn sigurinn i sundkeppninni, þegar hún vann gullverðlaun I 400 m skriðsundi. Þessi unga stúlka skaut bandarisku sunddrott- ningunni Shirley Babastoff ref fyrir rass, og sigraði á nýju heimsmeti — 4:09.89 mfnútum. Babastoff synti einnig undir gamla metinu. Þegar er lokið keppni ! 9 sund- greinum i Montreal, hafa verið sett alls 8 heimsmet, eða I öllum greinum nema einni. BREIÐABLIK vann góðan sigur (3:1) yfir Vikingi f gærkvöldi, þegar liðin leiddu saman hesta sina I 1. deildarkeppninni i knatt- spyrnu i Kópavogi. Þar með er búinn draumur Vikinga um að blanda sér i baráttuna um ts- landsmeistaratitilinn. — Þeir lékusinn lélegasta leik á keppnis- timabilinu. Það var ekki rishá knattspyrna, sem liðin sýndu, enda var grenjandi rigning þegar leikurinn fór fram og áttu leik- menn erfitt með að fóta sig á blautum vellinum. Gfsli Sigurðsson opnaði leikinn á 20.minútu, þegarhann sundraði varnarvegg Vikings, meö þvi að leika á 2-3 Víkinga — hann skaut siðan þrumuskoti efst upp i hornið á Vikingsmarkinu. Diðrik Ólafs- son, markvörður Vikings, haföi hendurá knettinum. en skotGisla var þaö fast, að Diðrik missti blautan knöttinn I netið. Blikarnir bættu siðan við öðru marki (2:0) á 32. mtnútu og má skrifa það á reikning Diðriks, markvaröar. Vignir Baldursson átti skot að marki Vikings af 23 m færi — engin hætta virtist vera, þvi að Diðrik handsamaði knött- inn, en siöan missti hann knöttinn fráséroghann skoppaði inn fyrir marklinu Vikingsmarksins. Blikarnir voru betri aðilinn i fyrri hálfleiknum —þeir gáfu ekkert eftir, voru fljótir á knött- inn og uppskáru eftir þvi. Viking- ar snéru dæminu viö i siðari hálf- Völsungar komnir á skrið.... VÖLSUNGAR eru heldur betur komnir á skrið i 2. deildarkeppn- inni I knattspyrnu. Þeir skutu KA- liðið á bólakaf á Akureyri I gær- kvöldi — sendu knöttinn fjórum sinnum i netiö hjá KA-liðinu, sem tókst aðeins einu sinni að svara fyrir sig, þannig að leiknum lauk með stórsigri Völsunga — 4:1. Þór vann sigur (2:1) yfir Hauk- um, þegar liðin mættust i gær- kvöldi I Hafnarfirði. Glæsilegt met — í 4x200 m boðsundi karla Bandar.menn settu glæsilegt heimsmet i 4x200m skriðsundi karla i gær, þegar bandariska sveitin synti vegalengdina i undanúrslitum á 7:30.33 mfnútum. Sveitina skipuðu Mike Bruner, Bruce Furniss, Doug Northway og Tim Shaw. Þessir kappar voru svo aftur f sviðs- Ijósinu I nótt, þegar úrslitasundið fór fram — en fréttir höfðu ekki borizt frá sundinu, þegar blaðið fór i prentun. HESTAMENN Mikið úrval af reiðtygjum t.d.: Höfuðleður, taumar, istaðsólar, nasa- múlar, stallmúlar, piskar, hringamél, istöð og fleira og fleira. Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Hólagarði í Breiðholti * Sími 7-50-20

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.