Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Laugardagur 14. ágúst 1976 Heyskapurinn: Neyðarástand á Suðurlandi stytti ekki upp fljótlega ASK-Reykjavik. — Þaö er ekki mikiö aö frétta af heyskap á Suöurlandi, annaö en þaö, aö út- litiö fer versnandi meö hverjum deginum, sagöi Halldór Pálsson búnaöarmálastjóri I samtali viö Timann i gær. — Sumir bændur hafa náð miklu upp af heyjum, en þaö eru þeir sem byrjuöu. fyrst aö slá og áttu góöar súr- heysgryfjur. Þessir fáu þurrk- dagar hafa nýzt einstaka manni vel. Þá sagöi Halldór, að fjöldi manns ætti enn mikiö úti af heyjum og mikiö væri ennþá af óslegnum túnum. Gras á þeim er mikið vaxið úr sér og fariö að tréna. — Ef færi aö þorna þá gæti heyfengur orðið mikill þrátt fyr- ir þetta allt saman, en stytti ekki upp fljótlega stefnir i al- gjört neyðarástand, sagði Halldór. En það er eitt sem vist er, að heyin verða mjög vond hjá fjölda bænda. Annars má segja, að það sé vont heyskap- ' arástand vestan við Mýrdals- sand og vestan við fjallgarðinn milli Eyjafjarðar og Skaga- fjarðar, en ástandið er verst hérna á Suðvesturhorninu. Að lokum sagði Halldór, að hann vildi hvetja alla bændur til að heyja eins mikið og kostur er, þvi að hey væru alltaf peningar. Máli sinu til sönnunar benti Halldór á, að þegar væru farnar að berast fyrirspurnir frá meg- inlandi Evrópu varðandi hey- kaup, en eins og kunnugt er af fréttum þá hafa þurrkarnir þar gersamlega komið i veg fyrir að nokkuð hafi náðst af heyjum. Fyrirspurnir um heykaup berast frá meginlandi Evrópu en þurrkar þar hafa komið í veg fyrir allan heyskap BIRGIR KJARAN LÁTINN FJ-Reykjavik. — Birgir Kjaran, fyrrverandi alþingismaöur, er látinn, sextugur að aldri. Birgir Kjaran var fæddur 13. júni 1916 i Reykjavik sonur hjón- anna Magnúsar Kjarans stór- kaupmanns og Soffiu Kjaran. Hann varð stúdent frá M.R. lauk hagfræðiprófi frá háskólanum i Kiel 1938 og stundaði framhalds- náð i grein sinni i London og Paris. Birgir Kjaran átti sæti i mörg- um stjórnum og ráðum. Alþingis- maður Reykvikinga var hann 1959-’63 og 1967-’71 og hann sat i bæjarstjórn Reykjavikur á ár- unum 1950-’54. Birgir Kjaran var áhugamaður um iþróttamál og náttúruvernd og liggja eftir hann bækur um sið- artalda efnið. Eftirlifandi kona hans er Svein- björg Helga Sophusdóttir. Birgir Kjaran. DilAIAIAn BRdUT Ikeifunni 11 Samið um 40% kauphækkun við verkfræðinga borgarinnar — samninganefnd borgarinnar klofnaði -hs-Rvik. Fulltrúar Sjálfstæöis- flokksins i samninganefnd gengu i fyrrinótt frá samningum viö verkfræöinga Reykja vikurborg- ar, sem fela I sér hvorki meira né minna en 40% — fjörutíu af hundraði — launa hækkun. Kristján Benediktsson, fulltrúi Framsóknarflokksins i nefndinni og Sigurjón Pétursson fulltrúi Al- þýðubandalagsins, treystu sér hins vegar ekki til að mæla með svo mikilli hækkun. Það voru þvi þeir Markús Orn Antonsson og Albert Guðmundsson sem skrif- uðu undir þessa kauphækkun. Deilan við verkfræðingana hef- ur staðið i um tvo mánuði. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki fundar verkfræðinganna og borgarráðs, en nái þeir fram að ganga, fá verkfræöingarnir þessa launahækkun frá 1. marz s.l. Drengurinn kominn fram KS-Akureyri. — Pilturinn sem Akureyrarlögreglan lýsti eftir, kom á heimili bróður sins á Akureyri i gær. Hann var heill á húfi, en gaf engar skýringar á fjarveru sinni. veiðihornið Allgóð veiði i Miðfjarð- ará — Laxveiðin hefur gengið hér allvel, nú eru komnir á land tæp- lega 1200laxar og er sá þyngsú 22 pund, sagði Gunnar Guðjónsson matreiðslumaður i veiðihúsinu við Miðfjarðará i samtali við Veiðihornið i gær. — Ain er mikil og mórauð, og þessa stundina er hún erfið viðureignar. Gunnar sagði, að mest hefði veiðst 155 laxar eftir þrjá daga, enréttuppúr helginni fengust 140 stykki, — einnig áþremur dögum. A siðastliönu ári varð heildar- veiðin 1414 laxar og var meöal- þyngd þeirra 8,5 pund. Hins vegar var heildarveiðin 1974 að- eins 837 laxar. Veiötimabilinu lýkur 31. ágúst. Laxá i Aðaldal — Það voru komnir 1005 laxar á land i gærkvöldi, sagöi Helga Halldórsdóttir ráðskona i veiöi- húsinu við Laxái Aðaldali gær. — Ain er ekki góö vegna leysinga og einnig er hvasst. Helga saöi, aö laxinn væri yfir- leitt stærri nú i sumar en oft áður, og það hefði komið fyrir, aö veiöi- menn sneru til baka með mjög góðan afla. Hún sagöi, að einn Akureyringur hefði veitt I ánni i þrjá daga og fengið samtals 33 laxa. Þá var annar með 23 eftir jafnlangan tima. Um sama leyti á s.l. ári voru komnir á land um 1200 laxar. Þyngsti laxinn var þá 28 pund en er núna 21 pund. Góð veiði i Hofsá — Veiði hefur gengið ágætlega, i gær voru komnir á land 770 laxar. Hér hefur veriö hvasst og stundum hefur veiðimönnunum reynzt erfitt að athafna sig, sagði Sólveig Einarsdóttir, Teigi, igær. — Ain er mjög vatnslitil og ég man ekki eftir henni jafn litilli. Sá þyngsti, sem dreginn hefúr verið á land nú, er 18 pund, en Sólveig sagði það hafa komið áöur fyrir, að aUt upo i 26 nnnHa laxar hafi veiðzt. Þá sagði hún einnig, að laxinn virtist yfirleitt vera smærri en áður, a.mJc. veiddist meira af þeim smærri. Nú eru Englendingar að veiða i ánni og nota þeir mest flugu. Islendingar fá að veiða i ánni nokkrar helgar, en annars halda þeir sig aðaUega á silungasvæö- inu. Nokkru fyrr i ágústmánuði s.l. ár var heUdarveiöin sam- kvæmt bókum veiðihornsins tæp- lega 600 laxar. Sifellt meir af smáum laxi i Selá — Við höfum aUtaf lagt á það áherzlu að fá seiði stórvaxinna laxategunda, en þrátt fyrir þaö veiðist hér mikið af 5 til 6 punda laxi. Við viljum ekki trúa öðru en þvi, að 2ja ára lax hafi einhverra hluta vegna horfið, sagði Þor- steinn Þorsteinsson Núpum, i gær. Heildarveiðin er 440 laxar, en samkvæmt bókum veiðUiomsins, þá var hún á svipuðum tima i fyrra rétt um 300 laxar. I Sélá er hámarksveiði 7 laxar á stöng á dag, þannig að ekki er að búast við stórum tölum, sagði Þor- steinn. Frá 20. júU hefur verið veitt á sex stangir i Selá, en áður var veitt á 3 til 5 stangir á dag. Þyngsti laxinn sem veiðzthefur i sumar reyndist vera 20 pund. — Hér hafa annars verið þurrkar og hlýindi i um hálfan mánuð og það er litið vatn i ánni, sagði Þorsteinn, — Selá er berg- vatnsá og þvi fljót að hitna en það hefur þau áhrif að laxinn gefur sig minna en ella. Fnjóská: upp eru að koma steinar og björg sem ekki hafa sést áður — Það er reytingur I ánni, núna eru komnir um 170 laxar á land, sagði Gunnar Arnason á Akur- eyri. — Nú er að ganga i ána smærri lax, en fyrr I sumar var ágæt meöalþyngd eða milli 7 og 9 pund. Gunnar sagði Fnjóská vera mjög vatnslitla, en hún er berg- vatnsá eins og Selá. Nú eru aö koma upp steinar og björg, sem Gunnar sagði hafa verið óþekkt áður, en þaö eru engar stórfannir sem halda henni við yfir sumarið eins og gerist með Eyjafjarðará og Hörgá. Meðalþungi laxa i Fnjóská var s.l. sumar 8,6 pund og veiddust þá 268 laxar. ASK.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.