Tíminn - 28.08.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.08.1976, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Laugardagur 28. ágúst 1976 Laugardagur 28. ágúst 1976 TÍMINN 9 Lisfasafnið fær aukið svigrúm til listaverka- kaupa SJ-Reykjavík. Listasafn Islands hefur nýlega birt starfsáætlun slna fram aö áramótum. Fyrir- lestra- og fræösluhópastarfsemi veröur aukin, og þarf aö tilkynna þátttöku i fræösluhópunum fyrir Dr. Selma Jónsdóttir forstööu- maöur Listasafns tslands i þvi herbergi I safninu, þar sem nú eru sýnd verk eftir erlenda lista- menn. Hún slendur viö höggmynd eftir Danann Robert Jacobsen, en til stendur aö efna til sýningar á verkum hans á næstunni I safn- inu. jmm 1. september. Þá veröa kvik- myndasýningar um erlenda myndlist tvisvar I mánuöi. Auk sýninga á Islenzkum og erlendum verkum I eigu safnsins, veröur innan skamms haldin yfirlitssýn- ing á verkum Finns Jónssonar listmálara, sem fæddist 1892 á Strýtu viö Hamarsfjörö og býr nú I Reykjavik. Aösókn aö Listasafni íslands A þessu likani sést hvernig list- safnshúsiö kemur til meö aö lita út og afstaöa þess til næstu húsa. Þar sést einnig nýbygging viö Kvennaskólann, sem þegar er byrjaö aö smiöa. Þar sem þakiö er lægst veröur höggmynda- garöurinn. I KM Wm M hefur fariö vaxandi. Um siöustu mánaöamót höföu 25.000 gestir sótt safniö heim á þessu ári, en aösóknin allt siöasta ár var um 30.000.1 sumar er Listasafniö opiö alla daga vikunnar kl. 13.30-16.00. A öörum árstlmum er safniö opiö fjóra daga I viku kl. 13.30-16.00. Fjárveiting til kaupa á lista- verkum handa Listasafni Islands var stóraukin á þessu ári eöa Ur 1.200 þúsund krónum I 4.750 Yfir 25.000 gestir hafa skoöaö Listasafniöá þessu ári. Hér skoöa feröamenn kort meö eftir- prentunum af verkum Islenzkra listamanna, sem safniö selur vægu veröi. Fyrirlestra og træðslu- starfsemi aukin þúsund kr. Þegar hefur listráö safnsins keypt 18 listaverk eftir starfandi listamenn Islenzka og auk þeirra tvo erlenda, Danann Jens Urup Jensen og grænlenzku grafiklistakonuna Aka Höegh. Listasafn Islands á um 4000 listaverk eftir innlenda og er- lenda listamenn. Þar af eru 2000 verk eftir Gunnlaug Scheving, sem hann gaf safninu eftir sinn dag, og kom I eigu þess fyrir fáum árum. Þar er um stórmerka gjöf aö ræöa. Mest er af vatnslita- myndum, en einnig nokkur oliu- málverk. I gjöfinni voru einnig smábækur og skissur, sem sýna vel hvernig verk Gunnlaugs uröu til og hefur þegar veriö haldin sýning I Listasafninu, sem sýndi þetta vel. Safninu hafa oft borizt ómetan- legar gjafir, Skemmst er aö minnast fimm þjóöllfsmynda eftir Gunnlaug Scheving, sem Guörún Hvannberg og synir hennar gáfu safninu. Ennfremur gáfu Gunnar Stefánsson stór- kaupmaöur, Sesselja Stefánsdótt- ir og Guöriöur Stefánsdóttir Green safninu listaverk eftir Kjarval, Finn Jónsson og fleiri. Gunnar gaf safninu einnig eftir sinn dag hálfa húseign viö Sóleyjargötu og húseignina Austurstræti 12, sem síöar var skipt á og Frikirkjuvegi 7, gömlu Heröubreiö. Ætlunin er aö áriö 1979 þegar Listasafniö veröur 95 ára komist þaö loks I eigiö húsnæöi viö Fri- kirkjuveg. Framhliö frystihúss- ins gamla veröur látin halda sér en byggt viö húsiö Laufásvegs- megin. Þegar hafa veriö settir vinnupallar viö gamla húsiö, sem oröiö er mjög vatnssósa eftir aö hafa staöiö opiö um árabil. Ætlunin er aö koma á þaö þaki I haust. Garöar Halldórsson hefur gert teikningar aö Listasafninu nýja og veröur þaö mjög nútlma- legt. M.a. veröur þar högg- myndagaröur á þaki. Kaffistofa I Nú á loks aö setja nýtt þak á Heröubreiö, gamla frystihúsið, sem Listasafniö á. Veröur safnið loks komiö I sitt eigiö húsnæöi á 95 ára afmælinu 1979? Sýningasalir og slöast en ekki slzt fullkomnar listaverkageymslur, en fyrir þær hefur safniö brýna þörf. Um þessar mundir er sumar- sýning I Listasafninu I Þjóö- minjasafnshúsinu. M.a. eru þar allar nýkeyptar myndir og lista- verk, sem safnið á. 1 einum sal eru verk eftir erlenda listamenn, m.a. tvær höggmyndir eftir fræg- an danskan listamann Robert Jacobsen, sem safniö eignaðist nýlega eftir hann ásamt nokkrum graflkmyndum og teikningum. Safnráö hefur ákveöiö aö hafa sýningu á verkum þessa þekkta listamanns hér og verður hún e.t.v. næsta vor. FræðSlustarfsemi Listasafns Islands veröur meö þessum hætti I haust: 1 september flytur Hrafnhildur Schram fyrirlestur um Ninu Tryggvadóttur. ólafur Kvaran flytur fyrirlestur um September hópinn 1947-1952 mánuöi slöar og I nóvember flytur Guöbjörg Kristjánsdóttir fyrirlestur um Is- lenzku teiknibókina I Arnasafni. Fræðsluhópar I listsögu veröa þessir: 1. Myndlist á 20. öld. 2 hópar, umsj. Ólafur Kvaran 15. sept.-15. okt. 2. tslenzk myndlist á 20. öld, umsj. Ólafur Kvaran 15. okt.-15. nóv. 3. Húsageröalist á 20. öld, umsj. Hrafn Hallgrlmsson, 15. okt.-15. nóv. Höggmyndalist á 20. öld, umsj. Júlíana Gottskálksdóttir 15. nóv,- 15. des. 5. Ný viðhorf I myndlist frá ca. 1960, umsj. ólafur Kvaran, 15. nóv.-15. des. Hver hópur mun hittast fjórum sinnum, tvo tlma I hvert sinn. 1 hverjum hópi verða 15-20 og verö- ur þátttökugjald kr. 800. Þátttaka I fræösluhópanna tilkynníst fyrir 1. sept. til Listasafns Islands. ♦ Þaö er gott aö koma inn ur rigningunni og viröa fyrir sér listaverkin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.