Tíminn - 04.09.1976, Qupperneq 15
Laugardagur 4. september 1976
TÍMINN
15
flokksstarfið
Austurríki — Vínarborg
r
Nú er hver aö verða slöastur aö tryggja sér miöa I eina af okkar
stórkostlegu feröum til Vinarborgar 5.-12. sept. n.k. Beint flug.
örfá sæti laus. Þeim, sem eiga ósóttar pantanir, er bent á aö
hafa samband viö skrifstofuna strax. Skrifstofan á Rauöárstig 18
er opin frá kl. 9-6, simi 24480.
Orðsending til framsóknarmanna
í Kjósarsýslu
Framsóknarfélag Kjósarsýslu hefur nú náð hagstæðum sámn-
ingum við Samvinnuferðir, sem gefa félagsmönnum kost á
ódýrum feröum til Kanarieyja i vetur, en ferðirnar hefjast i
október. Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson Arnartanga
42 Mosfelissveit simi 66406 á kvöldin.
Vestf jarðakjördæmi
Kjördæmisþing Vestfjaröakjördæmis, hefst I Fagrahvammi I
örlygshöfn, laugardaginn 4. sept. kl. 13.
Happdrætti SUF
Vinningsnúmer i skyndihappdrætti SUF er 596.
Ályktun Læknafélags íslands:
íhugið ábyrgð
ykkar hvað
reykingar snertir
Alþjóðaheilbrigðisstofnun
Sameinuöu þjóöanna birti á
siðasta ári álit sérfræöinga-
nefndar um skaösemi tóbaks-
reykinga. Þar er visaö til margra
rannsókna, er sýna að reykingar
eru mikilvægur orsakaþáttur
lungnakrabba, langvinnra
lungnasjúkdóma, kransæðasjúk-
dóma og æðaþrengsla, auk þess
sem tóbaksreykingar hafa
ýmis önnur heilsuspillandi áhrif.
Rétt þykir að benda á ráð-
leggingar nefndarinnar til heil-
brigðisstétta, sem „ættu aö gera
ser ljóst mikilvægi þeás aö vinna
gegn reykingum meöal annars
með þvi aö reykja ekki”.
Á aöalfundi Læknafélags Is-!
lands 1975 var samþykkt tillaga
frá Bjarna Bjarnasyni, lækni,
sem nú er látinn, en Bjarni var
ötull baráttumaður gegn reyk-
ingum, og einn af forystumönnum
Krabbameinsfélagsins frá
stofnun þess. 1 tillögunni er
skorað á ýmsa aðila, sem geta
haft áhrif með fordæmi sínu, aö
ihuga ábyrgö sina hvaö reykingar
varðar. Stjórn L.í. vill meö bréfi
þessu koma þessari áskorun á
framfæri.
Tillagan hljóðar svo:
„Vegna hins geigvænlega
heilsutjóns, sem tóbaksreykingar
valda, skorar aðalfundur Lækna-
félags íslands á:
— lækna.aö reykja ekki,
— stjórnir og starfsmannaráö
sjúkrahúsa og annarra heil-
brigðisstofnana aö reyna aö
draga úr reykingum starfsfólks á
vinnustað,
— kennara aö reykja ekki i
skólum eöa á umráöasvæði
þeirra,
— foreldraaö ihuga ábyrgðina
gagnvart börnum sinum og
vernda þau gegn reykingahætt-
unni meö þvi aö reykja ekki sjálf.
— stjórnendur og starfsfólk
sjónvarpsins.að hlutast til um aö
þeir, sem þar koma fram reyki
ekki meðan á útsendingu stendur.
Fréttatilkynning frá
Læknafélagi tsiands.
Auglýsið í Tímanum
Hneykslin
hlaðast á
prinsinn
Reuter, Haag. — Lockheed-
hneykslið i Hollandi, sem
þegar hefur sett ljótan blett á
mannorö Bernhards drottn-
ingarmanns þar, þandist enn
út i gær þegar athygli manna
beindist að afhjúpun þess að
prinsinn studdi á sinum tima
mjög tilraunir annarrar
bandariskrar -flugvélaverk-
smiðju i tilraunum hénnar til
þess að ná „vopnasölu aldar
innar”.
Þetta flókna hneykslismál
tók nýja stefnu þegar hol-
len*ka rikisstjórnin, vegna
þrýstins frá þinginu, birti á
fimmtudag skjöl sem sýna
að Bernhard prins hafði eitt
sinn samband við Helmut
Schmidt, kanslara Vestur-
Þýzkalands, þá varnarmála-
ráðherra i rikisstjórninni i
Bonn, til þess að ræða sölu
Northrop flugvélaverk-
smiðjanna á F-17 Cobra
orrustuvélum sinum.
Snemma á árinu 1970 átti
Cobra-vélin i samkeppni við
þrjár aðrar flugvélategund-
ir, um tveggja billjón dollara
samning, sem miðaði að þvi
að endurnýja herflugflota
hollenzka, belgíska, danska
og norska flughersins. Attu
þær að koma i stað F-104
Starfighters-vélanna frá
Lockheed.
Endanlega var ákveðið að
kaupa vélar frá bandarisku
verksmiðjunum General
Dynamics Corporation. Voru
keyptar meir en þrjú hundr-
uð vélar af gerðinni F-16, en
samningur þessi hefur verið
kallaður „vopnasala aldar-
innar”.
Afhjúpanir þess að Bern-
hard drottningarmaður hafi
staðið i sambandi við aðra
bandariska flugvélaverk-
smiðju virðist óhjákvæmi-
lega leiða til endurnýjaðra
krafna frá þingmönnum um
að meira af skjölum, varð-
andi vopnakaupstefnu Hol-
lands undanfarin ár og ára-
tugi, verði birt — og hugsan-
lega að hafin verði nákvæm
rannsókn þingsins i máli
þessu.
íþróttir O
milli leikja, þegar Reynir og
Afturelding þurfa að leika tvo
daga i röð. Reynir og Afturelding
vilja ekki sætta sig við þetta, eins
og skiljanlegt er.
Þessi vinnubrögð stjórnar
K.S.l. eru vægast sagt furðuleg og
keppnin um aukasætið I 2. deild
öll hin einkennilegasta. Það er
greinilega ekki hafður sami
hátturinn á keppninni um 10-unda
sætið i 2. deild og keppninni um
aukasætið i 1. deild. Þar keppa
neðsta liðið i 1. deild og annað lið-
ið I 2. deild um sætið, en aftur á
móti keppa þrjú lið um aukasætið
i 2.deild neðsta liðið i 2. deild, og
lið nr. 2 og 3 i 3. deild — þannig að
það gæti farið svo, að liðið sem
keppti úrslitaleikinn — Aftureld-
ing — i 3. deild komist ekki upp
heldur liðið sem varð I þriðja sæti
i 3. deild -r- Furðulegt!
Þá er það afar einkennilegt að
stjórn K.S.l. skuli velja Eskifjörð,
en þar er malarvöllur, en lið
Reynis og Aftureldingar hafa
leikið og æft á grasvelli i allt sum-
ar. Þá er ekki hægt að bjóða leik-
mönnum þessara félaga upp á
viðunandi dvalarstaö og svefn-
pláss — aðeins svefnpokapláss,
og ekki er vitað hvort dýnur
fyigja.
Já, það er ekki nema von, að
blossi upp reiðar raddir, sem á-
saka K.S.l stjórnina fyrir óeðlileg
vinnubrögð, ef öll vinnubrögð
stjórnarinnar eru i likingu viö
þetta. _ SOS
Spíral-
hitadunkur
óskast, 1,5 ferm. Upp-
lýsingar i síma (91)4-
40-94.
Frönsk stjórnvöld um Kambódíustjórn:
„Neyða þjóðina til órétt-
lætanlegra þjóninga..."
Reuter, Paris. — Stjórnvöld i
Frakklandi hafa sakað stjórn-
völd i Kambódiu um að stjórna
með hrottalegum og hneykslan-
legum aðferðum og neyða
þannig kambódisku þjóðina til
að lifa við það, sem Frakkar
kalla óréttlætanlegar þjáning-
ar.
1 skriflegu svari franska utan-
rikisráðuneytisins við spurn-
ingu, sem borin var fram i
franska þinginu, segir: — Um
meira en eins árs skeið hefur
kambódiska þjóðin orðið að
gangast undir grimmdarlegar
tilraunir...óréttlætanlegar þján-
ingar, sem neytt er upp á ibúa
landsins með hrottaiegum og
hneykslanlegum stjórnunarað-
ferðum rikisstjórnar landsins-.
Þessi yfirlýsing er harðasta
opinbera fordæming, sem
Frakkar hafa beint gegn stjórn-
völdum rauðu Khmeranna i
Kambódiu, en þeir náðu völdun-
um i landinu i sínar hendur I
aprilmánuði árið 1975.
Eftir að gerðar höfðu verið
nokkrar tilraunir til að koma á
sambandi milli Frakklands og
Kambódiu, án þess að það
tækisí, fyrirskipuðu frönsk
stjórnvöld sendinefnd dipló-
mata frá Kambódiu að hætta
störfum sinum i Frakklandi
þann 30, júli siðastliðinn.
Orðsending
til bænda
fró Dróttarvélum h.f.
Varahlutaverzlun okkar verður opin kl.
10-4 i dag og á morgun. Eingöngu verður
hægt að sinna forgangsafgreiðslu vegna
dráttarvéla og heyvinnuvéla.
Góðfúslega hringið i sima 8-63-20.
^Q/tctféo/u^é/a/i/ A/
VARAHLUTAVERSLUN • SUÐURLANDSBRAUT M • RFYKJAVIK • SIMI 86 3J0
Laus staða
Kennarastaða I náttúrufræði við Menntaskólann að
Laugarvatni er laus til umsóknar.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 16. september n.k.
Menntamálaráðuneytið, 1. september 1976.
Hryssa til sölu
Til sölu er hryssa 3. vetra gömul af góðu
kyni og henni fylgir merfolald af góðum
ættum.
Skipti á tömdum fola möguieg. Gott verö ef samið er
strax. Upplýsingar hjá Guðmundi Sverrissyni Stóra
Langadal, Skógarströndum Stykkishólm.
Nýkomnir
varahlutir í:
Singer Vouge 68/70
Toyota 64
Taunus 17M 65 og 69
Benz 219
Peugeot 404
Saab 64
Dodge sendiferðabill
BILA-
PARTA-
SALAN
auglýsir
Willys 46 og 55
Austin Gipsy
Mercedes Benz 50/65
Opel Cadett 67
Plymouth
Belvedera 66
Moskvitch 72
Fiat 125
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10.
Simi 1-13-97.
Sendum um allt land.