Tíminn - 14.09.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.09.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Þriöjudagur 14. september 1976. Gróska í starfi Norræna félagsins: Tvær nýjar félags deildir stofnaðar Veruleg gróska hefur veriö i starfsemi Norræna félagsins á þessu sumri. Tvær nýjar félags- deildir hafa veriö stofnaöar, önn- ur á Fáskrúösfiröi, meö Birgi Stefánsson skólastjóra sem for- mann, en hin á Patreksfiröi, meö Sigurö G. Jónsson lyfsala sem formann. Þá var blásiö nýju lifi i félagsdeildina á Seyöisf iröi og tók Bjarni Þorsteinsson útsölustjóri þar við formennsku. Þaö eins- dæmi geröist á Patreksfiröi, aö næstum 10% ibúa staöarins sátu stofnfundinn og geröust félagar i deildinni, en þaö mun algert norö- urlandamet. Þá undirbjó skrifstofa félagsins dvöl 14 tslendinga, sem dvöldust sem gestir Norræna félagsins i Norrbotten i Sviþjóð við sænsku- nám i Framnaslýðháskóla og við kynnisferðir um Norður-Sviþjóö og viöar. Einnig sá skrifstofan um undirbúning fyrir ferð 17 is- lenzkra kennara er boðnir voru til náms- og kynnisdvalar i Dan- mörku i þrjár vikur. Auk þessa hafa 5 tslendingar sótt námskeið og ráðstefaur i' Svi- þjóð á vegum félagsins með styrk sem er hluti af framlagi sænska rikisins til islenzk-sænskrar menningarstarfsem i, en Norrænu félögin i Sviþjóð og Is- landi sjá um úthlutun þessa fram- lags. A næstunni sækja svo 3 Is- lendingar ráðstefnur i Finnlandi og flytja þar erindi um islenzk málefni. Framkvæmdastjórafundur nor- rænu félaganna var hér i Reykjavik i mai og formanna- og framkvæmdastjórafundur i Fær- eyjum i júli. Það var mikil og á- nægjuleg reynsla að heimsækja Færeyinga eins og fjölmargir ts- lendingar þekkja. Þó hafa Fær- eyjaferðir Norræna félagsins ekki verið eins vel sóttar og vonir stóðu til, en þeir sem fóru eru mjög ánægðir með dvölina á eyjunum og alla fyrirgreiðslu þar, og þeir, sem tóku á móti islenzku gestunum, eru einnig mjög ánægðir með komu islenzku gestanna. Samskipti tslendinga og Féer- eyinga aukast stöðugt. t sumar komstá vinabæjarsamband milli Siglufjarðar og Eiði á Austurey. I þvi tilefni heimsóttu 24 ibúar á Eiði Siglufjörð og voru gestir Norræna félagsins á Siglufirði ásamt fulltrúa frá skrifstofu Norræna félagsins og fulltrúum frá stjórn Norræna félagsins á Ólafsfirði. Night at the Opcra — Queen I’m nearly famous — Cliff Richard Live Bullett — Bob Seger Born to Die — Grand Funk Railroad Slow down World — Donovan The Promise — Mike Pinder Greatest Hits 2 — Diana Ross A.C. goes to Hcll — Alice Cooper Best of B.T.O. — Backman-Turner Overdrive 15 big Ones — Beach Boys Born on Friday — Cleo Laine Night on the Town — Rod Stewart Verst af öilu — Rió Meö sinu nefi — Vilhjálmur Vilhjálmsson Látum sem ekkert C — Halli, Laddi og Gisli Rúnar Allar plötur með Beatles og Wings. VQriiy Kf F//I Heildarloðnuaflinn orðinn rúm 67 þús. tonn: Sigurður RE aflahæstur — mest af aflanum landað á Siglufirði gébé Rvik — t gærdag haföi aö- eins eitt skip tilkynnt loönu- nefnd um afla, Hilmir SU, sem var á leiö til Reykjavikur meö 160 tonn. Rannsóknarskipiö Bjarni Sæmundsson er komiö á loönumiöin út af Horni og I gær- morgun fannst eitthvað af loönu nokkru vestar en skipin hafa haldið sig fram aö þessu. Hins vegar dýpkaöi loönan á sér i gærmorgun en skipin munu hafa ætlaö aö reyna aö kasta á þessa loðnu sl. nótt. Heildarloðnuafl- inn er orðinn rúmlega 67 þúsund lonn. Sigurður RE er langafla- hæstur, þrátt fyrir aö hann hafi misst nokkuð úr, þar sem spil bilaði i skipinu, og þaö hefur veriö I viðgerð siðan um miöja s.l. viku. Af áðurnefndum heildarafla, rúmum 67 þúsund tonnum, hef- ur langmest verið landað á Siglufiröi, eða alls 37.446 tonn- um, þá kemur Bolungarvik með 5.926 tonn, Norðfjörður með 5.700 tonn og Raufarhöfn með 2721 tonn. Um 60% loönuaflans hefur þvi verið landað i rikis- verksmiöjurnar. Alls munu um tiu skip stunda loðnuveiðarnar út af Horni, og er Sigurður RE aflahæstur með alls 8.527 tonn, þá kemur Súlan EA með 4.962 tonn, GIsli Arni RE með 4.701 tonn, Grindvik- ingur GK með 4.537 tonn og Guðmundur RE 3.967 tonn. Aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi í ógúst: Óhagstætt tíðarfar fyrir minni bátana skuttogararnir öfluðu aftur á móti vel gébé Rvik. — Tiöarfar I ágúst var mjög óhagstætt til sjósóknar fyrir alla minni bátana i Vestfiröinga- fjóröungi i ágústmánuði, en stöö- ug vestan- og suðvestanátt var allan mánuöinn. Komust færa- bátarnir ekki á sjó langtimum saman vegna ógæfta, og var afla- fengur þeirra flestra þvi heldur rýr. Afli dragnótabátanna var einnig óvenjulega lélegur af sömu ástæöum. Togararnir voru aftur á móti almennt meö góöan afla og stærri linubátarnir einnig. Nokkrir bátar voru byrjaöir veiö- ar meö þorskanetum i Djúpinu i ágúst og öfluöu sæmilega. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Fiskifélags tslands á tsafirði, voru i ágúst gerðir út 143 bátar til bolfiskveiða frá Vest- fjörðum. 109 bátar stunduðu veið- ar með handfæri, 12 reru með linu. 10 með botnvörpu, 9 með dragnót og 3 með net. Heildaraflinn i mánuðinum var 5.171 lest, en var 5.508 lestir i ágústmánuði i fyrra. Er heildar- aflinn á sumarvertiðinni þá orð- inn 18.971 lest, en var orðinn 17.298 lestir á sama tima i fyrra. Af heildaraflanum i ágúst var afli skuttogaranna 3.333 lestir Er afli skuttogaranna á sumarvertiðinni þá orðinn 11.224 lestir eða 59% af heildaraflanum, sem borizt hefur á íand. Aflinn i hverri verstöð i ágúst er sem hér segir: - 1976 1975 lestir lestir Patreksfjörður 262 517 Tálknafjörður 206 0 Bildudalur 0 198 Þingeyri 374 357 Flateyri 593 214 Suðureyri 338 522 Bolungarvik 858 793 Isafjörður 2.008 2.289 Súðavík 353 253 Hólmavik 161 284 Drangsnes 18 81 Samtals 5.171 5.508 veiðihornið Þá fer að liða að þvi, að lax- veiðitimabilinu sumarið 1976 ljúki. Þegar hefur veiði veriö hætt i nokkrum laxveiðiám, I fleiri ám verður hætt næstu daga og I þeim siðustu um 20. september. Litið er þó enn vitað um lokatölur i þeim ám, sem þegarer hætt að veiöa I, en vonandi berast Veiðimála- stofnun skýrslur og veiöibækur veiöivarða fljótlega, svo aö unnt sé að greina frá þvi. VEIÐI- HORNIÐ mun kappkosta að reyna að skýra frá öllum lokatöl- um um leið og þær berast. Sem kunnugt er, fór laxveiðin i sumar mjög hægt af stað, laxinn gekk óvenju seint, og hafa verið uppi margar getgátur um hverju þar væri um að kenna. Þá var mikið um vatnavexti i mörgum ám fyrri hluta veiðitimabilsins, og hamlaði það einnig mjög veiði. Hins vegar virðist.aðiflestum, ef ekki öllum stærri laxveiöiám, hafi veiðin mjög glæðzt, þegar liða tók á sumarið, og er heildar- veiðin yfir allt sumariö þvi ekki eins slæm og ætlað var i fyrstu. Hjá Veiðimálastofnun fékk VEIÐIHORNIÐ . þær upplýsing- ar, að stangaveiðin væri að visu nokkuö misjöfn I laxveiðiánum, en I stórum dráttum virðist það þó liggja ljóst fyrir, að heildar- laxveiðin á landinu öllu muni koma nokkuð vel út. Þegar tekið er meðaltal veiöi siðastliðinna 10 ára, er ekki ósennilegt, að veiðin I sumar verði vel yfir þvi meðal- lagi, og gæti þvi sumariö komið út sem fimmta bezta laxveiði- sumarið siðan fariö var að gera skýrslur um laxveiðina. Netaveiðin I sumar hefur verið með lakara móti, sérstaklega á vatnasvæði Hvitár I Borgarfirði, sem er eitt mesta netaveiðisvæð- ið. Þar voru, sem kunnugt er mjög mikil flóð i ám og veiði mjög litil viöast hvar, allt að helmingi minni en i fyrrasumar. Netaveið- in I Borgarfirði var afbragðsgóð i fyrra, enda var sumariö 1975 metlaxveiðiár hér á landi, sam- kvæmt upplýsingum Veiðimála- stofnunarinnar. Alls veiddust þá 73.500 laxar og var það 11% betri veiði en árið 1973, sem var mesta veiðiárið hér á landi til þessa. Eins og áður segir, lýkur lax- veiðinni hér á landi n.k. mánu- dag, 20. september, en silungs- veiði I vötnum mun vera leyfð allt til 27. september. VEIÐIHORNIÐ vill beina þeim tilmælum til veiði- varða og annarra, sem samband hefur verið haft við I sumar um veiðifréttir, að láta ekki dragast að skila veiðibókum og skýrslum til Veiðimálastofnunarinnar, þegar veiði iýkur. Siðasti veiðidagur i Viðidalsá 1 dag er siöasti veiöidagurinn i Viðidalsá, en þessa siðustu daga hefur veiði verið nokkuð góð, að sögn Gunnlaugar ráöskonu i veiöihúsinu, og veður með afbrigöum gott við ána. Á hádegi I gær voru samtals 1180 laxar komnir á land úr Viðidalsá, og er þaö meira en heildarveiöin s.l. sumar, sem var 1140 laxar. Þvi er ekki útilokað, að siðasta daginn hafi veiðimönnum tekizt að ná heildartölunni upp I 1200. Laxinn sem fengizt hefur úr ánni i sumar hefur yfirleitt veriö vænn og reyndist sá þyngsti 26 pund. Veitt var á átta stangir. Stangaveiðifélag Reykjavikur Laxveiðinni lauk I Elliðaánum þann 10. september s.l. og varð heildarveiðin alls 1692 laxar, samkvæmt upplýsingum frá Stangaveiðifélagi Reykjavikur. Það er nokkuð minni veiði en I fyrrasumar, en þá varð hún 2.071 lax. Metlaxveiðiárið i Elliðaánum var hins vegar sumarið 1973, en bá veiddust alls 2276 laxar. Hjá Stangaveiðifélagmu fékk VEIÐIHORNIÐ einnig þær upplýsingar, að veiði væri lokið i Norðurá, en þvi miður liggja endanlegar tölur enn ekki fyrir. Þá lýkur veiði I Grimsá þann 15. sept., og i Leirvogsá og Stóru Laxá i Hreppum þann 20. sept., en þessar ár hefur félagið á leigu, svo sem kunnugt er. —gébé—

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.