Tíminn - 28.08.1976, Page 2

Tíminn - 28.08.1976, Page 2
2 TÍMINN * Laugardagur 28. ágúst 1976 Vegagerð í Vesturlandsumdæmi: LOKIÐ HEFUR VERIÐ VIÐ 60-70% AF ÁÆTLUNINNI ASK-Reykjavik. Það.semer ef til vill með stærstu málunum hjá okkur, er að viðhaidsfé er alitof litiö, — sagöi Birgir Guðmunds- son, verkfræðingur hjá Vegagerö rikisins i Borgarnesi, er blaðið ræddi við hann i gær. — Sem dæmi get ég nefnt, aö veröi veðurlag á næstunni svipað og verið hefur að undanförnu, þá verða engir peningar eftir tU veg- hcflunar i lok næsta mánaöar. — Hverjar eru stærstu fram- kvæmdirnar, sem geröar hafa verið —eða ætlunin erað vinna að —■ nú i sumar? — Ef byrjað er í Dölum, þá eru stærstu nýbygg ingarf ram- kvæmdirnar við vegagerð i Klofningsvegi. Viö erum þar aö endurbyggja veginn frá Ballará að Klofningsskaröi, en það er um 4 km. Þessi framkvæmd hefur tafizt nokkuö vegna bleytutiðar, og í augnablikinu er allt stopp, en viö vonumst tU aö ljúka við þessa framkvæmd i haust. — A Snæfellsnesi er fyrstan aö telja Stykkishólmsveg, en i hann fékkst 10 mUljón króna fjárveit- ing. Hversu langt við komumst með hann i haust get ég ekki sagt, en það verður byrjað að vinna við hann af fullum krafti næsta sum- ar. 1 Útnesveg er 6 mUljón króna fjárveiting tU endurbóta á köflum i Breiðavikurhreppi, sem hafa verið slæmir á veturna. Viö endurbætum þar vegakafla, án þess beint að byggja veginn upp. Þar byrjum við i september, en eins og gefur að skilja þá endast þessar mUljónir skammt. Birgir sagði, að nú væri verið að vinna i Staðarsveit viö ný- byggingu á ólafsvikurvegi, hjá Furubrekku. Þar veröur byggð brú, en þessi kafli hefur veriö vegfarendum mUcill trafali á vetrum. A Holtavörðuheiði hefur veriö unnið við vegaframkvæmdir frá þvi i júni, oger gert ráð fyrir að i þá framkvæmd fari 75 milljónir. Verkið hefur gengið sæmilega framan af, en vegna rigninga þá hefur það tekiö lengri tima en eUa. Við Noröurlandsveg I Norður- árdal er unnið við vegalagningu frá HvassafeUi aö Klettastiu, en þaðer 2,5 km vegalengd. Reiknaö er með, aö þeirri franikvæmd verði lokiö I septemberlok. Unnið er viö brúargerð yfir Bjarnar- dalsá og vegagerö i Reykholtsdal, en þangaö fékkst 5 milljón króna fjárveiting. 1 Akranesveg var veitt 49 mUlj- ónum króna, og eru framkvæmd- ir þegar hafnar. Um er að ræöa veg frá Kirkjubraut áieiðis að Berjadalsá. Birgir sagði hugsan- legt, aö vinna hæfist þar af fullum - krafti n.k. mánudag. Samtals var 84 milljónum veitt i vegaframkvæmdir i Vestur- landsumdæmi i þjóð- og lands- brautir, I norð-austurveg var veitt75 milljónum og I hraðbraut- ir 79 milljónum. Þá var veitt 390 millj. til Borgarfjarðarbrúar. MUdu af þessu fjármagni hefur þegar verið eytt I áætlaöar fram- kvæmdir, og taldi Birgir, að lokið hefði verið við 60 til 70% af verk- efnum sumarsins. Þverá — Veiði er frekar róleg, nú eru komnir á land um 1080 laxar, sagði Rikharð Kristjánsson, Guðnabakka i samtali við VEIÐI- HORNIÐ i gær. — Sá þyngstisem kominn er á land vó 26 pund. Þetta var hængur sem Stein- grimurGuðjónsson frá Reykjavik veiddi áToby 18 gramma. Annars er meðalþyngd laxanna á mUli átta og niu pund. Rikharð sagði að áin væri að jafna sig eftir vatnavextina og ef hún lækkaði enn um hálft fet, þá taldi hann ána verða nokkuö góða. Hins vegar þá er áin ekki skoluð þessa stundina. Rikharð sagöi ána hafa verið góöa framan af, en eins og mönnum er kunnugt, þá rigndi nær samfellt I þrjár vikur og veiði spilltist stór- lega. Aðspuröur sagði RUcharð aö engum seiöum hefði veriö sleppt i ána isumar. en það yröi hins veg- ar gert á næsta ári. — Venjan er sú, sagöi Rlkharö, að sleppa seiðum annað hvert ár. Ágæt veiði i Víðidalsá — Héðan er aUt gott að frétta, sagði Daniel Viðarsson, leiðsögu- maður viö Viöidalsá i samtaU viö VEIÐIHORNIÐ. — Það hefur verið mjög góö veiði undanfariö og komnir eru á land 910 laxar. 1 fyrra á svipuðum tima voru lax- arnir rétt rúmlega áttahundruð. Laxinn er dreifður mjög jafnt yfir alla ána og veiðistaðir sem voru Breiðholts- vegurinn MÓL-ReykjavUc. Um þessar mundir er verið að vinna við gerð vegarspotta sem tengir saman efra- og neðra Breiðholtið. Að sögn ólafs Guðmundssonar h já embætti gatnam álastjóra, þá er vegurinn um 800 metra langur og kostnaðurinn er áætlaöur um 60 mUljónir. Vegurinn sem veröur sennilega tekinn i notkun i október, er þó ekki endanieg lausn vandamálsins, þvi aö tengingu niður á Reykjanes- braut vantar. mjög góðir f fyrra eru nú fremur lélegir. Þvi er haldið fram aö botn árinnar hafi breytzt aUmUcið. Daniel sagði að veiðzt hefði einna bezt á maðk, en á nokkrum stöðum væri eingöngu veitt á Toby. Hins vegar þá fékkst stærsti laxinn, 26 punda hængur, á flugu, varð það Amerikani sem var svo heppinn. Stærsti lax sem Frónbúi hefur dregið úr ánni vó á milli 21 og 22 pund. I ánni voru Amerikanar i sumar og sagði Daniel þá eingöngu hafa verið með flugu, en nú undanfariö hafa finnskir veiðimenn veriö þar og þeir hafa veitt tU skiptis á maök og spón. Meö haustdögunum koma tslendingar til veiöa. Finn- arnir skipta ánni i þrjú veiði- svæði, Amerikanarnir i átta, en stangirnar i ánni eru einnig átta talsins. — Bezta veiðin var fyrir skömmu, sagði Danfel, — þegar Finnarnir fengu 40 fiska einn eftirmiðdag, en annars hefúr veiði verið ágæt meirihluta ágústmánaðar. Ekki hef ég séð neinn lúsugan fisk nú nýverið, það mun hafa veriö þann tuttug- asta sem ég sá siöasta lúsuga lax- inn. Laxinn er núna nokkuð smár, ég gæti imyndað mér að meðalþyngdin væri 6 til 7 pund. Laxá i Aðaldal. Siðastliðinn miðvUcudag voru 1255 laxar komnir á land úr Laxá i Aðaidal. A fimmtudag komu a.m.k. sexlaxaráland, þannigað heildarveiðin er nú i dag mjög svipuö og á siöastliönu ári. En samkvæmt bókum VEIÐI- Rdðstefna: Vandamál smásölu- verzlunar í dreifbýli -hs-Rvik. Dagana 1. og 2. septem- ber n.k. verður haldin ráðstefna sem skipulags- og fræðsiudeild Sambandsins stendur að um „Vandamál smásöluverzlunar i dreifbýli”. Ráðstefnan verður haldin að Bifröst I Borgarfirði og hafa um 80 manns tilkynnt væntaniega þátttöku. Að sögn Sigurðar Gils Björgvinssonar hjá skipulags- og fræösludeildinni verða þessi vandamál ræddá breiðum grund- velli, auk þess sem erindi veröa flutt um ákveðin efni. Ráðstefnuna setur Erlendur Einarsson kl 1.30 miövikudaginn 1. september. Þá flytur Axel Gislason, framkvæmdastjóri skipulags- og fræðsludeildar, erindi sem hann kallar: Aöstöðu- munur verzlunar I dreifbýli og þéttbýli. Georg Ólafsson, verö- lagsstjóri, fiytur erindi um fram- tiðarhlutverk verölagsyfirvalda með sérstöku tilliti til hverfis- og dreifbýlisverzlana. Erlendur Einarsson fjallar þá um aðgerðir annarra þjóða til þess að leysa vandamál smásöluverzlunarinn- ar I dreifbýli, og mun það erindi einkum stutt gögnum og upp- lýsingum frá öörum Noröur- löndum. Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri, hefur þvi næst framsögu um vandamál dreif- býlisverzlunar kaupfélaganna en að þvi loknu verða fyrirspurnir til ræðumanna og hópumræður. Seinni dag ráðstefnunnar skýra talsmenn umræðuhópanna frá niðurstööum, Gunnar Guðbjartsson, formaöur Stéttarsambands bænda flytur erindi um álagningarákvöröun sex-manna nefndar, Ólafur Jó- hannesson, viðskiptaráöherra ræðir um viöskiptamál og svarar fyrirspurnum. Siðan veröa al- mennar fyrirspurnir, hópvinna, niðurstöður hópumræðna kynntar, en ráðstefnunni verður slitið kl. 17 fimmtudaginn 2. september. HORNSINS þá var veiðin þann 22. ágúst 1975, 1260 laxar. — Við erum farin að þrá rign- ingu hérna fyrir norðan, sagði Helga ráðskona i veiðihúsinu Laxamýri, — Núna er 20 gráðu hiti og hvöss sunnanátt og eflaust erfitt að athafna sig við ána, sem hiýtur að vera mórauð þessa stundina, en ég hef ekki rætt við þá sem hafa verið aö veiða i morgun. Helga sagöi að það hefði verið reytingsveiöi i ánni undanfariö — eða frá 8 til lOlöxum eftir daginn. 12 stangir eru i ánni. Þá sagði hún að ekki væri jafnmikið um stóra laxa i' sumar og oft áður, en veiði- menn segðu að nokkuð væri þó af þeim i Laxá. Hins vegar hefðu þeir slitið færin oft I sumar og virtust forðast að taka eftir það. í fyrradag veiddust sex laxar, eins og áður var getið, og sagöi Helga þá hafa verið iúsuga. Þá hefur verið reytingur af urriða i ánni, en hann hefur ekki verið sérlega fallegur aö sögn Helgu. Leirvogsá Þann 19. ágúst voru komnir á land úr Leirvogsá samtals 419 laxar, en á sama tima I fyrra voru þeir 574, það var hins vegar metár. Þvi miður var ekki unnt aö fá nýrri tölur um veiði úr Leir- vogsánni, en VEIÐIHORNIÐ mun birta þær strax eftir að þær verða tilbúnar hjá Stangveiðifé- lagi Reykjavikur, sem hefur ána á leigu. Þrjár stangir eru i ánni, og að sögn Friðriks Stefánssonar hjá SVFR þá eru allir dagar uppseld- ir. Sömu sögu má segja um Elliðaárnar. ASK veiðihornið

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.