Tíminn - 22.07.1976, Qupperneq 16
Fimmtudagur 22. júlí 1976.
kFk
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT'
fyrir gæði
Guðbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
RAFDRIFIN
BRÝNI
Brýning tekur aðeins
1—2 minútur.
Stærö aöeins
25x20x15 sm.
EINNIG: 30 tegundir Victorinox
hnlla — ryöfritt stál með
Nylon sköftum.
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
.. 40088 ZS* 40098—^
^ALLAR TEGUNDIR
FÆRIBANDAREIAAA
FYRIR
Einnig: Færibandareimar úr
ryöfríu og galvaniseruöu stáli
Æðið er
runnið
af Amin
Reuter, Nairobi. — Idi Amin,
forseti Uganda, var i gær, i
því friðsamlegasta sálar-
ástandi sem komið hefur yfir
hann siðan Israelar fram-
kvæmdu björgunarleiöangur
sinná Entebbeflugvelli fyrr i
þessum mánuði, og tilkynnti
hann þá aö hann ætlaði að
skila flugvélinni sem rænt
var yfir Grikklandi aftur til
Frakka.
Hann fór þess einnig á leit
við nágrannarfki Uganda,
Kenya, sem hann raunar
hefur hótað undanfarið að
gera sprengjuárásir á,
vegna ætlaðrar þátttöku
þeirra i björgun gislanna
hundrað af Entebbe-flug-
velli, að það sem liðið er i
samskiptum landanna verði
látið falla i gleymsku.
Fór Amin þess á leit i sim-
skeyti sem b-unn sendi Jomo
Kenyatta, forseta Kenya, en
i skeytinu lofaði hann
ennfremur hátiðlega að
áróöur gegn Kenya myndi
ekki framar koma frá
Uganda.
Um siöustu helgi hótaði
Amin að sprengja heimili
Kenyatta forseta i Nakuru i
loft upp.
Nýjar
loftþéttar umbúðir
Reuter, Salisbury,— Kinverskar
handsprengjur voru notaöar á
þriðjudagskvöld i sprengjuárás-
um skæruliöa á næturklúbba
og veitingastaði i Salisbury I
Ródesiu, að þvi er lögreglan þar
skýrði frá i gær.
Arásir þessar voru upphaf nýs
þáttar i skæruhernaði þeldökkra i
landinu.
Þeldökkir þjóðernissinnar, sem
reyna að koma frá völdum rikis-
stjórn hvita minnihlutans i
Ródesiu, hafa til þessa rekið
skæruhernað sinn i dreifbýli, að
mestu i héruöunum nálægt
austur- og norö-austur landa-
mærum landsins, það er landa-
mærum þess við Mosambik.
Ef til áframhaldandi skæru-
hernaöar i þéttbýli kemur, gæti
það orðiö til þess að setja alger-
lega nýjan svp á átökin milli pel-
dökkra og hvitra i landinu.
Lögreglan i Ródesiu vildi ekki i
gær fullyrða að sprengingarnar
væru verk þeldökkra skæruliða,
en haft var eftir háttsettum
embættismanni aö vissulega
væru þær skæruhernaður.
I veitingahúsinu Pink Panther
voru verkamenn i gær aö hreinsa
burt brak og gera við gat á vegg
eftir handsprengju sem varpað
var inn um glugga á veitingahús-
inu.
Þrjátiu manns sátu að máls-
veröi i veitingahúsinu þegar
sprengingin varð, en aðeins einn,
Andrew Craign, nitján ára,
meiddist alvarlega.
Hann liggur á sjúkrahúsi með
alvarleg meiðsl á hálsi og höfði.
Eigandi Pink Panther veitinga-
hússins, Ola Bordulak, sem varð
fyrir smávægilegum meiðslum á
fótleggjum sagði að i dag myndi
starfræksla veitingahússins fara
fram með eðlilegum hætti og aö
lögreglan heföilofað hennivernd.
Um það bil tvo kilómetra frá
veitingahúsinu sprakk hand-
sprengja undir bifreið sem stóð
fyrir utan næturklúbbinn La
Boheme, en þar urðu litlar sem
engar skemmdir og enginn
meiddist.
Yfirvöld i Ródesiu höfðu áöur
varað við þeim möguleika að til
aðgerða skæruliöa gæti komiö i
þéttbýli i landinu og höfðu þau
myndaö sérstakar sveitir þjóð-
varðliðs til þess aö mæta slikum
aðgerðum, ef til þeirra kæmi.
Hópar sérstakra varðmanna
hafa gengiö eftirlitsferðir um
Salisbury, einkum úthverfi henn-
ar, en flestir þeirra hafa til þessa
aöeins veriö vopnaðir kylfum.
I
Callaghan um morðingja brezka sendiherrans í Dublin:
Við verðum að uppræta þá,
eða þeir uppræta okkur
Reuter, London. —■ James
Callaghan, forsætisráðherra
Bretlands, sagði i gær að menn
þeir sem réðu af dögum sendi-
herra Bretlands i Dublin, væru
sameiginlegir óvinir Bretlands
og Irska lýðveldisins og rikis-
stjórna þeirra og þá þyrfti að
uppræta.
I yfirlýsingu sem hann gaf
felmtri slegnum þingmönnum
neðri deildar brezka þingsins i
gær sagöi forsætisráðherrann,
að hann hefði sjálfur valið
Christopher Ewart-Biggs sendi-
herra, til þess aö gegna stöðunni
á Irlandi, sem hefði verið ákaf-
lega viðkvæm, en utanrikis-
ráðuneytið hefði viljað senda
hann annað.
Sagði Callaghan að Elizabeth
drottning, sem er I Montreal,
viðstödd Olympiuleikana þar,
hefði lýst hryllingi sinum vegna
'morðsins á sendiherranum.
Sendiherrann, sem þar til ný-
lega var við sendiráð Bretlands
i Paris, tók viö stöðu sendiherra
i Dublin fyrir tveim vikum
siðan. Hann lét lifiö I gær-
morgun, þegar jarösprengja,
sem skæruliðar höfðu komið
fyrir, sprakk undir biíreiðhans I
útjaðri Dublin.
Kona úr utanrikisþjónustunni
lét einnig lifið i sprengingunni.
An þess að tilnefna skæruliða-
samtök þau sem ábyrg eru sagð-
ir Callaghan i gær: — Þessir
vesælu menn eru sameiginlegir
óvinir rikisstjórna beggja land-
anna, og raunar alls þess
siðmenntaöa fólks sem óskar
eftir að fá að lifa i sátt og sam-
lyndi á Bretlandseyjum.
Og Callaghan bætti við: —
Þessir menn eru einskis vinir —
þeir eru sameiginlegir óvinir
okkar, og við veröum annað
hvort að uppræta þá eða þeir
uppræta okkur. Ég öfunda menn
þessa ekki, þvi þeir þurfa að
burðast meö samvizku sina og
hatur. —
Callaghan skýrði frá þvi I gær
að irski forsætisráðherrann,
Liam Cosgrave, heföi lofað þvi
að allt yrði gert til þess að koma
lögum yfir morðingjana.
Irski leiðtoginn hringdi til
brezka forsætisráðherrans i
gær, og vottaði honum samúð
sina. Hann lagði við það tæki-
færi áherzlu á þá ætlun Ira að
vernda lif brezkra borgara sem
staddir eru innan landamæra
írska lýðveldisins.
Leiðtogi stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins á brezka þinginu,
íhaldsmannaleiðtoginn
Margaret Thatcher, sagði I
gær: — Við. vitum ekki hverju
skæruliðarnir ætluðu að ná fram
með verknaði þessum, en þetta
mun ekki veikja þá afstöðu okk-
ar að uppræta hermdarverka-
starfsemi með hverjum þeim
ráðum sem tiltæk eru. —
Sagði hún flokk sinn hrylla við
atburðum þessum.
Friðargæzluherinn í Líb-
anon virkurá ný - Palest-
ínar senda til Damsakus
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
. 40088 s 40098——
Skæruliðar í Ródesíu dreifa aðgerðum sínum:
Færist nú barátta þeldökkra
frá landamærum til borga?
Rauða
stjarnan er
í raun rauð
Reuter,Pasadena. — —
„Rauða Plánetan”, eins og
Mars hefur verið nefnd, er i
raun og veru rauð. Það kom i
ljós þegar bandariska Mars-
ferjan Viking sendi sinar
fyrstu litmyndir til jarðar i
gærdag, en þær sýndu að
grýtt landslagið á lendingar-
stað hennar er fallega brún-
rautt, likt og margar eyði-
merkur i Bandarlkjunum og
Astraliu.
Dr. Thomas Mutch, yfir-
maður yfirborðs-ljósmynd-
unardeildar Viking-áætlun-
arinnar, sagði að myndirnar
hefðu borizt klukkan um þrjú
i gærdag.
— Það er ákaflega spenn-
andi að sjá þennan ákveðna
rauða lit á yfirborði plánet-
unnar, sagði hann.
— Þetta er svo undarlega
likt jörðinni sjálfri, en engan
veginn svipað tunglinu, bætti
hann við.
. Staðfesting tækjg Viking-
ferjunnar á þvi að köfnunar-
efni fyrirfinnst á Mars, þýðir
i raun að þar eru til staöar
þau fjögur efni sem I sam-
einingu mynda lifandi efni,
eins og við þekkjum það úr
dýra- og plönturiki jarðar-
innar.
Þetta þarf þó ekki að þýða
að lif fyrirfinnist á Mars, en
eykur engu að siður nokkuð á
möguleikana á þvi.
Mars er sú pláneta i sól-
kerfi okkar sem er likust
jörðu, og visindamenn álita
að ef lif i einhverri mynd fyr-
irfinnst þar, gæti það vel
verið nokkurs konar frum-
stæð mynd þess sem við
þekkjum hér á jörðu.
Þess vegna er staðfesting
á tilvist allra fjögurra lifefn-
anna á Mars mikilvæg.
Sú spurning er nú knýandi
hvort þessi fjögur efni geta
hafa haft, á einhverjum
tima, myndað lif, likt og
hlýtur að hafa gerzt á jörð-
inni.
Sumir visindamenn telja
að það litla köfnunarefni sem
finnst i andrúmslofti Mars
(rétt um þrir af hundraði)
geti verið leifar mun þykk-
ara andrúmslofts, sem ein-
hverntima hefði svo losnaö
frá plánetunni eða eyðzt, og
þá um leið eytt lifi á henni.
Þegar Viking-ferjan tekur
til við rannsóknir á jarðvegi
plánetunnar, gætu svör við
slikum spurningum komiö i
ljós. ,
Vörubíladekk
•J
KAFFID
frá Brasiltu
Reuter, Beirút. — Sendinefnd
Palestinumanna fór I gær til
Damaskus, stuttu eftir að hér-
menn úr friðargæzluher Araba-
bandalagsins flutti sig til stöðva
meöfram vegi þeim sem tengir
yfirráðasvæði hægri-manna og
vinstri-manna i Beirút.
Hermenn Saudi-Arabiu úr frið-
argæzluhernum, með hvita
hjálma sem aðgreiningatákn frá
öðrum vopnuðum sveitum i
Beirút, fengu yfir sig mikla
sprengjuhriö þegar þeir nálguð-
ust veg þennan.
Enginn hermannanna meidd-
ist, en einn borgari lét lifið og
fjórtán særðust i sprengjuhriðinni
nálægt Barbir-sjúkrahúsinu i
Beirút.
Um miðjan dag I gær bárust svo
fregnir af þvi, að hverfið væri ról-
egt að nýju og umferð meiri um
veginn milli ýfirráðasvæðanna.
Fimm manna sendinefnd Pal-
estinuaraba hélt I gær til Dam-
askus til viðræðna við forseta
Sýrlands Hafez al-Assad.
Sagðist forsvarsmaður sendi-
nefndarinnar vonast til þess að
för hennar gæti greitt leiðina til
friðar i Libanon.
Sýrlandsforseti hélt á þriðju-
dagskvöld ræðu þar sem hann
sakaði Palestinumenn um að
brjóta loforö sin hvað eftir annað,
og standa ekki við gerða samn-
inga. Talið er að orð forsvars-
manns Palestinusendinefndar-
innar hafi verið viðbrögð við
þeirri ræðu, en hann sagði að
Frelsishreyfing Palestinu (PLO)
hefði ákveðið að stiga tiltekin
skref, i þeirri von að það mætti
greiða fyrir friðarmöguleikum i
Libanon.
Stærö 1100-20/ 14PR
KR.
57.600 - ■
Stærö 1000-20/16PR
KR.
47.980
AMEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST
Auk þess eigum við fyrirliggjandi stærðirnar:
1000 - 20 900 - 20 825 - 20 í bæði fram- og afturhjólamynstrum
Góðir greiðsluskilmálar — eða staðgreiðsluafsláttur.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/F
AUOBREKKU 44 46 SÍMI 42606