Tíminn - 04.09.1976, Page 16
>—"•
Laugardagur 4. september 1976
-
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gaeði
Cuöbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Síöumúla 22
Símar 85694 & 85295
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustia 10 - Sími 1-48-06
BRUÐU
Póst-
sendum'
-vagnar
-kerrur
-rúm
/•ALLAR TEGUNDIR
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
Lárétta
færslu
Einnig: Færibandareimar úr
ryöfriu og galvaniseruöu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON S CO.
— 40088 zr 40098—<
Enn óeirðir í miðborg Höfðaborgar í gær:
Aukin samstaða kynblendinga
og blökkumanna gegn hvítum
Reuter, Höföaborg.— Lögreglan I
Höföaborg beitti i gær haglabyss-
um, táragassprengjum og kylf-
um, til þess aö berja niöur óeiröir
hópa af ungum kynblendingum i
miöborg Höföaborgar.
1 fréttum sem ekki hafa veriö
opinberlega staöfestar, segir aö
einn unglingur hafi látiö lifiö,
þegar lögreglan hóf skothriö úr
haglabyssum, til þess aö stööva
nemendur úr gagnfræöaskóla
þeldökkra I tilraunum þeirra til-
hópgöngu inn i miöborgina.
Þetta var annar dagurinn i röö
sem þessi verzlana- og kaup-
sýslukjarni borgarinnar, sem
stjórnaö er af hvitum mönnum,
breytist i vigvöll, þar sem tára-
gassprengjur liggja sem hráviöi,
innan um brotiö gler og götuvigi.
Þessi siðustu átök vegna kyn-
þáttaaöskilnaöarstefnu stjórn-
valda i Suður-Afriku brutust út i
sama mund og John Vorster for-
sætisráöherra landsins, flaug á-
leiöis til Evrópu, til funda viö
Henry Kissinger, utanrikisráö-
herra Bandarikjanna. Þeir munu
ræða framtíö þeirra landsvæöa I
suöurhluta Afriku sem hvitir
menn stjórna nú.
Samkvæmt óopinberum heim-
ildum hafa fjórar manneskjur nú
látið lifið i Höföaborg og bæjar-
hverfum þeldökkra þar undan-
farna tvo daga. Lögreglan segist
aöeins hafa skotiö til bana tvo
þeldökka I bæjarhverfunum á
fimmtudag.
Óeiröirnar I gær hófust þegar
hundruö þeldökkra unglinga
komu til miöborgarinnar meö
lestum og strætisvögnum, til þess
aö mótmæla kynþáttaaöskilnað-
inum. Nokkrir blökkumenn voru i
hópnum, sem bendir til að nú
komi til ný samstaöa milli þeirra
og kynblendinga, á grundvelli
andstööu þeirra gegn Apartheid.
I Suöur-Afriku búa nú fjórar
milljónir hvitra manna, fimmtán
milljónir blökkumanna og tvær
milljónir tvö hundruö og fimmtiu
þúsund kynblendinga, sem eru til
komnir vegna sambúðar og
hjónabanda hvitra og svartra,
áöur en Apartheid-stefna stjórn-
valda varö.til.
Áður en óeiröir undanfarinna
vikna brutust út höföu kynblend-
ingarnir, sem að jafnaöi hafa þaö
mun betra en blökkumenn, skipaö
sér I flokk meö hvitum.
Ofbeldið i bæjarhverfum
blökkumanna, sem kostaö hefur
meira en tvö hundruö og áttatiu
mannslif á ellefu vikum, hefur þó
leitt til sivaxandi ófriðaröldu
meðal kynblendinga. Hafa mót-
mælaaðgerðir unglinga, til
stuönings blökkumönnum, nú
leitt til bardaga viö lögreglu
hvitra.
Lögreglan réðst I gær þegar I
staö á unglingana, þegar þeir
bjuggu sig undir gönguna til miö-
borgarinnar. Þykk táragasský
sendu unglingana hlaupandi i all-
ar áttir.
Stuttu siöar hópuöust þeir sam-
an að nýju. Lögreglan las þá upp
viðvaranir til þeirra I hátalara —
réðust siöan á þá meö kylfum og
haglabyssuskotum.
Meðal þeirra sem lentu I skot-
hriðinni voru hvitir áhorfendur,
sem neituöu að hlýða þeim fyrir-
skipunum lögreglunnar aö yfir-
gefa svæöiö i og umhverfis
Adderley-stræti, sem er aöalgata
Höfðaborgar.
Táragasskýin, sem voru kæf-
andi þykk, ollu mikilli skelfingu I
vérzlunarhúsnæöi einu. Haft er
eftir einum öryggisveröi þar aö
niu manns hafi misst meðvitund
vegna gassins.
— Þaö var eins og gasklefi,
sagði hann.
Ekki var vitað I gær hversu
margir meiddust I óeiröunum.
Lögreglan setti upp götuvigi á
leiðum þeim sem liggja til miö-
borgarinnar I gær, eftir óstaöfest-
ar fregnir um aö fimm þúsund
Friðurinn úti í Oporto í Portúgal:
Tvær sprengjur sprungu
L ^ __ J _ — Skömmu áður en Eanes forseti
PO I I gðBrOO 0 kom þangað í opinbera heimsókn
Reuter, Oporto. — Tvær
sprengjur sprungu I gær i
Oporto-borg’ i noröurhluta
Portúgal, skömmu áður en
Antonio Ramalho Eanes, forseti
landsins, kom þangaö 1 fýrstu
opinberu ferö sina út fyrir Lissa-
bon, siöan hann var kjörinn for-
seti i júnimánuði.
Talsmaöur hersins i Portúgal
sagöi aö sprengingarnar væru
ögrun frá öfgamönnum til hægri,
en bætti viö, aö ekki væri vitaö
hverjir hefðu staöiö aö þeim.
Onnur sprengjan særöi
manneskju, sem stóö fyrir utan
aöalstöövar sósialistaflokks
Portúgal I héraðinu, en sósialist-
ar sitja nú aö völdum þar. Hin
sprakk viö dyr, sem liggja aö ibúö
Antonio Pires Veloso, yfirmanns
hersins á Oporto-svæöinu.
Þriöja sprengjan, sem fannst
fyrir utan svæöisskrifstofu hins
ihaldssama Miö-demókrataflokks
landsins, var gerö óvirk fimm
minútum áöur en hún átti aö
springa. Sú sprengja vó tvö kiló,
og sagöi lögreglan I gær, aö hún
hefði veriö nógu kraftmikií til
þess aö eyöiieggja bygginguna og
valda þar manntjóni.
Eanes hershöföingisagöi siöar i
gær viö fagnandi mannfjölda i
Oporto: — Viö veröum að binda
endi á þessi smáatvik-.
Hann hélt ihaldssama ræðu yfir
Noröur-Portúgölunum, sem oft
hafa haft áhyggjur af
vinstri-byltingunni I suðurhluta
landsins.
— Lýðræöiö veröur variö af
hörku og það er ekki lengur rúm
fyrir byltingar, af hvaöa tagi,
sem þær eru, sagöi hann i gær.
Lögreglustjórinn 1 Oporto og
fjórtán aðrir voru handteknir i
siöasta mánuöi og færöir til yfir-
heyrslu i tengslum viö sprengju-
öldu, sem þá gekk yfir Oporto.
Sprengingarnar i gær voru hinar
fyrstu siðan þeir voruhandteknir.
Sprengjan, sem sprakk viö ibúö
yfirmanns hersins I Oporto, var
mólótov-kokkteill meö timastill-
ingu. Viö hann voru tengdar tvær
aðrar sprengjur, sem ekki
sprungu.
1 ræðu sinni i Oporto sagöi
Eanes hershöfðingi, aö nú yröi aö
binda endi á ónauðsynlegar deil-
ur, því Portúgal þarfnaöist sam-
lyndis, friöar, stööugleika og ör-
yggis.
Hann varaöi viö endurvakningu
á áróöursaögeröum vinstri
manna, sem hann sagöi, aö brytu
I bága viö grundvallarréttindi
borgara i' landinu og jaðraði viö
efnahagsleg skemmdaverk.
Sföastliöinn þriöjudag gaf
portúgalska rikisstjórnin út viö-
vörun þess efnis, aö hún myndi
beita afli gegn hvers kyns ofbeldi
gegn einstaklingum, stofnunum
og eignum.
Eanes forseti gagnrýndi í gær
þjóönýttan iönaö og byltingarleg-
an óróa, sem valdið hefur ruglingi
i skólum allt upp i háskóla.
Mannfjöldinn tók ræöu hans vel
oghrópaði: — Eanes, vinur, þjóö-
in er meö þér.—
unglingar ætluöu I mótmæla-
göngu þangað.
Ekkert frekar fréttist af þeirri
göngu, en búizt var viö aö lögregl-
an hefði dreift unglingunum I út-
hverfunum.
1 Matiland Ibúöarhverfi kyn-
blendinga beitti lögreglan i gær
táragasi og kylfum til þess að
dreifa nokkrum hundruöum ung-
linga.
Vitni hafa skýrt frá þvi aö ung-
lingar hafi verið dregnir út úr
húsum og barðir meö lögreglu-
kylfum.
Leiðtogi stjórnarandstööunnar
I S-Afriku, Sir de Villiers Graff,
sagöi I gær aö óeiröirnar I Höföa-
borg væru enn eitt merki þess,
aö hlutirnir verða aldrei aftur
samir og jafnir.
Hann sagöi aö Vorster forsætis-
ráöherra heföi verið þögull um
málið og kraföist þess aö hann —
talaði nú, eöa viki til hliöar fyrir
þeim sem geta'talað.
Amerísk
HRÍSGRJÓN
(llhiaim)
RIVER hrisgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm
þau eru, sérstaklega í grauta. RIVIANA býöur nú einnig:
AUNT CAROLINE hrisgrjón, sem eru vitaminrík, drjúg, laus
í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á borði.
SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoöin í poka, tilbúin
í pottinn. RIVER brún hýöishrísgrjón holl og góö.
RJyer
Enrlched Rlce
S KAUPFÉLAGIÐ